Fréttablaðið - 20.04.2004, Page 30
Bækur fyrir alla - allt árið
BÆKUR SEM BRJÓTA LEIÐIR
ÍSLENDINGAR
Hverjir eru þeir, þessir
Íslendingar? Ljósmynd-
arinn Sigurgeir Sigurjóns-
son og rithöfundurinn
Unnur Þóra Jökulsdóttir
fóru hringinn í kringum
landið og hittu fyrir fólk til sjávar og sveita. Afraksturinn er einstök bók
með áleitnum svipmyndum af Íslendingum vorra daga og undralandinu
þar sem þetta fólk býr. Hér er á ferðinni ein glæsilegasta ljósmyndabók sem gefin
hefur verið út hérlendis. Einstök lýsing á þjóðinni sem nefnir sig Íslendinga.
Ný bók eftir höfund metsölubókarinnar Íslandssýn eða Lost in Iceland.
ÍSLENSK FJÖLL
GÖNGULEIÐIR Á 151 TIND
Endurbætt og stóraukin útgáfa bókar-
innar Fólk á fjöllum eftir Ara Trausta
Guðmundsson og Pétur Þorleifsson.
Lýst er leiðum á 151 fjallstind um
allt land. Hér má finna léttar sunnu-
dagsgöngur fyrir alla fjölskylduna
jafnt sem krefjandi háfjalla- og
jöklaleiðir. Bók sem opnar nýjan
heim fyrir göngufólki.
TRÖLL OG JÓLASVEINAR
Bækur Brians Pilkington um lífshætti
trölla og íslensku jólasveinana hrífa
fólk af öllu þjóðerni. Nú kemur á
markaðinn frönsk útgáfa Trölla-
bókarinnar. Jólasveinarnir og
tröllin gleðja jafnt fullorðna
sem börn og eru skemmtileg
gjöf fyrir alla
erlenda vini.
GULLNI HRINGURINN
Páll Stefánsson
Í sumar er væntanleg á markað glæsileg bók
um vinsælasta ferðamannahring Íslands,
Gullna hringinn. Hringurinn sem nær frá
Reykjavík til Geysis og Gullfoss og þaðan til
Þingvalla er fastur viðkomustaður nær allra
ferðamanna sem koma til Íslands. Í meist-
aralegum ljósmyndum Páls Stefánssonar eru
þessar perlur náttúru og sögu sýndar í sínu
magnaðasta ljósi.
VARÚÐ! FURÐUDÝR FRAMUNDAN
Hér er á ferðinni nýjasta bókin í þjóðvegabókaflokknum vinsæla
eftir Jón R. Hjálmarsson. Fjallað er um Katanesdýrið, Lagarfljóts-
orminn og skessuna Loppu auk fjölda annarra furðuvera sem öll
eiga það til að birtast í nánd við þjóðvegi landsins. Nú er hægt að
þræða sig á ferðalaginu á milli skrímslastaða víðsvegar um landið
og skoða hvort ekki birtist skessa á bak við hól.
Þjóðvegabækur Almenna bókafélagsins
eru nú orðnar fimm talsins. Þær hafa allar
notið mikilla vinsælda, bæði meðal ferðalanga
og ekki síður hinna sem heima sitja og ferðast
í huganum.
FJALLAFRELSI
Gríðarleg vakning hefur orðið á undanförnum árum í fjallaferðum.
Landsmenn hafa uppgötvað fjöllin og óbyggðirnar og kynnst því hve
stórkostlegt það er að ganga um Ísland. Í ár koma út tvær bækur um
fjallamennsku og göngur hjá forlögum Eddu útgáfu.
GENGIÐ UM ÓBYGGÐIR
Jón Gauti Jónsson er margreyndur fjalla-
og leiðsögumaður. Gengið um óbyggðir
er vönduð handbók með aðgengilegum
upplýsingum fyrir alla sem ferðast um
hálendið, jafnt þá sem litla reynslu hafa
og þá sem vanari eru. Það er í mörg
horn að líta áður en farið er á fjöll og
margt óvænt getur gerst á ferðum
fjarri mannabyggðum. Þessi bók svarar
flestum spurningum sem koma upp í
fjallaferðum.
Sigurgeir Sigurjónsson er höfundur margra vinsælustu
ljósmyndabóka sem út hafa komið um Ísland og íslenska
náttúru. Meðal verka hans má nefna Ísland – landið hlýja í
norðri, Amazing Iceland og Íslandssýn.
Unnur Þóra Jökulsdóttir var annar höfunda ferðabókanna
um skútuna Kríu sem sigldi um öll heimsins höf. Nýjasta bók
hennar er barnabókin Eyjadís.
Nú hafa selst yfir 20.000 eintök af Lost in Iceland
eftir Sigurgeir Sigurjónsson frá því að hún kom út
sumarið 2002. Í sumar eru væntanleg dagatöl og
minnisbækur með kápumynd bókarinnar: Lost in
Time og Lost in Notes.
ÍSLENSK NÁTTÚRA
Hin stórglæsilegi bókaflokkur Máls og
menningar um íslenska náttúru hefur á að skipa
frábærum leiðsögubókum um steina, jarðfræði
og plöntur. Traustar, áreiðanlegar og aðgengi-
legar handbækur um náttúru okkar.
Ekið um óbyggðir
Hin afar vinsæla bók Ekið um
óbyggðir er nú komin aftur á
markað. Hún sló í gegn sumarið
2003 enda er þar lýst á skýran hátt
öllum helstu jeppaleiðum hálend-
isins. Kort af hálendinu fylgir.
VÆNTANLEG Í MAÍ
VÆNTANLEG Í MAÍ
KORT FYRIR ÍSLENSKAN ALMENNING
Kortadeild Máls og menningar hefur frá því að hún
tók til starfa fyrir nokkrum árum gerbreytt landslagi
í kortaútgáfu hérlendis. Í fyrsta sinn var boðið upp
á fjórðungskort og kortabók sem hægt var að taka
með sér í bílinn eða skoða heima. Þessi kort hafa
öll unnið til alþjóðlegra verðlauna og hafa selst í
tugþúsundum eintaka – Íslendingar hafa því tekið
þeim tveim höndum.
SKAFTAFELL
Nýjasta sérkort Máls og menningar er af Skaftafelli
og næsta nágrenni. Sérkortin gefa gleggri mynd af
vinsælustu ferðamannasvæðum landsins. Áður hafa
komið út Snæfellsnes, Kjölur, Lónsöræfi og Fjallabak.
KORTABÓK MM
Hin sígilda Kortabók Máls og menningar er uppfærð á hverju
ári. Í henni eru ekki aðeins kort af öllum landshlutum, heldur
einnig götukort af öllm helstu þéttbýlisstöðum og upplýsingar um
sundlaugar, ferðamennsku og afþreyingu. Algerlega ómissandi bók.
NÝ SÖGUKORTABÓK!
Sögustaðir Íslands er nýstárleg og handhæg gormabók
þar sem greint er frá öllum helstu sögustöðum lands-
ins, allt frá landnámsöld til vorra daga. Sögustaðirnir
eru rúmlega 280 talsins og er vísað til þeirra á
Íslandskorti innan á bókarkápu. Texti bókarinnar er á
íslensku, ensku og þýsku.
VÆNTANLEG Í MAÍ
ÖFLUG BÓKAÚTGÁFA ÁRIÐ UM KRING