Fréttablaðið - 27.04.2004, Síða 12
12 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
TSJERNOBYL-SLYSSINS MINNST
Átján ár voru í gær liðin frá því versta
kjarnorkuslys sögunnar varð í Tsjernóbyl í
Úkraínu. Þá brann einn fjögurra kjarnaofna
kjarnorkuversins yfir. Á meðal viðstaddra
þegar slyssins var minnst í gær var
Alexandra Lihova en hún missti
systur sína í slysinu.
Þingmenn vilja bæta úr hjólreiðasamgöngum:
Stofnbrautakerfi
fyrir hjólreiðar
ALÞINGI Fimm þingmenn úr öllum
flokkum á Alþingi vilja að búið
verði til sérstakt stofnbrautakerfi
fyrir hjólreiðar og hafa lagt fram
þingsályktunartillögu þess efnis.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstri grænna sem er
fyrsti flutningsmaður tillögunnar,
segir að tillagan gangi út á það að
stofnuð verði nefnd sem skoði með
hvaða hætti sé hægt að setja stofn-
brautir fyrir hjólreiðar inn í vega-
lög. Hugsunin sé sú að hjólreiða-
brautakerfið tengi saman þéttbýl-
isstaði og hjólreiðastíga einstakra
sveitarfélaga við þjóðvegakerfið.
„Það hefur verið vandamál að
stígakerfi, til dæmis sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu, er
ekki samræmt,“ segir Kolbrún.
„Með því að búa til stofnbrauta-
kerfið verður hægt að hjóla á sama
stígnum milli sveitarfélaga.“
Kolbrún segir að sífellt fleiri
noti hjól sem samgöngutæki og því
sé nauðsynlegt að bæta hjólreiða-
brautakerfið. Nauðsynlegt sé að
búa til sérstakar brautir fyrir hjól
þannig að hjólreiðamenn séu ekki
að stefna sjálfum sér og gangandi
vegfarendum í hættu þegar hjólað
sé úti á götu eða á gangstígum.
„Þetta er þingmannatillaga sem
ég held að hafi mikinn pólitískan
stuðning. Þó að hún fari ekki í gegn
núna í vor vonast ég til að hún
verði afgreitt á næsta þingi. Þetta
er sjálfsagt mál á dögum sjálf-
bærra samgangna.“ ■
ZAPATERO Í MAROKKÓ
Ákvörðun hans um að draga spænskt her-
lið frá Írak nýtur yfirgnæfandi stuðnings.
Spánn:
Meirihluti
fylgjandi
Zapatero
SPÁNN Tæplega 70 prósent Spán-
verja eru hlynntir þeirri ákvörð-
un Zapateros forsætisráðherra að
draga herlið Spánar frá átökunum
í Írak. Þetta kemur fram í könnun
sem gerð var fyrir dagblaðið El
Mundo í gær. Kemur fram að inn-
an flokks síns nýtur Zapatero yfir
90 prósenta stuðnings vegna þess-
arar ákvörðunar en aðeins 26 pró-
senta hjá flokki fyrrum forsætis-
ráðherra, Jose Maria Aznar.
Í sömu könnun kemur fram það
álit tæplega 50 prósenta þeirra
sem þátt tóku að sprengjuárásirn-
ar í Madrid þann 11. mars síðast-
liðinn hafi hjálpað Zapatero og
sósíalistaflokki hans, PSOE, við að
ná völdum í landinu. ■
Á HJÓLI
Sífellt fleiri nota hjól sem samgöngutæki og því er nauðsynlegt öryggisins vegna
að bæta hjólreiðabrautakerfið.
M
YN
D
/A
P
Stjórnvöld eru í klemmu vegnaákvarðana um sparnað í lyfja-
málum landsmanna. Ef fyrirhug-
aðar aðgerðir ganga eftir sparast
450 milljónir króna á lyfjareikn-
ingi Tryggingastofnunar ríkisins
og um 500 milljónir króna með
lækkaðri álagningu í heildsölu og
smásölu lyfja. En eins og þessi
sparnaðaráform eru lögð upp
geta þau ekki gengið eftir.
Það var upp úr mánaðamótum
sem Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra tilkynnti um aðgerðir til
lækkunar lyfjakostnaðar upp á 450
milljónir. Hann sagði þá og hefur ít-
rekað síðan, að ráðuneytinu hefði
verið gert að spara þessa upphæð.
Vísaði hann meðan annars til
skýrslu ríkisendurskoðunar um
lyfjakostnað hér á landi og að þar
kom fram, að hefðu landsmenn gre-
itt jafnmikið fyrir lyf að meðaltali
og Danir og Norðmenn á síðasta ári
hefði lyfjakostnaður hér á landi
orðið 4,4 milljörðum króna lægri
heldur en hann varð. Þetta töldu ís-
lensk stjórnvöld óásættanlegt.
Ýmsar aðgerðir voru kynntar
til að ná fram þessum sparnaði.
Þær mæltust mjög misjafnlega
fyrir. Hömlur á notkun rítalíns og
annarra örvandi lyfja vöktu til að
mynda ekki sérlega hörð við-
brögð. Annað var uppi á teningn-
um þegar tilkynnt var að upp yrði
tekið viðmiðunarverð lyfja með
sambærileg klínísk meðferðar-
áhrif. Þetta yrði gert í þremur
kostnaðarsömustu lyfjaflokkun-
um, það er sýrubindandi maga-
lyfjum, blóðfitulækkandi lyfjum
og þunglyndislyfjum. Þessi sparn-
aðaraðgerð á að taka gildi nú 1.
maí næstkomandi,og þýðir í raun
að niðurgreiðsla er miðuð við
ódýrasta lyfið í hverjum lyfja-
flokki.
Ólögleg veiðarfæri:
Tvö mál á
einni viku
VEIÐARFÆRI Við rannsókn löggæslu-
manna varðskipsins Ægis um borð í
dragnótarbáti um helgina kom í ljós
að möskvar dragnótarinnar voru of
smáir. Skipstjóra var gert að halda
til hafnar í Grindavík þar sem lög-
regla hélt rannsókn málsins áfram.
Þetta er í annað skipti á einni
viku sem löggæslumenn á Ægi hafa
fært skip til hafnar vegna ólöglegra
veiðarfæra. Lagt var hald á afla
dragnótarbátsins og hann vigtaður
og seldur en hugsanlegt er að ágóð-
inn af sölunni verði gerður upptæk-
ur með dómsúrskurði. ■
SPARNAÐUR Í LYFJAMÁLUM
Hömlur og viðmiðunarverð eru
helstu ráðagerðir stjórnvalda til
að ná lyfjakostnaði niður.
JÓN KRISTJÁNSSON
Leitar leiða í stöðunni.
Stjórnvöld í klemmu
Stjórnvöld eru í klemmu vegna ákvarðana um sparnaðaraðgerðir í lyfjamálum. Ef þau keyra
viðmiðunarverðið í gegn, er hætt við að samkomulag við lyfjaheildsala haldi ekki.
Þar fýkur allt að 500 milljóna króna sparnaður.
Fréttaskýring
JÓHANNA S.
SIGÞÓRSDÓTTIR
■ skrifar um lyfjamál.