Fréttablaðið - 25.03.2004, Page 41
FIMMTUDAGUR 25. mars 2004 41
Opnunartími virka daga 14.00-18.00 - Laugardaga/Sunnudaga 10.30-18.00 - Upplýsingasími 511 2226
BANJO
Confetti
Regatta adidasSALOMON
RucanorCintamani
Backstage
Dare 2 beoCatmando
FIREFLY
Verðdæmi Fullt verð Okkar verð
Nike skór 11900 5000
Adidas sundbolir 2990 1000
Selpur
Regatta barnaflís 4990 1500
Regatta barnaúlpur 7990 2500
Adidas hlaupaskór 7990 4000
Nike barnaskór 5490 2500
Kuldagallar barna 7900 3500
Sokkabuxur stelpur 990 290
Cintamani flíspeysur 6900 1990
Brjóstahöld ýmsar teg eitt verð 500
Kvennælonsokkabuxur eitt verð 150
Puma vindjakkar 5990 900
Osh Kosh gallabuxur 3995 1500
Opnum í Perlunni í dag,
fimmtudag 25. mars kl. 14.
Gríðarlegt úrval af sportskóm og götuskóm
Okkar markmið:
50–80%
lækkun frá fullu verði
Gisting, steikar- og
eftirréttahlaðborð ásamt
STÓRDANSLEIK
á aðeins 7.900 kr. á mann
PAPAR SJÁ UM FJÖRIÐ
HELGARTILBOÐ
LAUGARDAGINN
27. MARS
Missið ekki af þessari
einstöku skemmtun
með Pöpunum.
Borðapantanir í síma 436-1650
Sinfónían spilar rússneskt
TÓNLEIKAR Fyrsti píanókonsert
Tsjaíkovskís er vafalaust einn
frægasti píanókonsert sögunnar.
Frægðina má að hluta þakka sög-
unni af því þegar Tsjaíkovskí spil-
aði þennan konsert í fyrsta sinn fyr-
ir hinn þekkta píanóleikara Arthur
Rubinstein, sem brást ókvæða við
og sagði þetta gersamlega glatað
tónverk sem best væri geymt í
ruslafötunni. Síðar meir lét Rubin-
stein sig þó hafa það að stjórna
þessum konsert á tónleikum, en það
var eftir að þetta verk Tsjaíkovskís
hafði slegið rækilega í gegn.
Í kvöld ætlar Sinfóníuhljómsveit
Íslands að flytja þennan píanó-
konsert í Háskólabíói. Við píanóið
situr ungur rússneskur píanósnill-
ingur, Denis Matsuev, sem fæddur
er í borginni Irkutsk í Síberíu.
Matsuev varð skyndilega einn af
eftirsóttustu píanóleikurum heims
þegar hann sigraði í elleftu
Tsjaíkovskí-keppninni í Moskvu
fyrir tveimur árum.
Á tónleikunum í kvöld fá áheyr-
endur einnig að heyra hátíðar-
forleik eftir Sjostakovitsj, og eftir
hlé hljómar síðan Petrúska eftir
Stravinskí. Hljómsveitarstjóri
verður Arvo Volmer. ■
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR
Syngur léttan djass á Kaffi List í kvöld.
Ætlum að ná
upp góðu stuði
TÓNLEIKAR „Þetta verður svona bland
í poka, sambland af fallegum amer-
ískum standördum og svo gömlum
góðum popplögum í djössuðum út-
setningum,“ segir Kristjana Stef-
ánsdóttir söngkona, sem ætlar að
syngja á Kaffi List í kvöld.
„Ég verð með Agnar Má píanó-
leikara með mér eins og venjulega,
og svo Gunnar Hrafnsson bassa-
leikara. Við ætlum að ná upp góðu
stuði, því það er kominn vorhugur í
fólk.“
Þau Agnar ætla að taka upp
plötu í sumar ásamt bassaleikaran-
um Drew Gress frá New York. Sú
plata verður annað hvort tekin upp
hér á landi eða í New York.
„Hann er æðislegur bassaleikari
og er mikið að spila með stórum
nöfnum í New York,“ segir Krist-
jana um Drew Gress. Hann hefur
áður starfað með Kristjönu því
hann spilaði inn á plötu hennar og
Sunnu Gunnlaugsdóttur píanóleik-
ara, sem kom út á síðasta ári.
Reglulegir djasstónleikar hafa
verið á Kaffi List öll fimmtudags-
kvöld í vetur, og frá áramótum hafa
laugardagskvöldin bæst við. Þessi
tónleikaröð er í umsjón Sigurðar
Flosasonar saxófónleikara. Næsta
laugardag mætir þangað gítartríóið
vinsæla Guitar Islancio. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
IL
LI
DENIS MATSUEV
Þessi vinsæli píanóleikari leikur einleik
með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld
klukkan hálfátta.