Fréttablaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 18
18 21. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
MÓTMÆLAAÐGERÐIR Í JAKARTA
Indónesískur háskólanemi heldur á mynd
af Ahmed Yassin, stofnanda og andlegum
leiðtoga Hamas-samtakanna, sem skotinn
var til bana af ísraelskum hersveitum í
mars. Tugir háskólanema komu saman í
miðborg Jakarta í gær til að fordæma vígið
á Abdel Aziz Rantisi, eftirmanni Yassins.
Ný reglugerð um kattahald á næstu vikum:
Sektir fyrir óskráða ketti
GÆLUDÝR „Með því að setja skrán-
ingaskyldu á ketti ætti að nást utan
um kattahald í borginni,“ sagði Kol-
beinn Proppé, formaður umhverfis-
og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur-
borgar. „Ef óskráður köttur næst,
verður eigandinn að leysa hann út
og borga sekt, rétt eins og gerist hjá
hundaeigendum.“
Nefnd vinnur nú að setningu
nýrra reglna um kattahald í Reykja-
vík, eins og Fréttablaðið greindi frá
í gær. Er gert ráð fyrir að þær verði
afgreiddar á allar næstu vikum frá
borgarráði, en vinnu við þær lýkur
líklega nú í vikunni.
Kolbeinn sagði að vegna breyttr-
ar reglugerðar um búfjárhald
þyrftu sveitarfélögin að setja sér
samþykktir um kattahald. Þær
þyrftu að innihalda ákvæði um
skylduskráningu, ábyrgðartrygg-
ingu og ormahreinsun.
„Ég tel persónulega, að ekki sé
tilefni til að setja í reglugerð um
kattahald bann við lausagöngu
katta,“ sagði Kolbeinn. „Það er ekki
allt slæmt við ketti og mér finnst að
við eigum að hafa þannig umhverfi
að allir geti lifað í sátt og samlyndi;
dýrin og fólkið í borginni,“ bætti
hann við. ■
FÉLAGSMÁL „Ég er mjög ánægð með
niðurstöðu fundarins,“ sagði
Kristín Róbertsdóttir, formaður
Húsfélags Alþýðu, en vísaði ann-
ars á lögmann félagsins.
Styr hefur staðið um Húsfélag
alþýðu, sem á sínum tíma varð til
upp úr Byggingafélagi alþýðu,
sem aftur hafði verið stofnað utan
um byggingu verkamannabústaða
í fimm fjölbýlishúsum. Stjórn
húsfélagsins vildi fá samþykktar
nýjar samþykktir fyrir félagið á
aðalfundi í fyrradag. Það gekk þó
ekki eftir þar sem fundurinn, sem
var fjölmennur, samþykkti að þær
skyldu lagðar fyrir kærunefnd
fjöleignarhúsamála.
Á fundinum kom fram nokkur
gagnrýni á stjórn húsfélagsins.
Meðal annars að húsfélagsgjöldin
væru of há og skýringar vantaði á
ýmsum atriðum fjármálalegs eðl-
is. Þá kom fram, að félagið hefði
tapað 400 þúsundum króna í húsa-
leigu sem afskrifuð hefði verið á
síðasta ári. Sú leiga átti að koma
af einhverjum eigna húsfélagsins
sem eru umtalsverðar. Um er að
ræða íbúðir, sameignir og fyrrum
verslunar- og þjónustuhúsnæði.
Eitt af því sem gagnrýnt hefur
verið er, að húsfélag sé jafnframt
eignarhaldsfélag, sem eigi ríka
eigin hagsmuni sem gengið geti
þvert á hagsmuni húsfélagsins
sem slíks.
Í máli Sigurðar Helga Guðjóns-
sonar, formanns Húseigenda-
félagsins, á fundinum kom fram,
að skylduaðild að húsfélagi væri
bundin þröngt við viðkomandi
hús. Það væri ekkert í lögum,
samþykktum eða reglum sem
skyldaði húseigendur til að
hlekkja sig saman í svo stóru
„holli“. Húsfélagið væri arfur frá
gamalli tíð, „langt fram á horfinni
öld“. Það væri barn síns tíma.
Hann líkti því við „nátttröll, sem
dagað hefði uppi, en gerði sér ekki
grein fyrir því að tilvistartími
þess væri löngu liðinn, þótt for-
sendur félagsins og grundvöllur
þess væri löngu horfinn“. Þó það
ætti eignir þá þýddi það ekki að
íbúðareigendur í hús ættu ein-
hverja sögu sameiginlega til að
hægt væri að skylda eigendur til
að vera í einu félagi.
Spurður hvað það þýddi að vísa
samþykktum stjórnarinnar til
kærunefndar, sagði Sigurður Helgi
að allir félagsmenn ættu þess nú
kost að koma athugasemdum og
sjónarmiðum sínum á framfæri við
nefndina.
„Þá fjallar nefndin um að hvort
þörf sé á að vera með svona stórt
félag og hvort samþykktirnar haldi
að öðru leyti,“ sagði hann. „Þetta
var óskaniðurstaða, því í stað þess
að keyra samþykktirnar í gegn eins
og fyrirhugað var, er málið bremsað
og fenginn opinber álitsgjafi til að
leggja mat á samþykktirnar og
grundvöll félagsins.“
jss@frettabladid.is
Gölluð þurrmjólk:
Tugir ung-
barna létust
KÍNA Tugir kínverskra ungbarna
hafa látist af völdum vannæringar á
undanförnum mánuðum eftir að
hafa fengið gallaða þurrmjólk. For-
sætisráðherra Kína, hefur fyrir-
skipað opinbera rannsókn og heitið
því að refsa framleiðendum þurr-
mjólkurinnar.
