Fréttablaðið - 24.04.2004, Page 10
10 24. apríl 2004 LAUGARDAGUR
ELSTA KONA HEIMS
Ramona Trinidad Iglesias, 114 ára, kælir
sig með blævæng meðan hún situr fyrir
hjá ljósmyndurum. Iglesias dvelur nú á Mi
Casita hjúkrunarheimilinu í San Juan borg
í Puerto Rico. Hún er talin fædd 31. ágúst
eða 1. september 1889 og er í heims-
metabók Guinness skráð elsta
núlifandi kona heims.
Skýrsla um stöðu á fjölmiðlamarkaði:
Vel unnin skýrsla
STJÓRNMÁL „Margir gleðjast yfir
þeirri fjölbreytni sem er á fjöl-
miðlamarkaði á Íslandi en á sama
tíma er fólk almennt á því að sam-
þjöppunin hefur orðið of mikil.
Skýrslan er ágæt og vel unnin og
gefur gott yfirlit yfir þetta við-
fangsefni,“ segir Jónína Bjartmarz
alþingismaður um skýrsluna um
stöðuna á fjölmiðlamarkaði.
Jónína segir að í mannréttinda-
sáttmálanum sem hefur lagagildi
hér á landi séu beinlínis lagðar þær
skyldur á stjórnvöld að standa vörð
um tjáningarfrelsi og í þágu þess er
sú kvöð á stjórnvöldum að tryggja
menningarlega fjölbreytni og opna
og lýðræðislega umræðu eins og
tjáningarfrelsisákvæði hefur verið
túlkað með dómum mannréttinda-
dómstólsins. Hún segir svo spurn-
ingu vera hvernig hversu langt
menn vilja ganga og hvaða skorður
þeir vilja setja. Þá gangi ekki að
horfa eingöngu til landanna, sem
við viljum bera okkur saman við á
annan hátt, af því að við hljótum að
þurfa að taka mið af smæð íslensks
samfélags og afleiðinganna á ís-
lenskt viðskiptaumhverfi og það
umhverfi sem fjölmiðlarnir starfa
í. Samkeppnislögin gilda um fyrir-
tæki á sviði fjölmiðlunar en sam-
kvæmt framansögðu er ljóst að
hluta til gilda um þau önnur sjónar-
mið. ■
FJÖLMIÐLASKÝRSLAN Skarphéðinn
Berg Steinarsson, stjórnarfor-
maður Norðurljósa, er mjög
ósáttur við skýrslu nefndar
menntamálaráðherra um stöðu
á fjölmiðlamarkaði. „Það háir
þessari skýrslu að það eru
rangar tölur í henni sem hefðu
ekki verið þarna ef skýrsluhöf-
undar hefðu haft fyrir því að
kynna sér þau fyrirtæki sem
þarna er fjallað um. Þar er far-
ið rangt með tölur bæði um
Norðurljós og Baug og nægir að
nefna annars vegar markaðs-
hlutdeild Baugs á matvöru-
markaði sem er hvergi nálægt
þeirri tölu sem þar er sett
fram,“ segir hann. „Þar er um
allt annan rekstur að ræða,“
segir hann.
Hins vegar segir hann að
nefndin fjalli um Norðurljós eins
og fyrirtækið var fyrir samein-
ingu við Frétt ehf. „Ef fleira í
gagnaöflun nefndarinnar er með
þeim hætti þá er ástæða til að
hafa áhyggjur,“ segir Skarp-
héðinn.
Stjórn Norðurljósa óskaði eft-
ir fundi með nefndinni en þeirri
kröfu var ekki sinnt. Skarphéð-
inn telur að leiðrétta hefði mátt
margt í skýrslunni ef leitað hefði
verið til fyrirtækja á markaðin-
um.
Skarphéðinn undrast að
skýrsluhöfundar mæli með
eflingu Ríkisútvarpsins en hann
segir umfang þess vera stærsta
vandamálið á fjölmiðlamarkaði.
