Fréttablaðið - 31.01.2004, Page 27
LAUGARDAGUR 31. janúar 2004
■ Maður að mínu skapi
■ Næsta stopp
27
Magnús Scheving er maður aðmínu skapi,“ segir Margrét
Eir Hjartardóttir söngkona.
„Hann hefur búið til ótrúlegt batt-
erí með eigin höndum og verið
mjög duglegur. Hann er heilbrigð-
ur, jákvæður og bjartsýnn. Hann
er líka smiður og á þar af leiðandi
bor.“
Margrét Eir sagði það ein-
hvern tímann opinberlega að hún
væri að leita sér að manni sem
ætti bor þar sem hún ætti eftir að
hengja svo margar myndir upp á
vegg heima hjá sér. Það var allt í
gríni sagt en fyrir vikið hefur hún
fengið nokkuð mörg SMS-skeyti
þar sem ónefndir menn hafa boðið
henni aðstoð sína. „Það er spurn-
ing hvort það fari ekki að koma
tími á símanúmeraleynd,“ segir
Margrét Eir hlæjandi.
Margrét Eir hefur verið að
vinna fyrir Magnús Scheving og
sungið nokkur lög fyrir Latabæ,
eða Lazy Town eins og hann heitir
á ensku.
„Ég kann rosalega vel við
Magnús. Hann er alveg frábær.
Hann hafði trú á einhverju og
fylgdi því eftir með ótrúlegum
dugnaði. Hann hefur haft svo mik-
ið fyrir Lazy Town og þetta hefur
ábyggilega verið erfitt á tímabili
hjá honum. En hann gafst ekki
upp. Ég þekki ansi marga sem fá
hugmyndir en eru fljótir að gefast
upp,“ segir Margrét Eir. „Ég er
voðalega stolt að vera partur af
þessu fyrirtæki hans.“ ■
Bandaríska tímaritið Entertain-ment segir frá því í nýrri út-
gáfu sinni, þar sem spáð er fyrir
um helstu viðburði í afþreyingar-
iðnaði á þessu ári, að framleiðslu-
fyrirtækið Bravo, sem gerir þætt-
ina Queer Eye for the Straight
Guy, sem hafa slegið í gegn undan-
farið víða, þar á meðal hér á landi,
hafi hugsað sér að setja í fram-
leiðslu sjónvarpsþátt þar sem þess-
ari hugmynd verður snúið á haus.
Þættirnir munu bera nafnið
Straight Eye for the Queer Guy. Í
þeim munu útvaldir gagnkyn-
hneigðir einstaklingar segja ein-
hverjum samkynhneigðum ein-
staklingi til í matreiðslu, stíl, inn-
anhússhönnun og svo framvegis.
Hinir gagnkynhneigðu munu
þannig kenna hinum samkyn-
hneigða að fara á körfuboltaleik,
borða hamborgara, drekka bjór og
tala um fótbolta svo eitthvað sé
nefnt, auk þess sem hinir gagnkyn-
hneigðu munu væntanlega kenna
hinum samkynhneigða hvernig á
að strá skítugum sokkum og nær-
buxum um íbúðina og safna tjásu-
legu hári og skeggi, ef að líkum
lætur. Entertainment segir jafn-
framt frá því að nokkur önnur
framleiðslufyrirtæki hyggist róa á
sömu mið og snúa hugmyndinni að
baki Queer Eye for the Straight
Guy á haus með þessum hætti, og
eru hugmyndirnar misgáfulegar.
Ein þeirra byggist til dæmis á því
að nokkrir gagnkynheigðir einstak-
lingar verði látnir kenna samkyn-
hneigðum manni hvernig á að
reyna við stelpur. Nú spyrja marg-
ir: Til hvers? ■
Veiðileyfasalan hefur gengiðvel, margir veiðimenn eru
búnir að tryggja sér veiðileyfi
næsta sumar og færri komast að
í laxveiðiár eins og Leirvogsá,
þar sem hægt er að selja þrisvar,
fjórum sinnum í ána, vegna
ákafa veiðimanna að renna fyrir
fisk í henni.
Veiðifélagið Lax-á hefur farið
inn á nokkuð nýja braut í vetur
og boðið veiðimönnum að kaupa
veiðileyfi á Netinu á töluvert
lægra verði en gerist og gengur.
Það hefur ekki áður viðgengist í
veiðigeiranum að veiðileyfi séu
seld með jafn löngum fyrirvara
og í Laxá núna með svo miklum
afsætti. Reyndar var þetta mikið
gert síðasta sumar, en þá var
bara verið að selja veiðileyfi með
eins, tveggja daga fyrirvara og
menn urðu að vera snöggir að
hugsa. Laxá býður upp á veiði-
leyfi í Laxá í Aðaldal, Árbótar-
svæðið með 40% afslætti . En
síðasta sumar komu þarna á land
meðal annars þrír laxar yfir 20
pundin.
