Fréttablaðið - 27.04.2004, Side 29
21ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2004
SIGURÐUR BJARNASON
Hættur að þjálfa Stjörnuna eftir að hafa
stýrt liðinu í eitt ár.
Sigurður Bjarnason:
Búinn að fá
nóg af þessu
HANDBOLTI Sigurður Bjarnason
mun ekki þjálfa Stjörnuna á kom-
andi tímabili en hann tilkynnti
forráðamönnum liðsins og leik-
mönnum það um helgina. Sigurð-
ur sagði í samtali við Fréttablaðið
að hann væri einfaldlega búinn að
fá nóg.
„Þetta er afskaplega tímafrekt
starf og miðað við að ég er í mjög
ströngu námi og með fjölskyldu
þá hef ég einfaldlega ekki þann
tíma í þetta sem ég tel að ég þurfi
að hafa,“ sagði Sigurður.
Halldór Sigurðsson, formaður
meistaraflokksráðs karla, sagði í
samtali við Fréttablaðið í gær að
Sigurður hefði tekið þessa
ákvörðun sjálfur enda hefðu bæði
leikmenn og meistaraflokksráð
viljað hafa hann áfram.
„Sigurður vann gott starf við
erfiðar aðstæður og það er ekki
spurning að við vildum halda
honum áfram.“ ■
Ólafur Jóhannesson:
Í banni
gegn KR
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson.
þjálfari FH-inga, mun ekki
stjórna sínum mönnum í fyrsta
leik liðsins í Landsbanka-
deildinni þann 15. maí næstko-
mandi þar sem hann tekur út
leikbann vegna fjögurra gulra
spjalda sem hann nældi sér í á
síðustu leiktíð, það fjórða í
bikarúrslitaleiknum gegn ÍA.
Leifur Garðarsson, aðstoðar-
maður Ólafs, mun því stýra
liðinu þegar það sækir Íslands-
meistara KR heim í
Frostaskjólið í fyrstu umferðin-
ni. ■
Intersportdeildin:
Hamar
og Selfoss
sameinast
KÖRFUBOLTI Körfuknattleiksdeildir
Hamars í Hveragerði og Selfoss
hafa gert fimm ára samkomulag
um að spila undir sameiginlegum
merkjum í körfuboltanum.
Úrvalsdeildarlið Hamars ber
því nafnið Hamar/Selfoss á næsta
tímabili og sagði Pétur Ingvars-
son, sem mun þjálfa liðið næstu
þrjú árin, að bæði félög vonuðust
eftir góðum árangri í kjölfar
sameiningarinnar, bæði hvað
varðar gengi úrvalsdeildarliðsins
og fjölgun körfuboltaiðkenda á
Suðurlandi.
Liðið mun bæði spila heima-
leiki sína í Hvergerði og á Selfossi
þar sem brátt mun rísa nýtt og
glæsilegt íþróttahús.
Pétur sagði að leikmannamál
liðsins væru enn nokkuð óljós en
búast má við að liðið fari á fullt í
þeim málum eftir að ársþingi
KKÍ, sem fram fer um helgina,
lýkur en kjarninn verður eftir
sem áður skipaður leikmönnum
frá Suðurlandi. ■
LYFTINGAR „Þetta gekk alveg vonum
framar,“ segir Auðunn Jónsson
kraflyftingakappi, glaðbeittur, en
hann gerði sér lítið fyrir um helg-
ina og jafnaði heimsmetið í saman-
lögðu í 125 kg flokki og lyfti 1.050
kílóum á Íslandsmótinu í kraft-
lyftingum – 395 í hnébeygju, 381 í
réttstöðulyftu og 275 í bekkpressu.
„Þetta er í fyrsta skipti á ferlinum
sem ég næ öllum níu lyftunum
gildum á móti en ég byrjaði að
keppa árið 1986 og því alveg kom-
inn tími á það,“ segir hann og hlær.
Auðunn varð Evrópumeistari
árið 1998 og þá á hann í fórum sín-
um tvö silfur og eitt brons frá
heimsmeistarmótum. „Stefnan er
sett á gull á heimsmeistaramóti –
það vantar einflaldlega í safnið. Ég
hef stefnt að því að ná gullinu á
heimsmeistarmótinu síðan ég
byrjaði að æfa, tólf ára að aldri,“
segir Auðunn mjög ákveðinn.
