Fréttablaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 2
2 9. janúar 2004 FÖSTUDAGUR „Því miður – við gerum næstum allt fyrir húseigendur.“ Bjarni Ármannsson er forstjóri Íslandsbanka en nýlega hóf bankinn að auglýsa húsnæðislán í erlendri mynt. Rússneska rúblan er ákaflega óstöðugur gjaldmiðill og því skemmtilegur kostur fyrir spennufíkla í fjármálum. Spurningdagsins Bjarni, er ekki hægt að fá lán í rúblum hjá þér? Lífshættulegir sjúkraflutningar Margir læknar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi eru afar óánægðir með að það skuli sífellt þurfa að flytja fárveikt fólk milli sjúkrabygginga á Hringbraut og í Fossvogi. Þeir segja það ástand „algerlega óviðunandi“. HEILBRIGÐISMÁL Óánægja lækn- anna á Landspítala-háskólasjúkra- húsi með reglubundna sjúkra- flutninga á fárveiku fólki milli bygginga spítalans við Hring- braut og í Fossvogi hefur verið viðvarandi. Þeir benda á að slíkir flutningar geri sjúkdómana erfið- ari viðureignar og geti jafnvel riðið mjög veiku fólki að fullu. Nýlegt dæmi er tilefni þessarar um- fjöllunar í Frétta- blaðinu nú. Rúm- lega áttræð kona, sem búsett er úti á landi, veiktist hastarlega í lung- um. Hún var flutt á geðdeild Land- spítalans við Hringbraut í Reykja- vík. Þar elnaði henni sóttin, svo flytja þurfti hana í snarhasti með sjúkrabíl á lungnadeild LSH í Foss- vogi. Hún reyndist vera með önd- unarbilun sem stafaði af svæsinni lungnabólgu. Þar lá hún milli heims og helju, um tíma í öndunarvél, yfir hátíðarnar. Smátt og smátt komst hún til nokkurrar heilsu á ný. Nú í vikunni var hún svo aftur flutt með sjúkrabíl á geðdeildina við Hring- braut. Hún þoldi þann flutning illa, svo að um kvöldið var hún enn á ný flutt á lungnadeildina. Aðstandendur gömlu konunnar sem um ræðir sögðu í samtali við blaðið að þeir væru afar ánægðir með þá aðstoð og þann aðbúnað sem hún hefði á deildinni nú. Þeir læknar sem Fréttablaðið ræddi við vegna þessa vildu ekki koma fram undir nafni, meðan atvinnumál alls starfsfólks á Land- spítalanum væru í uppnámi og öryggisleysi. En þeir höfðu ákveðn- ar skoðanir á þessum reglubundnu flutningum á mikið veiku fólki. „Margir okkar erum óánægðir með meðferðina á okkar skjólstæð- ingum í þessum flutningum,“ sagði einn þeirra lækna sem blaðið ræddi við. „Það þarf stundum að flytja fárveikt fólk á milli og það er óviðunandi, að það skuli þurfa að viðhafa slíka flutninga reglulega til að það geti fengið þá læknishjálp sem það þarf á að halda. Það er í rauninni reiknað með því í starf- semi þessa tvískipta sjúkrahúss, að verið sé að framkvæma hættulega sjúkraflutninga.“ Það sama kom fram í máli þeir- ra lækna sem blaðið ræddi við að slíkir flutningar færu fram nokkrum sinnum í mánuði, en ættu í versta falli að eiga sér stað nokkrum sinnum á ári.“ jss@frettabladid.is Hannes Hólmsteinn: Vísar allri gagnrýni á bug BÓKMENNTIR Hannes Hólmsteinn Gissurarson vísar á bug öllum ásökunum um ritstuld og óvönduð vinnubrögð við ritun bókarinnar Halldór. Hannes telur ekki eðli- legt að lögð sé mælistika bók- menntafræðiritgerða á ævisögu sína um Halldór Laxness enda sé ekki um skólaritgerð að ræða heldur fræðirit almenns eðlis. „Í eftirmála bókarinnar get ég þess skilmerkilega að ég styðst við æskuminningar Halldórs Kiljans Laxness. Ég tel upp þessar fimm minningabækur hans og segi það alveg skýrt í eftirmálanum að ég felli þær inn í frásögnina og nýti þær í bókinni,“ segir Hannes. Þá segir hann ekkert athuga- vert við að hann notist við verk Peters Hallberg án þess merkja þær alltaf tilvitnunum, enda sé sérstaklega tekið fram í eftirmála að mjög sé stuðst við hans verk. Í greinargerð Hannesar segir að Pétur Már Ólafsson hafi lesið próförk handritsins að beiðni fjöl- skyldu skáldsins og að breytingar hafi verið gerðar á handritinu í samræmi við athugasemdir Péturs. Halldór vísar einnig þeirri ásök- un Helgu Kress á bug að í bókinni komi ekki fram ný þekking um skáldið. Hannes tiltekur á sjöunda tug atriða í greinargerð sinni sem ekki hafi komið fram áður. Hann segir að sér hafi verið ljóst að bók hans yrði lesin gaumgæfilega af sérfræðingum um Laxnes og sé ánægður með að hann hafi ekki ver- ið ásakaður um að níða skáldið niður eða halda fram staðreyndavillum. ■ CLARK Wesley Clark nýtur vaxandi vinsælda meðal demókrata í Bandaríkjunum. Prófkjör demókrata: Clark ógnar Dean BANDARÍKIN Wesley Clark, fyrrum hershöfðingi, er helsti keppinaut- ur Howards Dean, í