Sala á veiðileyfum er greini-
lega að færast meira á Netið,
veiðimönnum til góða, og það að
tryggja sér veiðileyfi með mikl-
um fyrirvara og græða á því er
bara af hinu góða fyrir alla. Við
eigum örugglega eftir að sjá
meira af þessu á næstu vikum og
mánuðum. ■
Ég myndi líklega skella mérbeina leið til New York,“ segir
Sigurður Kári Kristjánsson alþing-
ismaður, aðspurður um það hvert
leið hans myndi liggja næst ef
hann mætti velja. „Borgin er og
hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi
hjá mér enda hefur hún upp á svo
margt að bjóða. Ég á líka góða vini
í borginni sem gaman væri að
heimsækja. Í New York getur mað-
ur í rauninni gert allt sem manni
dettur í hug, hvort sem það er á
sviði menningar og lista eða á öðr-
um sviðum. Þarna er allt svo stórt í
sniðum og yfirþyrmandi og maður
getur ekki annað en hrifist með
andrúmsloftinu, hraðanum og
kraftinum sem þar ríkir. Ég hef
komið tvisvar sinnum til New
York. Síðari
ferðin var
mun eftir-
m i n n i -
legri en
sú fyrri,
því ég
kom til
b o r g a r -
innar þremur vikum eftir árásirn-
ar á tvíburaturnana. Andrúmsloft-
ið í borginni á þeim tíma var mjög
sérstakt, björgunarstarfinu var að
ljúka og minningarathafnir um
fallna borgara voru haldnar á
hverjum degi um alla borg. Ekki
bætti úr skák að á sama tíma stóð
almennum borgurum ógn af miltis-
brandi eins og mörgum er eflaust í
fersku minni. Móðir mín kom þeim
skilaboðum til mín meðan ég var
þarna úti að fljúga strax heim með
næstu flugvél, en ég varð ekki við
þeim óskum hennar.
Ef ég gerðist aðeins óraunsærri
varðandi val á áfangastað myndi ég
líklega nefna Hong Kong. Mig hef-
ur alltaf langað til Hong Kong enda
staðurinn mjög sérstakur. Saman-
burður á Hong Kong og Kína sýnir
líka með mjög skýrum hætti hvað
kapítalisminn skapar almennum
borgurum miklu betri lífsskilyrði
en kommúnisminn. Ef ég væri síð-
an á annað borð kominn til Hong
Kong myndi ég líklega nota tæki-
færið og ferðast dálítið um Kín-
verska alþýðulýðveldið til að sjá
með eigin augum hvernig ríkisvald
getur verið misnotað með hrikaleg-
um hætti.“ ■
Á veiðum
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiðiskap.
Veiðifélagið Lax-á:
Býður 40% afslátt
af veiðileyfum
- sex mánuðum áður en veiðimaðurinn
mætir til veiða
MINKALAUST SVÆÐI Hrepps-
nefnd Reykhólahrepps ályktaði
fyrir fáum dögum, þar sem hún
lýsir miklum áhuga á því að
hreppurinn verði gerður að
minkalausu svæði með tilstyrk
umhverfisyfirvalda. Minkanefnd
er þessa dagana að vinna í málinu
og verður fróðlegt að sjá hver nið-
urstaðan verður hjá henni. Það
fylgir greinilega alvara hjá Reyk-
hólahrepp í þessu máli en minka-
veiðimenn voru meðal annars
kallaðir á fundinn, þeir Eiríkur
Snæbjörnsson á Stað, Jón Atli Ját-
varðsson á Reykhólum, Reynir
Bergsveinsson á Gróustöðum og
Tómas Sigursveinsson á Máva-
vatni. Einar Örn Thorlacius er
sveitastjóri í Reykhólahreppi.
AÐALFUNDUR SKOTVEIÐIFÉ-
LAGSINS Aðalfundur Skotveiði-
félags Íslands verður haldinn í
Ráðhúskaffi 11. febrúar næst-
komandi og hefst fundurinn
klukkan 20.00. Arnór Þórir Sig-
fússon mun þar halda erindi um
ástand blesgæsastofnsins.
FJÖR Á OPNU HÚSI Það var víst
fjör á opnu húsi hjá Stangaveiðifé-
lagi Reykjavíkur í vikunni, en þar
voru meðal annars veiðibræðurnir
Gunnar og Ásmundur Helgasynir,
sem hafa víða veitt saman í ám
landsins. Hressa skapið var í það
minnsta með í ferð, þó stundum
klikki veiðin eins og hjá öðrum
veiðimönnum.
Fluguveiðiskólinn var líka kynntur
fyrir þeim sem mættu á opið hús í
gærkveldi en hann gekk feikivel í
fyrra og verður aftur í ár.