Hvað veldur því nú að þessi ár-
angur næst og sér Auðunn fram á
enn frekari bætingu? „Já, ég er að
vonast til að geta bætt mig enn
frekar og miðað við mótið um
helgina þá sýnist mér ég eiga eitt-
hvað inni. Ég á tíu kílóum betra í
hnébeygjunni en meiðsli í hné hafa
hrjáð mig. Ég fór í aðgerð í sept-
ember í fyrra og hef smám saman
verið að vinna mig upp síðan og nú
small þetta loksins allt saman en
ég hef stefnt lengi að ná svona ár-
angri í samanlögðu. Ef mér tekst
að sleppa við frekari meiðsli þá
get ég jafnvel náð lengra en þá
þarf auðvitað allt að ganga upp.“
En hvað er á döfinni næst?
„Heimsmeistaramótið fer fram í
nóvember í Suður-Afríku, ég mis-
sti af því í fyrra en hef annars
alltaf farið síðan árið 1996. Mér
hefur aldrei tekist að toppa á því
móti en nú er lag,“ segir Auðunn
sem er 31 árs og virðist við það að
ná hápunkti keppnisferils síns.
„Það er svolítið misjafnt hvenær
menn eru að toppa á sínum keppn-
isferli í lyftingunum,“ segir hann
og bætir við: „Það fer oft eftir því
hvenær þeir byrja að æfa og
keppa, sumir byrja um tvítugt og
menn geta verið að bæta sig alveg
upp undir fertugt. Ég veit ekki
hvað ég á mikið eftir til að geta
bætt mig af því að ég byrjaði svo
ungur að æfa og keppa en óneitan-
lega líta hlutirnir vel út hjá mér
núna og ég er alveg heill eftir mót-
ið og í feiknastuði.“
Hvernig gengur Auðni að sam-
eina vinnu, lyftingar og einkalíf?
„Það gengur bara alveg ágætlega,“
segir Auðunn sem starfar á með-
ferðarheimilinu Stuðlum: „Ég hef
starfað þar í ein sex ár. Fyrst var
ég á næturvöktum og hafði þá
meiri tíma en það ruglaði svefninn
dálítið hjá mér. Núna vinn ég á
dag- og kvöldvöktum og það geng-
ur nokkuð vel. Það er ekkert sér-
staklega mikill tími afgangs hjá
mér því ég á þrjár litlar stelpur
sem ég er með aðra hverja helgi en
þetta gengur allt saman einhvern
veginn upp með góðum vilja,“
sagði afreksmaðurinn Auðunn
Jónsson að lokum. ■
FÓTBOLTI Heiðar Helguson, leik-
maður 1. deildarliðs Watford,
hefur verið frá vegna meiðsla
undanfarnar vikur og hann kem-
ur ekki til með að spila með ís-
lenska landsliðinu gegn Lettum
á morgun. „Ég lét Ásgeir og
Loga vita um daginn að ég gæti
ekki verið með. Hnéð er mjög
tæpt og áhættan er einfaldlega
of mikil eins og staðan er nú. Ég
er laus við bólgur en ég á mjög
erfitt með að sparka í tuðruna,
get það bara ekki almennilega.
Ég fékk sprautu á laugardaginn
og læknarnir tjáðu mér að ég
gæti mögulega spilað um næstu
helgi en oftast rætast slíkar
vonir ekki. Þannig að ég er ekki
að gera mér of miklar vonir en
yrði þó mjög svekktur ef mér
tækist ekki að spila einhverja
leiki áður en keppnistímabilinu
lýkur. Enn eru tvö ár eftir af
samningi mínum við Watford og
sannast sagna þá er ég ekkert
farinn að hugsa um næsta
keppnistímabil – þetta snýst allt
um daginn í dag,“ sagði hin geð-
þekki Heiðar Helguson. ■
Heiðar Helguson ekki með gegn Lettum:
Hnémeiðsli enn að
angra Heiðar
HEIÐAR HELGUSON
Vonast til að verða klár í slaginn næstu helgi með Watford en er þó ekki bjartsýnn á að
það gangi eftir. Sést hér í harðri baráttu við þýska landsliðsmanninn Frank Baumann.
Auðunn yfir tonnið
Setur stefnuna á gullið á næsta heimsmeistarmóti.
AUÐUNN JÓNSSON
Fór létt með að lyfta Maritu Ljungberg, eiginkonu Jörgens Ljungberg, í Gym 80 í gær en Auðunn og Jörgen háðu æsilega keppni
í Íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum á laugardaginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N