Fréttablaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 40
40 26. október 2003 SUNNUDGAGUR
TROÐSLA
Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles
Lakers, treður boltanum í körfuna í æf-
ingaleik gegn Sacramento Kings. Bryant
náði sér ekki á strik í leiknum og skoraði
aðeins 6 stig. Hann hefur lítið sem ekkert
leikið undanfarið eftir að hann var kærður
fyrir nauðgun. Kings vann leikinn 93:87.
Körfubolti
Þýska Bundesligan:
Stuttgart ósigrað
á toppnum
FÓTBOLTI VFB Stuttgart endur-
heimti efsta sæti þýsku Bundeslig-
unnar í fótbolta þegar liðið vann
Wolfsburg 1:0 í gær. Þetta var tí-
undi leikurinn í röð sem Stuttgart
leikur án þess að bíða ósigur.
Grikkinn Ioannis Amanatidis
skoraði sigurmark leiksins á 74.
mínútu eftir að hafa komið inn á
sem varamaður. Stuttgart er nú
tveimur stigum á undan Bayer
Leverkusen, sem er í öðru sæti.
Brasilíumaðurinn Ailton skor-
aði tvö mörk fyrir Werder Bremen,
sem vann Freiburg 4:2. Þar með
komst Bremen í þriðja sæti deild-
arinnar og hefur nú jafn mörg stig
og Leverkusen.
Bayern München, sem er í
fjórða sæti, vann Kaiserslautern
auðveldlega 4:1. Sebastian Deisler
og Hollendingurinn Roy Makaay
skoruðu sín tvö mörkin hvor fyrir
Bayern.
Hertha Berlin, sem hefur átt í
miklum vandræðum upp á síðkast-
ið, vann Hansa Rostock 1:0. Þetta
var fyrsti sigur Hertha á tímabil-
inu. Brasilíumaðurinn Luizao skor-
aði sigurmarkið í fyrri hálfleik.
Þrátt fyrir sigurinn er Huub
Stevens, þjálfari Hertha, enn undir
miklum þrýstingi. Liðið þarf að
vinna Rostock á ný í bikarkeppn-
inni næsta þriðjudag ef hann á að
halda starfi sínu.
Í dag tekur Bayer Leverkusen á
móti Borussia Mönchengladbach
og Íslendingaliðið Bochum mætir
Borussia Dortmund. ■
Fyrsta tapið í 13 mánuði
Manchester United tapaði sínum fyrsta heimaleik í 13 mánuði þegar liðið beið ósigur fyrir
Fulham 1:3. Chelsea komst á toppinn með sigurmarki frá Jimmy Floyd Hasselbaink.
FÓTBOLTI Lee Clark kom Fulham
óvænt yfir gegn United með marki
á þriðju mínútu. Diego Forlan jafn-
aði metin fyrir United undir lok
fyrri hálfleiks en Steed Mal-
branque kom Fulham yfir á 66.
mínútu. Það var síðan hinn jap-
anski Junichi Inamoto sem innsigl-
aði sigur Fulham 13 mínútum síðar.
Þetta var í fyrsta sinn í 39 ár
sem Fulham ber sigurorð af
Manchester United. Þess má geta
að Sir Alex Ferguson, stjóri United,
fylgdist með sínum mönnum úr
stúkunni vegna tveggja leikja
banns.
Chelsea tyllti sér á topp deildar-
innar með 1:0 sigri á Manchester
City. Jimmy Floyd Hasselbaink
skoraði sigurmarkið á 34. mínútu
eftir fyrirgjöf frá Adrian Mutu.
Chelsea lenti undir mikilli pressu í
lokin en náði að standast hana.
Varði Carlo Cudicini m.a. frábær-
lega frá Robbie Fowler. Eiður
Smári Guðjohnsen sat allan tímann
á varamannabekk Chelsea.
Liverpool náði að rétta úr kútn-
um eftir slæmt gengi að undan-
förnu með 3:1 sigri á Leeds.
Michael Owen kom heimamönnum
yfir á 35. mínútu með sínu níunda
marki á leiktíðinni. Alan Smith
jafnaði metin fyrir Leeds undir lok
fyrri hálfleiks. Danny Murphy kom
Liverpool yfir á ný með marki úr
umdeildri aukaspyrnu snemma í
síðari hálfleik og Florent Sinama-
Pongolle skoraði síðan þriðja
markið á 84. mínútu. Þetta var
fyrsta mark hans fyrir Liverpool.
Newcastle heldur áfram sigur-
göngu sinni. Nú vann liðið
Portsmouth með þremur mörkum
gegn engu á heimavelli. Gary
Speed kom Newcastle verðskuldað
yfir á 17. mínútu og fyrirliðinn
Alan Shearer skoraði úr víti tíu
mínútum síðar. Þetta var 230. mark
Shearers í ensku úrvalsdeildinni.
Shola Ameobi bætti loks þriðja
markinu við um miðjan síðari hálf-
leik.
