Fréttablaðið - 27.04.2004, Page 30
22 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Fréttiraf fólki
METALLICA
Fed through the tube that sticks in me
Just like a wartime novelty
Tied to machines that make me be
Cut this life off from me
Hold my breath as I wish for death
Oh please, God, wake me
Þeir eru ekkert sérstaklega uppörvandi textar Metallica.
Textinn One af plötunni ...and Justice for All frá 1988
fjallar t.d. um hermann sem vaknar blindur og lamaður
á spítala eftir að hafa stigið á jarðsprengju.
Popptextinn
Tónlistarmaðurinn DavidBowie hefur efnt til sam-
keppni þar sem hann býður að-
dáendum sínum að tvinna saman
lögum eftir hann og búa til eitt
nýtt. Annað lagið þarf að vera af
síðustu plötu hans, Reality en hitt
má vera af hvaða plötu sem er.
Nota skal raddir úr öðru laginu en
undirspil úr hinu.
Bowie, sem er 57 ára, segir að
tími hafi verið kominn til að
fylgja eftir þróuninni sem hefur
orðið á netinu þar sem tölvunerðir
geta blandað saman lögum sem
þeir hafa sótt. „Eftir að hafa sjálf-
ur stundað þetta af og til undan-
farin ár er ég mjög ánægður með
þessa hugmynd. Lögin mín hafa
meira að segja þegar verið notuð í
góðar lagablöndur,“ segir Bowie.
Hægt verður að hlaða inn bún-
aðinum sem þarf til að blanda lög-
unum saman af heimasíðu Bowie,
ásamt lögum af nýju plötunni
hans. Keppninni lýkur 17. maí og
þá mun Bowie velja vinnings-
lagið. Verður það gefið út sem
MP3-smáskífa auk þess sem sig-
urvegarinn fær glænýjan bíl í
verðlaun.
Bandaríski plötusnúðurinn
Danger Mouse vakti nýverið
athygli fyrir að blanda saman
„hvíta albúmi“ Bítlana og „svörtu
plötu“ rapparans Jay-Z og gera úr
henni „Gráa albúmið“. Talið er að
um ein milljón eintök af henni
hafi selst á netinu áður en útgáfu-
fyrirtækið EMI skarst í leikinn og
bannaði gripinn. ■
Kynlífsfíkill
með sam-
viskubit
Hmm, ég botna ekkert í einuvarðandi meginstraumspopp.
Eins og slagarinn Yeah! eru útsetn-
ingarnar á nýjustu plötu Usher all-
ar mjög minimalískar og flottar.
Trommuheili, tvær hljómborðslín-
ur og Michael Jackson-legar radd-
ir. Svo einfalt og grípandi lag að
auðvelt er að ímynda sér að einn
maður geri allt. Svo kíkir maður á
kreditlistann og sér að sjö manns
eru skráðir fyrir laginu!?
En hvernig sem vinnuaðferðir
Usher eru þá verður það ekki af
honum tekið að hann kann að gera
gott popp.
Á dögunum lét Usher það leka
út að hann væri kynlífsfíkill og
auglýsti í leiðinni að hann ætlaði
sér að reyna sofa hjá sem flest-
um konum á meðan stjarna hans
skín sem hæst á himninum. Það
er því svolítið kaldhæðnislegt að
á plötunni er Usher að tappa af
hjartans málum sem tengjast því
flest hversu illa hann hefur farið
að ráðum sínum í kvennmálum.
Textar plötunnar eru eitt heljar-
innar samviskubit þar sem hann
biður hina einu sönnu ást afsök-
unar á því að hafa haldið fram
hjá henni ítrekað, barnað eina
hjásvæfuna og ég veit ekki hvað
og hvað. Síðan áttar hann sig ekk-
ert á því af hverju hann er á böm-
mer!?
Gott hjá honum að viðurkenna
bresti sína, vonandi byrjar hann að
taka ábyrgð á þeim líka. Það verð-
ur nefnilega svolítið þreytandi að
heyra sjálfsvorkunn á plasti í 17
hlutum. Held samt ekki, því þegar
hann er ekki að vola um eigin krís-
ur, þá er hann að hvetja „slæmar
stúlkur“ að tékka á sér.
En hversu siðblindur sem
Usher er í einkalífinu þá hefur það
ekki áhrif á tónlistargetu hans,
Confessions er hörkufín plata, og
stendur vel undir væntingum.
