Fréttablaðið - 20.03.2004, Side 22
Það er fjör á Fróni þessar helg-arnar, árshátíðavertíðin er í
fullum gangi og hefur verið frá
því í janúarlok. Árshátíðum fylgir
gríðarlegt tilstand og veltu- og
álagsaukningin í mörgum grein-
um er mikil.
Þetta byrjar í fyrirtækjunum,
þar eru starfandi skemmti- eða
árshátíðanefndir sem jafnan fá
góðan fyrirvara til að skipuleggja
herlegheitin. Þessu fylgja miklar
vangaveltur og er athugunarlist-
inn eftirfarandi: Hvenær? Hvar?
Matur? Veislustjóri? Ræðumað-
ur? Skemmtiatriði? Hljómsveit?
Jafnan er ágreiningur í nefndun-
um enda smekkur manna misjafn
og þarf þá að komast að sameigin-
legri niðurstöðu. Þegar hún er
fengin er árshátíðin svo auglýst.
Í hverju á að vera?
Taka þá við vangaveltur starfs-
mannanna og maka þeirra. Athug-
unarlistinn er eftirfarandi: Lang-
ar okkur? Verðum við á landinu?
Hver á að passa? Hverju á að
klæðast? Þegar svo á annað borð
er ákveðið að fara fer dágóður
tími í síðastnefnda atriðið, þ.e.
klæðnaðinn. Já og nota bene;
kvenklæðnaðinn.
Kjóllinn er valinn og skór við
og skartgripirnir þurfa auðvitað
að passa. Mikilvægt er að vera
ekki í því sama og síðast.
Örtröð er á hárgreiðslu- og
snyrtistofum enda vill hver ein-
asta kona líta vel út og leggur hún
talsvert á sig til að svo megi
verða. Hárið er litað, snyrt og sett
upp, húðin er kreist, nudduð,
kremborin og förðuð, neglur
snyrtar og lakkaðar, augabrýr
plokkaðar og litaðar og fótleggir
rakaðir sem aldrei fyrr.
Karlmenn eru hófsamari í
þessum efnum, þeir sem ætla að
vera virkilega flottir á því leigja
sér smóking en flestir láta sér
betri fötin nægja. Rakstur og gel í
hárið gera svo gæfumuninn.
Risaárshátíð hjá KB banka
Veitingamenn í stærri sölum
eru á útopnu sem aldrei fyrr. Sam-
kvæmt lauslegri athugun Frétta-
blaðsins meðal stærstu fyrirtækj-
anna eru Broadway, Grand Hótel,
Nordica Hótel og Súlnasalurinn á
Sögu helstu árshátíðasalir lands-
ins auk Versala við Hallveigar-
stíg. Þá eru sum fyrirtæki svo
mannmörg að ekkert minna
dugar en heilu íþróttahús-
in til að allir komist að.
KB banki er í þeim
hópi en starfsmenn hans
eru vel á annað þúsund.
Árshátíð KB banka
verður haldin í kvöld í
íþróttahúsinu að Ás-
völlum í Hafnar-
firði og hefur
undirbúningur
staðið í hálft
ár. Gest-
um verður boðið að
dreypa á fordrykk
áður en sest er að þrí-
rétta veisluborði sem sam-
anstendur af risahörpuskel
og humri í forrétt, lamba-
fille í aðalrétt og súkkulaði-
tertu í eftirrétt. Átta
skemmtiatriði, framleidd af
bankastarfsmönnum sjálf-
um, eru á dagskránni en
veislustjórn verður í hönd-
um tvíburabræðranna Ás-
mundar og Gunnars Helga-
sona og konu þess síðar-
nefnda, Bjarkar Jakobsdótt-
ur. Bítlavinafélagið leikur
svo fyrir dansi.
Vantar konur í veislu-
stjórn
Árshátíðir stærri og smærri
fyrirtækja fylla alla sali Broad-
way, hverja helgina á fætur
annarri. Stefán Sturla Sigurjóns-
son, starfsmaður Broadway, segir
vorvertíðina hefjast undir lok jan-
úar og standa út apríl. Síðari hlut-
inn er svo frá septemberlokum og
fram undir jólahlaðborð.
