Fréttablaðið - 31.01.2004, Síða 10

Fréttablaðið - 31.01.2004, Síða 10
10 31. janúar 2004 LAUGARDAGUR KÍNAFORSETI Í EGYPTALANDI Hu Jintao Kínaforseti er nú í opinberri heimsókn í Egyptalandi ásamt fylgdarliði og notaði hann tækifærið í gær til þess að skoða „Svingsina miklu“. Starfshópur um mál vistmanna á Kópavogshæli og í Arnarholti: Leitað lausna á búsetuvanda FÉLAGSMÁL Þar til skipaður starfshópur tveggja ráðuneyta mun á næstu dögum leita leiða til að finna lausn á búsetuvanda á sjöunda tug vistmanna á tveimur sambýlum innan vé- banda Landspítala-háskóla- sjúkrahúss. Um er að ræða rétt um 40 vistmenn í Arnarholti og 23 vistmenn á Kópavogshæli. Það eru ráðherrar félags- mála og heilbrigðis sem hafa ákveðið að skipa þennan starfs- hóp í samstarfi við Landspítala- háskólasjúkrahús. Samkvæmt sparnaðartillög- um stjórnar spítalans var fyrir- hugað að loka Arnarholti, þar sem búa um 40 manns, svo og þeirri einingu Kópavogshælis sem er heimili rúmlega 20 fatl- aðra. Ákvörðunin hefur vakið hörð viðbrögð. „Þessum starfshóp er ætlað að fara yfir sameiginleg verk- efni viðkomandi ráðuneyta, sem tengjast spítalanum,“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra, sem sagði að hópurinn yrði skipaður um eða strax eftir helgina. „Við ætlum hópnum að finna út hvort einhverjar aðrar leiðir séu til að veita þessa þjón- ustu og hvernig henni verður best fyrir komið. Starf hópsins snýr að fötluðu fólki, skjólstæð- ingum félagsmálaráðuneytisins sem eru á Kópavogshæli og að einhverjum hluta í Arnarholti. Við viljum fara betur yfir þetta.“ ■ Alvarleg skerðing á lífsfærni fatlaðra Fatlaðir einstaklingar eiga rétt á sinni þjónustu eins og aðrir Íslendingar, segir Guðný Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálfari við endurhæfingardeildina í Kópavogi. Hún segir hugmyndir um að loka deildinni fela í sér alvarlega skerðingu á lífsfærni fatlaðra. HEILBRIGÐISMÁL „Þessir fötluðu einstaklingar eiga rétt á sinni þjónustu eins og allir aðrir Ís- lendingar,“ sagði Guðný Jónsdótt- ir, yfirsjúkraþjálfari á endurhæf- ingardeildinni í Kópavogi, um hugmyndir stjórnenda Landspít- ala-háskólasjúkrahúss þess efnis að leggja deildina niður. 23 fatlaðir einstaklingar eru nú búsettir á Kópavogshæli. Þar fá þeir alla sína endurhæfingu. Þeir eru á aldrinum frá um tví- tugt og upp í mjög aldraða. „Flestir eru mikið fatlaðir eða lélegir vegna aldurs,“ sagði Guð- ný. Hún sagði, að þjálfunin væri mjög einstaklingsbundin. Hinir eldri fengju færniþjálfum, til að halda þeim gangandi sem lengst. Heit og góð sundlaug á staðnum væri mikið notuð. „Þetta er mikið fyrirbyggjandi þjónusta, til að varna kreppum, fyrirbyggja lungnasýkingar og fyrirbyggja sáravandamál. Miðað er við að umhverfi einstaklings- ins sé þannig að sem auðveldast sé fyrir hann að lifa í því. Sem dæmi má nefna, að þeir sem ekki geta setið af eigin rammleik fá sérútbúna hjólastóla, jafnvel bol- spelkur, þannig að viðkomandi geti setið uppi og tekið þátt í at- höfnum daglegs lífs. Þannig er þetta afar margþætt aðstoð sem fólkið þarf á að halda til að það haldi færni sinni sem lengst.