Fréttablaðið - 01.02.2004, Page 4
4 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
Hefurðu fundið fyrir óþægindum
vegna MyDoom-tölvuormsins?
Spurning dagsins í dag:
Fylgistu með enska boltanum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
72%
28%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar:
Skilvirk lyfjastefna sparar milljarða
SAMFYLKINGIN Á flokksstjórnar-
fundi Samfylkingarinnar sem
haldinn var á Grand hóteli í gær
var meginfundarefnið staðan í
heilbrigðismálum. Þar kom fram
að Samfylkingin teldi að íslenska
heilbrigðiskerfið væri mjög gott
og varaði Össur Skarphéðinsson,
formaður flokksins, við öllu tali
um að það væri í molum.
„Það eru hins vegar brotalamir
á kerfinu og við teljum hættu á að
jafnt aðgengi allra óháð efnahag
sé að raskast. Það eru vísbending-
ar uppi um að það sé að verða til
tvöfalt kerfi, meðal annars í
tengslum við sérfræðilækna, þar
sem hinir efnameiri geta keypt
sig fram fyrir. Stöðugt fleiri Ís-
lendingar veigra sér við að leita á
náðir kerfisins þar sem það er ein-
faldlega of dýrt,“ sagði Össur og
bætti því við að margir hefðu ekki
greiðan aðgang að heilsugæslu og
þyrftu að leita annarra og dýrari
úrræða. Gríðarlegur lyfjakostn-
aður var ennfremur ræddur á
fundinum.
„Samfylkingin hefur árum
saman vakið máls á nauðsyn þess
að taka upp harða lyfjastefnu. Það
hefur ekki verið gert fyrr en nú
og fyrir vikið hefur lyfjakostnað-
ur rokið upp úr öllu valdi, langt
umfram vísitölu neysluverðs. Sér-
fræðingar hafa bent á að hægt sé
að spara minnst þrjá milljarða
með skilvirkri lyfjastefnu,“ sagði
Össur. ■
Engin afskipti af
sölunni á SPRON
Viðskiptaráðherra íhugar aðgerðir til að kanna hvort stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis
hafi tryggt hagsmuni sjóðsins með samningum við Kaupþing-Búnaðarbanka.
Ráðherra segist vera að sinna eftirlitshlutverki sínu.
SPRON „Það hafa meðal annars
vaknað spurningar um það hvern-
ig stjórn SPRON-sjóðsins hafi í
raun verið skipuð. Hún virðist ekki
hafa verið kosin, en lög kveða á um
að stofnfjáreigendur eigi að kjósa
stjórnarmenn í sjálfseignarstofn-
unum,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráðherra.
Í bréfi sem viðskiptaráðuneyt-
ið hefur sent til stjórnar SPRON
er krafist svara við nokkrum at-
riðum sem varða samning sjóðs-
ins og Kaupþings-Búnaðarbanka,
nú KB-banka. Samkvæmt samn-
ingnum kaupir bankinn öll hluta-
bréf í SPRON sem SPRON verður
eigandi að, verði sparisjóðnum
breytt í hlutafélag eins og fyrir-
hugað er. Tilkynning um undirrit-
un samningsins var send Kaup-
höll Íslands 23. janúar síðastliðinn
og í henni kom fram að endur-
gjaldið fyrir hlutina væri sex
milljarðar króna. Í tilkynningu til
Kauphallarinnar frá því í desem-
ber kom fram að gengju áformin
eftir fengju væntanlegir hluthaf-
ar SPRON um níu milljarða í
greiðslu frá bankanum. Valgerður
segir brýnt að fá svör við ýmsu
varðandi samninginn.
„Viðskiptaráðherra fer með eft-
irlit með sjálfseignarstofnunum
sem stunda atvinnurekstur. Það að
ég sé að íhuga aðgerðir til að skoða
þessi mál þýðir ekki að ég sé að
hafa afskipti af sölunni á SPRON.
