Fréttablaðið - 31.01.2004, Page 46
Brosið 46 31. janúar 2004 LAUGARDAGUR
Á sunnudaginn var ég meðsýningu númer tvö á Kalda-
ljósi í Gautaborg,“ segir Hilmar
Oddsson leikstjóri. „Hún var
ekkert síðri en frumsýningin því
að á eftir henni voru umræður og
ég fann það að fólk vildi tala um
myndina við mig. Það gefur mér
mikið að fá svona svörun beint
frá áhorfendum. Það er fátt sem
toppar það. Þetta er svo beint
samband við áhorfandann.“
„Aðalleikarar myndarinnar,
feðgarnir Ingvar og Áslákur,
voru með í för og Ásláki var
hampað sem stjörnu í sænsku
dagblöðunum þar sem Áslákur
var sagður vera þrettán ára og
stærsta stjarna kvöldsins!“.
Kaldaljós heldur á Berlínar-
hátíðina í næstu viku. Eins og
fram hefur komið í Fréttablaðinu
hefur Miramax lýst yfir áhuga
sínum á myndinni og segir Hilm-
ar það ekki eina stórfyrirtækið
sem hafi gert það. „Það er mjög
mikið í húfi þar og mikilvægt
upp á framtíðina. Gautaborg var
svona fyrsta prufa á hvernig
áhorfendur myndu bregðast við
myndinni erlendis. Þeir hjá
Miramax vita vel að við ætlum
ekkert að ákveða neitt í þessum
efnum fyrr en eftir Berlínar-
hátíðina.“ ■
Vikan sem var
■ Vikan var lífleg hjá Hilmari Oddssyni
sem sýndi Kaldaljós í Gataborg.
Viðtökurnar voru góðar en engar
ákvarðanir verða teknar um heims-
dreifingu fyrr en eftir Berlínarhátíðina.
Rasmus
Brosið er heillandi rétt eins og
konan sem skartar því en hún er
boðberi aukins frelsis fjölmiðla.
Hver á brosið?
Fréttiraf fólki
Fréttiraf fólki
Berlín ræður úrslitum
Rithöfundurinn Mario VargasLlosa hefur þegið boð um að
halda ræðu á ráðstefnu Mont
Pelerin samtakanna á Íslandi
21.–24. ágúst árið 2005. Llosa er
einn af þekktustu rithöfundum
Suður- Ameríku og hefur til að
mynda verið
orðaður við
Nóbelsverð-
launin. Nýjasta
bók hans er
skáldverk
byggt á ævi
málarans
Gauguin. Ráð-
stefnan verður
haldin undir yfirskriftinni Liber-
ty and Property in the 21st Cent-
ury en Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson hefur veg og vanda af
undirbúningi hennar ásamt
Nóbelsverðlaunahöfundunum
Gary Becker og
James M.
Buchanan.
Davíð Oddsson
forsætisráð-
herra og einn
kunnasti hag-
fræðingur
heims, Harold
Demsetz pró-
fessor í UCLA.
Það er að vísu nokkuð langt þar
til þessir andans jöfrar á ýmsum
sviðum koma saman í Reykjavík
en áhugasamir bíða þegar...
Það hefur sjálfsagt ekki fariðfram hjá nokkru mannsbarni
að í ár fagna Íslendingar 100 ára
afmæli heimastjórnar en það er
ekki síst fyrir tilstilli Júlíusar
Hafstein að afmælið hefur farið
jafn hátt og raun ber vitni en
hann hefur haft veg og vanda af
undirbúningi hátíðarhaldanna.
Vaskleg framganga hans hefur
víða vakið athygli og hefur gefið
mönnum tilefni
til að rifja það
upp að Júlíus
var ofarlega á
lista Frétta-
blaðsins, sem
tekinn var
saman í sept-
ember á síð-
asta ári, yfir
hugsanleg forsetaefni. Þar sagði
einn álitsgjafa blaðsins að það
væri í „alla staði viðeigandi á
100 ára afmæli heimastjórnar að
svo glæsilega margreyndur full-
trúi ættarinnar hefjist til æðstu
metorða. Hann er maður sem
lætur hlutina gerast, vel giftur
og er meiri pólitískur refskák-
maður en ferill hans gefur til
kynna“. Annar bætti því við að
Íslendingar þyrftu „fulltrúa bláa
blóðsins í framboð. Erfitt væri
að hugsa sér forsetaframboð án
þess að einhver Hafstein komi
þar við sögu“.
Júlíus er því
með byrinn í
bakið og stuðn-
ingsmenn hans
bíða þess nú í
ofvæni að sitj-
andi forseti,
Ólafur Ragnar
Grímsson, geri
grein fyrir
framtíðaráformum sínum svo
hægt verði að skora á Júlíus í
fullri alvöru.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Greg Dyke.
Halldór Björnsson.
James Brown.
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Lárétt:
1 forða, 6 hestur, 7 tímabil, 8 ær, 9 þjálf-
að, 10 vinnuvél, 12 slæm, 14 fjandi, 15
ekki, 16 ullarhnoðri, 17 arða, 18 þekur.
