Fréttablaðið - 20.04.2004, Page 48
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Isspiss
50% afsláttur álántökugjalditil 1. júlí
www.frjalsi. is
Stokkaðu upp fjármálin
– með hagstæðu fasteignaláni
H
im
in
n
o
g
h
a
f/
90
40
12
4
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Víst, víst, víst hef ég rétt fyrirmér og alltaf hundrað sinnum
meira en þú, segja krakkaormar
gjarnan til að styðja sitt mál og ljúka
rökræðum hið snarasta. Stjórnmála-
menn hafa á stundum notað þessa
kraftmiklu samræðuaðferð og nú síð-
ast dómsmálaráðherra við úrskurð
kærunefndar jafnréttismála varð-
andi skipan í embætti hæstaréttar-
dómara. Og svo hefur kerlingin ekk-
ert við skaðabætur að gera því ég er
búinn að skipa hana í stöðu þar sem
hún fær helling fyrir sinn snúð,
miklu meira en ef ég hefði gert hana
að hæstaréttardómara. Enda á ekk-
ert að greiða fólki skaðabætur nema
það sé á lágum launum.
ISSPISS, þetta eru asnaleg lög,
þessi jafnréttislög. Við skulum bara
henda þeim og leggja niður þessa
hallærislegu nefnd og svo nenni ég
ekki að tala meira um þetta. Mann-
réttindi eiga að þróast sjálfkrafa.
Það er best. Ekki orð um það meir.
Menn skyldu ekki gera gys að þess-
ari rökræðutækni því hún svínvirk-
ar. Ráðamenn vita líka að þjóðin er
með minni á við Hattífattana í
Múmínálfunum og á morgun verður
allt gleymt og grafið. Lægðin gengur
yfir og óveðrið gleymist þegar sólin
kyssir kinn.
UM SVIPAÐ leyti hjöluðu tveir
vinir saman í síma í hinu villta
vestri. Hvernig skyldi það samtal
hafa hljómað? Takk fyrir að vera
með mér í stríði og halda með mér
þegar ég drep fólk í Írak og sendi
þangað amerískt sprengjufóður.
Takk fyrir að skilja að það er einmitt
þarna sem við þurfum að berjast
gegn hryðjuverkum. Takk fyrir að
láta mig í friði á meðan ég klappa
vini mínum Sjaron á bakið og hvet
hann til frekari ódæðisverka.
Þeinkjú verrí næs.
Æ, það var nú lítið, Georg minn. Það
er það minnsta sem við getum gert.
Mundu svo bara eftir stuðningi okk-
ar og því litla dóti sem við eigum af-
lögu á Klakanum, mitt er þitt og þitt
er mitt. Heldurðu að þú getir ekki
hugsað þér að geyma draslið þitt
áfram á Miðnesheiði? Það væri nú
ferlega fínt.
Á ÉG drasl þar? Æ, nei, ég verð að
sækja það. Ó, plís, plís, ekki gera
það. Láttu bara eins og þú hafir ekki
munað eftir því. Lengi lifi Sjaron og
áfram kristmenn, krossmenn í Írak.
FERÐ ÞÚ Á LEIKINN?
Glaumbar býður þér og vini þínum á
Old Trafford að sjá Man Utd-Liverpool.
Sendu SMS skeytið JA FERD á númerið 1900
og þú gætir unnið.
Við sendum þér 2 spurningar. Þú svarar með
því að senda SMS skeytið JA A, B eða C
á númerið 1900.
Þú gætir unnið ferð fyrir 2 á Man
Utd-Liverpool* • Glaðning frá Adidas •
Fótbolta tölvuleik • Enn meira af leikjum,
VHS og DVD myndum
99 kr/skeytið