Birgir Örn Steinarsson
Rapparinn RZA hefur samið tón-list við kvikmyndina Blade:
Trinity sem er þriðja myndin í
Blade-bálknum þar sem Wesley
Snipes fer með aðalhlutverkið.
RZA segir það meira krefjandi
að semja kvikmyndatónlist heldur
en rapp. „Þegar þú ert að semja
kvikmyndatónlist þarftu að breyta
andrúmsloftinu og þeim straumum
sem eru í gangi. Þú þarft að hafa
myndavélina í huga, bæði hreyfing-
ar hennar og leikarana á sama
tíma,“ sagði hann.
RZA hefur verið afkastamikill í
gerð kvikmyndatónlistar undanfar-
ið. Skemmst er að minnast tónlistar
hans við Kill Bill myndirnar tvær
eftir Quentin Tarantino en auk þess
vakti hann athygli fyrir framlag sitt
til myndarinnar Ghost Dog með
Forest Withaker í aðalhlutverki.
RZA lætur sér ekki nægja að
semja fyrir kvikmyndir heldur leik-
ur hann einnig í þeim. Fer hann með
hlutverk í myndinni Coffee & Cigar-
ettes sem er væntanleg á hvíta
tjaldið. „Ég hef mjög gaman af því
að leika,“ sagði RZA. „Margir rapp-
arar vilja verða leikarar en bera
ekki virðingu fyrir kvikmynda-
listinni. Ég eyddi mörgum vikum í
leiklistarþjálfun og lærði hvernig
hlutirnir ganga fyrir sig.“ ■
Enn er Courtney Love í vand-ræðum með lögin. Nú hefur
umboðsskrifstofa í New York
kært hana vegna ógreiddra
reikninga.
Love á að
hafa hætt að
borga mán-
aðarlegar
greiðslur
sínar í sept-
ember á síð-
asta ári.
Uppsöfnuð upphæðin er víst
komin upp í um 1,3 milljónir
króna. Þetta þykir enn ein sönnun
þess að Love sé nálægt því að
verða gjaldþrota.
Peter Jackson hefur tekið aðsér að leikstýra myndinni The
Lovely Bones en söguþráður
hennar þykir frekar drungalegur.
Sagan byggir á samnefndri bók
Alice Sebold og segir frá stúlku
sem fylgist með að handan þegar
fjölskyldan hennar reynir að
sætta sig við hræðilegan dauða-
daga stúlkunnar. Stúlkunni var
nauðgað og svo myrt og reyna
fjölskyldumeðlimir að koma þeim
seka bak við lás
og slá.
Jackson get-
ur þó ekki
byrjað að
vinna að þess-
ari mynd fyrr
en hann
hefur lokið
við að gera
King
Kong.
Leikstjórinn Quentin Tarantinohefur ákveðið að endurgera
gamanmyndina Casino Royale
sem var upphaflega gerð árið
1967 eftir fyrstu bók Ians
Flemming
um James
Bond.
Ástæðan
fyrir því að
Tarantino
vill gera
myndina er
ekki af
virðingu
sinni fyrir
frumgerð-
inni heldur
andúð. Hann segir fyrri myndina
vera hræðilega og mikla synd að
svona léleg mynd hafi verið gerð
eftir fyrstu Bond-sögunni. Talað
er um að Pierce Brosnan verði í
aðalhlutverki.
Umfjölluntónlist
USHER:
Confessions
■ Tónlist
RZA semur fyrir Blade
RZA
RZA, lengst til vinstri, ásamt þeim Forest
Withaker og Jim Jarmusch, til hægri, leikstjóra
Ghost Dog. RZA samdi tónlistina við myndina.
DAVID BOWIE
Hefur alla tíð verið ófeiminn við að prófa
nýja hluti í tónlistarsköpun sinni. Nú ætlar
hann að gefa aðdáendum sínum leyfi til
að fara enn lengra með lögin sín.
Bowie efnir til lagasamkeppni
Pondus
Sem svaramaður
Günthers er
það þitt verk
að bjóða öllum
vinum hans í
sukkpartí!
Það er
fljót-
gert!
Fáir
vinir?
Prófaðu
ENGIR!
Þannig að
það eru bara
þú og Günther?
NEI! Nei,
nei, nei! Þú
verður að
vera með líka!
Gerðu það!
Tjah, ég
veit það
ekki...
Ég
GRÁTBIÐ
þig! Ekki
yfirgefa
mig! Ekki
skilja mig
eftir einan!
Þú þarft
ekki að
vera einn,
ljúfurinn!
Allir með í
partí?
Fylgist með!
■ Tónlist