Fréttablaðið - 26.10.2003, Page 18
Hverju myndi það breyta í þínum
huga fyrir Ísland ef Noregur gengi
inn í Evrópusambandið?
„Ekki miklu. EES-samningnum
yrði þó eitthvað að breyta og hugs-
anlega yrði niðurstaðan tvíhliða
samningur milli Íslands og ESB. Í
Noregi beita ESB-sinnar þeirri að-
ferð að segja: „Íslendingar munu
senn ganga í ESB. Þess vegna verð-
um við Norðmenn þegar að sækja
um því að ella lendum við í vand-
ræðum“. Hér á landi er á sama hátt
reynt að hræða landsmenn með yf-
irvofandi aðild Norðmanna. Hvort
tveggja er áróðursbragð. Báðar
þjóðirnar eru þverklofnar í afstöðu
sinni. Norðmenn hafa tvívegis fellt
aðild í þjóðaratkvæði og þriðja til-
raunin verður vafalaust ekki gerð
fyrr en öruggt er talið að svarið
verði jákvætt. Fyrr á þessu ári
mátti greina uppsveiflu til stuðn-
ings norskri aðild en hún var
skammvinn og virðist nú gengin hjá
garði.“
Skiptir stækkun Evrópusam-
bandsins máli fyrir Ísland?
„Ekki stóru máli. Ísland hafði
ágæta viðskiptasamninga við nýju
aðildarríkin og þau vildu helst halda
þeim óbreyttum, meðal annars toll-
frjálsum fiskútflutningi frá Íslandi.
En við ESB-aðild glata þau réttinum
til sjálfstæðra samninga við önnur
ríki. Yfirstjórn ESB hefur hins veg-
ar nýtt sér stóraukin völd sín í mál-
um þeirra til að þrengja að útflutn-
ingi Íslendinga og Norðmanna og
þvinga þá til að greiða miklu hærri
framlög til sjóða ESB en gilti sam-
kvæmt EES-samningnum.“
Fáir og smáir kostir
Hvaða helstu gallar, fyrir Ísland,
fylgja aðild að Evrópusambandinu?
„Það er eðli ESB-aðildar að
ákvörðunarvald flyst á fjölmörgum
sviðum frá aðildarríkjum til Bruss-
el. Yfirráðin yfir fiskimiðunum
utan 12 mílna yrðu í höndum stofn-
ana ESB, sem jafnframt tæki af
okkur réttinn til að semja við önnur
ríki um veiðar á deilistofnum, svo
sem síld, úthafsrækju, loðnu, út-
hafskarfa og kolmunna. Jafnframt
glötum við rétti til sjálfstæðra við-
skiptasamninga, til dæmis við
Bandaríkin, og yrðum að hækka
tolla á ýmsum vörum sem við flytj-
um inn frá ríkjum utan ESB. Við
yrðum vafalaust að fórna eigin
mynt og taka upp evru, sem er
óhagkvæmt vegna þess að hag-
sveiflur á Íslandi eru sjaldnast í
takti við hagþróun á meginlandinu.
Auk þess myndi ESB-aðild leiða til
hærri skatta.“
Hvaða kostir?
„Það verður að segjast eins og er
að kostirnir eru fáir og smáir. Vissu-
lega fengjum við aukinn aðgang að
fundum og ráðstefnum og gætum
betur fylgst með. En stjórnkerfi
ESB er margbrotið og nefndafjöldi
gífurlegur. Það yrði dýrt ef því ætti
að sinna af viti og útheimtir fjöl-
mennan her sendimanna.
Menn ættu ekki að láta blekkja
sig með yfirborðsáróðri um lækk-
aða vexti og „Evrópuverð“ á mat-
vælum. Vextir á Íslandi eru háir
vegna þess að hér er stöðug þensla
og mikil atvinnuþátttaka. Á megin-
landinu er hagvöxtur hægur og
stórfellt atvinnuleysi. Vaxtamunur
íslenskra banka er einnig of mikill
og þjónustugjöld of há. Einu mat-
vörurnar sem lækka við aðild eru
þær sem tollaðar eru til verndar ís-
lenskum landbúnaði. En það er mál
sem við eigum við okkur sjálf.“
Glatað sjálfstæði
Myndir þú vilja aðild ef Ísland
fengi undanþágu í sjávarútvegsmál-
um, frá stofnsáttmála Evrópusam-
bandsins, og þar með full yfirráð yfir
auðlindinni?
