Fréttablaðið - 22.04.2004, Síða 12
12 22. apríl 2004 FIMMTUDAGUR
ÞUNGAFLUTNINGAR Í KÍNA
Gamall kínverskur maður flytur timbur og
ýmislegt annað á þríhjóli um götur Peking
í Kína. Þríhjól eru enn vinsæl flutningatæki
í Kína.
LYFJAMÁL Landssamtök hjartasjúk-
linga líta á aðgerðir ríkisstjórnar-
innar til sparnaðar í lyfjamálum
séu fjandsamlegar við þá heil-
brigðis- og mannúðarstefnu sem
boðuð hefur verið, að því er segir
í yfirlýsingu frá stjórn félagsins.
„Þessi sparnaðaráform birtast
hjartasjúklingum sem stórfelldar
hækkanir á algengum hjartalyfj-
um,“ segir í yfirlýsingunni.
„Mörg dæmi eru um að lyf hækki
langt yfir 100%. Hluti af stefnu-
breytingu stjórnvalda er að taka
upp svokallað „analog“-kerfi. Þar
er eitt lyf valið úr til verðviðmið-
unar fyrir önnur sambærileg
lyf.“
LHS bendir líka á að lyfja-
fyrirtækin verði að axla ábyrgð í
þessu máli. Hér sé um að ræða
verðstríð milli lyfjaheildsala og
ríkisins. Sjúklingar eigi ekki að
verða fórnarlömb þessara átaka.
Það sé afdráttarlaus krafa Lands-
samtakanna að þessum ákvörðun-
um verði frestað og fulltrúum
sjúklinga verði boðið til viðræðna
um lyfjaverð og þær ákvarðanir
sem liggi til grundvallar.
Af þessu tilefni boða Lands-
samtökin til málþings um þetta
mál á laugardag í Súlnasal í
Reykjavík. Þingið hefst klukkan
10 árdegis og stendur fram til
klukkan 12. Öllum áhugamönnum
um þetta mál er boðin þátttaka á
meðan að húsrúm er nægilegt. ■
Óvissa ríkir um
þyrluvakt lækna
Engin varaáætlun er til staðar ef ekki tekst að framlengja samning við lækna um þyrluvakt hjá
Landhelgisgæslunni. Ekkert hefur enn verið rætt við lækna en aðeins eru níu dagar til stefnu.
LÆKNISÞJÓNUSTA „Við erum ekki
beinir aðilar að þessum samning-
um svo það eina sem við getum
gert er að vonast eftir samkomu-
lagi hið fyrsta,“ segir Hafsteinn
Hafsteinsson, forstjóri Landhelg-
isgæslunnar, en
samningur ríkis-
ins og Landspít-
alans um þyrlu-
vakt lækna
rennur út um
mánaðamótin.
Hafsteinn segir
stöðuna vissu-
lega óþægilega
en hann á fulla
von á að landi
verði náð. „Þetta
er tiltölulega ný-
komið til að reyna eigi að fram-
lengja núverandi samning og það
hlýtur fullt kapp að verða lagt á
að ná saman fyrir mánaðamótin.“
Hafsteinn segir enga varaáætlun í
gangi innan stofnunarinnar ef það
tekst ekki.
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra hefur margoft lýst yfir
að engin hætta sé fyrir höndum
þrátt fyrir að samningar við
lækna séu lausir en fáir aðrir fall-
ast á þá skoðun hans. Ekkert hef-
ur enn verið rætt við lækna og
segir Hlynur Þorsteinsson, for-
maður félags slysa- og bráða-
lækna með ólíkindum að enginn
viti hvar málið er statt níu dögum
áður en núverandi samningur fell-
ur úr gildi. Hlynur hefur sjálfur
starfað lengi sem þyrlulæknir.
„Við höfum af þessu talsverðar
áhyggjur enda ekkert heyrt ennþá
varðandi framhaldið. Spítalinn
hefur ekki sett sig í samband við
okkur en með uppsögn við okkur
lokaði spítalinn fyrir þann mögu-
leika að við gætum mögulega ver-
ið til taks lengur en samningurinn
við ríkið kveður á um. Það þýðir
að um mánaðamótin verður annað
hvort læknislaust um borð í þyrl-
um Gæslunnar eða til starfsins
verða fengnir aðrir læknar.“
Hlynur lýsir þungum áhyggjum
verði það gert enda sé starf lækna
um borð í björgunarþyrlum mjög
sérhæft og annað og meira þurfi til
en lækniskunnáttu. Er það mat hans
og annarra lækna sem Fréttablaðið
talaði við að enginn efi sé á því að
læknar um borð í þyrlum Landhelg-
isgæslunnar hafi margoft bjargað
mannslífum. Því sé með öllu óskilj-
anlegt hvernig hægt sé að láta mál
sem þetta hanga í lausu lofti
nokkrum dögum áður en samning-
urinn rennur út.
