Fréttablaðið - 26.10.2003, Side 38
38 26. október 2003 SUNNUDGAGUR
KOMIN Í ÚRSLIT
Japanska stúlkan Ai Sugiyama fagnaði
innilega sigri sínum á Vera Zvonareva frá
Rússlandi í undanúrslitum á opna WTA-
tennismótinu sem fer fram í Linz í Austur-
ríki. Sugiyama vann leikinn í þremur sett-
um: 6:3, 3:6 og 6:4.
Tennis
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Skipuleggjend-
ur Ólympíuleikanna í Aþenu
hafa verið hvattir til að herða
róðurinn ætli þeir sér að hafa
allt tilbúið fyrir opnunarathöfn-
ina sem haldin verður þann 13.
ágúst á næsta ári.
Fulltrúar frá Alþjóðaólympíu-
nefndinni luku nýverið þriggja
daga eftirlitsferð um íþróttaleik-
vanga borgarinnar og þá staði
sem verða notaðir á leikunum.
Eftir að Grikkir tryggðu sér
réttinn til að halda Ólympíuleik-
ana árið 1997 gerðu yfirvöld þar
í landi lítið sem ekkert til undir-
búnings fyrst um sinn. Nú er svo
komið að starfsmenn þurfa að
vinna allan sólarhringin fram að
leikunum til að allt verði tilbúið í
tæka tíð.
Fulltrúar Ólympíunefndar-
innar hafa áhyggjur af því sem
kynni að gerast ef eitthvað fer
úrskeiðis í undirbúningnum.
Engur að síður telja þeir að
skipuleggjendur leikanna hafi
það sem til þurfi til að ljúka
verkinu í tæka tíð. ■
Veðjað á
Rooney
Unglingurinn Wayne Rooney átti afmæli
í fyrradag. Hægt að veðja um næstu skref
Rooneys, sem þykir heldur skapbráður.
FÓTBOLTI Wayne Rooney, unglingur-
inn í liði Everton og enski lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu, fagn-
aði í fyrradag átján ára afmæli
sínu.
Frægðarsól Rooney hefur risið
hratt síðan hann lék sinn fyrsta úr-
valsdeildarleik með Everton og er
hann orðinn einn vinsælasti knatt-
spyrnumaður Bretlandseyja.
David Moyes, knattspyrnustjóri
Everton, telur að frægðarsól
Rooneys hafi risið hraðar en góðu
hófi gegni. Moyes lýsti því meðal
annars yfir að afmælisbarnið hefði
aðeins átt einn góðan leik á tímabil-
inu og kennir um lélegu leikformi
sem megi rekja til stjörnulífsstíls-
ins sem hann hafi tileinkað sér.
„Wayne hefur klifið hátt á stutt-
um tíma. Það er mikilvægt að hann
gleymi ekki rótum sínum, gildum
og ástæðu þess að hann hefur náð
svona langt,“ sagði Moyes.
Þrátt fyrir stuttan tíma meðal
þeirra bestu í knattspyrnunni hef-
ur Rooney verið eitt af eftirlætis-
viðfangsefnum bresku slúðurblað-
anna. Hann hefur meðal annars átt
í ástarsambandi við söngkonu úr
hljómsveitinni og Atomic Kitten.
Sú saga hefur líka flogið fjöllum
hærra að hann ætli að syngja inn á
plötu með Robbie Williams, einum
vinsælasta söngvara Englands.
Í breskum veðbönkum er nú
hægt að veðja á hvað unglingurinn
afreki áður enn hann nær nítján
ára aldri. Líkurnar á því að hann
semji við Chelsea innan árs eru
taldar einn á móti tveimur, einn á
móti þremur að hann semji við
Real Madrid, einn á móti 33 að
hann giftist poppstjörnu og einn á
móti hundrað að hann komi lagi á
toppinn á breskum vinsældalist-
um.