prófkjöri demókrata vegna forsetakosning- anna í nóvember, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Öldungadeildarþingmaðurinn John Kerry er í þriðja sæti. Um 24% demókrata styðja Dean á meðan Clark nýtur fylgis 20% aðspurðra. Fyrir aðeins þremur vikum var munurinn á þessum tveimur frambjóðendum yfir tuttugu prósentustig. ■ Sendingin kom fyrir jól: Hass falið í hjólbörðum HASS Hasssendingu sem vitjað var á vöruhótel, á þriðjudag, kom til landsins frá Danmörku rétt fyrir jól. Lögreglan hefur ekki gefið upp hversu mikið magn þeir fundu en hassið var falið í fjórum dekkjum sem öll voru á felgum. Þrír af fjórum mönnum sem handteknir voru í kjölfarið voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á miðvikudag en ekki þótti ástæða til að krefjast varðhalds yfir þeim fjórða. ■ Árás á sjúkraþyrlur: Níu létust ÍRAK Níu bandaríkir hermenn létu lífið þegar bandarísk herþyrla af gerðinni Black Hawk brotlenti í ná- grenni bæjarins Falluja vestur af höfuðborginni Bagdad í gær. Bóndi, sem býr nálægt þeim stað þar sem þyrlan kom niður, segir að hún hafi orðið fyrir árás. Hann sagðist hafa séð tvær þyrlur merkt- ar með sjúkrakrossi fljúga yfir og hefði flugskeyti hæft aðra þeirra í stélið. ■ UPPHAF RANNSÓKNAR Bankaræninginn náði 900 þúsund krónum þegar hann rændi Sparisjóð Kópavogs. Bankaræninginn fær góð meðmæli: Borgaði ránsfenginn DÓMSMÁL Mál bankaræningjans sem rændi Sparisjóð Kópavogs, í maí í fyrra, var þingfest í Héraðs- dómi Reykjaness í gær. Hann hefur endurgreitt ránsfenginn sem var 900 þúsund krónur; tæplega hálfa milljón til Sparisjóðsins og um 400 þúsund krónur til tryggingafélags- ins. Hann er ákærður fyrir að hafa stokkið yfir afgreiðsluborð Spari- sjóðsins, ógnaði starfsfólki með hnífi, skipaði því að halda sig fjarri og hrifsað peningana úr skúffu í gjaldkerastúkunni. Verði maðurinn fundinn sekur getur hann fengið frá sex mánaða upp í sextán ára fang- elsi hafi mjög mikil hætta verið samfara ráninu. Saksóknari í málinu mun kalla fimm vitni fyrir dóm. Verjandi bankaræningjans hefur meðal ann- ars lagt fram meðmæli vinnu- veitanda ræningjans, þar sem hon- um eru gefin góð meðmæli. ■ HNÍFSSTUNGA Fertugur maður var stunginn í síðuna á heimili sínu í austurbæ Reykjavíkur í fyrri- nótt. Tveir menn voru handtekn- ir á dvalarstað þeirra síðar um nóttina. Annar þeirra var í gær- kvöldi úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald eða til 22. janúar. Stungusárið var alvarlegt og fór maðurinn í aðgerð í gær. Hann er ekki lengur í lífshættu en litlu mátti muna að illa færi. Að sögn Harðar Jóhannesson- ar, hjá lögreglunni í Reykjavík, varð atvikið með þeim hætti að húsráðandi varð sundurorða við tvo gesti sína. Við það yfirgáfu gestirnir heimili hans en sneru aftur skömmu síðar og var þá annar þeirra vopnaður hnífi og gerði atlögu að húsráðanda og stakk hann í síðuna með fyrr- greindum afleiðingum. Eftir árasina flúðu gestirnir af vett- vangi. Síðar sömu nótt tókst lögregl- unni að hafa upp á árásarmönn- unum á dvalarstað þeirra í öðr- um bæjarhluta og voru þeir báðir handteknir. Við rannsókn málsins í gær kom í ljós að annar þeirra bæri einn ábyrgð á hnífsstungunni og var hinum manninum því sleppt úr haldi að yfirheyrslu lokinni. ■ Hnífsstunga í Reykjavík: Úrskurðaður í gæsluvarðhald FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M HANNES SVARAR BLAÐAMÖNNUM Á fundi með blaðamönnum í Skólabæ í gær svaraði Hannes spurningum blaðamanna og dreifði greinargerð þar sem hann svarar ásökunum sem fram hafa komið á vinnubrögð hans við ritun ævisögu Halldórs Laxness. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A FLUTT Á MILLI BYGGINGA Reglubundnir sjúkraflutningar með bráðveikt fólk þurfa að fara fram á meðan Landspítali-háskólasjúkrahús er til húsa í tveimur byggingum í borginni. ■ Þeir benda á að slíkir flutningar geri sjúkdóma erfiðari viður- eignar og geti jafnvel riðið mjög veiku fólki að fullu. Slys í Breiðholtslaug: Haldið sofandi SLYS Maður, sem var næstum drukknaður í Breiðholtslaug í fyrra- kvöld, liggur þungt haldinn á gjör- gæsludeild Landspítalans. Mannin- um er haldið sofandi í öndunarvél. Alls hafa þrjú alvarleg slys orðið í Breiðholtslaug á rúmum fimm mánuðum. Í lok ágúst var fimm ára stúlku bjargað frá drukknun og í byrjun nóvember var 14 ára piltur hætt kominn- eftir að hafa fundist meðvitundar- laus á botni laugarinnar ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.