Fréttablaðið - 21.02.2004, Page 54
21. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
Konudagurinn er að nálgast. Viðviljum tengja hann og róman-
tík, en líka að setja konuna og
heilsuna í fyrsta sæti,“ segir Hulda
Bjarnadóttir, dagskrárstjóri Létt
96,7. Útvarpsstöðin mun bjóða upp
á þá nýbreytni að hlustendum
stöðvarinnar gefst tækifæri til að
senda ástinni sinni, vini eða fjöl-
skyldu kveðju og um leið styrkja
gott málefni því fyrir hverja
kveðju sem fer í loftið mun út-
varpsstöðin greiða eitt hundrað
krónur til Krabbameinsfélagsins
og styrkja með því rannsóknir á
brjóstakrabbameini.
„Við viljum minna konur á
sjálfar sig og að setja sig í fyrsta
sæti, hvort sem þær eru mæður,
dætur, ömmur eða eiginkonur. Því
viljum við hvetja sem flesta til að
hringja í okkur. Kveðjan verður
tekin upp og spiluð í loftinu. Það er
alveg sama hversu lítil eða stór
upphæð safnast, boðskapurinn er
að við búum í æðislegu velferðar-
kerfi, samt eru rúmlega 160 konur
sem greinast með brjóstakrabba-
mein á hverju ári. Við fengum til
okkar Guðrúnu Agnarsdóttur
lækni, sem sagði að íslenskar kon-
ur væru ekki nógu duglegar við að
nýta sér þá þjónustu sem er í boði.
Með því að fara nógu snemma í
skoðun getum við lækkað dánar-
tíðnina.“
Tekið verður á móti kveðjum í
dag milli 10 og 14 og á morgun á
milli 12 og 16 í síma 515-6967. ■
Konudagur
LÉTT 96,7
■ Borgar 100 krónur með hverri ástar-
kveðju sem berst.
Imbakassinn
Konur í fyrsta sæti á konudaginn
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Skeljungi.
Vetrarhátíð.
Einar Hómgeirsson.
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 44. TBL. – 94. ÁRG. – [ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 ] VERÐ KR. 250
Aftur á leiksviðið og nú íaðalhlutverki undir leik-stjórn Baltasars í verki eftirHallgrím Helgason. En Lolla,eins og hún er kölluð, hefurtekið því rólega undanfarinár, enda greindist dóttir hennar með mjög sjald-gæfan sjúkdóm og húnbarðist sjálf við fæðingar-
þunglyndi.
Snýr aftur eftir baráttu við þunglyndi ogveikindi dóttur sinnar
Úttekt á dópmarkaðinum Íslendingar eyða 8 milljónum á dag í dóp Bls. 17, 18 & 19
Verðlaunaðir frum-kvöðlar handteknir vegna líkfundarins Bls. 6
ÓLAFÍA HRÖNN
DV-MYND Teitur
Mikið var!
Lárétt: 1 reykjarsvæla, 6 nautgripir, 7 ryk-
korn, 8 tímabil, 9 hrópa, 10 gruna, 12
elska, 14 gufu, 15 félagsskapur, 16 pylsu-
tegund, 17 sæmd, 18 hró.
Lóðrétt: 1 himna, 2 goð, 3 vitstola, 4 af
gulum kynstofni, 5 fugl, 9 gera ringlaðan,
11 sjávardýr, 13 tæp, 14 hestur, 17 rolla.
Lausn:
Við erum í fríi á laugardaginn,“segir Vignir, gítarleikari og
lagahöfundur Írafárs. „Það er
frekar óvenjulegt. Það vill bara
þannig til að Birgitta er í fríi í út-
löndum. Það er yfirleitt allt bókað
með miklum fyrirvara þannig að
fríið var vel þegið.“
Þar sem Vignir er orðinn löngu
vanur því að eyða laugardags-
kvöldum sínum í það að skemmta
öðrum frekar en sjálfum sér er
hann ekki lengi að finna sér eitt-
hvað skemmtilegt að gera. „Ég er
á leiðinni í partí til bróður míns,
það er ekki leiðinlegt. Svo er
aldrei að vita nema að maður líti á
gamla hesthúsið, Gauk á Stöng,
seinna um kvöldið,“ segir hann og
hlær. „Ég held að þarna verði fólk
úr ýmsum áttum og það er ekkert
tilefni annað en það að bara hitt-
ast.“
Vignir virðist vera rólyndis-
maður og segist vanalega nýta frí
á laugardagskvöldi í það að vera
með konunni sinni.
Þau hafa líklegast ákveðið slet-
ta örlítið úr klaufunum í kvöld þar
sem von er á erfingja þeirra
beggja innan 20 daga.
Í DV á dögunum var sagt frá
því að Írafár væri á leið í pásu.
Vignir vill nú meina að þar hafi
kannski verið gerður úlfaldi úr
mýflugu. „Við verðum á fullu al-
veg yfir sumarið en svo ætluðum
við kannski að hægja á okkur í
nóvember þar sem við verðum
ekki með plötu,“ segir Vignir. „Við
verðum ekki með plötu og ætlum
bara að reyna að spila ekki eins
oft. Við viljum ekki alltaf vera
endalaust í viðtölum og slíku á
meðan lítið er að gerast hjá sveit-
inni. Þá held ég að við yrðum fljót
að drepa alla úr leiðindum.“
Vignir segist búast við því að
sveitin gefi út splunkunýtt lag í
sumar. Á næstu dögum fer lagið
Annan dag af Nýju upphafi í spil-
un. „Við eigum örugglega eftir að
gefa út einhver lög þó svo að við
verðum kannski í ballspilapásu,“
segir Vignir að lokum. ■
Lárétt: 1stækja,6kýr, 7ar, 8ár, 9æpa,
10óra,12ann,14eim,15aa,16ss,17
æru,18skar.
Lóðrétt: 1skán,2týr, 3ær, 4japanar, 5
ara,9æra,11fisk,13naum,14ess,17
ær.
Leiðindabrotadeild lögreglunnar handtók
alla þáttakendur í 10.000 metra skauta-
hlaupi karla og hafa þeir verið úrskurð-
aðir í tveggja vikna gæsluvarðhald!
HULDA BJARNADÓTTIR
Útvarpsstöðin Létt 96,7 ætlar að leggja
áherslu á rómantík og heilsu kvenna á
konudaginn.
Laugardagskvöld
VIGNIR Í ÍRAFÁRI
■ Kvöldið verður með undarlegasta
móti því hann á frí frá spilamennsku og
ætlar út á lífið með bróður sínum.
Frí í dag en lítið um
pásur fram undan
ÍRAFÁR
Birgitta og Vignir á Ís-
lensku tónlistarverðlaun-
um. Vignir segir fréttir
um pásu sveitarinnar
vera stórlega ýktar.