„Þetta er skemmtilegt, mikið
fjör,“ segir Stefán
Sturla. Hann
segir að tals-
verð fjöl-
breytni sé í
h l j ó m -
sveita- og
skemmti-
kraftavali en þó megi greina
ákveðnar línur: „Paparnir, Írafár
og Í svörtum fötum eru mjög vin-
sælar árshátíðahljómsveitir um
þessar mundir,“ segir hann. Og
þegar kemur að veislustjórum og
skemmtikröftum nefnir hann
Jóhannes Kristjánsson eftir-
hermu, Spaugstofugaurana Karl
Ágúst Úlfsson og Örn Árnason,
æringjana í 70 mínútum og Idol-
stjörnurnar. „Það vantar hins
vegar konur í þetta fag. Þær eru
allt of fáar,“ segir Stefán Sturla.
Aðrir skemmtikraftar sem
blaðið hefur fregnað að hafi troð-
ið upp á árshátíðum stór-
fyrirtækja að undanförnu eru
Kaffibrúsakarlarnir, Skari
skrípó, Þorsteinn Guðmundsson
og Tvíhöfði.
Veitingamönnum sem rætt var
við bar saman um að samkeppnin
væri hörð og að talsverðu munaði
um hverja hátíð fyrir reksturinn.
„Þetta er helvítis harka,“ varð ein-
um að orði á meðan annar fór
penna í sakirnar: „Maður hefur
verið lengi í þessu og fólk veit
hvað það fær hjá mér,“ sagði
hann.
Suðræn sveifla á Eskifirði
Fyrirtæki á landsbyggðinni
eiga það til að halda sínar árshá-
tíðir á glæsihótelum höfuðborgar-
innar en oftar fara þær fram á
heimavelli. Dæmi um það var árs-
hátíð Eskju á Eskifirði sem var
bráðskemmtileg en hún fór fram í
félagsheimilinu Valhöll á milli
jóla og nýárs.
Bjarni töframaður var veislu-
stjóri og skemmti viðstöddum
með ýmsum uppátækjum auk
þess sem „stjórarnir sprell-
uðu“, eins og viðmælandi
blaðsins komst að orði.
Stemningin var suðræn og
yfirskrift veislunnar var
Suðræn sveifla. Bogomil
Font söng á meðan setið var
að snæðingi en andabringur
voru í aðalrétt. Bogomil og
Bjarni Ara sungu svo fyrir
dansi með Milljónamæringun-
um á eftir.
Edinborg og
Búdapest vinsælar
Fyrir rúmum áratug
hófst útrás íslenskra árshá-
tíða. Starfsmannahópar flugu
þá til nálægra borga og
skemmtu sér ærlega yfir
mat, drykk, skemmtiat-
riðum og dansi og nutu
þess í ofanálag að
kanna nýjar slóðir og
kaupa eitthvað á
krakkana. Þessi tíð
er ekki liðin, síður
en svo. Hjá ferða-
s k r i f s t o f u n u m
fengust þær upp-
lýsingar að mikil
ásókn væri í árs-
hátíðaferðir til
útlanda og
voru Edin-
borg, Dyfl-
inni, Búda-
pest, Róm,
Vínarborg og
B a r c e l o n a
helst nefnd-
a r .
„Þúsundir fljúga árlega til fjar-
lægra borga til árshátíðahalds,“
sagði viðmælandi á ferðaskrif-
stofu og bætti við að kostnaðurinn
við árshátíð á Íslandi væri það
mikill að litlu þyrfti að bæta við
þó haldið væri út fyrir landstein-
ana.
Gríðarlega krefjandi
verkefni
Sem fyrr sagði er árshátíð KB
banka í kvöld og telja kunnugir að
hún sé fjölmennasta árshátíð sem
haldin hefur verið á landinu. Allt
er lagt undir enda fyrsta árshátíð-
in frá því að Búnaðarbanki og
Kaupþing gengu í eina sæng og
leggja forsvarsmenn fyrirtækis-
ins mikið upp úr að sem flestir
mæti, sama hvort þeir búa úti á
landi eða úti í löndum.
