Fréttablaðið - 26.10.2003, Side 39
SUNNUDAGUR 26. október 2003
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn
Jody Morris hefur samþykkt að
taka tíu daga leyfi frá enska liðinu
Leeds United í kjölfar þess að hann
var handtekinn öðru sinni á stutt-
um tíma grunaður um nauðgun.
Stjórn félagsins tilkynnti um
leyfi Morris en tók jafnframt
fram að hún vissi ekki um sekt
eða sakleysi leikmannsins.
Morris var handtekinn ásamt
öðrum manni þann 6. október
grunaður um að hafa nauðgað tví-
tugri stúlku. Þá var hann sendur í
tveggja vikna leyfi frá Leeds á
meðan á lögreglurannsókn stóð.
Síðastliðinn þriðjudag var Morris
handtekinn að nýju grunaður um
aðra nauðgun.
Að sögn lögreglunnar í Vestur-
Yorkshire átti atburðurinn sér stað
fyrir nokkru en kom fram í dags-
ljósið við rannsókn á öðru máli.
Morris, sem er 24 ára gamall
miðvallarleikmaður, hefur allan
sinn atvinnumannaferil getið sér
orð fyrir óstýrilæti bæði innan
vallar sem utan. Áður en hann
gekk til liðs við Leeds var hann
leikmaður Chelsea. ■
Jody Morris:
Fer í tíu daga frí
JODY MORRIS
Er farinn í frí frá Leeds. Morris er grunaður
um tvær nauðganir.
KAPPAKSTUR Þriðjungur lands-
manna fylgdist með lokamóti
Formúlu 1 í Japan samkvæmt
nýrri mælingu IMG Gallup, sem
er 35,1% landsmanna. Það er
mesta áhorf sem mælst hefur á
kappaksturinn í Japan frá því
farið var að sýna Formúlu 1 hér-
lendis.
Hlutfallið skiptist þannig að
46% voru karlmenn en 24%
konur. Stærsti áhorfendahópur-
inn var á aldrinum 35-44 ára, eða
44,2%. Á aldrinum 16-24 ára
fylgdust 43% með, í hópnum 25-
34 ára fylgdust 35,8% með jap-
anska kappakstrinum. Í aldurs-
flokknum 45-54 ára var talan
28,8%, og 24,7% hjá 55-75 ára.
Áhorfsdreifing er tiltölulega
jöfn miðað við aðra sjónvarps-
þætti þar sem skarpari skil eru
venjulega milli aldurshópa.
Á næsta ári verða 18 Formúlu
1 mót á dagskrá og hefst tímabil-
ið í byrjun mars. Meðal nýjunga
verður ný útfærsla af tímatöku
þar sem tvær umferðir verða
eknar í stað einnar. Þá verður
ekið á nýjum brautum í Kína og
Barein og Spa í Belgíu verður
aftur á dagskrá. ■
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Victor Conte er í
sviðsljósinu eftir að neysla
íþróttamanna á nýju steralyfi
komst í hámæli. Conte er 53 ára
fyrrum tónlistarmaður sem starf-
aði meðal annars með píanóleikar-
anum Herbie Hancock. Hann náði
á yngri árum ágætum árangri í
hlaupagreinum og fékk fyrir vikið
háskólastyrk hjá Fresno State
University.
Conte stofnaði Bay Area
Laboratory Co-operative (Balco)
fyrir tveimur áratugum. Fyrir-
tækið framleiðir bætiefni og veit-
ir ráðgjöf í notkun þeirra. Frétta-
vefur BBC segir að Balco hafi
rannsakað blóð og þvag íþrótta-
manna og ráðlagt þeim um neyslu
bætiefna sem eiga að vega upp
skort á vítamínum og steinefnum.
Bandaríska lyfjaeftirlitsnefnd-
in (USADA) heldur því fram að
Balco framleiði sterana tetra-
hydrogestrinone (THG) sem
margir bandarískir íþróttamenn
eru grunaðir um að nota. Dwayne
Chambers, Evrópumeistari í 100
metra hlaupi, er meðal þeirra sem
eru grunaðir um að hafa notað
efnið. Þegar Chambers féll á
lyfjaprófi í sumar krafði hann
Conte skýringa á þeim efnum sem
hann fékk hjá Balco. Conte sór að
ekkert þeirra væri á bannlista al-
þjóða frjálsíþróttasambandsins.
Enska dagblaðið The Guardian
segir að þjálfari Chambers sé
Remi Korchemny, fyrrum þjálfari
Valery Borzov, sem sigraði í 100
og 200 metra hlaupi á Ólympíu-
leikunum árið 1972. Korchemny
og Victor Conte reka saman
frjálsíþróttafélagið KMA sem
Chambers keppir fyrir.
Conte hefur áður komist í svið-
ljósið vegna lyfjamála. Hann var
sagður „næringafræðingur“ kúlu-
varparans C.J. Hunter sem féll á
lyfjaprófi fyrir þremur árum.
Þegar rannsókn vegna THG hófst
í sumar sendi Conte fjölmiðlum
bréf þar sem hann þvertók fyrir
að eiga nokkurn hlut að máli. „Að
mínu mati snýst þetta um öfund-
sjúka þjálfara og íþróttamenn
sem allir hafa neytt lyfja til að
bæta árangur sinn og hegða sér
því eins og hræsnarar.“
Fulltrúar USADA, skattayfir-
valda, lyfja- og matvælaeftirlitsins
og eiturlyfjalögregla San Mateo-
héraðs hafa rannsakað skrifstofur
Balco og yfirheyrslur fyrir alríkis-
dómstól eru hafnar. Rannsókn
þessara aðila lýtur að meintum
skattsvikum og peningaþvætti sem
tengjast greiðslum íþróttamanna
fyrir efnin ólöglegu. ■
SCHUMACHER
Bar sigur úr býtum í Formúlunni í ár.
Áhorf á lokamót Formúlu 1:
Þriðjungur fylgdist með
VICTOR CONTE
Foresti Bay Area Laboratory Co-operative er í sviðsljósinu vegna meintrar aðildar að lyfjamisnotkun íþróttamanna.
Balco undir grun
Yfirvöld kanna starfsemi Balco vegna lyfjamáls sem margir fremstu
íþróttamenn Bandaríkjanna eru grunaðir um aðild að. Rannsóknin
lýtur að meintum skattsvikum og peningaþvætti.