Það sem snýr að þessu er að við-
skiptaráðherra er að sinna því eft-
irlitshlutverki sem honum ber lög-
um samkvæmt,“ segir Valgerður.
Óskað hefur verið eftir svörum
frá sjálfseignarstofnuninni fyrir
5. febrúar næstkomandi og það
fer væntanlega eftir því hver þau
verða, hvort gripið verður til ein-
hverra aðgerða. Viðskiptaráð-
herra vill ekkert fullyrða í þeim
efnum, en telur líklegt að stjórn
SPRON fari nú mjög nákvæmlega
yfir málið og gefi síðan skýringar
á þeim forsendum sem liggja að
baki samningnum við Kaupþing-
Búnaðarbanka.
„Það þarf að útskýra hvort
þessi fyrirhugaði samningur get-
ur gengið eftir óbreyttur. Ég velti
því fyrir mér hvort stjórn stofn-
unarinnar sé að gæta hagsmuna
hennar í samræmi við lög þegar
hún samþykkir mismunandi sölu-
gengi, annars vegar til stofnfjár-
eigenda á genginu 2,13 og hins
vegar til sjálfseignarstofnunar-
innar á genginu 1,0. Einnig velti
ég því fyrir mér hvort stjórnin
geti tekið þátt í meðferð máls sem
varðar samningsgerð sjálfseign-
arstofnunarinnar við þriðja aðila,
ef stjórnarmaður hefur hagsmuna
að gæta sem kunni að fara gegn
hagsmunum stofnunarinnar,“ seg-
ir Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra.
bryndis@frettabladid.is
DAVÍÐ ODDSSON
Forsætisráðherra segir ekki óeðlilegt að
Alþingi og ríkisvald grípi inn í mál varðandi
samþjöppun á fjölmiðlamarkaðnum.
Forsætisráðherra um
fjölmiðlamarkaðinn:
Ríkisvaldið
grípi inn í
FORSÆTISRÁÐHERRA Davíð Oddsson
forsætisráðherra sagði í viðtali
við Ríkisútvarpið í gær að sam-
runi á borð við samruna Fréttar
og Norðurljósa, sem gengið var
frá á föstudaginn, yrði hvergi
leyfður þar sem hann þekkti til.
Forsætisráðherra sagði að á Ís-
landi giltu engar reglur um sam-
þjöppun og samruna á fjölmiðla-
markaði og lög skorti þar að lút-
andi. Hann sagði að bíða þyrfti nið-
urstöðu nefndar sem fjallaði um
þessi mál áður en ákveðið yrði með
lagasetningu í þessum efnum.
Davíð taldi ekki óeðlilegt að
Alþingi og ríkisvald gripu inn í
þessi mál, en að ekki væri tíma-
bært að ræða með hvaða hætti
það yrði gert. ■
SENDINEFND TIL ÍRAKS Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna,
sagði fyrir helgina
að hann ætlaði að
senda sendinefnd
til Íraks næstu
daga til þess að
kanna hvort
mögulegt sé að
flýta kosningum
eins og meirihlutahópur shíta-
múslima hafa krafist. Áður hafði
Annan sent tvo öryggisfulltrúa
SÞ til Íraks til þess að kanna
ástandið.
SPÁIR AUKNU OFBELDI John
Abizaid, yfirmaður bandaríska
heraflans á Persaflóasvæðinu,
segist eiga von á því að ofbeldið í
Írak muni aukast fram að fyrir-
huguðu valdaframsali. Hann seg-
ir að íslamskir öfgamenn og fyrr-
um stuðningsmenn Saddams
Hussein séu helsta ógnin. „Það
eru ótrúlega margir sem vilja
ekki að íraskt fullvalda ríki verði
að veruleika,“ sagði Abizaid.