„Fischler, sjávarútvegsstjóri
ESB, svaraði því afdráttarlaust í
sumar að við yrðum að ganga að
gildandi reglum ESB í sjávarút-
vegsmálum og gætum ekki haldið
fullum yfirráðum yfir auðlindinni.
Vangaveltur af þessu tagi eru því
draumórar. En jafnvel þótt við
fengjum full yfirráð yfir landhelg-
inni hafna ég aðild vegna þess að
margir aðrir þættir sjálfstæðis
okkar glatast, eins og fyrr var
nefnt.“
Íslenskur sjávarútvegur virðist
standa nokkuð traustum fótum og
hefur meðal annars haslað sér völl
erlendis, þar á meðal í Evrópu. Út-
hafsveiðiskipafloti landsins stækk-
ar á meðan floti annarra Evrópu-
þjóða minnkar. Er ástæða til að hafa
áhyggjur af stöðu íslensks sjávarút-
vegs, ef Ísland gengi inn?
„Svo sannarlega! Úthafsveiði-
flotinn skilar okkur um 30% af
verðmæti aflans sem kemur hér á
land eða sem svarar til 35-40 millj-
arða króna á ári. Við aðild fengi ESB
rétt til að semja fyrir hönd Íslend-
inga um þessar veiðar og myndi
skammta íslenskum útgerðum
kvóta úr þessum fiskistofnum. Við
höfum afar slæma reynslu af sam-
skiptum okkar við ESB á þessu
sviði, samanber ósvífni ESB gagn-
vart Íslendingum varðandi kol-
munnaveiðar.“
Úr öskunni í eldinn
Geta smáríki haft áhrif innan
Evrópusambandsins?
„Hefur einn þingmaður frá af-
skekktri byggð einhver áhrif á Al-
þingi? Jú, að sjálfsögðu hefur hann
einhver áhrif. Miðað við Nice-samn-
inginn fengi Ísland þrjú atkvæði af
345 í valdamestu stofnuninni, ráð-
herraráðinu, og fimm þingmenn af
732 á þinginu. Sem sagt innan við
1% áhrif. Smáþjóð hefur vissulega
einhver áhrif í ESB en þó enga
möguleika til að tryggja að ekki sé
gengið fyrr eða síðar gegn hags-
munum hennar í örlagaríkum mál-
um, eins og til dæmis sjávarútvegs-
málum.“
Hversu miklu máli skiptir það
fyrir þessa þjóð hvort hún er innan
eða utan Evrópusambandsins? Með
öðrum orðum: Er þetta lykilspurs-
mál fyrir framtíð hennar?
„Það er lykilspursmál fyrir Ís-
lendinga á komandi áratugum að
hafa örlög sín í eigin hendi, að svo
miklu leyti sem þeir geta það. Ekk-
ert knýr á um aðild.“
Því hefur verið haldið fram að
EES-samningurinn hafi þegar haft
það mikil áhrif á fullveldi landsins,
að það sé betra að fara inn í ESB úr
því sem komið er. Hver er þín skoð-
un á þessu?
„Það er rétt að með EES-samn-
ingnum tókum við á okkur þá kvöð
að hafa sams konar reglur um við-
skipti og vöruframleiðslu eins og
ESB. Við höfum tekið við þúsundum
tilskipana á þessu afmarkaða sviði.
Með ESB-aðild færum við hins veg-
ar úr öskunni í eldinn því að þá
fengi yfirstjórn ESB úrslitavald á
miklu víðtækara sviði. Lög ESB
verða sjálfkrafa lög í aðildarríkjum.
