Fréttablaðið - 20.03.2004, Side 42

Fréttablaðið - 20.03.2004, Side 42
Þegar Fréttablaðið spjallaði viðrapparann Opee, réttu nafni Ólaf Pál Torfason, í ágúst í fyrra greindi hann frá því að fyrsta plata hljómsveitar sinnar O.N.E. væri nánast tilbúin. Þá var Opee að und- irbúa að koma fram á tónleikum með Quarashi á Hafnarbakkanum á Menningarnótt. Lagið Mess It Up var þá vinsælasta lag landsins og Opee á allra vörum. Nú, sjö mánuðum síðar, er frumraunin One Day loksins á leiðinni í búðirnar. Útgefandi er Grænir Fingur, útgáfa Móra, nú- verandi guðföður rappsins á Ís- landi. „Ég er pródúsentinn og plötu- snúðurinn. Ég sem allt annað en textana í raun og veru og er ekki rappari,“ segir Eilífur Örn Þrast- arson, sem notar listamannsnafn- ið Eternal. „Ég er mest í því að sampla djass og klassík. Ég tek bara hvað sem ég finn og reyni að búa til eitthvað skemmtilegt og nýtt. Það eru ekki margir að gera eins tónlist og við hérna á Ís- landi.“ Plata þeirrra félaga er mjög „erlendis“, ef svo má að orði kom- ast, og er það líklega mest að þakka góðum enskum framburði Opee. Eilífur segist ekki finna fyr- ir mikilli gagnrýni frá fólki vegna enskunnar og segir aðeins lítinn hóp manna vera raunverulega að velta sér upp úr því hvort rappar- ar noti móðurmálið eða ekki. Opee og Eilífur kynntust í Hagaskóla þar sem þeir byrjuðu að gera tónlist saman í 10. bekk. Þó nokkur lög hafa lekið á Netið á þeim fjórum árum sem þeir félagarnir hafa búið til tónlist saman og eru einhver þeirra fáanleg á hiphop.is. Lög O.N.E. hafa hingað til ekki komist í spil- un í íslensku útvarpi, enda stöðv- ar tregar til þess að hleypa ís- lensku hiphoppi að. Stefnan hef- ur verið í lægð frá því að mús- ík.is var lögð niður. Þar með lauk blómaskeiði íslensks hiphops, strax í fæðingu. „Núna er mjög lítill fjölbreyti- leiki í því sem er spilað í út- varpi,“ segir Eilífur. „Senan þarf að stofna sína eigin útvarpsstöð sem spilar þá tónlist sem fólkið vill heyra. Þegar Músík var í loft- inu fékk fullt af fólki að heyra margt annað en tónlist sem þykir bara henta til þess að fylla upp í bilið á milli auglýsinganna. Sum- ir kjósa að kalla það „útvarps- vænt“,“ segir Eilífur og er greini- lega ósammála. biggi@frettabladid.is 42 20. mars 2004 LAUGARDAGUR Það er ómögulegt að fjalla umbresku sveitina Zero 7 án þess að líkja henni við frönsku kokk- teilhristarana í Air. Það er svipuð stemning sem svífur hér yfir glös- um. Þetta er tónlist fyrir róleg kokkteilboð í myrkvuðum her- bergjum þar sem allir eru í sínu fínasta pússi. Ástin er í loftinu, og augnskot hér og þar gætu endað með heitum ástríðum. Hér er allt mjög fágað og vand- að, en samt rjómafyllt og lifandi. Gestasöngkonurnar syngja flestar eins og þær séu búnar að koma sér vel fyrir í sófanum, og krosslagðir berir leggir renna út úr stuttum kjólum þeirra fram í rándýru háhæluðu skóna. Sveiflu- kennd hljóðgervlahljóðin eru í rauninni það eina sem tengir tón- listina við raftónlistarsenuna. Jean-Michael Jarre er við barinn og finnst hljómurinn kunnugleg- ur. Þetta er í rauninni svipað kokk- teilboð og fyrri breiðskífa Zero 7 var, Simple Things frá árinu 2001. Mér líður eiginlega eins og þeir séu að reyna fanga sömu notalegu stemningu og náðist þar. Það tekst