Fréttablaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 FIMMTUDAGUR VALUR MÆTIR ÍBV Annar leikurinn í úrslitum Remax-deildar kvenna í hand- bolta verður klukkan 19.15. Þá tekur Val- ur á móti ÍBV. Vestmannaeyjastúlkur sigr- uðu í fyrsta leik liðanna. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG LOKSINS LOKSINS sér fyrir endann á kuldakastinu. Hitinn mjakast upp í dag, en enn meira á morgun. Áfram verður þó vindasamt en það lagast á morgun víðast hvar. Sjá síðu 6 6. maí 2004 – 123. tölublað – 4. árgangur ● tilboð ● matur ● ferðir Endalausir möguleikar í kaffi Njáll Björgvinsson: ● sigursælir verslunarskólanemar Bullandi gróði á drykkjuspili Lips hf: ▲ SÍÐA 38 KREFJAST AFSAGNAR Stjórnarand- staðan krafðist afsagnar Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra í umræðum á Alþingi um álit umboðsmanns Alþingis um skipan hæstaréttardómara. Sjá síðu 2, 20 og 21 VILJA FRESTA SPARNAÐI Læknaráð Landspítala - háskólasjúkrahúss segir að frekari sparnaðaraðgerðir á spítalanum séu ekki gott veganesti í þá miklu uppbyggingu sem fram undan sé. Sjá síðu 4 ÓTTAST UM ÖRYGGI Í AÞENU Sprengjuárás á lögreglustöð í Aþenu vekur upp spurningar um öryggi á Ólympíuleik- unum sem fram fara í borginni í ágúst næstkomandi. Sjá síðu 6 BUSH VER HERINN George W. Bush Bandaríkjaforseti fór í viðtöl við tvær arab- ískar sjónvarpsstöðvar í gær til að verja Bandaríkin og Bandaríkjaher gegn ásökun- um um að pynta fanga. Sjá síðu 2 53%66% ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Kvikmyndir 46 Tónlist 44 Leikhús 44 Myndlist 44 Íþróttir 32 Sjónvarp 48 HEILBRIGÐISMÁL Um 200 pör eru nú á biðlista eftir glasafrjóvgun á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Glasafrjóvgunardeildinni verður lokað um mánaðamótin júní-júlí, eins og venjan er. En að þessu sinni er ekki útlit fyr- ir að hún verði opnuð aftur með haustinu, eins og gerst hefur eftir hefðbundnar sumarlokanir. Guðmundur Arason, yfir- læknir á deild- inni, sagði að þetta hefði átt langan og flók- inn aðdraganda. Þeir tveir líf- fræðingar sem starfað hefðu á deildinni hefðu sagt upp, meðal annars vegna óánægju með launakjör og aðbúnað. Upp- sagnir þeirra hefðu tekið gildi 1. maí síð- astliðinn. Þeir ynnu nú samkvæmt sérstökum samningum þar til deildinni yrði lokað. Síðan hefðu læknar deildar- innar fylgt í kjölfarið og uppsagn- ir þeirra tækju gildi 1. júlí. Hjúkr- unarfræðingum og öðrum starfs- mönnum hafi svo verið sagt upp um síðastliðin mánaðamót. Guðmundur sagði að læknarnir hefðu áhuga á að stofna nýja deild utan spítalans sem gæti vonandi tekið til starfa í byrjun septem- ber. Starfsmenn og sjúklingar myndu þá væntanlega fá betri að- stöðu en á LSH og gætu unnið biðlistann niður. „Aðstaðan eins og hún er núna finnst okkur ekki boðleg starfsfólki né sjúklingum.“ „Við lítum einnig til Evrópu varðandi sjúklinga, því okkur hafa borist margar fyrirspurnir frá útlöndum,“ bætti hann við. „Við, ís- lensku læknarnir, höfum verið að sýna undanfarin ár langbestan ár- angur í glasa- frjóvgun í Evr- ópu að landsmeð- altali. En við mundum að sjálfsögðu taka i n n l e n d a b i ð l i s t a n n fyrst.