Fréttablaðið - 01.02.2004, Síða 46
Ég er reiður 46 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
Ég byrja á því að halda upp á100 ára afmæli heimastjórnar
í dag með einhverjum hætti, til
dæmis með því að fara í kirkju-
garðinn. Ég telst víst til afkom-
enda þessa Hafsteins,“ segir
Hallgrímur Thorsteinsson, dag-
skrárgerðarmaður á Útvarpi
Sögu. Annars segist hann ekki
mikið fyrir það að plana framtíð-
ina. „Ég ætla að fjalla um afmæl-
ið í þættinum á mánudag, um þær
háleitu hugsjónir sem uppi voru
þá þegar menn höfðu verk að
vinna og það lék enginn vafi á
hvað þyrfti að gera. Ekki eins og
núna þegar allt er óljóst. Það
þurfti siglingar til landsins, það
þurfti að fá síma og vegi.“
Einnig segist Hallgrímur ætla
að fjalla um haustskýrslu Hag-
fræðistofnunar á fimmtudaginn,
sem mun fjalla um fjármál heil-
brigðiskerfisins. „Síðast fjölluðu
þeir um byggðamál og úr því kom
vitræn umræða. Það verður von-
andi það sama upp á teningnum
núna. Þetta verður svolítið ljós í
skammdeginu. Uppbygging Út-
varps Sögu heldur einnig áfram í
vikunni og ég held áfram að elt-
ast við stuðningsaðila og gylla
fyrir þeim þetta kostaboð sem
auglýsingar á Útvarpi Sögu er.
Að öðru leyti ætla ég að fylgjast
með öðrum fjölmiðlum og
atburðum og auðvitað með hækk-
andi sól.“ ■
Vikan sem verður
HALLGRÍMUR THORSTEINSSON
■ er afkomandi Hannesar Hafstein og
heldur upp á aldarafmæli heimastjórnar.
...yfir niðurskurði Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks í
heilbrigðiskerfinu segir Flosi Ei-
ríksson, bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Ekki sami
skýrleiki og var
Er jólafrí þingmanna
of langt?
Agnar Burgess
20 ára, nemandi MR
Já, mér finnst það. Síðansegjast þeir vinna í frí-
inu. Sjálfur hef ég nú farið
í páskafrí stuttu fyrir próf
en þó ekkert verið neitt
ofboðslega duglegur eftir
því. Við verðum bara að
vona að þingmennirnir séu betri en ég í
sjálfsaganum.“
Mist Hálfdánardóttir
15 ára, nem-
andi Hagaskóla
Ég hef enga skoðun á því.Mér finnst að minnsta
kosti alveg mega lengja
skólafríið.“
Sindri Eldon
17 ára, nem-
andi Borgar-
holtsskóla
Ég segi að þetta sé allt að fara til helvítis.Hvað á fólk svo að gera á þessum tíma
þegar það kemur upp eitthvað neyðar-
ástand sem getur bara verið leyst af þing-
mönnum? Þetta gengur ekki lengur! Nei, ég
er bara að spauga. Ég varð ekki einu sinni
var við að þeir væru í jólafríi. Fá jólamenn
svona langt þingfrí? Þingmenn eru í raun-
inni jólasveinar og þeir þurfa þetta þingfrí til
þess að starfa sem slíkir yfir jólahátíðina.“
Diljá Mist Einarsdóttir
16 ára, nemandi Versl-
unarskóla
Nei, það finnst mér ekki. Þetta erumenn sem taka mikilvægar ákvarð-
anir fyrir þjóðina og þeir þurfa að fá frí
til þess að hvíla hugann. Ég bara vona
að þeir hafi nýtt jólafríið vel.“
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Búlgaríu.
Sigríður Árnadóttir.
100 ár eru liðin frá stofnun
heimastjórnar á Íslandi.
Ung ráð
Hrikalega ertu heilaþveginn, Símon! Þú gengur hérna um eins
og auglýsingaskilti og borgar fyrir að moka undir rassinn á
einhverjum moldríkum alþjóðlegum stórfyrirtækjum!
Við Haraldur erum mjög skúffaðir með þig!
HALLGRÍMUR THORSTEINSSON
Megnið af vikunni fer í daglegan útvarps-
þátt hans á Útvarpi Sögu og að eltast við
vænlega stuðningsaðila.