Dómsmálaráðherra svaraði
ekki fyrirspurnum blaðsins vegna
þessa máls en Björn hefur látið
hafa eftir sér að búið verði um
hnúta þannig að engin óvissa
skapist en óvissa ríkir nú víða,
bæði hjá læknum sem þjónust-
unni hafi sinnt sem og starfs-
mönnum Landhelgisgæslunnar.
albert@frettabladid.is
„Björn hef-
ur látið hafa
eftir sér að
búið verði um
hnúta þannig
að engin
óvissa skapist
en óvissa ríkir
nú víða.
M
arg
fald
a›u punktana flína
Punkta›u fla› hjá flér!
Gæ›aflís frá
Catmandoo
Ver› mi›a› vi›
1000 punkta:
500 kr.
Smásöluver›: 3.490 kr.
Ver›gildi punkta: x3
H
ám
ark
1000
punktar á hvert tilbo›
FLÍSPEYSA
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
1
7
2
Landssamtök hjartasjúklinga:
Fjandsamlegar
aðgerðir
VERÐBREYTINGAR
Sjúklingafélög funda þessa dagana um sparnaðaraðgerðir stjórnvalda í lyfjamálum.
Könnun á evrópskum vinnumarkaði:
Íslendingar vinna lengsta viku
VINNUMARKAÐUR Íslendingar vinna
að meðaltali tíu prósent lengri
vinnuviku en næsta þjóð í Evrópu.
Meðalvinnuvika Íslendinga er
48,5 stundir á viku. Næstir okkur
koma Grikkir sem vinna um 44
stundir á viku. Bretar eru svo
þriðju í röðinni. Þetta er sam-
kvæmt vinnumarkaðsskýrslu
Evrópsku hagstofunnar sem fjall-
að er um í vefriti fjármálaráðu-
neytisins.
Í skýrslunni kemur fram að
vinnuvikan er styst hjá Norð-
mönnum og Frökkum. Þeir vinna
inna við 40 stunda vinnuviku eða
39 tíma á viku að meðaltali.
Vinnutími á Norðurlöndunum er
almennt sjö til níu tímum styttri
en hér á landi.
Karlar vinna lengri vinnu-
viku en konur. Sá munur er sam-
eiginlegur öllum löndunum og
er hlutfallslega svipaður. Hér á
landi munar þó aðeins meiru á
vinnutíma karla og kvenna.
Karlar vinna 51,5 stundir á viku
að meðaltali sem er sex tímum
lengri vinnuvika en hjá grískum
og breskum karlmönnum sem
koma næstir. Munurinn hjá kon-
um er minni í þessum löndum.
Íslenskar konur vinna að meðal-
tali 43,5 tíma meðan kynsystur
þeirra í Grikklandi vinna 42
tíma á viku. ■
FRÁ BLÖNDUÓSI
Margir vilja sameina allar heilbrigðisstofn-
anir undir einn hatt.
Héraðsráð Austur-Hún-
vetninga:
Sameining
heilbrigðis-
stofnana
SVEITARSTJÓRNARMÁL Fram-
kvæmdastjórn Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Blönduósi hefur
farið þess á leit við Héraðsráð
Austur-Húnvetninga að könnuð
verði hugsanleg sameining allra
heilbrigðisstofnana í sýslunni.
Er þar um þrjár sjálfstæðar
stofnanir að ræða; Heilbrigðis-
stofnunina á Blönduósi og dval-
ardeild hennar, auk dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Sæborgar.
Mun oddviti og framkvæmda-
stjóri Héraðsráðs ræða þennan
möguleika nánar enda talið að
sparnaður geti falist í samein-
ingu. ■
ÞYRLUR LANDHELGISGÆSLUNNAR
Níu dögum áður en samningar um þyrluvaktir lækna renna út er hlaupið til og reynt að framlengja núverandi samning.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ALLTAF AÐ VINNA
Íslendingar eru Evrópuþjóða lengst í vinnunni. Evrópskir karlmenn komast ekki með tærn-
ar þar sem íslenskir kynbræður hafa hælana sé litið til fjölda vinnustunda á viku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M