Fréttablaðið - 01.02.2004, Síða 39
39SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004
Þýska knattspyrnan:
Fjögurra
stiga forysta
Bremen
FÓTBOLTI Werder Bremen hélt upp-
teknum hætti þar sem frá var
horfið fyrir vetrarfrí í þýsku 1.
deildinni í knattspyrnu. Liðið bar
sigurorð af Herthu Berlin á
heimavelli, 4-0, og hefur enn fjög-
urra stiga forystu á toppi deildar-
innar. Brasilíumaðurinn Ailton
var í miklu stuði og skoraði tvö
fyrstu mörk Werder Bremen en
hann er langmarkahæsti maður-
inn í deildinni með átján mörk í
jafnmörgum leikjum.
Stuttgart komst í annað sæti
deildarinnar með því að leggja
Hansa Rostock að velli, 2-0, á
heimavelli. Það tók leikmenn
Stuttgart þó tæpan klukkutíma að
komast yfir í leiknum en eftir að
Hvítrússinn Aleksander Hleb
kom þeim yfir þá var aldrei
spurning hvort liðið færi með sig-
ur af hólmi. Það var síðan marka-
hókurinn Kevin Kuranyi sem gull-
tryggði sigurinn með marki þegar
fjórtán mínútur voru til leiksloka.
Bayern München tapaði
óvæntum stigum gegn Eintracht
Frankfurt og er liðið nú sex stig-
um á eftir Werder Bremen. Það
leit þó út fyrir þægilegan dag hjá
Bæjurum eftir að Hollendingur-
inn Roy Makaay hafði komið þeim
yfir strax á 1. mínútu leiksins.
Leikmenn Frankfurt gáfust þó
ekki upp og Ervin Skela jafnaði úr
vítaspyrnu rétt undir lok fyrri
hálfleiks.
Bayer Leverkusen getur
komist annað sæti deildarinnar í
dag en þá mætir liðið Freiburg á
útivelli. ■
HANDBOLTI Svíar tryggðu sér sjö-
unda sætið á Evrópumeistaramót-
inu í handknattleik í Slóveníu í
gær með því að leggja lið Serba
og Svartfellinga að velli, 35-34, í
leik um sjöunda sætið í gær.
Sigurinn var 100. sigur liðsins
undir stjórn hins sigursæla Bengt
Johansson á stórmóti og líklega sá
síðasti þar sem Svíum tókst ekki
að tryggja sér sæti á Ólympíuleik-
unum í Aþenu.
Leikurinn var gífurlega jafn
allan leikinn og var munurinn á
liðunum aldrei meiri en þrjú
mörk. Serbar og Svartfellingar
voru reyndar komnir með góða
stöðu en Svíar skoruðu fjögur af
síðustu fimm mörkum leiksins og
tryggðu sér sigur; það síðasta
skoraði Jonas Larholm þegar rúm
mínúta var til leiksloka. Kim And-
ersson og Jonas Larholm voru
markahæstir hjá Svíum með sjö
mörk hvor, Stefan Lövgren,
Marcus Alhm og Sebastian Seifert
skoruðu fjögur mörk hver og
Johann Pettersson og Robert Arr-
henius skoruðu þrjú mörk hvor,
Thomas Svensson varði sjö skot í
marki Svía og Peter Gentzel varði
fimm skot.
Milorad Krivokapic var
markahæstur hjá Serbum og
Svartfellingum með sex mörk og
Branko Kokir, Marko Krivokapic
og Ratko Nikolic skoruðu fimm
mörk hver. ■
Svíar í sjöunda sæti á EM:
100. sigur Bengts
Belgísk barátta á Opna ástralska meistaramótinu í tennis:
Henin-Hardenne vann Clijsters
TENNIS Belgíska tennistúlkan
Justin Henin-Hardenne styrkti
stöðu sína sem besta tennisstúlka
heims ennfrekar þegar hún bar
sigur úr býtum í einliðaleik Opna
ástralska meistaramótsins í tenn-
is í gær.
Henin Hardenne lagði löndu
sína Kim Clijsters, sem er í öðru
sæti á heimslistanum, í þremur
settum, 6-3, 4-6 og 6-3, og vann þar
með Opna ástralska meistara-
mótið í fyrsta sinn.
„Við vorum báðar taugaveikl-
aðar í leiknum. Ég vann hins veg-
ar mikilvægu stigin og það gerði
gæfumuninn. Það voru miklar til-
finningar í þessum leik. Mér
fannst ég aldrei ætla
að klára leikinn og það
var sérstaklega erfitt
þegar mér fannst
áhorfendurnir snúast
á sveif með Kim í loka-
settinu. Ég er búinn að
vinna þrjú stórmót nú
þegar og tilfinningin
er ótrúlega góð,“ sagði
Henin-Hardenne eftir
sigurinn.
Clijsters, sem hef-
ur ekki enn unnið eitt
af stóru mótunum fjórum, var
svekkt eftir leikinn en sagði að
Henin-Hardenne hefði átt sigur-
inn skilið. ■
BELGÍSK BARÁTTA
Belgísku stúlkurnar Justin-Henin Hardenne
og Kim Clijsters sjást hér með verðlaun
fyrir einliðaleikinn á Opna ástralska
meistaramótinu í gær.
ÞÝSKA 1. DEILDIN
B. Dortmund-Schalke 0-1
0-1 Ebbe Sand (89.).
Köln-M’gladbach 1-0
1-0 Lukas Podolski (52.).
E. Frankfurt-B. München 1-1
0-1 Roy Makaay (1.), 1-1 Ervin Skela, víti
(45.).
1860 München-Kaiserslaut.ern 2-1
1-0 Benjamin Lauth (18.), 1-1 Vratislav
Lokvenc (25.), 2-1 Benjamin Lauth (39.).
Stuttgart-Hansa Rostock 2-0
1-0 Aleksander Hleb (59.), 2-0 Kevin
Kuranyi (76.).
Bochum-Wolfsburg 1-0
1-0 Frank Fahrenhorst (35.).
Werder Bremen-Hertha Berlin 4-0
1-0 Ailton (17.), 2-0 Ailton (30.), 3-0 Jo-
han Micoud (34.), 4-0 Nelson Valdes
(90.).
W. Bremen 18 13 3 2 49:20 42
Stuttgart 18 11 5 2 26:7 38
B. München 18 10 6 2 41:20 36
B. Leverkusen 17 10 5 2 34:17 35
Bochum 18 8 5 5 31:22 29
Schalke 18 7 6 5 24:23 27
Wolfsburg 18 8 1 9 35:33 25
B. Dortmund 18 7 4 7 29:26 25
Hamburger SV 17 6 5 6 23:29 23
1860 München 18 6 4 8 20:27 22
Freiburg 17 6 3 8 24:37 21
Hannover 17 5 5 7 30:37 20
H. Rostock 18 5 4 9 24:29 19
M’gladbach 18 5 4 9 18:25 19
Kaiserslautern 18 5 3 10 21:33 18
Köln 18 4 4 10 16:26 16
E. Frankfurt 18 3 4 11 17:29 13
H. Berlin 18 2 7 9 15:37 13