Jóhannes Karl Guðjónsson var í
byrjunarliði Wolves sem vann
Leicester City 4:3 á ótrúlegan hátt
eftir að hafa verið þremur mörkum
undir í hálfleik. Jóhannesi var skipt
út af á 21. mínútu leiksins þegar
staðan var 0:2 fyrir Leicester.
Les Ferdinand skoraði tvö mörk
fyrir Leicester í leiknum og Colin
Cameron setti tvö fyrir Wolves.
Það var Henri Camara sem skoraði
sigurmark Wolves fjórum mínút-
um fyrir leikslok.
Blackburn tapaði fjórða deildar-
leik sínum í röð þegar liðið beið
ósigur fyrir Southampton 2:0.
James Beattie og Leandre Griffit
skoruðu mörk heimamanna sem
voru afar langþráð. Fyrir leikinn
hafði liðið ekki skorað mark í rúma
sjö og hálfa klukkustund.
Birmingham City vann Bolton
1:0 með marki Mikael Forssell á 31.
mínútu. Þetta var fyrsti sigur liðs-
ins á Bolton síðan 1965. Bolton er
nú í slæmum málum með aðeins 8
stig eftir 10 leiki.
Loks gerðu Everton og Aston
Villa markalaust jafntefli í bragð-
daufum leik. ■
KLUIVERT
Segist ekki vera á leið til Englands.
Patrick Kluivert:
Ekki á leið til
Englands
FÓTBOLTI Patrick Kluivert er ekki á
leið í ensku úrvalsdeildina þegar
leikmannamarkaðurinn opnar að
nýju í janúar. Hollenski framherj-
inn lýsti þessu yfir í gær en hann
hefur verið orðaður við þrjú ensk
lið að undanförnu. Hann hefur átt
erfitt uppdráttar hjá Barcelona
upp á síðkastið og ekki skorað eitt
einasta mark.
„Ég hef ekki rætt við Arsenal
né önnur ensk lið og ég er ekki á
leið til Englands,“ sagði Kluivert.
Talsmaður Barcelona segir þó
að Newcastle hafi sýnt leikmann-
inum áhuga og að Arsenal og
Chelsea hafi spurst fyrir um
hann. Talsmaðurinn taldi þó ólík-
legt að Kluivert færi til
Newcastle. ■
Jóhann Þórhallsson:
Samdi við KA
FÓTBOLTI Knattspyrnufélag Akur-
eyrar og Jóhann Þórhallsson hafa
skrifað undir samning þess efnis
að leikmaðurinn gangi til liðs við
KA og spili með félaginu næstu
tvö árin.
Jóhann Þórhallsson mun því
spila með KA í Landsbankadeild
karla næsta keppnistímabil. Jó-
hann er 23 ára sóknarmaður og
hefur spilað bæði með Þór og KR
í efstu deild.
Að sögn Jóhanns er hann
ánægður með að samkomulag hafi
náðst við KA, það sé skemmtilegt
að breyta til og hjá honum ríki til-
hlökkun að takast á við nýtt verk-
efni. ■
JÓHANN
Lék með Þórsurum í 1. deildinni
á síðustu leiktíð. Liðið komst ekki
upp í úrvalsdeildina.
AMANATIDIS
Grikkinn Ioannis Amanatidis skoraði sigurmark Stuttgart gegn Wolfsburg í þýsku
Bundesligunni í gær.
AP
/M
YN
D
AP
/M
YN
D
STAÐAN:
L U J T S
Chelsea 10 7 2 1 23
Arsenal 9 7 2 0 23
Man. United 10 7 1 2 22
Birmingham 10 5 4 1 19
Fulham 10 5 3 2 18
Southampton 10 4 4 2 16
Man. City 10 4 3 3 15
Newcastle 10 4 3 3 15
Liverpool 10 4 2 4 14
Charlton 9 4 2 3 14
Portsmouth 10 3 3 4 12
Tottenham 9 3 2 4 11
Everton 10 2 4 4 10
Aston Villa 10 2 4 4 10
Wolves 10 2 3 5 9
Blackburn 10 2 2 6 8
Bolton 10 1 5 4 8
Leeds 10 2 2 6 8
Middlesbrough 9 2 1 6 7
Leicester 10 1 2 7 5
FORLAN
Diego Forlan og Zatyai Knight eigast við í leik Manchester United og Fulham. Forlan jafn-
aði metin fyrir United í leiknum en það dugði ekki til.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS:
Aston Villa-Everton 0:0
Bolton-Birmingham 0:1
Chelsea-Man. City 1:0
Liverpool-Leeds 3:1
Man. Utd.-Fulham 1:3
Newcastle-Portsmouth 3:0
Southampton-Blackburn 2:0
Wolves-Leicester 4:3
LEIKIR DAGSINS:
Charlton - Arsenal
Tottenham - Middlesbrough
AP
/M
YN
D