Rooney kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti inn í ensku úrvals-
deildina í fyrra þegar hann skoraði
stórglæsilegt mark gegn Arsenal
og batt enda á 30 leikja sigurgöngu
þáverandi Englandsmeistara. Í
kjölfarið var Rooney valinn í
enska landsliðið og hefur slegið
hvert metið af fætur öðru, þar á
meðal yngsti leikmaðurinn til að
leika fyrir Englands hönd.
Það efast enginn um hæfileika
Rooney. Hann hefur hins vegar
þótt heldur skapbráður á vellin-
um og er nýbúinn að taka út leik-
bann. Graeme Sharp, talsmaður
stuðningsmannaklúbbs Everton,
telur ólíkt Moyes að Rooney hafi
tekið frægðinni vel. Spurður um
skapofsann sagði Sharp: „Hann
er bara strákur sem er enn að
læra“. ■
Íslenska kvennalandsliðið:
Naumt tap
gegn Slóvakíu
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í handknattleik tapaði naum-
lega fyrir Slóvakíu 32:30 á æf-
ingamóti í Póllandi í gær.
Þetta var hörkuleikur tveggja
áþekkra liða sem skiptust á að
leiða en þó var staðan í hálfleik
16:14 fyrir Slóvakíu. Seinni hálf-
leikurinn var í járnum allt fram á
síðustu mínútu er andstæðingun-
um tókst að knýja fram tveggja
marka sigur.
Hrafnhildur Skúladóttir var
markahæst í íslenska liðinu með 8
mörk. Berglind Hansdóttir varði 13
skot í markinu. Næsti leikur liðsins
verður gegn Póllandi í dag. ■
KLÚBBUR VESTURBÆJAR
TVEIR FÉLLU Á LYFJAPRÓFI Tveir
knattspyrnumenn á Englandi hafa
fallið á lyfjaprófi á síðustu þrem-
ur mánuðum. Annar þeirra hafði
neytt kókaíns en hinn alsælu. Alls
tóku 272 knattspyrnumenn þátt í
lyfjaprófinu. Enska knattspyrnu-
sambandið hefur ekki viljað gefa
upp hverjir leikmennirnir eru.
ALPAY ÁFRAM Á ENGLANDI?
Tyrkneski landsliðmaðurinn
Alpay hefur ekki útilokað að
leika áfram í ensku úrvalsdeild-
inni. Alpay var leystur undan
samningi við Aston Villa á dögun-
um eftir viðskipti sín við David
Beckham í landsleik Tyrklands
og Englands. Hann vill þó helst
komast að í öðru landi og hefur
þegar fengið tilboð frá þýska lið-
inu Hertha Berlin, að sögn um-
boðsmanns hans.
ERIKSSON SKOÐAR CELTIC
Sven-Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englands, er sagður hafa
augastað á tveimur leikmönnum
Celtic, Chris Sutton og Alan
Thompson. Hvorugur þeirra hef-
ur verið í náðinni hjá Eriksson
hingað til.
AP
/M
YN
D
■ Fótbolti
CHAMBERS
Dwain Chambers verður líklega fjarri góði
gamni á Ólympíuleikunum í Grikklandi á
næsta ári. Hann féll nýverið á lyfjaprófi. Lít-
ið má út af bera í undirbúningi Grikkja fyrir
leikana eigi allar tímaáætlanir að standast.
Skipuleggjendur ÓL í Aþenu:
Þurfa að herða róðurinn
AP
/M
YN
D
VEÐMÁL BRESKU VEÐ-
BANKANNA ÁÐUR EN ROONEY
NÆR NÍTJÁN ÁRA ALDRI
1/2 semji við Chelsea
1/3 semji við Real Madrid
1/4 semji við Man. Utd.
1/8 verði markakóngur EM
1/12 semji við Liverpool
1/33 giftist poppstjörnu
1/40 skori sigurmark á EM
1/66 gerist andlit Brylcreem
1/100 komi lagi í toppsæti vinsældarlista
WAYNE ROONEY
Unglingurinn í liði
Everton hefur ekki náð
að sýna sitt rétta andlit
á leiktíðinni og hefur
aðeins skorað eitt mark
í níu leikjum.