REYNA AÐ NÁ FÓTFESTU Ricardo
Sanchez, yfirmaður herliðs
bandamanna í Írak, segir að
handtaka al-Kaída-foringjans
Hasans Ghul í Írak í síðustu viku
sanni að samtökin séu að reyna
að ná fótfestu í landinu en Ghul
var handtekinn af kúrdískum
hermönnum þegar hann reyndi
að læðast yfir landamærin frá
Íran. Handbragð þeirra sjáist
greinilega á sprengju- og sjálfs-
morðsárásunum.
SPRON „Í áformum um hlutafélaga-
væðingu og sölu hlutabréfa SPRON
til KB-banka er að mati stjórnenda
SPRON farið að lögum á allan hátt.
Fullreynt er einnig talið að hærra
verð fáist fyrir hlut sjálfseignar-
stofnunarinnar, en þeir sex millj-
arðar sem bankinn er reiðubúinn til
að greiða,“ segir Guðmundur
Hauksson, framkvæmdastjóri
SPRON, í yfirlýsingu vegna bréfs
viðskiptaráðherra til SPRON. Hann
segir fráleitt að gefa það í skyn að
hagsmuna sjóðsins sé ekki gætt í
hvívetna.
SPRON leitaði eftir hugmynd-
um frá Íslandsbanka, Landsbanka
og KB-banka um hugsanleg kaup
á hlutabréfum í SPRON hf., en
samkomulag var síðan undirritað
við þann sem best bauð.
„Meginástæða fyrir mismun-
andi gengi er sú að fyrir 81% hlut
sjálfseignarstofnunarinnar fæst
aðeins 5% atkvæðavægi í SPRON
hf. Þau 19% sem stofnfjáreigend-
ur munu eignast af hlutafénu ráða
hins vegar yfir því sem eftir er af
atkvæðavægi og fara um leið með
afgerandi meirihluta atkvæða-
magns,“ segir Guðmundur.
Framkvæmdastjóri SPRON
bendir á að stjórn sjóðsins hafi
verið skipuð af stjórn SPRON 15.
janúar síðastliðinn, í fullu sam-
ræmi við lög, og umboð hennar
því óskorað. Hann segir sjálfsagt
að viðskiptaráðuneytið leiti eftir
upplýsingum og gögnum um mál-
efni SPRON og að spurningum
þess verði svarað ítarlega.
„Það er leitt að ráðherra dragi í
efa heilindi stjórnarmanna sjóðs-
ins,“ segir Guðmundur. ■
Framkvæmdastjóri SPRON svarar viðskiptaráðherra:
Salan í sam-
ræmi við lög
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar var-
aði formaður flokksins við öllu tali um að
íslenska heilbrigðiskerfið væri í molum.
Hann sagði hins vegar brotalamir á kerfinu.
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Viðskiptaráðherra segir að útskýra verði hvort stjórn stofnunarinnar hafi gætt hagsmuna hennar í samræmi við lög þegar hún samþykkti
mismunandi sölugengi, annars vegar til stofnfjáreigenda og hins vegar til sjálfseignarstofnunarinnar.
Stjórnarmaður í
Pharmaco:
Kaupir í Ís-
landsbanka
VIÐSKIPTI Karl Wernersson, stjórn-
armaður í Pharmaco er kaupandi
að ríflega 3% hlut í Íslandsbanka
sem Landsbankinn keypti af líf-
eyrissjóðnum Framsýn. Lands-
bankinn var með kaupunum kom-
inn í tæplega 8% hlut í bankanum.
Lífeyrissjóðurinn Framsýn á
stjórnarmann í Íslandsbanka og
samvinna hefur verið á milli
þeirra og fulltrúa Lífeyrissjóðs
verslunarmanna í bankanum.
Auk þess að eiga í Pharmaco,
er Karl Wernersson eigandi lyf-
sölukeðjunnar Lyf og heilsa. ■
■ Írak
GUÐMUNDUR HAUKSSON
Framkvæmdastjóri SPRON segir fráleitt að gefa það í skyn að hagsmuna SPRON sé ekki
gætt í hvívetna og það sé leitt að ráðherra dragi í efa heilindi stjórnarmanna sjóðsins.