“ Guðmund- ur sagði málið einnig snúast um a t v i n n u - frelsi, að stofna og reka deild sem starfsfólkið hefði þekkingu og getu til. Guðmundur sagði fyrirliggj- andi umsókn í heilbrigðisráðu- neytinu um einkarekna glasa- frjóvgunardeild utan Landspítal- ans. Hins vegar stæði hugur um- sækjenda til samvinnu við spítal- ann um rannsóknir, kennslu og fleira af því tagi. jss@frettabladid.is sjá nánar síðu 4 FJÖLMIÐLALÖG Fjölmiðlalögin verða einsdæmi í öllum heiminum ef þau ná fram að ganga. Hvergi annars staðar ríkja jafn miklar takmark- anir á eignarhaldi fjölmiðla og frumvarpið gerir ráð fyrir. Ef frumvarpið verður að lögum er það klárt brot á tjáningarfrelsi. Þetta kom fram í ræðum tveggja er- lendra sérfræðinga í fjölmiðlarétti sem töluðu á fundi sem Norðurljós héldu um frelsi fjölmiðla í gær. Floyd Abrams, þekktur banda- rískur sérfræðingur í tjáningar- frelsi, sagði að augljóst væri að lögin beindust gegn einni sam- steypu og væri það klárlega brot á lögum um tjáningarfrelsi. „Stjórnvöldum leyfist ekki að þagga niður í fólki og knésetja fyrirtæki einungis vegna þess að stjórnvöld eiga í deilum við þessi fyrirtæki eða mislíkar þau,“ sagði hann. Að sögn Abrams þyrfti að leggja niður allar stærstu sjón- varpsstöðvar í Evrópu og Banda- ríkjunum ef lögin giltu í öðrum löndum. Belginn Filip van Elsen sagði að tilmæli Evrópuráðsins hefðu verið mistúlkuð í skýrslu um eignarhald á fjölmiðlum. „Evrópuráðið hefur ekki gefið út neinar tilskipanir um að tak- marka beri eignarhald á fjölmiðl- um á Íslandi. Ráðið tekur skýrt fram að hafa verði í huga stærð markaðarins þegar sett eru lög um eignarhald,“ sagði van Elsen. „Markmiðið með lögum um eignarhald í stærri ríkjum er ann- að en það sem á við á Íslandi eða í Belgíu. Í stærri ríkjum er eftir- spurn eftir útvarpsleyfum langt umfram fjölda leyfa í umferð. Hér á landi er ekki um slíka eftirspurn að ræða og ef of strangar takmark- anir verða settar um útvarpsleyfi gæti farið svo að enginn sækti um. Lögin gætu því haft það í för með sér að fjölbreytni á fjölmiðlamark- aði minnkaði í stað þess að aukast,“ segir hann. Abrams og van Elsen munu hitta allsherjarnefnd Alþingis á morgun til að ræða fjölmiðlafrum- varið. sda@frettabladid.is sjá nánar síðu 10 Fjölmiðlalögin verða einstök á heimsvísu Fjölmiðlalögin eru brot á tjáningarfrelsi segja tveir erlendir sérfræðingar í fjölmiðlarétti. Engin önnur dæmi um lög sem þessi. Lögin munu leiða til minni fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði. Óvíssa ríkir um framtíð glasafrjóvgunardeildar: Um 200 pör eru á biðlista FRÉTTABLAÐIÐ 8. DESEMBER Fréttablaðið greindi frá því í byrjun desember síðastliðins að glasafrjóvgunardeild Landspítal- ans yrði líklega lokað vegna niðurskurðar á spítalanum. VETRARRÍKI Heldur hráslagalegt hefur verið á Akureyri og víða um land undanfarna daga. Hlýnar í veðri um helgina: Landið losnar úr kuldaklóm FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI VEÐRIÐ Veðurstofan spáir því að landið losni úr þeirri kulda- klemmu sem það hefur verið í undanfarna daga. Spáð er mun hlýrra veðri um helgina en verið hefur. Skýjað verður um allt land og úrkoma víða, einkum þó á Norðurlandi. Hrafn Guðmundsson veður- fræðingur á Veðurstofunni sagði að ríkjandi norðanátt að undan- förnu hefði stafað af tveimur ríkj- andi hæðum, annars vegar yfir Grænlandi og hins vegar á austur- slóðum, nærri Rússlandi. Djúp lægð sem legið hefði yfir Bret- landseyjum hefði ekki komist nær landinu vegna áhrifa hæðanna. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.