Fréttablaðið - 20.03.2004, Side 10
LÖGREGLUMÁL „Tveir menn sem
kannast við að hafa tekið ungan
dreng, sem samsvarar lýsingu
okkar, upp í bíl sinn og ekið með
hann milli Hveragerðis og Sel-
foss hafa gefið sig fram,“ segir
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Selfossi. Talið var að
drengurinn, sem var með Ásgeiri
Jónsteinssyni þegar hann lést af
völdum voðaskots á mánudags-
kvöld, hefði farið á puttanum frá
Selfossi til Hveragerðis þann
sama dag og sótt byssuna sem
varð Ásgeiri að bana.
Munu ökumennirnir gefa
skýrslu hjá lögreglu eins fljótt og
hægt er. Ólafur Helgi segir að lög-
reglan hafi auglýst eftir öku-
mönnunum fyrst og fremst til
þess að staðreyna það sem fram
hafi komið við yfirheyrslur.
Eigandi byssunnar er sjó-
maður og er hann væntanlegur í
land eftir helgi. Þá munu skýrslu-
tökur af honum fara fram. Enn er
beðið niðurstöðu krufningar sem
hugsanlega getur sagt til um
hvort byssan, sem varð Ásgeiri að
bana, hafi verið í höndum drengs-
ins sem var með honum eða hvort
hún hafi fallið á jörðina og skot
hlaupið úr henni við það. Verið er
að athuga hvort bilun hafi verið í
byssunni sem hafi leitt til þess að
ekki hljóp alltaf skot úr henni
þegar til þess var ætlast.
„Mitt mat er að okkar skyldur
liggja samkvæmt lögum um með-
ferð opinbera mála að upplýsa
mál, þar á meðal voveifleg manns-
lát,“ segir Ólafur Helgi, aðspurð-
ur hvort til greina hefði komið að
láta rannsókn málsins í hendur
ríkislögreglustjóra. Ólafur segir
sitt umdæmi stórt og þar starfi 27
lögreglumenn, þar af þrír rann-
sóknarlögreglumenn. Þá segir
hann lögreglustjóra í hverju um-
dæmi bera ábyrgð á því að lög-
reglan sinni sínum störfum. „Að-
alatriðið er að við förum eftir
þeirri aðferðafræði sem okkur er
ætlað.“
hrs@frettabladid.is
10 20. mars 2004 LAUGARDAGUR
KOSNINGABARÁTTA Í
FULLUM GANGI
Indónesískir kjósendur ganga að kjörborð-
inu í byrjun næsta mánaðar og kjósa sér
nýtt þing. Kosningabaráttan er í fullum
gangi og ansi litrík eins og sjá má á þess-
um kjósendum sem tóku þátt í útifundi
eins stjórnmálaflokksins.
MENNTAMÁL Stúdentar við Háskóla
Íslands ætla að safnast saman
fyrir framan Háskólann næst-
komandi mánudag og mótmæla
því að skólagjöld verði sett á.
Þann sama dag mun háskólafund-
ur taka afstöðu til þess hvort óska
eigi eftir við menntamála-
ráðherra að hún beiti sér fyrir því
að veita Háskóla Íslands heimild
til að innheimta skólagjöld.
Stúdentaráð Háskóla Íslands
hefur lýst algjörri andstöðu við
slíkar hugmyndir og hefur bent á
ýmsar aðrar leiðir til lausnar
fjárhagsvanda skólans.
Síðastliðinn þriðjudag hóf
stúdentaráð undirskriftasöfnun
meðal stúdenta til að mótmæla
hugmyndum um skólagjöld og
hafa nú þegar rúmlega 3000 stúd-
entar skrifað undir.
Í framhaldi af atburðum und-
anfarinna daga hefur verið
ákveðið að stúdentar við Háskóla
Íslands muni safnast saman fyrir
utan aðalbyggingu Háskólans þar
sem háskólafundur verður hald-
inn kl. 12.40 mánudaginn 22. mars
og mótmæla hugmyndum um
upptöku skólagjalda við Háskóla
Íslands. ■
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Stúdentar ætla að safnast saman fyrir framan aðalbyggingu HÍ á mánudag og
mótmæla skólagjöldum.
www.plusferdir.is
Mallorca - 16. apríl
33.730 kr.
N E T
( 60.000 kr. / 2 = 30.000 kr. + 3.730 kr. flugvallarsskattar) = 33.730 kr.
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið er flug, gisting í 10 nætur á Ben Hur, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
NETplus er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is
2 fyrir 1
Ákvörðun um skólagjöld HÍ á mánudag:
Stúdentar safnast
saman til mótmæla
Seinheppinn maður:
Slys á slys
ofan
HOUSTON, AP Donnie Mack Hall á
sennilega erfitt með að gera upp við
sig hvort hann sé mjög heppinn eða
óheppinn, nema hvort tveggja sé.
Hall varð fyrir lest á leið heim úr
vinnu. Það var lán í óláni fyrir Hall
að lestin var aðeins á þrjátíu kíló-
metra hraða en það var nóg til að
hann kastaðist þrjá metra og þurfti
að kalla á sjúkrabíl til að flytja hann
á sjúkrahús. Ekki vildi betur til en
svo að fólksbíl var ekið á sjúkrabíl-
inn á miklum hraða með tilheyrandi
látum. Annar sjúkrabíll var sóttur
til að flytja Hall á sjúkrahús. Hann
slapp þó vel frá slysunum tveimur
og var það eina sem fannst að hon-
um smávægilegir skurðir og mar
auk þess sem hann var fingurbrot-
inn. ■
Ung frjálslynd:
Hafna skóla-
gjöldum
MENNTAMÁL Ung frjálslynd hafna
öllum hugmyndum um skólagjöld
við HÍ, segir í yfirlýsingu frá þeim.
Ung frjálslynd telja að upptaka
skólagjalda við ríkisháskóla vegi
alvarlega að þeirri hugsjón að allir
Íslendingar eigi að geta stundað
nám óháð efnahag sínum.
Sökum fjársveltis hefur fjár-
hagsstaða skólans farið sífellt
versnandi, segir í yfirlýsingunni, og
er nú svo komið að stjórnvöld hafa í
raun þröngvað stjórnendum Há-
skóla Íslands til þess að fara fram á
að innheimta skólagjalda verði
heimiluð. Ung frjálslynd harma
þessa þróun og telja mikilvægt að
stjórnvöld sjái sóma sinn í því að
leysa fjárhagsvanda Háskóla
Íslands með öðru móti. ■
Eigandi byssunnar
yfirheyrður eftir helgi
Rannsókn á láti Ásgeirs Jónsteinssonar á Selfossi á mánudagskvöld held-
ur áfram. Sýslumaðurinn á Selfossi segir að verið sé að auglýsa eftir öku-
mönnunum til að sannreyna það sem fram hefur komið við yfirheyrslur.
VIÐ ANDARPOLLINN Á SELFOSSI
Báðir ökumennirnir sem tóku ungan dreng upp í bíla sína á leiðinni milli Selfoss og Hveragerðis hafa gefið sig fram.
Þeir munu gefa lögreglu skýrslu eins fljótt og hægt er.
ÓLAFUR HELGI KJARTANSSON
Sýslumaðurinn á Selfossi segir að
rannsókn málsins verði ekki færð
í hendur ríkislögreglustjóra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA