Fréttablaðið - 01.02.2004, Síða 16
16 4. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
5,1%* – Peningabréf Landsbankans
www.landsbanki.is
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.12.2003–31.12.2003 á ársgrundvelli.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa
hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans
eða í síma 560 6000.
FYLGST MEÐ MARKAÐNUM
Eftir að hafa lækkað fjóra daga í röð
hækkaði japanska Nikkel vísitalan loks á
föstudaginn. Við lokun markaðar stóð vísi-
talan í 10.783,61 stigum og hafði þá
hækkað um 0,04%.
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r
á
su
nn
ud
eg
i
VIÐSKIPTI Í KAUPHÖLL ÍSLANDS
*Gengi bréfa
síðustu sjö daga
3,7%
-1,7%
-2,8%
14,7%
4,7%
15
12
9
6
3
0
-3
Mesta
hækkun
(%)*
*Gengi bréfa
síðustu sjö daga
6
3
0
-3
-6
-9
-12
Mesta
lækkun
(%)*
Mesta velta
mán. þri. mið. fim. fös.
Eimskipafélag Íslands hf.
Pharmaco hf.
Marel hf.
Fyrirtæki Velta síðustu sjö daga
Flugleiðir hf 6.247 milljónir
Íslandsbanki hf. 4.770 milljónir
Pharmaco hf. 1.873 milljónir
Landssími Íslands hf.
Og fjarskipti hf.
Grandi hf.
mán. þri. mið. fim. fös.
-4,8%
HANNES SMÁRASON
Aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar er reyndur í fjárfestingum. Ásamt tengdaföður sínum, Jóni Helga Guðmundssyni í BYKO, hefur hann fjárfest víða í íslensku samfélagi.
Nú síðast með kaupum á kjölfestuhlut í Flugleiðum.
Fjárfestar taka flugið
Eimskipafélagið réði för í Flugleiðum um langt skeið. Í umbreytingum viðskiptalífsins losnaði
um eignarhaldið. Hannes Smárason og tengdafaðir hans, Jón Helgi Guðmundsson, sjá tækifæri í
Flugleiðum. Hannes mun fylgjast með fjárfestingunni og er líklegur stjórnarformaður félagsins.
Þeir sem fylgjast með viðskipt-um á Íslandi hafa tekið eftir
nafni Hannesar Smárasonar. Hann
hefur ekki verið áberandi útávið,
en nafn hans hefur skotið upp koll-
inum reglulega í tilkynningum inn
á Kauphöll Íslands sem viðskipta-
félagi tengdaföður síns Jóns Helga
Guðmundssonar sem rekið hefur
byggingavöruverslunina BYKO
með miklum myndarbrag.
Hannes hefur svo sem í öðru að
snúast en að kaupa íslensk fyrir-
tæki. Hann er aðstoðarforstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar. Þeir
hafa ekki látið deigan síga í fjár-
festingum. Þeir eru meðal annars
hluthafar í KB-banka, Kaupási og
nú síðast bættist við kjölfestufjár-
festing í Flugleiðum. „Það eru
tækifærin sem koma upp,“ segir
Hannes um ástæður fjárfesting-
anna. „Það er svo margt sem hefur
breyst í viðskiptalífinu á síðustu
tíu árum. Tækifæri sem ekki voru
til staðar eru til staðar. Félög sem
voru í langtímaeigu ákveðinna að-
ila eru það ekki lengur. Viðskipta-
lífið er dýnamískara. Það hefur
eitthvað að gera með kynslóða-
breytingar. Síðast en ekki síst hef-
ur fjármálaumhverfið gjörbreyst.“
Um áratugaskeið var ráðandi
hlutur Flugleiða í höndum þeirra
sem réðu Eimskipafélaginu.
Straumur-fjárfestingarbanki hélt á
kjölfestuhlut í félaginu eftir miklar
hræringar sem enduðu í að bank-
arnir skiptu upp helstu fyrirtækjum
landsins. Hluturinn var til sölu. Jón
Helgi og Hannes gripu tækifærið.
