Fréttablaðið - 01.02.2004, Síða 2

Fréttablaðið - 01.02.2004, Síða 2
2 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR „Þeir eru í raun bjartir því þeir lýsa upp skammdegið.“ Kjartan Ólafsson, tónskáld og formaður Tónskálda- félags Íslands, hefur haft umsjón með skipulagn- ingu „Myrkra músíkdaga“ sem hófust í gær. Spurningdagsins Kjartan, væri ekki nær að hafa bjarta músíkdaga í skammdeginu? Segir Rúnu farna úr öskunni í eldinn Sophia Hansen segir það hafa verið mikið áfall þegar henni var tilkynnt í sjónvarpsútsendingu að Rúna hefði gifst tyrkneskum manni. Halim Al segir hugsanlegt að Sophia fái að hitta stúlkurnar í vor. SOPHIA HANSEN „Ég fékk áfall, vissi ekki hvernig ég átti að vera. Ég brotnaði niður, réði ekki við tárin og það var mjög erfitt að klára þáttinn. Ég man í raun ekkert eftir síðasta hluta þáttarins. Ég varð líka mjög reið yfir því að s t j ó r n e n d u r þáttarins skyldu ekki skýra mér frá þessu áður en þátturinn hófst. Mér fannst þetta mjög grimmt af þeim,“ sagði Sophia Hansen í samtali við Fréttablaðið frá Istanbul. Þannig voru viðbrögð Sophiu, þegar henni var á dögunum í beinni útsendingu, á tyrknesku sjónvarpsstöðinni Kanal D, skýrt frá því að yngri dóttir hennar og Ísaks Halim Al, Rúna Ayisegul, hefði gengið í hjónaband í Tyrk- landi í fyrrasumar. Rúna, sem varð 21 árs í fyrra- haust, var gift 25 ára Tyrkja, Ah- med Airkul í júní síðastliðnum í Istanbúl. „Ég er sannfærð um að gifting- in var nauðung. Ég veit að ef Rúna hefði gifst manni sem hún sjálf hefði samþykkt og henni liði vel með, þá væri hún búin að setja sig í samband við mig. En hún hefur greinilega farið úr öskunni í eld- inn, hún er ekki frjálsari þarna,“ sagði Sophia. Hún sagðist ekkert vita um tengdason sinn annað en að hann hefði gengið í skóla fyrir strang- trúaða og væri sagður líkjast föð- ur stúlknanna mjög. „Ég sé ekki að hún geti um frjálst höfuð strokið ef þetta er raunin. Rúna mun þá trúlega aldrei fá að koma til Íslands, hvorki í heimsókn né til lengri dvalar,“ sagði Sophia. Sophia hefur verið í Tyrklandi frá því 22. nóvember en ekki hitt dætur sínar á þeim tíma. „Hasip, lögfræðingur minn, náði sambandi við Halim sem sagði hugsanlegt að ég fengi að hitta stúlkurnar einhvern tímann í vor eða sumar. Ég veit ekkert hvar dætur mínar eru niðurkomn- ar, það er leitað að þeim dag og nótt. Ég á bókað far heim til Ís- lands 10. febrúar en ég verð að fresta heimferðinni. Ég get ekki hugsað mér að fara heim án þess að ná sambandi við stúlkurnar,“ sagði Sophia. Hún var síðast í sambandi við dætur sínar í byrjun febrúar árið 2002 og fékk þá að hitta þær nokkrum sinnum á tíu daga tímabili. Eldri dóttir Sophiu og Halims, Dagbjört Vesile er á 23. ári og er sögð búa hjá ættingj- um. „Það sem þær sögðu mér vorið 2002 er með hreinum ólíkindum. Mér er ekki vorkunn, dætrum mínum er vorkunn. Það er hreint ótrúlegt hvað þær hafa mátt þola gegnum árin. Það er tími kominn til að þær fái að lifa mannsæm- andi lífi. Það er mín heitasta ósk,“ sagði Sophia Hansen. the@frettabladid.is Vafasamar upplýsingar bandarísku leyniþjónustunnar um Írak: Bush vill ekki rannsókn WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti eyðir öllu tali um að koma á fót óháðri rann- sóknarnefnd