Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 8
8 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
Bætur fyrir hundalíf
„Að vera á sjó er hættulegt
hundalíf og rökin fyrir afslættin-
um eru meðal annars þau að
sjómenn fái bætur fyrir ýmislegt
af því sem þeir missa af í land-
inu.“
Eiríkur Stefánsson, fyrrum verkalýðsleiðtogi á
Fáskrúðsfirði, um sjómannaafslátt í DV
31. janúar.
Löggan vill frekar falsanir
„Einu sinni hringdi lögreglu-
maður í okkur og sagði að sér
þætti leiðinlegt að trufla okkur
en það væri óæskilegt að við
værum mikið að nota bréfsefni
Alþingis. ... Við þurftum því að
falsa bréfsefni þingsins í staðinn
og undirskriftina um leið og það
þótti löggunni skárra.“
Forsvarsmenn Baggalúts segjast aldrei fara yfir
strikið, í Fréttablaðinu 31. janúar.
Orðrétt
Ekkert leyndarmál
að baki velgengni
Dr. Dennis Kimbro er sérstakur gestur á ráðstefnu Stjórnunarfélags Ís-
lands næstu helgi. Hann hefur rannsakað velgengni og segir að mikil-
vægasti þáttur velgengni sé að fólk hafi skýr markmið í lífinu.
STJÓRNUN Stjórnunarfélag Íslands
stendur fyrir ráðstefnu næstu
helgi þar sem sérstaklega verður
tekin til umfjöllunar fræg bók
Bandaríkjamannsins Napoleon
Hill. Bók Hill heitir „Think and
Grow Rich“ (Hugsaðu og öðlastu
ríkidæmi) og hefur selst í nálega
tuttugu milljón eintaka frá því
hún kom út árið 1937.
Fyrirlesari á ráðstefnunni er
dr. Dennis Kimbro en hann var
fenginn til þess að endurskrifa og
fullgera bók, sem Napoleon Hill
hafði byrjað að vinna að, um lykla
að velgengni þeldökkra Banda-
ríkjamanna. Kimbro er vinsæll
fyrirlesari og höfundur fjöl-
margra bóka um velgengni.
„Stóra leyndarmálið um vel-
gengni er að það er ekkert leynd-
armál á bak við velgengni,“ segir
Kimbro. Hann segir að lögmál
velgengninnar séu manninum
löngu þekkt og hafi verið miðlað
frá kynslóð til kynslóðar.
Kimbro leggur mikla áherslu á
að velgengni sé ekki hægt að
mæla nema í samhengi við ein-
staklinginn sem um ræðir. „Ef
ung kona ákveður að gerast kenn-
ari í grunnskóla og vinnur mark-
visst að því markmiði þá nýtur
hún velgengni í lífinu ekki síður
en Colin Powell, George Bush og
Bill Gates,“ segir hann.
Dr. Kimbro segir mikilvægt að
fólk skilgreini markmið sín í líf-
inu. „Sá sem lifir jafnlanga ævi og
meðalmaðurinn hefur aðeins um
25 þúsund daga á jörðinni,“ segir
hann og að menn eigi að nýta þann
tíma til að uppfylla verðug mark-
mið. Kimbro segir fólk eigi ekki
að láta láta mótlæti bera bug af
sér. „Það sem ég hef komist að er
að fólk sem nær árangri veit ná-
kvæmlega hvað það vill gera í líf-
inu og vinnur stöðugt að því mark-
miði. Þetta fólk verður fyrir mót-
læti eins og við hin en bregst við
með því að leggja enn harðar að
sér,“ segir hann og tiltekur að
rannsóknir sýni að á leiðinni að
auðlegð verði meðalmilljónamær-
ingurinn í Bandaríkjunum gjald-
þrota 3,2 sinnum. „Flestir myndu
kikna undan slíkum vonbrigðum,“
segir hann.
„Fólk á að vera ánægt með þá
stefnu sem það hefur í lífinu, burt-
séð frá því hversu langt á leið það
er komið að markmiði sínu,“ segir
Kimbro og rifjar upp sögu af
gríska heimspekingnum Aristótel-
es. Til hans kom ungur maður og
vildi vita hvernig hann kæmist til
Ólympusfjalls. Svar heimspek-
ingsins var að ungi maðurinn ætti
að gæta að því að hvert skref sem
hann tæki væri í áttina að fjallinu.