„Það er alveg ljóst að skýrslu-
höfundar hafa aldrei komið ná-
lægt rekstri fjölmiðla og hafa
frekar lítið vit á honum,“ segir
Skarphéðinn. ■
FJÖLMIÐLASKÝRSLAN „Framsóknar-
flokkurinn hefur mótmælt þessu,
en nú kemur í ljós á næstu dögum
hvort að í leggjum Halldórs Ás-
grímssonar eru forsætisráðherra-
bein eða -brjósk. Ef hann lætur
kúga sig í þessu máli þá gef ég nú
lítið fyrir hann þegar Davíð fer að
stjórna úr aftursætinu eftir 15.
september,“ segir Össur Skarp-
héðinsson, formaður Samfylking-
arinnar.
Össur segir það öldungis frá-
leitt að skýrslan sem ríkisstjórnin
lét vinna um eignarhald á fjöl-
miðlum skuli vera komin í al-
menna umræðu í gegnum fjöl-
miðla án þess að alþingismenn,
sem innan skamms kunna að eiga
að fjalla um málið, fái hana í
hendur.
„Af fregnum fjölmiðla sýnist
mér þær hugmyndir sem forsæt-
isráðherra hefur uppi einmuna
vitlausar. Þar er til dæmis lagt til
að þeir sem að eigi fyrirtæki megi
ekki eiga í fjölmiðlum,“ segir Öss-
ur. Hann spyr hvort eigi þá að
banna þeim mönnum og fyrir-
tækjum sem hafa lagt fé í Skjá
einn sem sannarlega hefur aukið
samkeppni á sjónvarpsmarkaði,
að halda áfram að reyna að halda
því fyrirtæki gangandi. Hann
bendir jafnframt á Morgunblaðið.
„Hafa ekki í gegn um tíðina
verið eigendur á Morgunblaðinu
sem sömuleiðis hafa átt fyrirtæki,
meira að segja mjög stór fyrir-
tæki á íslenskan mælikvarða? Ég
gæti tekið smærri dæmi, en þetta
sýnir einfaldlega að það er ekki
heil brú í rökstuðningi fyrir þess-
um breytingum sem forsætisráð-
herra leggur til,“ segir Össur.
Á umræðum um skýrsluna á
Alþingi í gær sagði forsætisráð-
herra að Samfylkingin skipi sér-
stakan verndarhring í kringum
þrjú fyrirtæki, fyrirtæki, fyrir-
tæki Jón Ólafssonar, Baug og
Kaupþing.
Aðspurður um þessi ummæli
forsætisráðherra segir Össur að
það séu tveir menn á Íslandi sem
hafa harkalega tekist á við Baug.
„Annar er forsætisráðherra og
hinn er ég, eins og frægt er. Það
er með ólíkindum að forsætisráð-
herra skuli láta sér svona um
munn fara og sýnir hversu gjör-
sneyddur hann er rökum í mál-
inu. Samfylkingin og Baugur eiga
ekkert sameiginlegt. Það má
koma skýrt fram að í síðustu
kosningabaráttu þáði Samfylk-
ingin ekki túskilding af Baugi
vegna kosningabaráttunnar. Ég
spyr, geta báðir stjórnarflokk-
arnir sagt hið sama?“ segir
Össur.
Þegar Össur er spurður álits á
vinnubrögðum forsætisráðherra
vegna skýrslunnar og undirbún-
ing frumvarpsdraga segir hann
þau með ólíkindum. Hann segir
það þó ekki koma sér á óvart að
hann skuli ætla sér að knýja mál-
ið með ofbeldi í gegnum þingið á
örfáum dögum. Hann segir það
einnig ótrúlegt að sjá hvernig
forsætisráðherrann fer á bak við
Sjálfstæðisflokkinn og Fram-
sóknarflokkinn og láti með leynd
vinna frumvarpið án þess að þeir
viti af.
sda@frettabladid.is
Prestur dæmdur fyrir
kynferðisbrot:
Fórnarlömb
fá 2,7
milljarða
TEXAS, AP Fórnarlömb lútersks
prests, sem fundinn var sekur um
kynferðislega misnotkun á ungum
drengjum, munu fá svarar hátt í
2,7 milljörðum íslenskra króna í
miskabætur.
Gerald Patrick Thomas jr. var
prestur bandarískrar mótmæl-
endakirkju í Texas 1997–2001.
