Fréttablaðið - 26.10.2003, Síða 42
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is Sambíóin
Kringlunni, s. 588 0800, Sambíóin
Álfabakka, s. 587 8900, Háskólabíó, s.
530 1919, Laugarásbíó, s. 553 2075,
Regnboginn, s. 551 9000, Smárabíó, s.
564 0000, Sambíóin Keflavík, s. 421
1170, Sambíóin Akureyri, s. 461 4666,
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500.
15.00 Beitiskipið Potjomkin, hin
fræga kvikmynd Sergeis Eisensteins frá
1925, verður sýnd í bíósal MÍR, Vatns-
stíg 10. Sýnd verður útgáfa myndarinnar
með tónlist eftir tónskáldið Edmund
Meisel. Enskur texti. Aðgangur er ókeyp-
is og öllum heimill.
20.00 Myndirnar Hugo Chavez -
Inside the Coup og The Trials of Henry
Kissinger verða sýndar í Nelly’s Café á
heimildarmyndahátíð Gagnauga og
Fróða. Frítt inn.
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands heldur upp á tíu ára afmæli sitt
með tónleikum í Akureyrarkirkju. Á
efnisskrá eru verk eftir J. Haydn, M.
deFalla, Z. Kodaly og G. Bizet. Einleikari
á trompet er Ásgeir H. Steingrímsson.
Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnars-
son.
16.00 Gerrit Schuil leikur á píanó
verk eftir Beethoven, Schubert,
Schumann og Chopin og ræðir þess á
milli við Bergþóru Jónsdóttur um tón-
listina í lífi sínu á síðdegistónleikum,
sem Samtökin ‘78 efna til í tónlistarhús-
inu Ými við Skógarhlíð.
17.00 Schola Cantorum heldur
tónleika í Hallgrímskirkju. Kórinn hefur
þekkst boð um að taka þátt í alþjóðlegri
kórakeppni í Tolosa á Norður-Spáni,
sem haldin verður dagana 29. október
til 2. nóvember.
20.00 Finnski baritónsöngvarinn
Jorma Hynninen og píanóleikarinn
Gustav Djupsjöbacka flytja sönglög eft-
ir Vaughan-Williams, Hugo Wolf, Got-
honi, Rautavaara og Sibelius á ljóðatón-
leikum í Salnum, Kópavogi.
21.00 Guðlaug Ólafsdóttir söng-
kona heldur djasstónleika ásamt kvartett
á Caffé Kúlture við Hverfisgötu, gegnt
Þjóðleikhúsinu.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Bubbi á tónleikaröðinni
„Þúsund kossa nótt“ í Hótel Höfn,
Hornafirði.
Hera Björk með vel valin lög á
Gauknum.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Leikritið Heiðarsnælda verð-
ur sýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm.
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren í Borgarleikhúsinu.
14.00 Dýrin í Hálsaskógi á stóra
sviði Þjóðleikhússins.
16.00 Völuspá eftir Þórarin Eldjárn
verður sýnt í Möguleikhúsinu við
Hlemm.
17.00 Dýrin í Hálsaskógi á stóra
sviði Þjóðleikhússins.
17.00 Leikfélag Fljótsdalshéraðs
frumsýnir verðlaunaleikritið Gauks-
hreiðrið í Valaskjálf á Egilsstöðum.
Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson, en
um þrjátíu manns taka þátt í sýning-
unni. Tónlist er eftir Charles Ross og
Unnur Sveinsdóttir hannar leikmynd.
20.00 Leikritið Pabbastrákur eftir
Hávar Sigurjónsson verður sýnt á litla
sviðinu Þjóðleikhússins.
20.00 Með fulla vasa af grjóti á
stóra sviði Þjóðleikhússins. Hilmir Snær
Guðnason og Stefán Karl Stefánsson
fara á kostum.
20.00 Púntila og Matti eftir Bertolt
Brecht á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Þetta er síðasta sýningin á þessu verki.
20.00 Stúdentaleikhúsið sýnir
1984 í Tjarnarbíói.