því miður ekki. Þó veislan sé nota- leg sýnist mér samt nokkrir gest- ir við barinn vera byrjaðir að geispa fyrir miðnætti. Kannski er það vegna þess að veislan hjá Air í síðasta mánuði var öllu líflegri og meira um nýjar uppákomur. Zero 7 eru vandvirkir og platan rennur ágætlega í gegn. Þeir þurfa þó að læra nokkrar nýjar partíbrellur ef þeir ætla að hrista meira upp í fólki og gera veislurn- ar eftirminnilegri. Birgir Örn Steinarsson Umfjölluntónlist ZERO 7: When It Falls Frekar rólegt kvöld THE BEATLES „Yellow matter custard, dripping from a dead dog’s eye. Crabalocker fishwife, pornographic priestess, Boy, you been a naughty girl you let your knickers down. I am the eggman, they are the eggmen. I am the walrus, goo goo g’joob.“ - Það væri hægt að eyða mörgum mánuðum í að reyna að komast að því um hvað textinn súrrealíski I Am The Walrus með Bítlunum er, án þess að komast að niður- stöðu. Hann er engu að síður magnaður. Lagið kom fyrst út á breiðskífunni Magical Mystery Tour árið 1967. Þá voru Bítlarnir í ruglinu. Popptextinn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 Vinsælustulögin TOPP 17 - XIÐ 977 - VIKA 12 TAKE ME OUT Franz Ferdinand LOVE IS ONLY A FEELING The Darkness MEGALOMANIAC Incubus Y’ALL WANT A SINGLE Korn I MISS YOU Blink 182 WHAT’S YOUR NUMBER Cypress Hill CATCH ME UP Gomez LOVE SONG 311 LAST TRAIN HOME Lostprophets LE BALLAD Vínyll ANGEL IN DISGUISE Mínus JOHNNY BABAS Brain Police C’MON C’MON Von Bondies RIDE Vines KICK IT Peaches v.s Iggy Pop ARE YOU GONNA BE MY GIRL Jet LYING FROM YOU Linkin Park * - LISTINN ER VALINN AF UM- SJÓNARMÖNNUM STÖÐVARINNAR Tónlist O.N.E. ■ Hiphopsveitin O.N.E., sem er móður- skip „Mess It Up“ rapparans Opee, gefur út sína fyrstu breiðskífu í byrjun næsta mánaðar. TÓNLIST Gítarleikari Guns ‘n’ Roses til fjögurra ára, Buckethead, hefur sagt skilið við sveitina. Á þeim tíma sem þessi sérvitri gítarleikari hefur verið liðsmaður hefur sveit- in ekki gefið út neitt nýtt efni þrátt fyrir að hafa unnið að nýrri plötu, sem á víst að heita Chinese Democracy, í áraraðir. Buckethead hefur verið þekkt- ur fyrir að bera fötu, sem vana- lega er notuð utan um kjúklinga- bita, á höfðinu þegar hann kemur fram á tónleikum. Hann hefur heldur ekki viljað tjá sig í viðtöl- um nema í gegnum handbrúðu. Umboðsmaður Buckethead segir gítarleikarann hafa fengið sig fullsaddan af aðgerðaleysi sveitarinnar. Í stað þess kýs hann að eyða tíma sínum hér eftir í sól- óferil sinn. Engar tilkynningar hafa borist frá útgáfufyrirtæki Guns ‘n’ Roses um hvenær hin margseink- aða Chinese Democracy sér dagsins ljós. Þó kom út safnplata síðastliðinn mánudag sem inni- heldur öll vinsælustu lög Guns ‘n’ Roses, í fyrsta skiptið á einni plötu. Á safnplötunni er þó ekki að finna eitt nýtt lag. Rokksveitin hefur ekki gefið út plötu með nýju efni síðan árið 1991. ■ Gítarleikari Guns ‘n’ Roses gefst upp BUCKETHEAD Gítarleikari Guns ‘n’ Roses faldi andlit sitt fyrir heiminum. Gafst nýverið upp á aðgerða- leysi Axl Rose og ætlar að hefja sólóferil. Eternal og Opee eru O.N.E. O.N.E. Frumraun O.N.E. kemur út 1. apríl. Útgáfu- tónleikar verða haldnir fljótlega eftir útgáf- una. Grænir fingur gefa út.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.