Fréttablaðið - 26.10.2003, Page 46
Ég borða helst ekki nema heil-steikt lambalæri í ofni sem ég
krydda með pipar og salti. Stund-
um set ég reyndar piparmyntu
með og heilan lauk í ofnskúffuna,“
segir Ingibjörg Sigfúsdóttir, sem
þjáðst hefur af MS-sjúkdómnum í
40 ár en stendur þó vaktina í eld-
húsinu þegar þarf, bundin við
hjólastól. „Sunnudagssteikin
skiptir fjölskylduna máli. Hún
eykur á ánægjuna og börnin vilja
helst ekki að svindlað sé á þessu.“
Ingibjörg á tvö börn og fjögur
barnabörn og þau njóta sunnu-
dagssteikarinnar með henni og
eiginmanninum:
„Allt sem ég geri í matseld
miðar að því að eins lítið af auka-
efnum sé í hráefninu og kostur er.
Ég nota mikið af grænmeti og
reyndar hef ég gulrætur með öll-
um mat og helst brokkólí líka.
Lengi vel hafði ég það fyrir sið að
stinga heilum hvítlauksrifjum í
steikina en þá kom í ljós að mað-
urinn minn er með ofnæmi fyrir
honum. Þá skipti ég hvítlauknum
út fyrir blóðberg sem ég strái
yfir. Yfirleitt nota ég venjulegar
kartöflur. Ég hef ákveðna vantrú
á öllu þessu lífræna. Finnst stund-
um eins og verið sé að plata mann
þegar því er haldið fram að eitt-
hvað eitt sé betra en annað. Þá
staldra ég við.“
Ingibjörg notar núorðið
pakkasósur með steikinni því þær
eru orðnar verulega fitusnauðar
og bragðgóðar. Og eftirrétturinn í
hádeginu á sunnudögum svíkur
engan: „Ég brytja niður ávexti og
myl yfir súkkulaði og jafnvel
marengskökur þegar ég vil hafa
mikið við. Desertinn slær alltaf í
gegn,“ segir Ingibjörg, sem skrif-
að hefur heila bók um baráttu sína
við MS-sjúkdóminn. Bókina nefn-
ir hún Dans á rósum – líf mitt með
MS og er hún væntanleg á markað
innan skamms. Ingibjörg gefur
bókina út sjálf:
„Ég hef barist lengi við MS-
sjúkdóminn og leitað mér óhefð-
bundinna lækninga. Ég tel mig
hafa náð verulegum árangri með
því og um tíma fór ég alls ekki til
læknis. Bókin mín er ekki hugsuð
eingöngu fyrir MS-sjúklinga held-
ur allan almenning í von um að
hann geti haldið heilsu með því að
lesa í þau tákn sem líkaminn gef-
ur frá sér,“ segir Ingibjörg, sem á
ættir sínar að rekja til Austfjarða;
alin upp í Skálateigi á Norðfirði
þar sem sunnudagssteikin var
alltaf á sínum stað. Eins og gerist
og gengur. ■
46 26. október 2003 SUNNUDAGUR
■ Rúmið mitt
Það er mikil vinna fram und-an,“ segir bakarinn Jói Fel.
„Ég er að leggja lokahönd á nýja
matreiðsluþáttinn minn. Við Jón
Karl Helgason myndatökumaður
erum í síðustu tökunum og svo
þarf að klippa þættina til.“
Jói Fel lofar nýstárlegum
matreiðsluþætti: „Þátturinn
snýst ekki um að gera fínan mat
heldur ætla ég að kenna fólki að
gera einfaldan mat góðan og bý
til létta rétti, góðar snittur og
pinnamat. Það verður partí-
stemning í þáttunum og við
heimsækjum stelpu- og stráka-
partí og höldum barnaafmæli. Ég
er aðalleikarinn í þessu og stund-
um fæ ég gesti heim til mín í
mat.“
Þó nóg sé að gera hjá Jóa í
næstu viku lætur hann sig ekki
vanta í ræktina: „Matur hjá mér
er númer 1, 2 og 3. Ég er búinn að
lyfta í sautján ár og æfi tvo tíma
á dag svo ég geti borðað meira.
Útlit og heilsa skipta mig miklu
máli og ég vil skapa mér gott líf-
erni. Gott rauðvín og stórir
vindlar eru líka hluti af því.“
En hvernig kom hugmyndin að
þættinum hjá Jóa Fel? „Ég er bú-
inn að opna mitt eigið fyrirtæki og
gefa út nokkrar matreiðslubækur.
Þetta er bara næsta skref í mínum
framaferli sem snýst aðallega um
að kenna fólki að borða nýjan mat
og ítalskra áhrifa gætir í matar-
gerðinni í þáttunum eins og í bak-
aríinu mínu.“
Fyrsti þáttur Jóa Fel verður
sýndur 5. nóvember á Stöð 2: „Þá
ætla ég að reyna að gefa mér
góðan tíma fyrir fjölskylduna
því það hefur verið svo mikið að
gera undanfarið að hún hefur
ekki séð mikið af mér.“ ■
Vikan sem verður
JÓI FEL
■ Leggur nú lokahönd á nýja matreiðslu-
þætti sem sýndir verða á Stöð 2. Í þátt-
unum kennir Jói Fel sjónvarpsáhorfend-
um að framleiða létta rétti sem henta vel
við ýmiss konar tækifæri.