20.00 Græna landið eftir Ólaf
Hauk Símonarson verður sýnt í sal
Frumleikhússins í Keflavík. Leikstjóri er
Þórhallur Sigurðsson.
■ ■ SAMKOMUR
10.00 Kynjakettir. Kattasýning
Kattaræktarfélagsins heldur áfram í dag í
reiðhöll Gusts í Kópavogi. Sýningin er
opin til klukkan 18.
14.00 Handverksmarkaður verður
haldinn í Lista- og menningarhúsinu á
Stokkseyri (Hólmaröst). Hann stendur
til klukkan 18. Allir velkomnir.
15.00 Eldri borgarar frá Eskifirði
og Reyðarfirði búsettir í Reykjavík og
nágrenni halda árlegt vetrarkaffi sitt í
dag í Félagsheimili eldri borgara, Gull-
smára 13, í Kópavogi.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Í dag lýkur sýningu Þorsteins Helga-
sonar í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akra-
nesi. Þar sýnir hann 44 olíumálverk.
■ ■ SÝNINGAR
Sýningu Birgis Andréssonar, Sig-
urðar Sveins Halldórssonar og Hlyns
Sigurbergssonar í Kling & Bang gallerí,
Laugavegi 23, lýkur á morgun. Kling og
Bang gallerí er opið fimmtudaga til
sunnudaga frá kl. 14-18.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýn-
ing á málverkum eftir Kristin Breiðfjörð
og Guðrúnu Þorbjörgu Guðmundsdóttur
og leirmunum eftir Helgu Jóhannsdótt-
ur, Helgu Pálínu Sigurðardóttur, Ingþór
Sigurð Ísleifsson og Snorra Ásgeirsson.
Þetta er önnur sýningin í röð myndlistar-
sýninga listahátíðarinnar List án landa-
mæra í norðursal Kjarvalsstaða, nýjum
sal Listasafns Reykjavíkur. Sýningunni
lýkur á morgun.
Sýningu Þorsteins Helgasonar í
Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi, lýkur
á morgun. Þar sýnir hann 48 olíumál-
verk. Listasetrið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 15-18.
Yfirlitssýningu á verkum Júlíönu
Sveinsdóttur í Listasafni Íslands, „Vefur
lands og lita - Júlíana Sveinsdóttir“, verð-
ur framlengd um viku eða til 2. nóvem-
ber vegna mikillar aðsóknar. Á sýning-
unni eru málverk og myndvefnaður og
spannar hún allan feril Júlíönu sem er
einn af frumkvöðlunum í íslenskri
myndlist og ein fyrsta íslenska konan
sem gerði myndlist að ævistarfi sínu.
Opnuð hefur verið sýning í Barna-
spítala Hringsins á myndum sem gerð-
ar hafa verið í listasmiðjunni Gagn og
gaman í Gerðubergi í Reykjavík.
Í Gerðarsafni í Kópavogi standa yfir
þrjár sýningar. Á neðri hæð er sýning
Huldu Stefánsdóttur, Leiftur, þar sem
hún telfir saman óræðum ljósmyndum
og eintóna málverkum. Í vestursal eru
Þræðir Guðrúnar Gunnarsdóttur þar
sem hún sýnir þrívíddarteikningar á
vegg. Í austursal eru valin málverk úr
einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar
og Ingibjargar Guðmundsdóttur, sem
hefur að geyma margar af perlum frum-
herja íslenskrar málaralistar.
Yfir bjartsýnisbrúna – Samsýning
alþýðulistar og samtímalistar nefnist
sýning sem Listasafn Reykjavíkur hefur
unnið í samstarfi við Safnasafnið á Sval-
barðsströnd við Eyjafjörð. Hér leiða sam-
an hesta sína tuttugu og fimm lista-
menn sem ýmist kenna sig við alþýðu-
list eða samtímalist. Sýningin verður í
Hafnarhúsinu til 2. nóvember.