En það á ekki við um löggjöf sem
berst til okkar gegnum EES. Við
höfum rétt til að neita að lögfesta
þau ef við teljum að lífshagsmunir
okkar séu í húfi. EES-aðild er allt
annars eðlis en ESB-aðild og hefur
miklu minni áhættu í för með sér.“
ESB er ekki Evrópa
Er hægt að komast að því hvort
Ísland eigi erindi í Evrópusamband-
ið öðruvísi en að sækja um og efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu um mál-
ið?
„Forystumenn ESB hafa marg-
sinnis upplýst hvað við yrðum að
sætta okkur við ef til aðildar kæmi.
Að sjálfsögðu mætti kanna það
frekar. Hins vegar ættum við ekki
að hefja formlegar aðildarviðræður
nema meirihluti þjóðarinnar vilji
það ótvírætt. Það er afar óhagstætt
fyrir samskipti Íslands og ESB að
semja um aðild sem síðan yrði felld
í þjóðaratkvæði. Því fylgir vond
samningsaðstaða í framhaldinu eins
og Norðmenn fengu að reyna, eftir
að þeir höfnuðu aðild sem þeir
sömdu um en þeir hafa síðan búið
við verri samninga við ESB en við.“
Hvernig sérðu fyrir þér framtíð
Íslands í sambúðinni við Evrópu?
Hvert er hið varanlega fyrirkomu-
lag?
„ESB er ekki Evrópa. Og mark-
aðssvæði íslensks útflutnings er
margfalt stærra en ESB. Hið varan-
lega fyrirkomulag felst í því að Ís-
land afsali ekki fullveldisréttindum
sínum heldur varðveiti frelsi sitt til
viðskipta í austur, suður og vestur
utan við tollmúra ESB. Sjálfstæðið
hefur gert Íslendingum kleift að
bregðast við sérhverjum vanda út
frá eigin aðstæðum. Þess vegna
hefur okkur vegnað betur en þjóð-
unum í ESB-ríkjunum. Við vitum
hvað við höfum en ekki hvað við
hreppum.“
kolla@frettabladid.is
18 26. október 2003 SUNNUDAGUR
Rökræður um hvort Ísland eigi að ganga inn í Evrópusam
Nú síðast hefur hugsanleg aðild Norðmanna blásið lífi í
fylgismann aðildar, Eirík Bergmann Einarsson, stjórnmá
Ragnar Arnalds, formann Heimssýnar og einn mesta and
þeirra eru eins ó
Ekkert knýr
á um aðild
RAGNAR ARNALDS
„Það verður að segjast eins og er að kostirnir eru
fáir og smáir. Vissulega fengjum við aukinn aðgang
að fundum og ráðstefnum og gætum betur fylgst
með. En stjórnkerfi ESB er margbrotið og nefnda-
fjöldi gífurlegur. Það yrði dýrt ef því ætti að sinna af
viti og útheimtir fjölmennan her sendimanna.“
mót
i
Menn ættu ekki að
láta blekkja sig með
yfirborðsáróðri um lækkaða
vexti og „Evrópuverð“ á mat-
vælum. Vextir á Íslandi eru
háir vegna þess að hér er
stöðug þensla og mikil at-
vinnuþátttaka. Á meginland-
inu er hagvöxtur hægur og
stórfellt atvinnuleysi. Vaxta-
munur íslenskra banka er
einnig of mikill og þjónustu-
gjöld of há. Einu matvörurn-
ar sem lækka við aðild eru
þær sem tollaðar eru til
verndar íslenskum landbún-
aði. En það er mál sem við
eigum við okkur sjálf.
,,Kaupum!
- peningar í boði fyrir
silfurmuni, postulín, kristal, gler,
skartgripi, útskorna muni, kistur
og koparhluti. Gamlar dósir,
bækur, frímerki, ljósmyndir og
póstkort. Ljósakrónur, málverk og
eldri húsgögn.
Antikbúðin Laugaveg 101
867 5117 og 552 8222
––––––––––––––––––
Geymið auglýsinguna!