Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 27
27SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004 Kolbeinn kafteinn Besti vinur Tinna. Fyrr verandi skipstjóri úr kaup- mannsflotanum. Kolbeinn kemur fyrst fyrir í bókinni Krabbinn með gylltu klærn- ar en þar var hann í auka- hlutverki og ekkert sem benti til þess að hann kæmi aftur við sögu í öðrum ævintýrum Tinna. Það er fyrst í Dularfullu stjörnunni sem Kolbeinn verður ein aðalpersóna Tinnabókanna. Kolbeinn á það til að kvarta undan Tinna vini sín- um vegna ævintýranna sem þeir lenda í en hann eltir hann þó hvert sem er, oft- ast gegn eigin vilja. Kol- beinn er mikil tilfinninga- vera; klaufskur, óheppinn, hvatvís, göfuglyndur, upp- stökkur og orðljótur, en þykir með eindæmum hjartahlýr. Kolbeini þykir sopinn góður og á það til að móðga mann og annan með orðbragði sínu. Skapti og Skafti Skapti og Skafti eru þröng- sýnir lögreglumenn sem hlýða skipunum í blindni. Þeir eru hrokafullir, klaufa- legir og alvarlegir og mun heimskari en þá grunar. Skapti og Skafti eru furðu- lega líkir þrátt fyrir að þeir séu ekki tvíburar – ekki einu sinni bræður. Í fyrstu virðist sem ekkert greini þá að en ef grannt er skoðað sést að þeir eru ekki með eins yfirvararskegg. Skeggið á Skapta er beint þar sem það er örlítið snúið á Skafta. Skapti og Skafti komu fyrsta fram í svart-hvítri út- gáfu af Vindlum faraós árið 1934 en þeir koma einnig fyrir í opnunarramma lita- útgáfunnar af Tinna í Kongó. Skaptarnir eiga í undarlegu sambandi við aðrar persón- ur í bókunum, þeir eru hluti af vinahópnum en þá grunar oft Tinna um að hafa framið hina ýmsu glæpi og hafa oftar en einu sinni reynt að handtaka hann fyrir þá. Prófessor Vandráður Prófessor Vandráður er ein litríkasta persóna Tinna- bókanna og í uppáhaldi hjá mörgum. Hann er einkar utan við sig, hefur slæma heyrn og er afar tilfinninga- næmur. Vandráður er þús- undþjalasmiður og snjall uppfinningamaður. Hann á meðal annars hugmyndina að geimfarinu sem ferjar Tinna til tunglsins. Seinna í bókunum, eftir að hann finnur upp dómsdagsvél sem menn ásælast til að nota til hernaðar, ákveður hann að venda kvæði sínu í kross og snýr sér að garð- yrkju. Hergé var sagður hafa mikið dálæti á sérvitru fólki eins og Vandráður prófess- or. Rassópúlos Rassópúlos er einn helsti glæpamaður Tinna- bókanna. Hann hóf ferilinn í kvikmyndabransanum en breytti síðan um starfsvett- vang og sneri sér að eitur- lyfjasölu. Hann er yfirmaður dularfullra samtaka sem teygja anga sína út um all- an heim. Rassópúlos lítur á Tinna sem einn sinn aðalóvin og lætur allt í fari blaðamanns- ins fara í taugarnar á sér. Rassópúlos kemur fyrst fyrir í bókinni Tinni í Amer- íku þar sem hann fagnar Tinna sem hetju. Þeir hitt- ast aftur í Vindlum faraós- ins þar sem Rassópúlos hótar Tinna öllu illu og bið- ur hann um að leggja nafn sitt á minnið. Þeir hittast svo aftur í Bláa lótusnum þar sem upp kemst um Rassópúlós sem er höfuð- paurinn í stórum ópíum- smyglhring. Rassópúlos er þekktur fyr- ir afskaplega vondan fata- smekk. Vaíla Veinólía Óperusöngkona frá La Scala í Mílan. Vaíla Veinólía er hin týpíska duttlunga- fulla prímadonna. Návist hennar og rödd er eins og fellibylur. Helsta fórnarlamb hennar er Kolbeinn kafteinn sem hún virðist hafa einstakt lag á að gera brjálaðan með söng sínum. Hún syngur yfirleitt aðeins eina aríu, Gyðingasönginn úr óperunni Faust eftir Gounod, sem hún syngur við öll tækifæri. Arían á að tákna spegilmynd hennar sem hún dáist að öllum stundum. Þjónninn Jósep Jósep var um tíma þjónn hjá hinum undarlegu Fugla- bræðrum. Hann er alltaf glæsilegur til fara, duglegur, tillitssamur og þolinmóður með eindæmum. Hann virðist þó vanta ákveðna hæfileika sem þjónar þurfa að bera. Jósep er treyst af öllum gestum Mylluseturs, þar sem Kolbeinn kafteinn býr. Hann kom fyrst fram í ævintýrinu um Einhyrning- inn. Alkasar hershöfðingi Alkasar hershöfðingi er byltingarsinni sem berst af lífi og sál gegn einvaldinum Tapióka um lýðveldið San Theódóros. Alkasar er vinur Tinna sem óvinur – allt eftir því hvort blaðamaðurinn styður málstað hans eður ei. Alkasar hershöfðingi starfar einnig sem hnífa- kastari og þá undir nafninu Ramone Zarate. Hann kem- ur fyrir í þónokkrum Tinna- bókum, uppstrílaður í foringjabúninginn. í borg- aralegum klæðnaði eða sviðsfatnaði. Kemur víða við Persónur BANDARÍKIN SAN THEÓDÓRO PERÚ SURTSEY SKOTLAND BELGÍA LONDON ÞÝSKALAND SYLDAVÍA OG BÚRDÚRÍA KONGÓ EGYPTALAND JÓRDANÍA RÚSSLAND TÍBET KÍNA Tinni og Tobbi hafa komið víðavið á ferðalagi sínu um heim- inn. Hann hefur ferðast um flestallar heimsálfurnar, allt frá Bandaríkjunum til Kína og með viðkomu í Surtsey. Tinni býr þó í Belgíu hjá vini sínum Kolbeini kafteini og gerast flest ævintýrin þar í kring. Hergé bjó þó einnig til nokkur lönd sem Tinni heimsækir, svo sem Syldavía og Búrdúríu sem eiga að vera í Austur-Evrópu, sem og San Theódóro í Suður-Ameríku. Margir vilja meina að Tinni eigi ekki hvað síst vinsældum sín- um að þakka hversu víðförull hann hefur verið. Bækurnar hafa enda verið þýddar á yfir hundrað tungumál – þar á meðal svalí og að sjálfsögðu íslensku. ■ SÁDI-ARABÍA BROSANDI TINNI Eitt einkenni á Tinnabókunum er hversu víða Tinni fer. Hann hefur farið til allra heimsálfa, nema Eyjaálfu og Antartíku. TUNGLFARIÐ Tinni ferðaðist ekki bara um jörðina heldur fór hann líka til tunglsins. Tunglfarið hefur smám saman orðið eitt af táknum Tinna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.