Úr Byggingarlistarsafni, sýning á
húsateikningum og líkönum íslenskra
arkitekta stendur yfir í Hafnarhúsinu í
tilefni þess að tíu ár eru liðin frá stofun
byggingarlistardeildar við Listasafn
Reykjavíkur. Í safni deildarinnar eru varð-
veitt söfn teikninga eftir ýmsa af merk-
ustu frumherjum íslenskar byggingarlist-
ar á 20. öld. Sýningin stendur til 2. nóv-
ember.
Vögguvísur nefnist innsetning Bryn-
dísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wil-
sons í Listasafni Reykjavíkur – Hafnar-
húsi, sem stendur til 2. nóvember.
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á 6.
hæð í Grófarhúsinu stendur yfir yfirlits-
sýning á verkum Magnúsar Ólafssonar
(1862-1937), eins helsta frumherja í ís-
lenskri ljósmyndun. Verk Magnúsar, sem
eru kjölfestan í safneign Ljósmyndasafns
Reykjavíkur, varpa ljósi á tímabilið frá
aldamótum 1900 fram undir miðbik 20.
aldar. Safnið er opið 12-19 virka daga,
13-17 um helgar. Sýningin stendur til 1.
desember. Aðgangur er ókeypis.
Alan James sýnir teikningar í sýning-
arsal Íslenskrar grafíkur, sem er hafnar-
megin í Hafnarhúsinu.
Sýningin „Humar eða frægð -
Smekkleysa í 16 ár“ stendur yfir í Þjóð-
arbókhlöðunni í Reykjavík. Menningar-
borgarsjóður styrkir sýninguna, sem
stendur til 23. nóvember.
Lovísa Lóa Sigurðardóttir myndlist-
armaður er með sýninguna „Af því bara
er ekkert svar“ á Kaffi Karólínu, Akur-
eyri. Sýningin stendur til 7. nóvember.
Sýning á verkum Péturs Halldórs-
sonarÝstendur yfir í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Í
Sverrissal og apóteki Hafnarborgar
stendur einnig yfir sýning á leirlist Sig-
ríðar Erlu Guðmundsdóttur.
Á Kjarvalsstöðum er til sýnis brot af
verkum Jóhannesar S. Kjarvals.
Sýningin „Áfram stelpur!“ er í Gróf-
arhúsi, Tryggvagötu 15. Sýnd eru skjöl
og munir tengdum kvennahreyfingum á
borð við Úurnar, Rauðsokkur, Kvenna-
framboðið, Kvennalistann, Bríeturnar og
Feministafélag Íslands. Sýningin er opin
mánudaga til fimmtudaga 10-20, föstu-
daga 11-19 og um helgar 13-17. Hún
stendur til 2. nóvember og er aðgangur
ókeypis.
Ljósmyndasýning Öldu Sverrisdóttur
í húsakynnum Reykjavíkurakademí-
unnar við Hringbraut 121, 4. hæð, ber
titilinn Landslag. Sýningin stendur til 6.
nóvember og er opin alla daga nema
sunnudaga frá 13-17.
Níræður listamaður, Jóhannes Ara-
son,er með sýningu sem ber yfirskriftina
„Þetta þarf skýringar við“ í Listasafni
Borgarness. Á sýningunni eru útskornar
klukkur, leirmunir og málverk ásamt
völdum ljósmyndum af grjóthleðslum
Jóhannesar og endurbyggingum á
gömlum torfhúsum.
Ásgeir LárussonÝhefur opnaðÝsýn-
ingu í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5.
Að þessu sinni sýnir Ásgeir 24 olíu-
myndir, allar af stærðinni 18x24. Sýning-
in er opin virka daga frá 10-18 og laug-
ardaga 11-16. Henni lýkur 30. október.
Þórdís Þórðardóttir, listakona á Eyr-
arbakka, sýnir vatnslita-, pastel- og
tepokamyndir í Rauða húsinu, Eyrar-
bakka. Sýningin stendur til 19. nóvem-
ber.