Rit og Rækt sem gefur út Sumar-
húsið og Garðinn, verður með stór-
sýningu í Laugardalshöll 7. til 9.
maí sumarið 2004. Verða þar meðal
annars fyrirtæki sem bjóða upp á
vörur og veiðileyfi fyrir veiðimenn
á öllu aldri. Heyrst hefur að eitt
veiðifyrirtækið ætli að vera með
stóra tjörn fyrir utan höllina þar
sem verður hægt að reyna
græjurnar fyrir sumrið, með fisk-
um í. Verður spennandi að taka þar
nokkur köst, en hvaða flugu skyldi
fiskurinn taka?
NÁMSKEIÐ Í FLUGUHNÝTINGUM
Veiðimenn hafa hnýtt mikið í
vetur og eiga eftir að hnýta
meira eftir áramótin. Veiðibúð-
irnar bjóða upp á námskeið,
stangveiðifélögin líka, og síðan
hnýta veiðimenn út um allt land
og segja eina og eina veiðisögu
til að krydda kvöldið. Síðan er
talað um hvað eigi að panta
næsta sumar í veiðiánum, sem
getur verið ansi erfitt að panta.
STEINÓLFUR UM ÆTI FISKA Ein
af þeim bókum sem gengu ágæt-
lega í jólabókaflóðinu var Einræð-
ur Steinólfs í Ytri-Fagradal, sem
Finnbogi Hermannsson skráði og
er fróðleg lesning. Steinólfur segir
frá því á einum stað í bókinni að
hann hafði farið fram á styrk til að
kanna hvers vegna laxfiskar marg-
földuðu þyngd sína á skömmum
tíma, með því að nærast á marfló.
En hún er uppistaðan í eldi fiska
sem fara grindhoraðir og forlegnir
niður úr ánum á vorin og koma svo
til baka sílspikaðir síðsumars. En
ekki fékk Steinólfur styrkinn og
fáir vita víst um grindhoraða lax-
fiska og þeirra æti.
SIV UM SKOTVEIÐAR Skotveiði-
menn geta aðeins tekið gleði
sína á ný, en umhverfisráðherra
Siv Friðleifsdóttir sagði á Al-
þingi að það að banna skotveiðar
væri alls ekki leið til frambúðar
og hún styddi skotveiðar. Bannið
þurfti að setja á vegna ástands
rjúpnastofnsins, en ekki vegna
tilfinninga eins eða neins.
KASTÆFINGAR Við sögðum frá
því fyrir skömmu að kastæfing-
ar væru hafnar í TBR-húsinu en
þær eru á sunnudagskvöldum,
svo það fari ekki á milli mála.
Ármenn eru með æfingar í
íþróttahúsi Kennaraháskólans á
sunnudögum. Stefán Hjaltested
hefur umsjón með kennslunni
hjá Ármönnum og aðeins eru 10
á hverju námskeiði. Milli þess
sem kennd eru köst er talað um
flugu, hnúta og hnýtingar. Víst
er að á þessum æfingum hafa
margir fengið sína fyrstu til-
sögn í veiðiskapnum, sem hefur
dugað vel og lengi.
VINSÆL Á
Það væri hægt að selja þrisvar, fjórum
sinnum í Leirvogsá, áin er svo vinsæl, en
kannski ekki á hverjum degi sem það
veiðast svona stórir laxar í henni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
N
AR
B
EN
D
ER
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
N
AR
B
EN
D
ER
■ Veiðifréttir
BÍÐA SPENNTIR
Veiðimenn bíða spenntir eftir veiðitíman-
um eins og þeir Valdimar Grímsson,
Rögnvaldur Guðmundsson, Lúther Einars-
son og Gísli Óskarsson.
MAGNÚS SCHEVING
Hann er maður að skapi Margrétar Eir
Hjartardóttur söngkonu. „Ég kann rosalega
vel við Magnús. Hann er alveg frábær,“
segir Margrét.
Magnús Scheving er maður að skapi Margrétar Eirar Hjartardóttur:
Bjartsýnn og á bor
MARGRÉT EIR HJARTARDÓTTIR
Kann vel við Magga Scheving
enda á hann bor.
Hann hefur búið til
ótrúlegt batterí með
eigin höndum og verið
mjög duglegur.
,,
NEW YORK
Sigurður Kári hefur komið tvisvar sinnum til borgarinnar sem aldrei sefur. „Þarna er allt
svo stórt í sniðum og yfirþyrmandi og maður getur ekki annað en hrifist með andrúms-
loftinu, hraðanum og kraftinum sem þar ríkir.“
New York í uppáhaldi
SIGURÐUR KÁRI
KRISTJÁNSSON
New York er
draumaáfanga-
staðurinn en
Hong Kong
heillar einnig.
VINSÆLIR
Sjónvarpsþátturinn Queer Eye for the Straight Guy hefur notið mikilla vinsælda. Nú berast
fregnir af því að framleiðslufyrirtækið hyggist snúa þessari hugmynd á haus.
Nýtt sjónvarpsefni sagt væntanlegt á markað:
A Straight Eye for the Queer Guy