Hannes segir að þeir hafi verið bún-
ir að skoða félagið um nokkurt
skeið. „Við þekktum nokkuð til
félagsins,“ segir Hannes og bætir
því við að nú hefjist raunveruleg
kynni þeirra af félaginu. „Við mun-
um ræða við stjórnendur og dýpka
skilning okkar á félaginu.“ Sjálfur
er hann á ferð og flugi.
Eiginkona hans Steinunn Jóns-
dóttir innanhússarkitekt er í fram-
haldsnámi í Boston, þar sem þau
bjuggu áður. Fjölskyldan er því í
Bandaríkjunum í vetur. Hannes
þarf að sinna erindum vinnunnar
bæði hér heima og í Bandaríkjun-
um. Eðli starfsins þýðir að fyrir
samvistir við fjölskylduna skiptir
ekki öllu máli hvorum megin Atl-
antsála fjölskyldan dvelur. Eftir að
námi lauk við MIT, einn virtasta
háskóla Bandaríkjanna, vann
Hannes í fimm ár hjá ráðgjafafyr-
irtæki í Boston. Starf hjá nýju fyr-
irtæki, Íslenskri erfðagreiningu,
kallaði hann heim. Hann segir fjár-
festingu í Flugleiðum ekki hafa
áhrif á núverandi starf.
Vanur áhætturekstri
Rekstur flugfélaga er almennt
talinn mjög áhættusamur og
sveiflukenndur. Hannes er ekki
ókunnur áhættu og sveiflum á
markaði. Forystusveit deCODE
hefur mátt horfa á gríðarlegar
sveiflur í gengi bréfa fyrirtækis-
ins. Þegar ástand markaða var
sem verst var gripið til þess að
skera niður kostnað. „Við þurftum
að gera það,“ segir hann og verð-
ur hugsi. „Það var nauðsynlegt að
gera ráðstafanir til þess að lengja
þann tíma sem við höfðum meðan
markaðurinn var í lægð.“ Hannes
útskýrir að eðli líftæknifyrir-
tækja af gerð deCODE sé þannig
að tekjur séu litlar í langan tíma,
en ef og þegar þær komi þá verði
þær verulegar. Áhættan er víðar.
Jón Helgi og Hannes fjárfestu í
fjárfestingarfélaginu Gildingu.
Gilding var stofnuð um það leyti
sem hagsveiflan var í hámarki.
Félagið tapaði miklu, en var síðan
sameinað Búnaðarbankanum.
Einkavæðing bankanna var
framundan. „Við fórum óvenju-
lega leið og keyptum meira í
bankanum á markaði.“ Sú eign
nægði ekki til að komast í ráðandi
stöðu í bankanum. Fjárfestingin í
bankanum reyndist góð og sam-
einingin við Kaupþing hefur enn
aukið á vöxtinn. Mikill kraftur
fylgdi einkavæðingunni. „Það fór
allt af stað. Það átti enginn von á
að þetta gerðist svona hratt.“
Hann segir þessa þróun jákvæða;
miklu fleiri láti nú til sín taka í
viðskiptalífinu. „Það eru ekki
lengur einn eða tveir hópar sem
láta til sín taka í viðskiptalífinu.
Það eru miklu fleiri nú sem láta til
sín taka í viðskiptum.“
Jón Helgi og Hannes voru ger-
endur í þeirri atburðarás sem
leiddi til þessara miklu umskipta
á eignarhaldi í viðskiptalífinu.
„Við keyptum í Framtaki-fjárfest-
ingarbanka og vissum þá ekki að
Straumur hafði keypt á sama
tíma. Við seldum okkur svo út úr
Framtaki og inn í Landsbankann.
Þar með voru þeir komnir með
nokkuð stóran hlut í Straumi. Við
þessar tilfæringar losnaði um
talsvert mikið af eigum.“ Flug-
leiðir voru á lausu. „Það var alveg
ljóst að á einhverjum tímapunkti
myndu fjármálastofnanir vilja
losa sig við þessar eignir, Ekki
síst í ljósi gagnrýni á þátttöku
Við erum ekki að
kaupa þessi bréf til
að selja þau fljótlega aftur.
Hugsunin er sú að arðsem-
in komi af rekstri fyrirtæk-
isins. Við ætlum að vera
virkir hluthafar í félaginu.
,,