Fréttablaðið - 27.04.2004, Síða 26

Fréttablaðið - 27.04.2004, Síða 26
Ég held yfirleitt svolítið hressi-lega upp á afmælið mitt,“ seg- ir Brynhildur Björnsdóttir, leik- kona og söngkona, en hún nær 34 ára aldrinum í dag. „Á tímabili var ég alltaf með nýtt þema þegar ég átti afmæli. Ég var til dæmis með appelsínugult þema og þá bakaði ég gulrótarköku og appel- sínubrauð í tilefni dagsins. Eitt árið var svo ostaþema með osta- fondue og öllu tilheyrandi en súkkulaðiþemað skýtur líka reglulega upp kollinum enda fólk í nautsmerkinu þekkt fyrir að vera mikið súkkulaðifólk,“ segir Bryn- hildur. Minnisstæðasta afmælis- daginn átti listakonan árið 2002. „Ég var stödd í Mósambík og ákvað að halda þar tónleika ásamt píanóleikara heima hjá þýska sendiherranum. Það var marimba-hljómsveit úti í garði og eldrautt, fullt tungl steig upp á himininn meðan ég söng í kapp við engisprettukliðinn fyrir mósambísku áhorfendurna,“ segir Brynhildur dreymin. Brynhildur vinnur um þessar mundir sem framkvæmdastjóri norrænu Barnaleikhúshátíðarinn- ar, Assitej, sem haldin verður hér á landi í maí. „Afmælisdagurinn fer að mestu í skipulagningu hátíðarinnar enda í mörg horn að líta. Gærdeginum eyddi ég með krökkum í Korpúlfsstaðaskóla ásamt ástralskri listakonu sem var að aðstoða þau við að búa til ljósker sem verða notuð í skrúð- göngu sem verður haldin í tilefni hátíðarinnar þann 15. maí.“ Brynhildur gefur sér þó að sjálfsögðu tíma til að halda upp á afmælisdaginn. „Ég hélt kökuboð fyrir fjölskylduna um helgina en eftir vinnu í kvöld býð ég harðasta kjarnanum, bestu vinunum, í taílenskan mat sem ég sjálf hef mikið dálæti á og reyni að nota hvert tækifæri til að njóta.“ ■ Þennan dag árið 1865 sprakkgufuskipið Sultana í loft upp á Mississippi ánni, um sjö mílur norðan við Memphis, Tennessee, með þeim afleiðingum að skipið sökk. Sultana var viðarskip og mun smærra í sniðum en hið víðfræga Titanic en mannfallið var mikið. Ríflega 1.800 menn, konur og börn létu lífið í slysinu og var mikill meirihluti þeirra sem létust fyrr- um stríðsfangar. Flestir farþeg- arnir voru Norðurríkjahermenn á leið heim úr stríði eftir langa og stranga dvöl í fangabúðum og voru þeir plagaðir af sjúkdómum eða hungri eftir margra mánaða fanga- vist. Þeir sem sluppu lifandi úr sprengingunni drukknuðu í köldu vatni Mississippi-fljótsins. Einn maður, Robert Talkington, lifði atburðinn af og gat deilt reynslu sinni með almenningi. Vitnisburður hans var síðar gefinn út, en hann hafði ásamt nokkur hundruð öðrum föngum verið í haldi í fangelsinu á Cahaba nærri Alabama. Árið 1992 skrifaði Jerry O. Potter 300 blaðsíðna bók um atburðinn, sem hann nefndi The Sultana Tragedy eða Sultana harm- leikurinn. Þar er að finna nákvæm- ar lýsingar á Sultana-slysinu, einu stærsta fljótaslysi sem átt hefur sér stað í Bandaríkjunum. ■ ■ Þetta gerðist 1521 Portúgalski landkönnuðurinn Ferdinand Magellan lætur lífið í orrustu á Filippseyjum. 1882 Skáldið Ralph Waldo Emerson lætur lífið. 1961 Sierra Leone öðlast sjálfstæði innan breska samveldisins. 1965 Útvarpsmaðurinn Edward R. Murrow deyr 57 ára úr lungna- krabbameini í New York. 1978 John Ehrlichmaner er sleppt úr fangelsi eftir 18 mánaða fangels- isvist sem hann var dæmdur í, í kjölfar Watergate-hneykslisins. 1981 Ringo Starr, fyrrum trommari Bítl- anna, giftist Barböru Bach í London. 1999 Konungur trompettsins, Al Hirt, deyr 76 ára að aldri í New Orleans. SULTANA Gufuskipið Sultana sökk þennan dag árið 1865 með þeim afleiðingum að 1.800 stríðsfangar létust. 