Fréttablaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 6
6 9. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 70,38 0.59%
Sterlingspund 127,53 0.40%
Dönsk króna 11,89 -0.08%
Evra 88,55 -0.09%
Gengisvístala krónu 122,06 0,22%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 430
Velta 9.548 milljónir
ICEX-15 2.132 0,81%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 616.990.318
Pharmaco hf. 99.657.886
Íslandsbanki hf. 90.161.863
Mesta hækkun
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 3,57%
Landssími Íslands hf. 2,99%
Opin Kerfi Group hf. 2,65%
Mesta lækkun
SÍF hf. -1,80%
Össur hf. -1,41%
Líf hf. -1,25%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.569,9 0,4%
Nasdaq* 2.087,2 0,5%
FTSE 4.494,2 0,5%
DAX 4.045,4 1,0%
NK50 1.383,6 0,6%
S&P* 1.126,6 0,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.
Veistusvarið?
1Hvað heitir morðingi sænska utan-ríkisráðherrans Önnu Lindh?
2Hvað heitir bandaríski leiðtogi sér-trúarsöfnuðar sem sakaður er um
kynferðislega misnotkun á börnum?
3Hvaða fótboltalið er í þriðja sætibresku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu?
Svörin eru á bls. 46
Félagslegar leiguíbúðir:
Tvö þúsund fjölskyldur á biðlista
HÚSNÆÐISMÁL „Frá því gamla
félagslega kerfið var lagt af þá
hefur fjölskyldum á biðlistum eft-
ir félagslegu leiguhúsnæði fjölg-
að úr 450 í 1.100 í Reykjavík þrátt
fyrir að borgin hafi á sama tíma
sett verulega fjármuni í að fjölga
félagslegum leiguíbúðum úr 850 í
1.550. Ef landið er tekið í heild þá
eru um 2000 fjölskyldur á biðlist-
um eftir húsnæði og æ fleiri hafa
ekki burði til að leigja á almenn-
um markaði og þurfa á öðrum úr-
ræðum að halda,“ segir Magnús
Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, sem
óttast þann vanda sem blasir við
þeim sem ekki hafa fjárhagslegt
bolmagn til að kaupa húsnæði.
ASÍ hefur miklar áhyggjur af
þessum hópi vegna fyrirhugaðra
breytinga á húsnæðiskerfinu.
Félagsmálaráðherra hefur sagt að
98% fjölskyldna í landinu fái alla
sína þjónustu innan almenna hús-
næðiskerfisins, en lögfræðingur
ASÍ telur að sú túlkun sé röng.
„Ef við gefum okkur að það séu
1.550 félagslegar leiguíbúðir í
Reykjavík, auk allra þeirra íbúða
sem eru inni í gamla félagslega
eignaríbúðakerfinu, og bætum
síðan við samsvarandi íbúðum á
öllu landinu, þá erum við ekki að
tala um að einungis 2% fjöl-
skyldna standi fyrir utan kerfið
heldur miklu hærra hlutfall. Það
er slæmt að ekki sé vilji til að
leysa þeirra vanda sem vex
stöðugt,“ segir Magnús. ■
Rannsókn um reykingar:
Valda brjósta-
krabba
VÍSINDI Bandarískir vísindamenn
hafa lagt fram afgerandi sannanir
fyrir því að tengsl séu á milli
brjóstakrabbameins og reykinga.
Samkvæmt rannsókn sem birt var
í læknaritinu Journal of the
National Cancer Institute eru kon-
ur sem reykja 30% líklegri til að
fá brjóstakrabbamein.
Yfir 116.000 konur tóku þátt í
rannsókninni sem framkvæmd
var af sérfræðingum við Cali-
fornia Department of Health
Services. Fylgst var með konun-
um í fjögur ár og á því tímabili
greindust 2.005 þeirra með
brjóstakrabbamein. ■
Íslendingar grunaðir:
KB tók við
af Baugi
VIÐSKIPTI Forsvarsmenn herrafata-
keðjunnar Moss Bros klóra sér í
hausnum þessa dagana yfir því
hver hafi keypt 2,5% hlut í fyrir-
tækinu. Að sögn Financial Times
beindist grunur fyrst að Baugi. Að
sögn blaðsins munu forsvarsmenn
Baugs hafa sannfært kollega sína
hjá Moss Bros um að þeir kæmu
hvergi nærri.
