Fréttablaðið - 12.03.2004, Qupperneq 6
6 12. mars 2004 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 70,87 0,62%
Sterlingspund 127,3 -0,69%
Dönsk króna 11,61 -0,06%
Evra 86,49 -0,07%
Gengisvísitala krónu 120,21 0,08%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 486
Velta 18.501 milljónir
ICEX-15 2.513 0,69%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf. 1.119.392
Landsbanki Íslands hf. 491.778
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 481.390
Mesta hækkun
Líf hf 3,77%
Marel hf. 3,43%
Landsbanki Íslands hf. 2,67%
Mesta lækkun
SÍF hf. -2,47%
Flugleiðir hf. -1,32%
Medcare Flaga -1,08%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.312,7 0,1%
Nasdaq* 1.979,9 0,8%
FTSE 4.445,2 -2,2%
DAX 3.904,9 -3,5%
NK50 1.411,5 -0,9%
S&P* 1.125,6 0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvað heitir staðurinn þar sem Bald-vin Þorsteinsson EA strandaði?
2Hvað heitir maðurinn sem sakaður erum hrottaleg morð og nauðgun í Belg-
íu?
3Hvað heitir argentínski tangódansar-inn sem er á leiðinni til landsins?
Svörin eru á bls. 46
Breytingar á lögum um sjóntækjafræðinga:
Mega mæla sjón
SJÓNMÆLINGAR „Þetta er auðvitað
mjög mikill sigur fyrir okkur.
Þetta er það sem við höfum verið
að berjast fyrir síðastliðin 25 til
30 ár,“ segir Kristinn Kristins-
son, formaður Félags sjóntækja-
fræðinga, um nýsamþykkta laga-
breytingu sem veitir sjóntækja-
fræðingum heimild til að mæla
sjón og fullvinna gleraugu og
snertilinsur.
Áður máttu sjóntækjafræð-
ingar aðeins selja gleraugu eftir
forskrift frá augnlækni en þegar
nýju lögin taka gildi 15. júní
næstkomandi fá um 90 prósent
starfandi sjóntækjafræðinga á
Íslandi heimild til að mæla sjón.
Þeir mega þó ekki mæla sjón hjá
fólki sem aldrei hefur farið til
augnlæknis auk þess sem ráð-
herra getur sett reglur um að
börn undir ákveðnum aldri verði
að fara til augnlæknis. Að sögn
Kristins eru þessar breytingar
nokkurn veginn í samræmi við
það sem þekkist víðast hvar ann-
ars staðar í Evrópu.
Kristinn segir það ástæðu-
laust að hafa áhyggjur af því að
tíðni augnsjúkdóma muni hækka
í kjölfar lagabreytingarinnar.
„Við erum mjög dugleg við að
benda fólki á að fara til augn-
læknis. Það er okkar ósk að það
verði meira samstarf á milli sjón-
tækjafræðinga og augnlækna,
líkt og þekkist annars staðar,“
segir Kristinn. ■
Ný stjórn Flugleiða
boðar nýjar áherslur
Segja má að kynslóðaskipti hafi orðið í Flugleiðum á aðalfundi í gær. Nýr stjórnarformaður
Flugleiða boðar skarpari fókus á flugrekstur með alþjóðlega útrás í flug- og flutningastarfsemi.
VIÐSKIPTI Nýir eigendur tóku form-
lega við stjórnartaumum Flug-
leiða í gær. Nýr stjórnarformaður
Flugleiða, Hannes Smárason, boð-
aði að félagið myndi leggja aukna
áherslu á flugrekstur með það að
markmiði að nýta sóknarfæri í
þeim rekstri. „Við teljum að sókn-
arfærin nú liggi flugmegin í
rekstri félagsins,“ sagði Hannes á
aðalfundinum.
F e r ð a þ j ó n -
usta hefur verið
ríkur þáttur í
starfsemi Flug-
leiða og út úr
orðum nýs
s t j ó r n a r f o r -
manns má lesa
að í nánustu
framtíð horfi
menn til flug-
rekstrar og flutninga fremur en
til ferðaþjónustunnar. Hannes
vék þó ekki beinum orðum að
ferðaþjónustunni en ræddi þess
meira hversu vel félagið væri í
stakk búið að takast á við sóknar-
færi í flug- og flutningarekstri á
alþjóðavettvangi.
Samkvæmt heimildum er ein-
hugur um nýjar áherslur í nýrri
stjórn Flugleiða. Líklegt er talið
að litið verði til möguleika á að
selja þætti ferðaþjónustunnar
svo sem bílaleigu og hótelrekst-
ur.