“ Auk þeirra 23 sem búa á Kópa- vogshæli sækja þangað 32 ein- staklingar af sambýlum, sem staðsett eru annars staðar. Þeir eru allir fatlaðir en mismunandi mikið. Allir koma þeir í endur- hæfingu og þjálfun í Kópavogi. Til viðbótar við þann þátt starfsins sem þegar hefur verið nefndur er til húsa í Kópavogi endurhæfing fyrir krabbameins- sjúklinga. „Þar erum við með mjög merkilega þverfaglega starfsemi, þar sem viðkomandi fær bæði einstaklings- og hópaþjálfun,“ sagði Guðný. Þetta felst í líkams- þjálfun, starfi sjálfstyrkingar- hópa og fleiru. Fólk getur komið og hitt aðra sem eru í sömu stöðu og fá styrk og kraft. Þeir sem sækja þessa endur- hæfingu eru 70–75 manns á dag, sé fjöldanum dreift á alla daga ársins. Á fjölmennustu dögunum gætu komið um 90 manns í hús- ið.“ Vegna sparnaðaraðgerða á Landspítala hefur verið ákveðið að flytja endurhæfingu krabbameins- sjúklinga á Grensás. Starfsfólk endurhæfingunnar fengu bréf og tilkynningar frá spítalanum í gær um breytingar á starfshögum. Sjö stuðningshópar innan Krabbameinsfélagsins sendu í gær heilbrigðisráðherra bréf þar sem lýst er þungum áhyggjum af yfir- vofandi samdrætti í starfi Land- spítala-háskólasjúkrahúss og ótt- ast að hann geti bitnað meðal ann- ars á endurhæfingu og þeim sál- félagslega stuðningi sem í boði hefur verið fyrir krabbameins- sjúka. jss@frettabladld.is Breskir þingmenn: Hjólastyrkur hækkaður BRETLAND Breskir þingmenn hafa samþykkt tillögu um að hækka hjólastyrk til þeirra þingmanna, sem hjóla á milli staða við störf sín heima í kjördæmunum, úr sjö pens- um í tuttugu fyrir hverja hjólaða mílu. Anne Campbell, þingmaður Verkamannaflokksins í Cambridge, fagnar tillögunni en hún segist hjóla allt að þúsund mílur á ári. „Ég hjólaði milli staða í borginni í fjöldamörg ár án þess að fá nokkuð greitt fyrir það, á meðan þeir sem kusu að aka fengu ríflegan bíla- styrk. Mér fannst það alltaf mjög óréttlátt,“ sagði Campbell. ■ ÚTSALA 20-50% afsl. Undirfataverslun. Síðumúla 3 Sími: 553 7355 opið virka daga kl: 11-18 Laugard. kl: 11-15 Fyrrum forsætisráð-herra Frakklands, Alain Juppé, hefur ver- ið fundinn sekur um spillingu og úrskurðað- ur óhæfur til að gegna opinberu embætti næstu tíu árin. Juppé, sem er 58 ára að aldri, hlaut átján mánaða skil- orðsbundinn dóm. Juppé er borgarstjóri í Bordeaux og náinn s a m s t a r f s m a ð u r Jacques Chirac forseta. Verjendur hans hafa áfrýjað dómnum og þarf hann því ekki að láta af embætti að svo stöddu. Málið snerist um ólöglegar greiðslur frá borgaryfirvöldum í París og einkafyrirtækjum til starfsmanna flokks Juppés á níunda og tí- unda áratugnum. Á þessum tíma var Juppé f j á r m á l a s t j ó r i Parísarborgar en Chirac borgarstjóri. Forsetinn er sjálfur flæktur í málið en nýt- ur, stöðu sinnar vegna, friðhelgi frá lögsókn. Alls voru 27 manns ákærðir í málinu, flest- ir þeirra starfsmenn flokksins eða kaup- sýslumenn. Juppé var forsætis- ráðherra á árunum 1995–1997. Hann hafði verið nefnd- ur sem arftaki Chiracs á forseta- stóli en forsetakosningar eru fyrir- hugaðar í Frakklandi árið 2007. ■ ÁRNI MAGNÚSSON Búsetuvandinn hjá félagsmálaráðu- neytinu. JÓN KRISTJÁNSSON Hjúkrunarþátturinn heyrir undir hans ráðuneyti. ALAIN JUPPÉ Forsætisráðherrann fyrr- verandi hefur ávallt neitað sök og ætlar að áfrýja dómnum til æðra dómstigs. Samstarfsmaður Chiracs dæmdur fyrir spillingu: Alain Juppé fundinn sekur DÝRMÆT ENDURHÆFING Hugmyndir stjórnenda Landspítala-háskólasjúkrahúss um að loka endurhæfingardeildinni í Kópavogi hafa vakið upp ýmsar spurningar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.