Næstir í röð grunaðra eru KB-
banki sem gæti að sögn blaðsins
verið að verki fyrir hönd viðskipta-
vinar. Forsvarsmenn Moss Bros
fylgjast grannt með hreyfingum
bréfa í félaginu, þar sem galla-
buxnakóngur, Shami Ahmed að
nafni, hafi ásælst fyrirtækið og
eigi 22% hlut í því. ■
Alltaf ód‡rast á netinu
83 flug á viku til 13 áfangastaða
Verð á mann frá 19.500 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
22
35
0
1
0/
20
03
MAGNÚS NORÐDAHL
Lögfræðingur ASÍ óttast þann vanda sem
blasir við þeim sem ekki hafa fjárhagslegt
bolmagn til að kaupa húsnæði.
Miklir yfirburðir
Fréttablaðsins
Ný könnun Gallups á notkun fjölmiðla staðfestir enn mikla yfirburði Fréttablaðsins á dagblaða-
markaði. Um 105 þúsund manns lesa Birtu og 70.500 fasteignablað Fréttablaðsins. Stöð 2, Sýn og
Popp TíVí sækja á en Sjónvarpið og Skár einn gefa eftir.
KÖNNUN Fréttablaðið nýtur langt-
um meiri lesturs en hin dagblöð-
in tvö, Morgunblaðið og DV.
Samkvæmt nýrri könnun
Gallups, sem gerð var í desem-
ber koma yfirburðir Frétta-
blaðsins skýrt í ljós. Meðallest-
ur á hvert blað Fréttablaðsins
reyndist vera 65,1 prósent, 52,8
prósent hjá Morgunblaðinu og
14,9 prósent hjá DV. Uppsafnað-
ur lestur í vikunni var 88,2 pró-
sent hjá Fréttablaðinu, 74,7 hjá
Morgunblaðinu og 34,5 prósent
hjá DV.
Lestur Fréttablaðsins og
Morgunblaðsins hefur lítið
breyst frá síðustu könnun, sem
gerð var í nóvember. Sem fyrr er
Fréttablaðið lesið meira alla
daga. Þó hefur lestur Morgun-
blaðsins dregist saman á höfuð-
borgarsvæðinu en aukist á lands-
byggðinni.
Talsverðar breytingar mælast
á lestri DV. Í nóvember var með-
allesturinn 19,8 prósent en var í
desember 14,9 prósent.
„Áður var mikil frídreifing
sem skekkti myndina en þegar
Frétt ehf. tók við útgáfu DV var
allri slíkri dreifingu hætt og auk
þess allri dreifingu til áskrif-
enda sem fengu blaðið án endur-
gjalds. Ef mið er tekið af þeim
lagfæringum hefur lestur blaðs-
ins aukist og því ber að fagna,“
sagði Gunnar Smári Egilsson,
framkvæmdastjóri Fréttar ehf.
Í könnun Gallups var mældur
lestur á fast-
eignablöðum
Fréttablaðsins
og Morgun-
blaðsins sem
bæði koma út
á mánudögum.
Niðurstöðurn-
ar sýna að um
23% fleiri lesa
fasteignablað
Fréttablaðs-
ins, eða alls
um 70.500
manns, sam-
anborið við
57.500 hjá
Morgunblað-
inu.
Einnig var
mældur lestur
á Birtu viku-
blaði Frétta-
blaðsins sem kemur út á föstu-
dögum og Tímariti Morgunblaðs-
ins sem kemur með Morgunblað-
inu á sunnudögum. Niðurstöð-
urnar sýna að um um 13% fleiri
lesa Birtu eða um 105.000 manns.
Um 93.000 manns lesa Tímarit
Morgunblaðsins.
Nokkrar breytingar hafa orð-
ið á sjónvarpsáhorfi. Þar ber
hæst aukið áhorf á Stöð 2, en
meðaláhorf virka daga var 46,9
prósent í nóvember en 52,6 pró-
sent í desember. Einnig horfðu
talsvert fleiri á Popp TíVí og
Sýn en áhorf á Sjónvarpið og
Skjá einn hefur minnkað. ■