Fréttablaðið - 26.10.2003, Page 17
SUNNUDAGUR 26. október 2003
Olíurisinn Shell:
Grænt verk-
efni í Katar
VIÐSKIPTI Bresk-hollenski olíuris-
inn Shell undirritaði á dögunum
saming upp á fimm milljarða
dollara við örríkið Katar í Arab-
íu. Shell á samkvæmt samningn-
um að reisa
nýtísku olíu-
hreinistöð en
Katar hyggst
hasla sér völl í
f r a m l e i ð s l u
v i s t v æ n s
fljótandi elds-
neytis.
Í þeim efnum leggur Katar til
jarðgasið, Shell framleiðslutækn-
ina.
Stöðin sem Shell á að reisa
verður sú stærsta sinnar tegund-
ar í heiminum og er sögð verða
„græna byltingin“ í olíugeiran-
um. Þar verður meðal annars
framleidd umhverfisvæn dísil-
olía. Eldsneyti sem framleitt er
úr jarðgasi er mun vistvænna en
hefðbundið bensín og dísilolíur.
Koldíoxíð í útblæstri frá slíkri
framleiðslu hefur hins vegar ver-
ið vandamál en mengunin er
skaðleg fyrir ósonlagið.
Shell segir þetta ekki verða
vandamál í nýju verksmiðjunni í
Katar, koldíoxíð í útblæstri verk-
smiðjunnar verði lítið sem ekk-
ert.
Bygging stöðvarinnar hefst
innan tíðar en ætlunin er að
framleiða 137.000 tunnur af fljót-
andi eldsneyti á dag þegar stöðin
verður komin í fullan rekstur
árið 2011. ■
Búnaðarbankinn
um Össur:
Vandamál
vegna
málaferla
VIÐSKIPTI Í umfjöllun um níu mán-
aða uppgjör Össurar hf. segir
greiningardeild Kaupþings Bún-
aðarbanka að það sem einkenni
uppgjörið séu erfiðar aðstæður í
Bandaríkjunum.
Málaferli við fyrirtækið
Freedom Innovations vegna brota
á fjórum einkaleyfum í gervifóta-
línu hafa kostað fyrirtækið 1,2
milljónir Bandaríkjadala og má
vænta þess að kostnaðurinn verði
á endanum um tvær milljónir
dollara.
Til viðbótar við málaferlin
hefur samkeppni aukist mjög í
Bandaríkjunum. Af þessum
ástæðum segir í hálffimmfrétt-
um Kaupþings Búnaðarbanka að
horfur fyrir afkomu Össurar á
fjórða ársfjórðungi séu ekki góð-
ar. Hins vegar sé markaðurinn
sem Össur starfar á í örum vexti
og því eftir miklu að slægjast. ■