Fréttablaðið - 27.04.2004, Síða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 69 stk.
Keypt & selt 15 stk.
Þjónusta 46 stk.
Heilsa 5 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 7 stk.
Tómstundir & ferðir 8 stk.
Húsnæði 22 stk.
Atvinna 19 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Skylmingar á uppleið
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 27. apríl,
118. dagur ársins 2004.
Reykjavík 5.12 13.25 21.40
Akureyri 4.46 13.10 21.36
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
Mér finnst rosalega gott að fá svona tíma
með sjálfri mér. Ég hjóla oft úr Breiðholt-
inu, niður að Eiðisgranda og til baka. Það
tekur svona tvo tíma,“ segir Auður Ýr
Sveinsdóttir, en hún fór að stunda hjólreið-
ar þegar hún bjó í Bandaríkjunum. „Ég bjó
í átta ár á Washington-DC-svæðinu. Þar
voru hjólreiðar mjög vinsælar. Áður var ég
alltaf í spinning en langaði að vera úti.
Eftir langa leit og miklar pælingar keypti
ég rosa fínt, létt átján punda hjól. Þetta er
götuhjól með mjóum dekkjum, það er létt-
ara en fjallahjólin og fer hraðar.“
Auður Ýr gekk í hjólaklúbb í Was-
hington DC, sem hittist tvisvar til þrisvar í
viku. „Við tókum líka þátt í keppnum, sem
flestar eru haldnar til styrktar góðgerða-
starfsemi. Aðalmálið var ekki að vinna
heldur bara að taka þátt og þarna var fólk
á öllum stigum. Þetta hafði sitt að segja,
við skráðum okkur í keppnir með nokkurra
mánaða fyrirvara og fórum svo að undir-
búa okkur.“
Auður Ýr segist enn ekki hafa fundið
hliðstæðan hjólaklúbb hér heima en tók
eftir því þegar hún kom heim að mun fleiri
stunda hjólreiðar en áður. Hins vegar
finnst henni að margt mætti betur fara
hvað aðstöðu varðar. „Margir stígar eru
góðir. En við Stekkjabakka er til dæmis
búið að grafa þá sundur. Annað dæmi eru
umferðarljós sem kviknar á þegar keyrt er
upp að þeim. Þau gera ekki ráð fyrir hjól-
reiðafólki, sem bíður og bíður og endar á
því að fara yfir á rauðu. Mér finnst ekki
gert ráð fyrir hjólreiðum sem eðlilegum
samgöngumáta. Hins vegar er allt á betri
leið og við skipulagningu nýrra svæða er
gert meira ráð fyrir hjólreiðafólki.“
Auður Ýr hefur líka stundað jóga í sex
ár og kennir það nú í líkamsræktarstöðinni
Laugum. „Þetta er frábær blanda. Með
hjólreiðunum fæ ég brennsluna og þær
styrkja fæturnar. Með jóganu styrki ég svo
restina af líkamanum og teygi vel á.“
audur@frettabladid.is
Hreyfingin mín:
Hjólreiðar og jóga
fara mjög vel saman
heimili@frettabladid.is
Reykingar karla og kvenna
og hvort þörf sé fyrir kynbundna
nálgun í forvörnum og reykleysis-
meðferð er efniviður málþings
sem haldið verður á Grand hóteli
Reykjavík 4. júní næstkomandi.
Markmið málþingsins eru meðal
annars að kanna mynstur og tíðni
tóbaksnotkunar á Íslandi, afleiðing-
ar tóbaksnotk-
unar fyrir
samfélagið
og árangur
forvarnar-
starfs.
Afstaða til dauðans er við-
fangsefni fyrirlesturs sem David L.
Kahn, dósent við hjúkrunarfræði-
deild University of Texas heldur í
dag. Hann byggir fyrirlesturinn á
rannsókn á íbúum á heimili fyrir
dauðvona fólk. Kahn er leiðandi
fræðimaður um þjáninguna og
merkingu hennar og um hjúkrun á
líknardeildum. Fyrirlesturinn er í
Norræna húsinu og hefst kl. 15.
Tölvur fara verr með konur
ef marka má nýja sænska rann-
sókn. Fram kom að konum er
hættara við vöðvabólgu eftir setur
fyrir framan tölvu en körlum. 187
flugumferðarstjórar, 90 konur og
97 menn, voru rannsakaðir og
teknir í viðtal í
rannsókninni
sem greint
er frá í
sænska
dagblaðinu
Aftonbladet.
Þrátt fyrir að karlarnir og konurn-
ar ynnu nákvæmlega sömu vinn-
una var konum mun hættara við
vöðvabólgu. Ekki er ljóst hver
skýringin er, en mögulegt er talið
að konur séu almennt stressaðri
vegna þess að ábyrgð þeirra fyrir
utan vinnustaðinn sé meiri.
RSV-kvefveiran getur dvalið í
líkamanum í mánuði eða jafnvel
ár og þá orðið virk að nýju, sam-
kvæmt niðurstöðum nýrrar rann-
sóknar á músum. Áður var talið
að veiran lifði aðeins í nokkra
daga. RSV-veiran er mjög algeng
og flest börn fá hana á fyrsta ævi-
árinu. Hjá sumum börnum geta
afleiðingarnar orðið mjög alvar-
legar og valdið öndunarörðugleik-
um. Engin bólusetning er til en
vísindamenn vonast til að þessar
niðurstöður hjálpi þeim að þróa
bóluefni.
Auður Ýr Sveinsdóttir, varaformaður Landssamtaka hjólreiðafólks. „Hjólreiðar eru góðar fyrir sálina og styrkja líkamann.“
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR HEILSUNA
Hestavörur, hnakkar, beisli, múlar,
hnakktöskur, taumar, gjarðir, skeifur,
hesthúsamottur, innréttingar o.m.fl.
Vélar og þjónusta. Reykjavík, sími 5
800 200. Akureyri, sími 461 4040.
Yamaha YZF 1000 Racer. Kom á götuna
12/3/04. Ekið 700 km (forskráð
14/4/2003). Nýtt hjól. Verð 1.485 þ. Mögul.
á 100% láni. S. 568 3737 & 896 3677.
Hanna og smíða stiga. Fást á ýmsum
byggingarstigum. Sérlausnir í þrengsl-
um. 25 ára reynsla. Uppl. í s. 894 0431.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.