Sunnudagssteikin
INGIBJÖRG SIGFÚSDÓTTIR
■ hefur verið með MS-sjúkdóminn í 40
ár. Það aftrar henni þó ekki frá því að
vera með sunnudagssteikina á sínum
stað þó hún sé í hjólastól.
Fréttiraf fólki
Útlit og heilsa skipta máli
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Sigurður Pétursson.
Ágúst Guðmundsson.
Eyjólfur Sverrisson.
1
7
8
9 10
12 13
15 16
14
17
2 3 4 5
11
6
Rúmið mitt er keypt í IKEAárið 1995,“ segir Páll Óskar
Hjálmtýsson söngvari. „Þetta er
svona gamaldags prinsessurúm,
hvítt með gylltum hnúðum. Dýn-
an er hins vegar farin að gefa sig
og komin tími til að endurnýja
enda komin á áttunda ár.“
Nú er væntanleg til landsins ínæstu viku Xinran en hún er
höfundur bókarinnar Dætur
Kína, sem JPV útgáfa sendi frá
sér á dögunum. Með henni kem-
ur maðurinn hennar, Tobey Eady,
en hann er þekktur umboðsmað-
ur rithöfunda í Bretlandi. Bók
Xinran er í 5. sæti metsölulista
Amazon í Bretlandi. Hún er vitn-
isburður um líf kínverska
kvenna og uppskera margra ára
vinnu Xinran í blaðamennsku en
hún fæddist í Peking árið 1958 en
hefur verið búsett í London síðan
1997. Xinran kemur til landsins
til að kynna Dætur Kína.
Með sunnudagsteik í hjólastól
Ugla Egilsdóttir
17 ára,
nemi við Menntaskól-
ann við Hamrahlíð
Mér finnst tví-mælalaust að
það eigi að sam-
þykkja lagabreytingu
þannig að ábyrgðin
fari af þeim sem
selja vændi yfir á þá
sem kaupa það.
Fólk í vændi er fólk
í neyð og það verð-
ur að passa að það
geti sótt sér aðstoð ef á þarf að halda
án þess að eiga það á hættu að því sé
refsað fyrir það. Þetta snýst líka um að
grípa í taumana á Vesturlöndum gegn
mansali, því þar er eftirspurnin orsök
vandans. Markmiðið með lagasetning-
um er að gera samfélagið betra og við
hljótum að vilja vinna að því.“
Diljá Mist Einarsdóttir
16 ára, nemi í Verzlun-
arskóla Reykjavíkur
Tvímælalaust. Þaðeru svo margar
stelpur sem glíma
við erfiðar félagsleg-
ar aðstæður sem
hrekjast út í vændi.
Þær hafa margar
hverjar lent í sálræn-
um áföllum en
kaupandinn er oft
með fullu viti. Það eru jafnvel stjórn-
málamenn og virtir menn í þjóðfélaginu
sem kaupa sér vændi. Mér finnst því
ekki spurning að það eigi að færa
ábyrgðina af seljanda yfir á kaupanda.
Agnar Burgess
20 ára, nemi í Mennta-
skólanum í Reykjavík
Þetta er náttúrlegamargþætt mál
eins og mörg önnur.
Fyrst þetta er ólöglegt
ættu allir aðilar að
vera ábyrgir. Það ætti
ekki að vera hægt að
fría sig ábyrgðinni
hvort sem maður er
að kaupa eða selja.
Það eru fleiri en einn aðilar að lögbrot-
inu. It takes two to tango.“
Sindri Eldon
17 ára, Borgarholts-
skóla
Bæði eiga álíkamikla sök í
þessu. Ég persónu-
lega myndi aldrei
kaupa né selja
vændi. En eitt af því
sem pirrar mig mest
í öllum heiminum er
fólk sem bannar
öðru fólki að gera
það sem það vill
ekki sjálft gera og því finnst mér að
fólk eigi að vera frjálst til að gera það
sem það vill en ég tek það fram að
ég er alls ekki að styðja þetta.“
Lárétt: 1 greiðir, 7 nagdýr, 8 verkfæri, 9
verkfærið, 11 kindur, 13 líkamshluti, 15
ekki, 16 frá, 17 trúartákni.
Lóðrétt: 1 ökutækis, 2 jökull, 3 hættu-
legur boxari, 4 gryfja, 5 hafa undan, 6
vætir, 10 frystir, 13 tal, 14 á húsi, 15 keyri.
Lausn.
Lárétt: 1borgar, 7íkorni,8töng,9skafan,
11ær, 12limur, 15ei,16af, 17krossi.
Lóðrétt: 1bíls,2ok,3rotari, 4 gröf, 5anna,
6rignir, 10kælir, 13mas,14ufs,15ek.
INGIBJÖRG Í ELDHÚSINU
Hvítlaukurinn vék fyrir blóðbergi og piparmyntu.
JÓI FEL
Hefur í nógu að snúast í vikunni en lætur
annríkið ekki bitna á líkamsræktinni þar
sem hann æfir tvo tíma á dag.
Hugleiðingin
Kreppa?
“Á kínversku er orðið kreppa ritað með
tveimur táknum. Annað þýðir hætta, hitt
tækifæri.“
John F. Kennedy, fyrrum forseti Bandaríkjanna.
Ung ráð
■ Unga fólkið býr oft yfir opnum
og skemmtilegum skoðunum
um hin ýmsu málefni.
Vændi?