á vegum þingsins, sem ætti að fara ofan í saumana á hugsanlegum mistökum leyni- þjónstu Bandaríkjanna fyrir inn- rásina í Írak. Hann sagðist fyrst vilja „vita staðreyndir“ málsins, og virðist vilja draga málið á langinn í þeirri von að það gleymist í kosn- ingabaráttunni. Fyrir innrásina í Írak bar Bush fyrir sig upplýsingar frá leyni- þjónustunni, og fullyrti að gríðar- leg hætta stafaði af hugsanlegri gereyðingarvopnaeign Saddams Hussein. Bush hefur hins vegar dregið mjög úr áherslu á þetta mál, eftir að David Kay, fyrrverandi yfir- maður vopnaleitar Bandaríkjanna í Íran, sagðist telja að Saddam Hussein hafi ekki haft yfir nein- um gereyðingarvopnum að ráða. Nú virðist Bush halda því fram að gereyðingarvopn Saddams hafi aldrei verið annað en aukaatriði í málinu. „Saddam var hættulegur,“ sagði Bush. „Nú er heimurinn betri og friðsælli og íraska þjóðin er frjáls.“ ■ Brenndist á heitu baðvatni: Drengurinn er á batavegi SLYS Ástand þriggja ára drengs, sem datt ofan í sjóðandi heitt bað og brenndist, er gott miðað við að- stæður að sögn vakthafandi sér- fræðings á gjörgæsludeild Land- spítalans í Fossvogi. Drengurinn hlaut annars stigs vatnsbruna á 25 prósent líkams- yfirborðs. Búist er við að dreng- urinn verði á gjörgæsludeild fram yfir helgi en verður þá fluttur á barnaspítala Hringsins ef allt gengur eftir. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæsl- unnar sótti drenginn til Patreks- fjarðar í fyrradag. ■ DR. ABDUL QADEER KHAN Rekinn í gær, þrátt fyrir að vera hálfgerð þjóðhetja í Pakistan. Helsti kjarnorkuvopna- sérfræðingur Pakistans: Þjóðhetja rekin ISLAMABAD, AP Abdul Qadeer Khan, höfundur kjarnorkuvopnaáætlun- ar Pakistans og helsti ráðgjafi þarlendra stjórnvalda í þeim mál- um, var í gær rekinn úr ráðgjafa- starfinu og sagt að halda sig heima við. Khan hefur verið þjóðhetja í Pakistan allar götur frá því hon- um tókst að koma upp í landinu kjarnorkuvopnum, sem beint var gegn erkifjandanum Indlandi. Forseti landsins, Pervez Mus- harraf, sá sér hins vegar ekki ann- að fært en að fórna Khan vegna upplýsinga um að hann hafi átt þátt í að útvega Írönum og Líbíu- mönnum kjarnorkuvopn á svört- um markaði. ■ Lögreglan í Árnessýslu: Kom í veg fyrir íkveikju LÖGREGLAN „Það logaði á kertum þegar inn var komið og í húsinu var mikill eldsmatur, aðallega pappír. Ekki var betur séð en að settur hafi verið eldfimur vökvi á veggi og víðar,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður Árnessýslu, en lögreglan í Árnes- sýslu kom í veg fyrir að tilraun til að kveikja í húsi á Stokkseyri tækist og um leið að hægt væri að svíkja út brunatryggingu hússins. Tveir menn voru handteknir fyrir utan húsið eftir að lögreglan kom að kertunum, rétt fyrir mið- nætti á fimmtudagskvöld, og einn var handtekinn í fyrrakvöld. Tveir mannanna hafa verið úr- skurðaðir í gæsluvarðhald til 4. febrúar en sá þriðji til 9. febrúar þar sem hans þáttur er talinn vera alvarlegri. Einn mannanna tengist einkahlutafélagi sem á húsið en það hefur staðið autt lengi. „Lögreglan varð vör við mannaferðir þarna fyrir nokkru síðan og vaknaði þá grunur um að eitthvað væri í bígerð og var farið að fylgjast með húsinu. Lögreglu- mennirnir eiga allan heiður af því að ekki fór verr,“ segir