Á bókasafni Háskólans á Akureyri
stendur yfir sýning Stefáns Jónssonar
myndlistarmanns. Sýningin, sem Stefán
nefnir „Listaverkahrúga“, stendur fram í
miðjan nóvember.
María Pétursdóttir, Helga Þórsdótt-
ir, Helga Óskarsdóttir og Marta Val-
geirsdóttir eru með sýningu í Slunka-
ríki á Ísafirði.
Sigurður Þórir listmálari sýnir nýleg
málverk í Vélasalnum í Vestmannaeyj-
um.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
42 26. október 2003 SUNNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
23 24 25 26 27 28 29
OKTÓBER
Sunnudagur Baritonsöngvarinn JormaHynninen hefur áþekka stöðu í
Finnlandi og Diddú hér á landi.
Hann er þjóðareign Finna, söngv-
arinn sjálfur með stórum staf og
ákveðnum greini.
Nú er hann mættur hingað til
lands og ætlar að syngja í Salnum í
Kópavogi. Hann hefur með sér
píanóleikarann Gustav Djupsjö-
backa, sem ekki síður er virtur á
sínu sviði.
„Við erum gamlir vinir, höfum
unnið saman allt frá árinu 1975,“
segir Hynninen. Báðir kenna þeir
við Síbelíusarakademíuna í
Helsinki. Djupsjöbacka er þar
deildarstjóri ljóðasöngsdeildar og
Hynninen var prófessor þangað til
síðasta sumar, en heldur enn
nokkrum nemendum.
Báðir hafa þeir komið áður til
Íslands. Djupsjöbacka var hér á
síðasta ári, en í ár eru þrjátíu ár lið-
in frá því Hynninen kom hingað
fyrst.
„Ég kom hingað árið 1973 þegar
Vestmannaeyjagosið var. Þá voru
haldnir styrktartónleikar og ég var
fulltrúi Finnlands á þeim tónleik-
um. Það var fyrsta ferð mín til Ís-
lands, en ég hef komið einu sinni
eða tvisvar síðan.“
Það var Timo Heikki Koponen,
sendiherra Finnlands á Íslandi,
sem bauð þeim hingað. Þeir Hynni-
nen eru gamlir skólafélagar úr
menntaskóla og hafa því brallað
margt saman um ævina.
„Þegar hann var sendiherra í
Rúmeníu bauð hann okkur Gustav
þangað til að halda tónleika. Svo
hittum við hann á Norðurlanda-
ráðsfundi í fyrra og hann spurði
hvort við vildum ekki koma hing-
að.“
Þeir þekktust boðið og ætla að
flytja í kvöld sönglög eftir Vaugh-
an-Williams, Hugo Wolf og Finnana
Gothoni, Rautavara og Sibelius.
Þeir Hynninen og Djupsjöbacka
sögðu annars þau tíðindi frá Finn-
landi að þar hefði nú í vikunni ver-
ið samþykkt að reisa tónlistarhús á
besta stað í höfuðborginni. Um það
mál hefur verið rætt og deilt árum
saman þar í landi, líkt og hér.
„Þess vegna ríkir nú mikill
fögnuður meðal tónlistarfólks í
Finnlandi,“ segir Djupsjöbakka. ■
■ TÓNLEIKAR
Kom fyrst eftir gosið í Eyjum
JORMA HYNNINEN
Þessi finnski stórsöngvari ætlar að syngja í kvöld í Salnum í Kópavogi ásamt píanóleikar-
anum Gustav Djupsjöbacka.
SVART-HVÍTAR ANDSTÆÐUR
Í sal Íslenskrar grafíkur, sem er hafnarmegin í Hafnarhúsinu, stendur nú yfir sýning á blý-
antsteikningum eftir Alan James. Hann nefnir sýningu sína „Elusive Moorings – A kaleido-
scopic world of visiual disorientation“. Þetta eru ný verk svart-hvítra andstæðna þar sem
síbreytilegt skipulag formfræðinnar stríðir við að afmá allar vísbendingar um yfirborð.