Hann var handtekinn eftir að ung-
lingspiltur fann ljósmyndir af
ungum drengjum á tölvunni hans
og reyndi að kúga út úr honum fé
og í kjölfarið var hann dæmdur í
397 ára fangelsi fyrir kynferðis-
lega misnotkun á börnum. Níu
fórnarlömb fóru í mál við kirkju-
deildina á þeim forsendum að
fyrrum biskup og aðstoðarmaður
hans hefðu hunsað ábendingar um
ósæmilega hegðun Thomas. ■
LÍFSTÍÐARFANGELSI FYRIR SAM-
ÚRÆJAÁRÁS Þýskur karlmaður á
þrítugsaldri sem hjó samstarfs-
konu sína til bana með sam-
úræjasverði og særði þrjár aðrar
konur, hefur verið dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi. Árásin átti sér stað
í bænum Pforzheim í september í
fyrra. „Ég hata mannkynið og
heiminn allan,“ sagði Stefan Aug-
enstein þegar hann var spurður
um tilefni árásarinnar.
HANDTÖKUR Á SPÁNI Yfirvöld á
Spáni hafa handtekið einn mann
til viðbótar og gefið út sex nýjar
handtökuskipanir í tengslum við
rannsókn á sprengjuárásunum í
Madríd 11. mars. Tveimur Ind-
verjum, sem sakaðir voru um að
hafa selt farsímana sem notaðir
voru til að sprengja sprengjurn-
ar, hefur verið sleppt úr haldi.
SÍÐUSTU KOLANÁMU FRAKK-
LANDS LOKAÐ Þriggja alda sögu
kolavinnslu í Frakklandi er lokið.
Síðustu kolanámu landsins, La
Houve við bæinn Creutzwald, var
lokað í gær. Um 400 námuverka-
menn störfuðu í námunni og var
gerður við þá sérstakur starfs-
lokasamningur.
■ Evrópa
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON, FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR
„Af fregnum fjölmiðla sýnist mér þær hugmyndir sem forsætisráðherra hefur uppi einmuna vitlausar. Þar er til dæmis lagt til
að þeir sem að eigi fyrirtæki megi ekki eiga í fjölmiðlum.“
Brjósk eða bein í
leggjum Halldórs
Össur Skarphéðinsson segir að það muni koma í ljós á næstu dögum hvort Halldór Ásgrímsson
láti Davíð Oddsson kúga sig í málinu um eignarhald á fjölmiðlum. Össur segir hugmyndir
forsætisráðherra einmuna vitlausar og án rökstuðnings.
Stjórnarformaður Norðurljósa:
Rangfærslur í fjölmiðlaskýrslu
JÓNÍNA BJARTMARZ
Jónína segir að taka verði mið af smæð
samfélagsins og afleiðinganna á íslenskt
viðskiptaumhverfi og það umhverfi sem
fjölmiðlarnir starfa í.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
IN
AR
Ó
LA
■ Afganistan
Dagbækur Hitlers:
Fölsuð bók
á uppboði
BERLÍN, AP Fölsuð dagbók Adolfs
Hitler var seld á uppboði í Berlín
fyrir sem svarar um 570.000 ís-
lenskum krónum.
Bókin sem um ræðir er ein af
sextíu dagbókum sem falsarinn
Konrad Kujau skrifaði og seldi
þýska tímaritinu Stern fyrir sem
nemur hátt í 400 milljónum ís-
lenskra króna árið 1983. Sérfræð-
ingar komust að þeirri niðurstöðu
að þær væru falsaðar og í kjölfarið
var Kujau dæmdur í fjögurra og
hálfs árs fangelsi.
Í bókinni, sem er 56 blaðsíður,
má meðal annars finna falsaða
erfðaskrá Hitlers og Evu Braun. ■
ÍÞRÓTTAHETJA FÉLL Í AFGANIST-
AN Ein skærasta von banda-
rísku atvinnumannadeildarinn-
ar í ruðningi, NFL-deildinni,
féll í stríðsátökum í Afganistan
í gær. Pat Tillman, hafði nýlega
hafnað hundruð milljóna króna
samningi við Cardinals til að
ganga til liðs við Bandaríkjaher.
Hann var skotinn til bana í
átökum aðeins 27 ára að aldri.