Ráðstefna Stjórnunarfélagsins
er haldin í Háskólabíói á laugardag-
inn en dr. Kimbro hefur einnig ver-
ið fenginn til að flytja fyrirlestra
hjá einkafyrirtækjum en vonast til
að hafa tíma til þess að skoða helstu
ferðamannastaði landsins á meðan
á heimsókninni stendur.
thkjart@frettabladid.is
SVEITARSTJÓRNIR „Ég ákvað að
kynna mér ráðningarferlið og
hitti umsækjandann að máli í
Reykjavík í gær. Á þeim fundi
ákvað hann að draga umsókn sína
til baka,“ segir Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ,
um bensínafgreiðslumann sem
ráðinn hafði verið gjaldkeri Ísa-
fjarðarbæjar. Maðurinn hætti við
kvöldið áður en hann átti að mæta
og mun það hafa verið að tilstuðl-
an bæjarstjóra. Miklar deilur
spruttu um ráðningu mannsins.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að Þórir Sveinsson fjár-
málastjóri beri ábyrgð á ráðningu
mannsins og muni þurfa að svara
fyrir þann gjörning sinn. Sam-
kvæmt sömu heimildum mun bæj-
arstjóri hafa veitt honum ofaní-
gjöf. Magnús Reynir Guðmunds-
son, bæjarfulltrúi Frjálslynda
flokksins, lýsti ráðningu stjórn-
málafræðingsins sem hneyksli
þar sem gengið hefði verið fram
hjá heimamönnum með áratuga
reynslu af bókhaldsstörfum.
„Mín gagnrýni beindist ekki að
þeim sem ráðinn var í stöðuna
heldur því að gengið væri fram-
hjá heimamönnum,“ segir Magn-
ús Reynir
Í samtali við bb.is sagðist um-
sækjandinn, sem hætti við, hafa í
starfi sínu sem bensínafgreiðslu-
maður annast uppgjör afgreiðslu-
kassa bensínstöðvarinnar í afleys-
ingum. Um tíma starfaði umsækj-
andinn sem sendibílstjóri og hélt
þá akstursdagbók. Þá vann hann
um tíma við öryggisvörslu hjá
Landssímanum en hefur verið at-
vinnulaus í hálft annað ár. ■
VALGERÐUR
Tjáir sig lítið um samruna Norðurljósa og
Fréttar og vísar til nefndar sem skoðar
samþjöppun í viðskiptalífi.
Viðskiptaráðherra:
Þetta er sam-
þjöppun
FJÖLMIÐLAR „Ég lýsi ánægju með
Sigríði Árnadóttur sem nýjan
fréttastjóra Stöðvar 2 og Bylgj-
unnar. Það er jákvætt að frétta-
stjórar beggja sjónvarpsstöðv-
anna séu konur,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra
um samruna Norðurljósa og
Fréttar og breytingar í stjórnun-
arstöðum. Hún segir líka ánægju-
legt að Páll Magnússon, fyrrum
fréttastjóri, snúi aftur.
Um samrunann sjálfan vill Val-
gerður minna segja og vísar til
þess að nefnd er á störfum á veg-
um ráðuneytisins sem fjallar um
samþjöppun. „Þetta er samþjöpp-
un,“ segir hún þó og bætir við:
„Ég hef sagt áður að það sé um-
hugsunarefni hvort þetta sé eins
og hlutirnir eigi að vera.“ ■
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Steingrímur segir koma til álykta að grípa
inn í ef menn eru líka markaðsráðandi á
öðrum sviðum.
Steingrímur J. Sigfússon:
Nóg um
fákeppni
FJÖLMIÐLAR „Ég bjóst alveg eins
við þessu og aðdragandinn ýtti
undir umræður um stöðuna í fjöl-
miðlaheiminum á haustdögum,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, um
sameiningu Fréttar, Íslenska út-
varpsfélagsins og Skífunnar und-
ir einn hatt.
Steingrímur segir það ein-
dregna afstöðu sína að ástæða sé
að fara yfir málið og skoða vand-
lega hvort ekki eigi að setja ein-
hverjar griðingar til að hindra
óhóflega samþjöppun í fjölmiðla-
heiminum. Hann segir nóg um fá-
keppni og samþjöppun þó það sé
ekki líka í fjölmiðlum. „Einnig
kemur til álykta að grípa inn í ef
aðilar eru líka markaðsráðandi á
öðrum sviðum hvort sem það sé
matvöruverslun, fjármálaþjón-
usta eða annað.“ ■
Snjóflóðavarnir
á Norðfirði:
Tillaga að
matsáætlun
SNJÓFLÓÐAVARNIR Fjarðabyggð hefur
lagt fram drög að tillögu að matsá-
ætlun um fyrirhugaðar snjóflóða-
varnir fyrir svokallað Tröllagilja-
svæði á Norðfirði.