Jóhannesi Stefánssyni, veit-
ingamanni í Múlakaffi, var falið
að sjá um veitingarnar og hann
hlakkar til kvöldsins: „Þetta er
gríðarlega krefjandi og ögrandi
verkefni enda ekki á hverjum
degi sem maður eldar fyrir svona
marga,“ segir hann. Jóhannes ger-
ir ráð fyrir að steikja á milli þrjú
og fjögur hundruð kíló af kjöti og
er magn meðlætis, for- og eftir-
rétta í samræmi við það. Fimmtíu
kokkar og þjónar koma að verkinu
en undirbúningurinn er knappur.
„Þetta er bara eins og að elda fyr-
ir mömmu, maður þarf bara að
búa til aðeins meira. Það er engin
leið að byrja eitthvað fyrr, þetta
verður að vera ferskt,“ segir Jó-
hannes.
bjorn@frettabladid.is
22 20. mars 2004 LAUGARDAGUR
Árshátíðavertíðin er í fullum gangi þessa dagana. Jóhannes eftirherma þeytist á milli staðanna í veislustjórn.
Idolstjörnurnar troða upp. Árshátíðunum fylgir stór og mikill skemmtanaiðnaður.
Borðað, drukkið,
dansað og hlegið
KÁNTRÝ-ÁRSHÁTÍÐ ESSO
Starfsmenn Esso brugðu sér í kúreka-
fötin á árshátíð á dögunum. Þar var
kantrí-þema. Þorbjörg Guðjónsdóttir,
Guðrún Gísladótir, Ingibjörg Jónsdóttir,
Kolbrún Héðinsdóttir, Berglind Sigmars-
dóttir og Sigurður Sigfússon sátu í
skemmtinefnd.
Kantrý-
árshátíð
Ekki er óalgengt að fyrirtækihafi sérstök þemu á árshá-
tíðum sínum. Árshátíð Esso var
haldin á Broadway í byrjun
febrúar. Gestir voru um fimm
hundruð og frábær stemning,
að sögn Sigurðar Sigfússonar,
formanns starfsmannafélags-
ins. „Við vorum með kántrý-
þema á þessu hjá okkur,“ segir
Sigurður.
Knapar á hestum tóku á móti
gestum við dyrnar og í anddyr-
inu var Viðar Jónsson syngj-
andi með gítarinn sinn. Og auð-
vitað var matseðillinn við hæfi:
„Lonely Cowboys hét fordrykk-
urinn, túnfiskur að hætti Cher-
okee-indjána var í forrétt, í að-
alrétt voru kántrýkryddaðar
nautalundir og eplakaka línu-
dansarans í eftirrétt.“ Hljóm-
sveitirnar Brimkló og Paparnir
léku fyrir dansi og „voru þær
hreint út sagt frábærar,“ segir
Sigurður Sigfússon. ■
Þetta er skemmti-
legt, mikið fjör.
,,
VINSÆLL VEISLUSTJÓRI
Jóhannes Kristjánsson eftirherma er einn
vinsælasti veislustjóri landsins. Spaugstofu-
mennirnir Karl Ágúst Úlfsson og Örn Árna-
son, æringjarnir í 70 mínútum og Idol-
stjörnurnar njóta líka mikilla vinsælda.
KALLI BJARNI
Sigurvegarinn í Idol lætur ekki sitt eftir
liggja á árshátíðunum þessa dagana.
Hér syngur hann á árshátíð Esso.
JÓHANNES Í MÚLAKAFFI
Hann sér um matinn fyrir árshátíð KB
banka sem er í kvöld, og gerir hann ráð
fyrir að steikja 300 til 400 kíló af kjöti.
Á ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð Stangveiðifélags Reykjavíkur er ein sú glæsilegasta sem haldin er ár hvert. Hér
sitja prúðbúnir gestir á árshátíð félagsins sem fram fór í Súlnasal Hótel Sögu þann 28.
febrúar sl. Glæsilegar árshátíðir fara nú fram um allan bæ.
VINSÆLL SKEMMTIKRAFTUR
Óskar Jónasson, öðru nafni Skari skrípó, er mikið fenginn til að troða upp á árshátíðum.
Aðrir vinsælir eru til dæmis Kaffibrúsakarlarnir, Þorsteinn Guðmundsson og Tvíhöfði.