Lóðrétt:
1 öl, 2 barn, 3 rykkorn, 4 greindarleg, 5
gott eðli, 9 fæða, 11 málmur, 13 upp-
spretta, 14 málms, 17 hvatur.
Lausn:
Sigríður Árnadóttir, sem umlangt skeið hefur verið
fréttamaður og nú síðast varaf-
réttastjóri Ríkisútvarpsins, flyt-
ur sig um set og er nýráðin
fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgj-
unnar.
„Starfið leggst vel í mig,“
segir Sigríður, sem byrjar á
sunnudaginn. „Ég hef lært af
manninum mínum þá vestfirsku
hjátrú að byrja ekki á neinu á
mánudegi. Ég hugsaði mig um
yfir helgi eftir að ég fékk tilboð
um nýtt starf. Valið var ekki
erfitt því þarna er spennandi
tækifæri bæði fyrir mig og nýj-
an miðil. Ég held að það losni úr
læðingi nýjar hugmyndir og
kraftar bæði hjá mér við að
skipta um vinnustað og hjá nýju
samstarfsfólki við það að ég
kem úr annarri átt.“
Hún segir að það sé ekkert á
nýrri fréttastofu sem hún vilji
gjörbylta því þeir fréttamenn
sem þar starfi standi sig mjög
vel. „Hver og einn hlýtur að
setja sitt mark á fréttastofuna
og mín aðkoma verður vonandi
til bóta. Auðvitað vil ég meira
áhorf og ég vona að það traust
sem ég hef notið hjá fréttastofu
Útvarpsins verði til þess að
áhorf aukist á fréttir Stöðvar 2.“
Aðspurð hvort það hafi haft
áhrif á ákvörðun hennar að taka
boði um stöðu fréttastjóra að
nýverið sótti hún um stöðu
fréttastjóra hjá Sjónvarpinu
sem hún ekki fékk segir Sigríð-
ur. „Ég gaf út boltann þegar ég
sótti um það starf að ég væri til-
búin til nýrra verka. Það hefur
kannski vakið athygli forsvars-
manna Íslenska útvarpsfélags-
ins að þarna væri manneskja
sem væri tilbúin að gera eitt-
hvað nýtt. Það er samt ekki með
neinum illindum sem ég hverf
frá mínum gamla vinnustað.“ ■
Lárétt: 1 bjarga,6jór, 7ár, 8óð,9æft,
10ýtu,12ill,14 ári,15ei,16ló,17ögn,
18smyr.
Lóðrétt: 1bjór, 2jóð,3ar,4gáfuleg,5
art, 9æti,11króm,13lind,14áls,17ör.
Þú vilt auðvitað frekar að gömlu góðu
ömmunæsrbuxurnar komist í tísku aftur?
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
Ætlar ekki að gjörbylta fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar en vonar að
aðkoma hennar hafi jákvæð áhrif.
Vestfirsk hjátrú að
byrja ekki á mánudegi
Sjónvarp
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
■ Nýr fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
KALDALJÓS
Kaldaljós fékk glimrandi viðtökur á Gautaborgarhátíðinni. Hilmar bindur enn meiri vonir
við Berlínarhátíðina í næstu viku.
(Herdís Þorgeirsdóttir)
Bókaútgáfan Bjartur fjallarum síðustu uppstokkun innan
herbúða keppinauta sinna í Eddu
- útgáfu hf. á heimasíðu sinni.
Þar kemur fram að það sé niður-
staða 18 mánaða endurskoðunar
á stærsta útgáfufélagi landsins
að leggja niður útgáfumerkin
Forlagið, Iðunn og Þjóðsögu.
Bjartsmenn segja það spennandi
að sjá „risann á íslenska bóka-
markaðnum hreyfa sig“ og bíða
spenntir eftir að sjá hvert risinn
fer og „hvar hann lendir“. End-
urskipulagning Eddu á að fela í
sér meiri rækt við nýsköpun og
skapandi skrif nýrra kynslóða og
þeir hjá Bjarti hafa að vonum
mikinn áhuga á
því „hvernig hinn
mikli hugsuður“
Kristján B. Jón-
asson þróar þetta
þýðingarmikla
starf og ekki síð-
ur „hvaða ása
hann hefur upp í
erminni“. Annars eyðir Bjartur
nokkru plássi í að tíunda íþrótta-
hæfileika hinna
ýmsu millistjórn-
enda í Edduliðinu
og láta þess getið
að Páll Valsson sé
skæður knatt-
spyrnumaður,
Sigurður Svav-
arsson sé mikil
handboltahetja að
ógleymdum, skákmeistaranum
og stjórnmálaskörunginum,
Hrannari B. Arnarsyni.
Ég hélt að málið með G-streng væri að nærfötin sæjust
ekki, en af hverju draga þær þá allar brókina upp á axl-
ir? Það væri hægt að fara í teygjustökk í þessu!