Láttu hann heyra það,
Daníel...
Það þykir mikil blóðtaka fyrirSamfylkinguna að dugnaðar-
forkurinn Bryndís Hlöðversdóttir
skuli hverfa úr embætti for-
manns þingsflokks af persónuleg-
um ástæðum. Bryndís telur sig
þurfa meiri tíma til að sinna
börnum og heimili og dregur því
úr umfangi ábyrgðarstarfa sinna
fyrir flokkinn en þeir sem gerst
til þekkja telja að það hefði verið
farsælla fyrir Samfylkinguna að
gera allt sem í hennar valdi stæði
til að halda Bryndísi og því hefði
verið réttast fyrir flokkinn að
kosta au-pair heimilishjálp fyrir
þingflokksformanninn fyrrver-
andi.
Fréttiraf fólki
Rocky
Paradís þegar
náttúran vaknar
Það fer eftir því á hvaða tímaársins maður á frí hvað maður
gerir,“ svarar Bubbi Morthens,
aðspurður um það hvernig hann
eyði frídögum sínum. „Venjulegur
vetrardagur þegar ég hef ekkert
að gera felst í því að vakna og
taka þátt í því að fjölskyldan
vakni. Fer með krakkana í skól-
ann og er svo mættur á Kaffi Par-
ís um níuleytið. Þar sit ég með
Gunnari Dal, drekk kaffi og ræði
heimspeki og trúmál. Þarna sit ég
á skólabekk og tala við eldri
menn.“
Á kaffihúsinu gerist svo ýmis-
legt í kollinum á Bubba. Hann lýs-
ir félaga sínum Gunnari Dal sem
„frjóum og greindum manni sem
hafi skoðanir á flestum málum“.
„Svo kemur ýmislegt í leitirnar
á svona kaffihúsum,“ bætir Bubbi
við. „Ég hitti séra Kolbein Þor-
leifsson um daginn og fékk hjá
honum þýðingar á Tómasar-
guðspjallinu sem fundust árið
1943. Þar eru bæði barndómsguð-
spjöllin hans Tómasar og þar sem
Matthías skrifar um samræður
Tómasar og Jesú.“
Lesturinn hefur haft þónokkur
áhrif á Bubba og hefur hann m.a.
samið lag sem er undir áhrifum
frá lestri guðspjallsins sem fannst
og kirkjan afneitaði. Það er ein-
mitt á vorin sem Bubbi er frjóast-
ur. Þá semur hann yfirleitt lögin
fyrir jólaútgáfuna og er yfirleitt
búinn að hljóðrita plötur sínar
fyrir sumarið. Samt segist hann
vera í fríi. „Það að semja lít ég á
sem part af fríinu, því það eru for-
réttindi,“ segir Bubbi og meinar
það. „Ef það er ekki frí að fá að
skapa, þá veit ég ekki hvað frí er.
Að sitja og búa til eitthvað er eins
og þegar maður var lítill og fann
fjársjóð. Þegar maður var lítill
var heimurinn eitt stórt ævintýri.
Að búa til lög og texta er bara eitt
stórt ævintýri. Það sem ég skil-
greini sem vinnu er meira frá
september fram í desember þar
sem ég vinn 24 tíma við það að
spila og kynna plötuna.“
Um leið og hlýnar í apríl krús-
ar Bubbi út úr bænum á jeppanum
sínum. „Þá byrjar silungsveiðin
og það eru ofsalega góðar stundir
þegar náttúran er að vakna. Þá
lyktar allt eftir veturinn. Flugan
og fuglarnir eru komnir. Það er
paradís. Á sumrin nota ég tímann
mikið í að veiða og fara í sumarfrí
með fjölskyldunni. Ég fer ekki úr
landi frá apríl fram í september.
Hef ekki farið á þessum tíma svo
árum skiptir,“ segir Bubbi og
hlakkar til vorsins. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Frídagurinn
BUBBI MORTHENS
■ hangir á kaffihúsum á veturna, veiðir
á sumrin og vill helst ekki fara af landinu
fyrr en í september.
BUBBI MORTHENS
„Svo þegar þessir klassísku frídagar koma,
eins og bara helgardagar, þá snúast þeir
meira um hvað „við“ ætlum að gera,“ segir
Bubbi. „Þá eyði ég meiri tíma með
fjölskyldunni.“