Fréttablaðið - 27.04.2004, Side 15
15ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2004
GÆÐAVARA –
BETRA VERÐ!
G. FORCE profiler eru ný og glæsileg
High-Performance-dekk frá BFGoodrich. Þú
færð þessi dekk á ótrúlegu verði hjá okkur.
JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
FISKVEIÐAR Afar góð aflabrögð hafa
verið úti fyrir ströndum Norð-
austurlands undanfarnar vikur, að
sögn Gunnars Jónssonar, vinnslu-
stjóra hjá GPG á Raufarhöfn. Á
vefnum local.is er það haft eftir
Gunnari að hann muni ekki eftir
annarri eins veiði á þessum árs-
tíma.
Það hefur verið nóg að gera í
vinnslu GPG, sem framleiðir létt-
saltaðar þorskafurðir fyrir Spán-
armarkað. Nú er hins vegar ekki
róið vegna hins árlega hrygn-
ingarstopps. „Við brúum bilið í
hrygningarstoppinu með vinnslu
á Rússafiski. Við miðum við að
eiga alltaf slíkan fisk í geymslum
hjá okkur þannig að við þurfum
aldrei að stöðva vinnsluna,“ segir
Gunnar. ■
Á RAUFARHÖFN
Gunnar Jónsson, vinnslustjóri hjá GPG á
Raufarhöfn, segir að aflabrögð hafi verið
afar góð á undanförnum vikum.
Góð aflabrögð á Norðausturlandi:
Man ekki eftir öðru eins
FÍKNIEFNI Lögreglan á Selfossi
handtók á dögunum konu sem var
ásamt þriggja mánaða gömlu
barni sínu að heimsækja fanga á
Litla-Hrauni. Sérþjálfaður hund-
ur tollgæslunnar hafði veitt kon-
unni athygli og lék grunur á því
að hún hefði í fórum sínum fíkni-
efni sem hún ætlaði að smygla
inn í fangelsið.
Konan var flutt á lögreglu-
stöðina á Selfossi þar sem hún
framvísaði þrjátíu grömmum af
hassi. Hún var látin laus að lok-
inni yfirheyrslu og telst málið
upplýst. Fulltrúar frá félags-
málayfirvöldum í Árborg voru
kallaðir til vegna barnsins, en
slíkt er venjan þegar börn undir
átján ára aldri tengjast lögreglu-
rannsókn. ■
LITLA-HRAUN
Kona sem var að heimsækja fanga á Litla-Hrauni var handtekin með 30 grömm af hassi.
Kona með kornabarn:
Fór með hass
á Litla-Hraun
Fyrrum framkvæmdastjóri þingflokks
Sjálfstæðisflokks:
Varð að segja
mig úr flokknum
ÚRSÖGN „Ég er genetískur sjálf-
stæðismaður sem hefur starfað
fyrir flokkinn og sporin voru
þung í Valhöll til að segja mig úr
flokknum, en ég gat ekki ann-
að,“ segir Ólafur Arnarson,
fyrrverandi aðstoðarmaður
menntamálaráð-
herra og fyrrum
f r a m k v æ m d a -
stjóri þingflokks
s j á l f s t æ ð i s -
manna.
Hann segist
enn vera sami
sjálfstæðismaður-
inn en það sé eins
og ofbeldisgengi
með einræðis-
drauma hafi tekið
gamla góða flokk-
inn í gíslingu. Þá
vísar hann til
Sparisjóðsmálsins
og fjölmiðlafrum-
varpsins þegar
hann segir að
tvisvar á einum
vetri hafi flokkur-
inn beitt sér fyrir
l a g a b r e y t i n g u
sem sérstaklega sé beint gegn
einstökum fyrirtækjum.
„Verið er að tala um vanda-
mál á fjölmiðlamarkaði og þessi
lög keyrð í gegn núna eins og
sjálfstæði þjóðarinnar sé í
hættu. Ég sé eitt vandamál á
fjölmiðlamarkaði og það er Rík-
isútvarpið, sem er eins og fíll í
glervörubúð. Það fær nauðung-
argjöld og fær jafnframt að
vera á auglýsingamarkaði. Ef
Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft
manndóm í sér og selt eða tekið
RÚV af auglýsingamarkaði
hefði skapast þannig umhverfi
að Norðurljós hefðu ekki lent í
hremmingum.“
Ólafur segir árásir á einstak-
linga og fyrirtæki hafa keyrt
fram úr hófi. Formaður flokks-
ins hafi leynt og ljóst reynt að
grafa undan
dómstólum. Ef
hann tapi máli
fyrir Hæstarétti
ráðist hann með
offorsi gegn
réttinum. Ólafur
segist lítið hrif-
inn af hugmynd-
um um að veita
lögreglustjóra
heimild til hler-
ana og að hnýs-
ast í einkalíf
fólks án þess að
leita dómsúr-
skurðar. Þá segir
hann útlendinga-
frumvarpið særa
sína réttlætis-
kennd.
„Ungir þing-
menn flokksins
sem voru tals-
menn lítilla ríkisafskipta og
lágra skatta þegja allir núna en
mæta í sjónvarp til að flytja
boðskap leiðtogans.“ Ólafur er
hræddur um að í Bretlandi, þar
sem hann hefur búið í fimm ár,
væru bæði Björn Bjarnason og
Davíð Oddsson búnir að taka
pokann sinn og líklega Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir líka.
Skrifstofa Sjálfstæðisflokks-
ins sagði að úrsagnir úr flokkn-
um í gær hefðu verið eins og
venja er til.
hrs@frettabladid.is
ÓLAFUR ARNARSON
Ólafur segist vera heimilislaus í póli-
tík þó hann sé enn sami sjálfstæðis-
maðurinn.