Fréttablaðið - 27.04.2004, Qupperneq 18
A-vítamín Er fituleysanlegt og nauðsynlegt fyrir sjón, frjósemi,
ónæmiskerfið, stýringu erfða, slímhimnur og vöxt. Mikill skortur á því
getur leitt til sýkinga og náttblindu. A-vítamín fæst til dæmis úr lifur,
fiski, eggjum, gulrótum, spínati, grænkáli og melónum.
CAMBRIDGE KÚRINN.
Nýtt á Íslandi!
Bæði til megrunar og uppbyggingar.
Hefur öll vítamín að geyma sem
líkaminn þarfnast.
Verndar innri líffæri og vöðva.
Viltu vita meira ?
Heimsæktu þá heimasíðu okkar
www.vaxtamotun.is eða í síma 894 1505 Karolína.
eða 894 1507 Þóranna
Þar sem þú getur treyst á gæðin
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
Lífrænt ræktaðar vörur
Umboðsaðili: Ýmus ehf.
Arnheiður Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur B.Sc IBCLC
Sími 564-3607 · Fax 5643608
ymus@islandia.is · www.ymus.is
Hitamælir sem
sýnir örugga
mælingu án þess
að snerta barnið /
einstaklinginn!
NoTouch
Hitamælir Útsölustaðir: Lyfja, Plúsapótek, Lyfjaval í Mjóddog Móðurást, Kópavogi
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
1
3
8
„Sú löngun að slá um sig með
sverði, hefur blundað í mér frá
blautu barnsbeini,“ segir Krist-
mundur H. Bergsveinsson, for-
maður Skylmingafélags Reykja-
víkur. Allt frá hringleikahúsum
Rómaveldis til íþróttahúsa höfuð-
borgarinnar hafa skylmingar átt
hug og hjarta íþróttamanna og eru
skylmingar þannig ein fyrsta
ólympíska keppnisgreinin.
Öfugt við það sem flestir halda
segir Kristmundur hlutfall meiðsla
vera lágt og þakkar því hlífðarbún-
ingum, sem iðkendum er skylt að
klæðast við æfingar. „Skylmingar
eru í raun með erfiðustu íþrótta-
greinum. Í æfingum felst geysileg
fótavinna og mikið úthald, snerpa
og tilfinning fyrir fjarlægð. Skylm-
ingarmenn hafa oft á sér álíka yfir-
bragð og tugþrautarmenn, sem
æfa allar greinar og eru jafnhliða á
alla kanta. Gaman er að geta þess
að dansiðkendur ná tiltölulega
fljótt tökum á þessari tækni, sér í
lagi þeir sem eru þjálfaðir í ballett-
dansi. Í þessari grein gildir létt-
leiki og snerpa, en í sjálfu sér er þó
engin krafa gerð um ákveðið
líkamsform. Sumir æfa til að vinna
alla, en aðrir einfaldlega til að hafa
gaman af.“
Kristmundur hefur sjálfur æft
skylmingar í mörg ár og segir
hann veg skylminga hafa vaxið
hérlendis undanfarin ár. Iðkendur
hjá Skylmingafélagi Reykjavíkur
eru þannig á öllum aldri, en mest
ber þó á yngri nemendum, sem
flestir eru undir fermingaraldri.
„Félagið hefur lagt nokkra
áherslu á séræfingar fyrir stelpur
í greininni, að nokkru leyti vegna
þess að þær eiga meiri möguleika
á erlendri grund í keppni. Að
hluta til er þetta vegna þess að
hlutfall kvenna í skylmingum er
ekki hátt erlendis. Þannig var
höggsverð kvenna ekki gert að
alþjóðlegri keppnisgrein fyrr en
fyrir tæpum tíu árum síðan og var
ekki keppt í greininni á síðustu
Ólympíuleikum, en verður þó nú í
sumar. Greinin er enn að festa sig
í sessi sem alþjóðleg keppnisgrein
kvenna.“ ■
Þetta byrjaði allt með myndinni
um Zorro,“ segir Sævar Lúðvíks-
son, margkrýndur meistari í
skylmingum, en hann hlaut
meðal annars Norðurlanda-
meistaratitilinn á síðasta ári og
var jafnframt Íslandsmeistari
um tíma. „Ég byrjaði níu ára að
æfa skylmingar, en þá hafði ég
barist við besta vin minn í nokk-
ur ár.“ Það var svo faðir Sævars
sem kom honum í kynni við
Skylmingafélag Reykjavíkur. „Í
fyrstu fannst mér þetta bara
skemmtilegt. Eftir þrjá mánuði
hafði ég náð ágætum tökum á
tækninni. Í lok vetrar tók ég þátt
í fyrstu keppninni og lenti þar í
öðru sæti.“
Sævar hefur æft sleitulaust
undanfarin ár og mætir á æfing-
ar, sem stundum eru fjórar
talsins í viku. „Fyrir Norður-
landamótið, sem ég vann í fyrra,
æfði ég eins og venjulega, en var
oftast lengur en aðrir á æfingum.
Oft yfirgaf ég ekki salinn fyrr en
flestir voru farnir og það hjálp-
aði mér.“ Sævar segir einnig að
fyrsta ólympíska greinin krefjist
mikillar hugsunar, sverðin séu
falleg vopn og íþróttin listræn.
„Samurai-sverð eru mjög falleg,
en ég held að það sé erfitt að
beita þeim. Ég æfi með
höggsverði og finn mig best þar.
Langsverðin eru erfiðari, því
með þeim heggur maður með
andstæðinginn alls staðar á
líkamanum. Það er meiri vinna að
verjast slíkum árásum.“ ■
Margverðlaunaður meistari:
Aldrei verið latur við æfingar
Sævar Lúðvíksson: „Fyrsta ólympíska greinin
krefst mikillar hugsunar“.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Kristmundur H. Bergsveinsson: „Hefur langað til að slá um mig með sverði frá blautu barnsbeini“.
Vegur skylminga fer vaxandi:
Elsta ólympíugreinin
vinsæl meðal yngri kynslóða
Skylmingar eru með erfiðustu íþróttagreinum.