Hátt í 200 börn í Anhui-héraði
veiktust eftir að hafa neytt
vítamínssnauðrar þurrmjólkur og
hafa að minnsta kosti sextíu þeirra
látist. Rannsókn á einni tegundinni
leiddi í ljós að hún innihélt aðeins
um einn sjötta hluta þess magns af
næringarefnum sem talið er nauð-
synlegt ungbörnum. ■
ÓTRÚLEGT VERÐ!
Bæjardekk
Langatanga 1A
270 Mosfellsbæ
Dekkið sf.
Reykjavíkurvegi 56
220 Hafnarfirði
Gúmmívinnustofan
Réttarhálsi 2
110 Reykjavík
Gúmmívinnustofan
Skipholti 35
105 Reykjavík
Hjólbarðastöðin ehf.
Bíldshöfða 8
110 Reykjavík
Hjólkó ehf.
Smiðjuvegi 26
200 Kópavogi
Höfðadekk ehf.
Tangarhöfða 15
110 Reykjavík
Hjólbarðaviðgerðin sf.
Dalbraut 14
300 Akranes
Hjólbarðaþjónusta
Magnúsar
Gagnheiði 25
800 Selfoss
Réttingarverkstæði
Sveins Magnússonar
Eyrargötu 9
740 Neskaupstað
Vélsmiðja Hornafjarðar hf.
Áslaugarvegi 2
780 Höfn
Bílaþjónustan hf.
Garðarsbraut 52
640 Húsavík
Bílaþjónustan hf.
Dynskálum 24
850 Hellu
WILD COUNTRY WILDCAT DURANGO POWER KING
NORÐDEKK ROADSTONE WANLI MONTANA EUROWIN
HJÓLBARÐAR ERU EITT VEIGAMESTA ÖRYGGISTÆKI BÍLSINS
VERSLAÐU HJÁ FAGMÖNNUM
VERÐDÆMI
STÆRÐ VERÐ/STGR.155/80 R13
175/70 R13
175/65 R14
215/45 R17
225/45 R17
31x10,5 R15
33x12,5 R15
35x12,5 R15
3.980 kr.
4.687 kr.
5.173 kr.
11.800 kr.
13.800 kr.
13.900 kr.
14.500 kr.
14.900 kr.
Eitt símanúmer!
580 1500
HRYÐJUVERKAMENN HANDTEKN-
IR Í SVÍÞJÓÐ Sænska öryggislög-
reglan, SAPO, hefur handtekið
fjóra menn sem grunaðir eru um
tengsl við íslömsk hryðjuverka-
samtök. Að sögn talsmanns SAPO
eru ekkert sem bendir til þess að
fjórmenningarnir hafi verið að
skipuleggja árásir í Svíþjóð.
Mennirnir voru handteknir í
Stokkhólmi og Malmö aðfaranótt
þriðjudags.
KRÓNPRINS NOREGS HEIMSÆKIR
TANSANÍU Hákon, krónprins Nor-
egs, fór í fjögurra daga opinbera
heimsókn til
Tansaníu. Prins-
inn, sem er þrí-
tugur, er heiðurs-
sendiherra hjá
Sameinuðu þjóð-
unum. Hann mun
fara á fund hátt-
settra embættis-
manna til að ræða um þróunar-
verkefni.
■ Norðurlönd
Hækkun hlutabréfa:
Upp um fjórðung
MARKAÐUR Úrvalsvísitala aðallista
hefur hækkað um 25% frá ára-
mótum í kjölfar 56% hækkunar á
síðasta ári. Hækkunin hefur verið
drifin áfram af bönkunum og fjár-
festingarfélögunum sem öll hafa
hækkað á bilinu 30–50% frá ára-
mótum. Hlutabréfamarkaðurinn
hefur nú hækkað nær stöðugt frá
því haustið 2001. Hækkun hefur
verið sérstaklega mikil frá síðasta
hausti og hefur verið leidd áfram
af stærstu félögunum. Greining
Íslandsbanka segir markaðinn
hafa tekið flugið eftir hálfsárs-
uppgjör, sem voru betri en búist
var við og gáfu góð fyrirheit um
rekstur nokkurra af stærstu
félögunum. ■
MESTA HÆKKUN FRÁ
ÁRAMÓTUM
Jarðboranir 76%
Burðarás 51%
KB banki 46%
Landsbankinn 41%
Kaldbakur 40%
Íslandsbanki 33%
SKYLDUSKRÁNING
Nýjar reglur um kattahald í Reykjavík eru
að líta dagsins ljós. Samkvæmt þeim
ber að skrá alla ketti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FASTEIGNIR
Húsfélag alþýðu á allmiklar fasteignir, þar á meðal á Hofsvallagötu 16, þar sem skrifstofan
er staðsett, svo og á Bræðraborgarstíg og Ásvallagötu.
Völd og umboð
hússtjórnar í biðstöðu
Völd og umboð stjórnar Húsfélags alþýðu eru í biðstöðu eftir að aðalfundur samþykkti einróma
að vísa nýjum samþykktum til kærunefndar fjöleignahúsamála. Niðurstaða kærunefndar markar
annaðhvort nýtt upphaf eða endalok félagsins í núverandi mynd.