Fréttablaðið - 24.04.2004, Page 27
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 223 stk.
Keypt & selt 38 stk.
Þjónusta 59 stk.
Heilsa 13 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 22 stk.
Tómstundir & ferðir 11 stk.
Húsnæði 47 stk.
Atvinna 17 stk.
Tilkynningar 8 stk.
Reynsluakstur á BMW X3 og X5
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er laugardagurinn 24. apríl,
115. dagur ársins 2004.
Reykjavík 5.23 13.26 21.31
Reykjavík 4.58 13.10 21.26
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
Reglum innan Evrópska efnahagssvæðisins
hefur nú verið breytt á þann veg að öllum
er frjálst að selja allar tegundir bíla án sér-
staks einkaleyfis,“ segir Viktor Urbancic,
einn eigandi Sparibill.is. sem verður fyrsta
bílasalan á Íslandi til að bjóða allar tegund-
ir af nýjum bílum.
„Þessar breytingar hafa verið að gerast
annars staðar í heiminum. Þær eru gífur-
legar og eiga eftir að bylta bílamarkaðinum
hérlendis,“ segir Viktor. Hann segir þetta
fyrst og fremst koma neytandanum til góða
því nú opnist tækifæri til að bjóða bíla á
verði sem er mun lægra en fólk hefur átt að
venjast. En það er ekki bara verðið sem
breytist heldur einnig formið á sölunni.
Bílasalan Sparibill.is sem Viktor rekur er
aðallega með bíla til sölu á netinu þar sem
hægt er að skoða ljósmyndir og fá tækni-
legar upplýsingar. Hins vegar verða fljót-
lega til einhverjir bílar á lager. Eins og
málin standa eru bílarnir ekki fluttir til
landsins fyrr en búið er að kaupa þá.
„Hjá okkur er að finna bíla í öllum verð-
flokkum. Sá ódýrasti er á ellefu hundruð
þúsund en sá dýrasti á þrjátíu og eina millj-
ón. Það er reyndar þegar búið að panta
dýrasta bílinn,“ segir Viktor, sem segir við-
brögðin við þessari nýju bílasölu mun meiri
en hann bjóst við.
„Auðveldara verður fyrir okkur að
kynna nýjar tegundir bíla á markaðinn, því
við þurfum ekki að sækjast eftir umboði og
byggja svo utan um bílana sérstakt hús-
næði. Með minni yfirbyggingu get ég boðið
lægra verð, sem kemur neytandanum til
góða,“ segir Viktor.
steinunn@frettabladid.is
Annað fólk dæmir þig út frá því hvernig bíl þú
ekur. Þetta segir Sissel Schroeder, bandarískur
kennari í fornleifafræði. Hún lét nemendur sína
skoða nokkra bíla á bílastæði og draga af þeim
ályktanir um eigendurna. Nemendurnir tengdu
ákveðinn lúxus, eins og leðursæti og skyggðar
rúður, við hærri tekjur. Ef bíllinn var skítugur eða
beyglaður töldu þeir frekar að eigandinn væri
með lág laun.
Fólk virðist líka telja að konur séu líklegri til að
halda bílnum hreinum og snyrtilegum að innan
en að vel bónaðir bílar séu frekar í eigu karla. Þá
er talið karlmannlegt að aka á breyttum bíl en
kvenlegt að sjá glitta í barnadót í skottinu.
Ný reglugerð EES:
Bylting á bíla-
markaðinum
bilar@frettabladid.is
Slysum fækkar um þriðjung
þegar settar eru upp eftirlits-
myndavélar, segir norska vega-
eftirlitið. Hraðamælingar sýna að
meðalhraði bílanna lækkar um
sex kílómetra á klukkustund þegar
myndavélarnar eru til staðar, og
að enn meira dregur úr hraðanum
alveg upp við myndavélarnar.
Rétt fyrir páska hafði norska lög-
reglan komist að þeirri niðurstöðu
að myndavélarnar hefðu lítil áhrif
og að þær ykju jafnvel hættu á
umferðaróhöppum. Vegaeftirlitið
telur hins vegar að þær séu mikil-
vægur þáttur í að tryggja umferð-
aröryggi. Eftirlitsmyndavélar hafa
verið notaðar í um tuttugu ár í
Noregi og segir vegaeftirlitið enga
ástæðu til að hætta notkun þeirra.
BMW 3 er bestu kaupin í not-
uðum bílum. Þetta kom fram í
könnun breska blaðsins Used
Car Buyer. Sex sinnum fleiri
Bretar keyptu notaðan bíl en
nýjan í fyrra. Könnunin tók til
hundraða bíltegunda frá 39
framleiðendum. Útkoman var
listi yfir 100 bestu notuðu bílana
á Bretlandseyjum. Athugunin
tók meðal annars til bilanatíðni,
aksturseiginleika, rekstrarkostn-
aðar, endursöluverðs, framboðs
og ánægju eigenda notaðra bíla.
3-línan frá BMW fékk samanlagt
hæstu einkunn og vermir topp-
sætið á listanum sem birtur er í
heild sinni í nýjasta tölublaði
Used Car Buyer. Á síðasta ári
keyptu rúmlega sex sinnum
fleiri Bretar sér notaðan bíl en
nýjan.
DaimlerChrysler er hætt við að
reyna að bjarga fjárhag japanska
bílaframleiðandans Mitsubishi
Motors að því er virðist. Daimler-
Chrysler á 37% hlut í Mitsubishi
Motors en íhugar nú að selja sinn
hlut. Mitsubishi er eina japanska
bílafyrirtækið sem berst í bökkum
en sala á bílum þess hefur minnk-
að mikið í Bandaríkjunum. Þá
þurfti fyrirtækið að kalla inn rúm-
lega 80 þúsund bíla í byrjun apríl
vegna galla í hjólabúnaði. Mitsu-
bishi Motors hefur undanfarið
rætt við hluthafa um aðgerðir til
bjargar. Samgönguráðherra Jap-
ans, Nobuteru Ishihara, segir að
um mjög alvarlegt mál sé að
ræða og iðnaðarráðherrann
Shoichi Nakagawa segist munu
fylgjast náið með þróun mála.
Bílamarkaðurinn mun gerbreytast hérlendis að mati Viktors Urbancic.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR BÍLINN
Til sölu. Yamaha WR 450F og 250F nýtt.
Yamaha YZ 450F og 250 nýtt. Yamaha
YZ 85 nýtt. Gott verð! S. 898 2811.
01 Fletcher spíttbátur, 17 fet, 02 ryðfrír
vagn, 96 50 hp Evinrude-utanborð-
mótor. Sími 698 6958.
Eruð þið að fara að ferma? Gifta ykkur?
Halda afmæli? Eða bjóða í mat? Er með
lausnina! Leigi út stórglæsilegan borð-
búnað með ýmsum aukabúnaði. Uppl.
í síma 553 5577, Betri híbýli ehf.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
Bíllinn skiptir máli