18 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR ■ Fyrsta starfið Sverrir Davíðsson, fv. sjómaður, Blá- hömrum 2, Reykjavík er 75 ára. Hann afþakkar afmælisgjafir en verður með kaffisamsæti fyrir vini, ættingja og aðra samferðarmenn í Hlégarði, Mosfellsbæ sunnudaginn 2. maí klukkan 15–18. Ásta Einarsdóttir, kennari á Dalvík, er 60 ára. Jakob Björnsson, formaður bæjarráðs, á Akureyri er 54 ára. Kolbeinn Einarsson, tónskáld og markaðsstjóri, er 33 ára. Þrettán ára danskennari Fyrsta starfið mitt var dans-kennsla hjá Heiðari Ástvalds- syni þegar ég var þrettán ára gamall,“ segir Björn Jörundur Friðbjörnsson tónlistar- og út- gerðarmaður. „Ég vann sem slík- ur í eitt ár þegar ég var í sjöunda bekk. Ég og frændi minn, Viðar Ævarsson úr Icebreakers vorum liðtækir breakdansarar og vorum ráðnir til að kenna þann dans en enduðum með því að kenna barna- dansa og undirstöðuatriði í sam- kvæmisdönsum. Þetta var virki- lega skemmtilegt og mjög vel borgað og ég er ekki frá því að ég hafi sjaldan eða aldrei haft það betra fjárhagslega en þegar mað- ur var þrettán ára og í fullu starfi.“ ■ 27. apríl 1865 ■ Gufuskipið Sultana sprakk í loft upp Tæplega tvö þúsund fórust, flestir stríðsfangar. Afmæli BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR ■ er 34 ára. Hún er framkvæmdastjóri norrænu Barnaleikhúshátíðarinnar sem haldin verður hér á landi í maí. CORETTA SCOTT KING Baráttukonan Coretta Scott King, ekkja mannréttindafrömuðarins Marteins Luthers King jr., fæddist á þessum degi árið 1927. Hún hefur helgað lífi sitt baráttunni fyrir félagslegu réttlæti og friði og hefur starfað með mörgum af helstu þjóðarleiðtogum heims. 27. apríl Þetta er fag- og hagsmunafé-lag sem starfar sem deild innan SFR (Starfsmannafélag í Almannaþjónustu) og var stofn- að 10. apríl í fyrra,“ segir Rakel Þorsteinsdóttir, formaður félags íslenskra félagsliða. „Við erum ný en vaxandi starfsstétt á vinnumarkaðinum. Stofnfélagar voru 11 í fyrra, en nú erum við orðin 96 á félagaskrá. Svo eru einnig á annað hundrað manns í námi á félagsliðabraut, sem kennd er við Borgarholtsskóla, í Námsflokkum Reykjavíkur, Menntaskólanum á Egilsstöðum og í Miðbæjarskólanum. Þetta tveggja ára framhaldsskólanám er því að breiðast út.“ Rakel segir að félagsliðar hafi lokið starfsnámi til að vinna með fólki í umönnun. „Það vant- aði inn í þjónustu fyrir fatlaða og aldraða, fólk með framhalds- skólanám á þessu sviðið og því var þetta nám sett á fót. Við vin- num með og aðstoðum fatlaða, aldraða og einstaklinga með sér- þarfir sem þurfa félagslegan stuðning og umönnun á marg- víslegum vettvangi. Við störfum til dæmis við frístundakennslu, á sambýlum, skólum fyrir fatl- aða og á öldrunarheimilum.“ Aðalfundur félagsins verður haldinn í kvöld klukkan 20 að Grettisgötu 89, í húsnæði SFR. „Við höfum verið að kynna okk- ur og fá fólk í félagið. Við þurf- um að sýna samstöðu til að verða viðurkennd starfsstétt og að það sé til stöðugildi fyrir okk- ar starfsheiti og það munum við ræða á aðalfundi. Við erum ein- nig að fara að opna heimasíðu í maí undir sfr.is/felagslidar þar sem við munum kynna okkur og okkar starf.“ ■ Afmæli ■ Félag íslenskra félagsliða er eins árs. Heldur annan aðalfund félagsins. Félagsliðar verði viðurkennd starfsstétt Í kapp við engisprettukliðinn BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR Þegar ég var með appelsínugult þema bakaði ég gulrótarköku og appelsínubrauð í tilefni dagsins. ■ Afmæli RAKEL ÞORSTEINSDÓTTIR Félag íslenskra félagsliða heldur annan aðalfund sinn í dag. Eitt stærsta fljótaslys Bandaríkjanna■ Andlát Ingibjörg Kristjánsdóttir lést föstudag- inn 23. apríl. Ragnheiður Erla Hauksdóttir, Eyrarvegi 12, Flateyri, lést laugardaginn 24. apríl. ■ Jarðarfarir 13.30 Jón Kristinn Hafstein tannlæknir verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni í Reykjavík. 13.30 Þrúður Dúa Guðmundsdóttir, Hjalla, Ölfusi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 15.00 Einar Arnalds rithöfundur, Bugðulæk 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju. 15.00 Snjólaug G. Stefánsdóttir verk- efnisstjóri, Fagrahvammi 2B, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.