Ólafur Helgi. ■ GEORGE W. BUSH Forseti Bandaríkjanna reyndi sitt besta til að halda á sér hita úti í kuldanum í Washington í gær. Fjárlagafrumvarp: Hallinn vex WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti segir að í fjár- lögum ársins 2005 verði öryggis- mál, félagslegar þarfir og fjár- hagsleg ábyrgð í góðu jafnvægi. Andstæðingar hans, demókratar, halda því hins vegar fram að stef- na forsetans hafi skaðað efna- hagslíf Bandaríkjanna og getið af sér himinháan fjárlagahalla. Bush ætlar að kynna fjárlög sín á þingi á morgun, og er reikn- að með því að mínustala upp á 521 milljarð dala verði á reikningn- um. Þetta er mun meira en þeir 357 milljarðar dala, sem var halli síðustu fjárlaga. ■ Egilsstaðir: Tekinn með eiturlyf FÍKNIEFNAMÁL Lögreglan á Egils- stöðum fann um 70 grömm af kannabisefnum í bíl sem stöðvað- ur var við reglubundið eftirlit að- faranótt laugardags. Að sögn lög- reglu var bíllinn stöðvaður um klukkan fimm að morgni og voru tveir menn í bílnum. Annar mannanna gekkst við að eiga efnið og kvað það vera til eig- in nota. Manninum var sleppt að lokinni yfirheyrslu. ■ Bílvelta í Víkurskarði: Enginn í belti LÖGREGLAN Fjórir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar eftir að pallbíll valt í Víkurskarði rétt fyrir ofan Draflastaði seinni part- inn í gær. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar og valt tvær veltur. Enginn þeirra sem voru í bílnum voru spennt í ör- yggisbelti auk þess var bíllinn aðeins skráður fyrir þrjá far- þega. ■ BRUNI „Ég vaknaði við að glugginn í eldhúsinu uppi brotnaði. Ég fann brunalykt og sá reyk í ljósinu,“ segir Bylgja Sveinsdóttir íbúi í kjallaranum, en eldur kom upp í eldhúsi í húsi við Ölduslóð í Hafn- arfirði í gærdag. Bylgja segir að sér hafi brugð- ið og hennar fyrstu viðbrögð hafi verið grípa jakkann sinn og hlaupa yfir í næsta hús þar sem hún hringdi á hjálp. Hún býr í kjallaranum ásamt kærasta sín- um Þórhalli Sigurðssyni en amma hans á húsið. Þórhallur segir að amma sín hafi verið heima hjá foreldrum hans þar sem bíllinn hennar hafi orðið rafmagnslaus og var hann að vinna í bílnum ásamt föður sínum. Þórhallur sagði að skemmdirnar væru mest- ar í eldhúsinu en að mikið sót væri um alla íbúðina. Ari Hauksson hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að vel hafi gengið að slökkva eldinn og reykræsta því eldurinn hafi að mestu verið staðbundinn í eldhús- inu. Hann segir að betur hafi far- ið en horfðist en íbúðin sé töluvert skemmd. ■ VARAFORSETINN Hafi Dick Cheney einhverjar efasemdir um að upplýsingar leyniþjónustunnar frá því fyr- ir innrásin í Írak hafi verið réttar, þá heldur hann þeim efasemdum fyrir sjálfan sig. „Mér er ekki vorkunn, dætrum mínum er vorkunn. SOPHIA HANSEN Brotnaði niður þegar þáttastjórnandi í tyrknesku sjónvarpi upplýsti í beinni útsendingu að eldri dóttir hennar væri gift. Sophia segist ekki geta hugsað sér að koma heim án þess að sjá dætur sínar. BYLGJA OG ÞÓRHALLUR Bylgja og Þórhallur búa í kjallaranum en amma hans á húsið. Bylgja var ein í húsinu þegar eldurinn kom upp og voru hennar fyrstu viðbrögð að hlaupa út. Bruni í húsi við Ölduslóð í Hafnarfirði: Vaknaði þegar gluggi sprakk

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.