Varnirnar eiga að verja byggð-
ina og veita ásættanlegt öryggi
gegn snjóflóðum úr Ytra- og
Innra-Tröllagili, Miðstrandar-
skarði og Klofagili. Áætlað er að
byggja fjórar gerðir snjóflóða-
varnavirkja en um er að ræða
1.855 m löng upptakastoðvirki í
Tröllagiljum í um 400–600 metra
hæð yfir sjávarmáli, sambærileg
þeim sem reist voru við gerð
varnanna við Drangagil. Byggður
verður 620 metra langur þver-
garður og 23 keilur þar fyrir ofan.
Innst á svæðinu verður svo
byggður 390 metra langur leiði-
garður.
Varnir á Tröllagilja-svæðinu
eru þriðji áfangi af sex í því að
verja byggðina á Norðfirði gegn
snjóflóðum. ■
GUÐJÓN
Samruninn ekki ávísun á lagasetningu.
Guðjón A. Kristjánsson:
Sjálfstæðið
mikilvægt
FJÖLMIÐLAR „Ég vona að menn beri
gæfu til að leyfa þessum eining-
um að vera sem sjálfstæðastar,“
segir Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, um
samruna Fréttar og Norðurljóss.
Hann segir að verra væri ef reynt
yrði að stjórna þeim um of af
einni yfirstjórn en gerir engar at-
hugasemdir við samrunann.
Guðjón segir samrunann enga
ávísun á að setja lög um fjölmiðla
og eignarhald þeirra. Hins vegar
megi skoða samþjöppun almennt
og þá einnig með hliðsjón af öðr-
um mörkuðum, svo sem landflutn-
ingum og útgerð. Skoða megi
hvort samkeppnislög eigi að vera
sterkari og jafnvel setja lög gegn
hringamyndunum. ■
LOS ANGELES, AP Leikkonurnar Jane
Fonda, Salma Hayek og Sally
Field ætla að leggja Amnesty
International lið sitt í baráttunni
fyrir því að varpa ljósi á örlög
hundraða ungra kvenna sem hafa
horfið eða fundist látnar í bænum
Juarez í Mexíkó á undanförnum
árum.
Samtökin Amnesty Inter-
national hafa látið gera stóra
veggmynd til minningar um kon-
urnar við Hollywood Boulevard í
Los Angeles. Einnig hefur verið
skipulögð ganga í gegnum Juarez
á Valentínusardaginn, 14.febrúar,
til að þrýsta á mexíkósk yfirvöld
að upplýsa þessi morð og manns-
hvörf og tryggja öryggi kvenna í
bænum til frambúðar. Hingað til
hefur aðeins einn maður verið
dæmdur í fangelsi í tengslum við
þessar árásir.
Yfirvöld í Mexíkó telja að hátt
í 300 konur hafi verið myrtar í Ju-
arez á undanförnum tíu árum en
Amnesty International fullyrða að
þessi tala sé nær 400. Flest fórn-
arlömbin voru fátækar stúlkur á
aldrinum fjórtán til tuttugu ára.
Margar þeirra unnu í verksmiðj-
um á tollfrjálsu svæði á landa-
mærum Mexíkó og Bandaríkj-
anna. ■
Óupplýst morð og mannshvörf í Juarez í Mexíkó:
Hollywood-stjörnur
þrýsta á yfirvöld
MINNISVARÐI
Leikkonan Salma Hayek stendur við vegg-
mynd sem máluð var til minningar um þann
mikla fjölda kvenna sem hefur horfið í bæn-
um Juarez í Mexíkó á undanförnum tíu árum.
Nýráðinn gjaldkeri Ísafjarðarbæjar hætti við:
Bensínmaðurinn fær
ekki gjaldkerastúkuna
HALLDÓR HALLDÓRSSON
Tók í taumana.
NESKAUPSTAÐUR
Fyrirhugaðar snjóflóðavarnir eiga að verja
byggðina gegn snjóflóðum úr Ytra- og Innra
Tröllagili, Miðstrandarskarði og Klofagili.
BJARTSÝNN MAÐUR
Dr. Dennis Kimbro er sannfærður um að
allir geti öðlast velgengni í lífinu en til þess
þurfi skýr markmið.