Segja má að ný kynslóð hafi
tekið við í Flugleiðum. Úr stjórn-
inni hverfur nú Hörður Sigur-
gestsson, sem gegnt hefur for-
mennsku í stjórninni í tvo áratugi
og starfaði hjá félaginu við stofn-
un þess. Auk hans hættu
stjórnarmennirnir Grétar Br.
Kristjánsson, varaformaður sem
setið hefur í stjórn Flugleiða í 30
ár, Einar Þór Sverrisson, Garðar
Halldórsson, Ingimundur Sigur-
pálsson og Jón Ingvarsson.
Áfram eru í stjórninni Bene-
dikt Sveinsson, Jón Ásgeir Jó-
hannesson og Pálmi Haraldsson.
Nýir í stjórn eru Hannes Smára-
son, Hreggviður Jónsson, Jón
Helgi Guðmundsson og Ragnhild-
ur Geirsdóttir. Ragnhildur er
fulltrúi starfsmanna í stjórninni.
Samþykkt var á aðalfundi að
fækka stjórnarmönnum úr níu í
sjö.
Flugleiðir skiluðu í fyrra næst-
bestu afkomu í þrjátíu ára sögu
sinni. Hagnaður félagsins var 1,1
milljarður króna. Lausafjárstaða
félagsins hefur aldrei verið sterk-
ari. Hörður Sigurgestsson stjórn-
arformaður hættir í stjórn eftir 30
ára samleið með fyrirtækinu.
Hörður þakkaði samstarfsfólki
sínu gegnum tíðina. Hann sagði að
í ljósi breytinga á eignarhaldi
félagsins sem endurspegluðu
breytingar sem orðið hafa í ís-
lensku viðskiptalífi væri eðlilegt
að breytingar yrðu á stjórn Flug-
leiða. Hann flytti því skýrslu
stjórnar í síðasta sinn.. „Það hefur
verið ævintýri líkast að hafa átt
hlutdeild að þróun flugs og ferða-
þjónustu á Íslandi síðustu þrjátíu
árin. Oft hefur blásið á móti, en
félagið hefur ávallt náð til lands,“
sagði Hörður og bætti því við að
árangurinn hefði ekki verið sjálf-
gefinn. Hann þakkaði sérstaklega
samstarfið við Sigurð Helgason,
forstjóra félagsins, sem hann
sagði hafa verið sérlega náið og
byggst á trúnaðartrausti. „Það
fylgir því viss söknuður að stíga
frá borði. Það skiptir mig miklu að
vita að Sigurður stendur áfram í
stafni.“
haflidi@frettabladid.is
Augnlæknar ósáttir:
Hætta á
augnskaða
SJÓNMÆLINGAR „Að okkar mati er
þetta skref aftur á bak hvað varðar
augnheilsu landsmanna,“ segir
Kristján Þórðarson, formaður Fé-
lags augnlækna, um lagabreytingu
sem veitir sjóntækjafræðingum
heimild til að mæla sjón. Kristján
vill að ráðherra setji takmarkanir á
heimildir sjóntækjafræðinga. Hann
óttast að annars muni færri leita til
augnlæknis og ýmsir sjúkdómar
uppgötvast mun síðar en ella.
„Við vorum með besta kerfið en
eins og málin standa núna held ég
að við munum sjá aukningu í augn-
skaða á næstu árum,“ segir
Kristján. ■
Hæstiréttur:
Prófessorar
fá nýjan dóm
DÓMSMÁL Hæstiréttur felldi í gær
þann dóm að héraðsdómur Reykja-
víkur þyrfti að taka upp á ný mál
hóps prófessora við Háskóla Íslands
sem höfðuðu mál vegna meðferðar
ríkisins á launum úr ritlaunasjóði.
Prófessorarnir halda því fram að
ritlaun séu hluti af almennum laun-
um og því eigi skattaleg meðferð
ekki að vera líkt og um verktaka-
starfsemi sé að ræða.
Í úrskurði segir að sá annmarki
sé á dómi héraðsdóms að niðurstað-
an sé órökstudd en ríkið var þar
sýknað af kröfum prófessoranna. ■
KRISTINN KRISTINSSON
„Sjónmælingar eru okkar sérsvið en ekki
sérsvið augnlækna. Það má því segja að
þeir hafi verið inni á okkar verksviði,“ segir
Kristinn Kristinsson, formaður Félags sjón-
tækjafræðinga.
KYNSLÓÐASKIPTI
Nýir stjórnarmenn taka nú við taumunum í Flugleiðum. Vænta má aukinnar áherslu á alþjóðlegan flug- og flutningarekstur. Minni áhersla
verður lögð á eignarhald í innlendum ferðaþjónustufyrirtækjum svo sem hótelum og bílaleigum.
„Við teljum
að sóknarfær-
in nú liggi
flugmegin í
rekstri félags-
ins.