Fréttablaðið - 06.05.2004, Síða 28

Fréttablaðið - 06.05.2004, Síða 28
- SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3 110 Reykjavík Sími: 591 9000 www.terranova.is Akureyri sími: 461 1099 Bændaferðir kynna: Sumar 3 Þýskaland - Austurríki Ungverjaland - Tékkland Nú eru síðustu forvöð að bóka sig í Bændaferðir í sumar. Flestar ferðir að fyllast. 6.-20. júní Flogið er til München og þaðan ekið til Vínarborgar. Gist á Hótel Dorint í 3 nætur. Næst verður ekið suður og austur að Balatonvatni og gist á Hótel Annabella í 6 nætur. Að endingu verður ekið til Prag og gist 4 nætur á Hótel Park. Ekið frá Prag með viðkomu í Bæjarskógi á leið til flugvallar. Fararstjóri: Margrét Gunnarsdóttir. Verð 123.700 kr Innifalið: Flug og skattar, gisting í 2ja manna herbergi (aukagjald fyrir eins manns herbergi), allur akstur erlendis, skoðunarferðir flesta daga, morgun- og kvöldverður alla daga. Íslensk- ur fararstjóri með hópnum. sími: 461 2500 • gsm: 895 0625 • fax: 461 2502 600 Akureyri • akurinn@hotmail.com MAÍ TILBOÐ Gistiheimilið Akur Inn 3 nætur á 15.000 2 manna herbergi fjórða nóttin frí Anna María Bogadóttir, í Kaupmannahöfn: Notaleg borg og vinalegir Danir Svo virðist sem kuldakastinu ljúki nú um helgina. Á föstudag dregur úr norðaustanáttinni og hlýnar, einkum sunnanlands. Á laugardag og sunnudag verður hægur austlægur vindur og heldur hlýnar í veðri, sérstaklega inn til landsins. Norðan- og austanlands verður vætusamt á föstudag og þokusúld með austurströndinni um helgina og skýjað og víða skúrir um landið. BAR VAN GOGH á Friðriksbergi Afar reykmettað „bodega“ (sem þýðir krá á danska vísu) með billjardborði, yfirvegun og þreyttum verka- mönnum sem sötra bjórkollu áður en þeir halda heim á leið. Þetta er svona lókal sena og hægt að njóta dýrindis smörrebröds, snafs og góðs öls. Ómissandi er að panta sér stjerneskud, sem kemur á óvart. BAR BOBI BAR rétt við Klareboderne við Købmagergade (ein af hliðargötum frá Strikinu) Gamalgróinn og þekktur bar í miðbæ Kaupmannahafnar; einn sá elsti í borg- inni. Að koma þangað inn er upp- lifun klassíkur og tímaleysis. Gesta- hópurinn er fjölbreyttur. VEITINGASTAÐUR NOMA í Norðurbryggju Aðalstaðurinn í bænum. Nýr, gourmet veitingastaður þar sem maður getur setið meðal Viggos Mortensen og Bond-skvís- unnar Iben Hjejle. Allt hráefni og uppskriftir frá Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og Dan- mörku, eldað á nútímalegan hátt. Á mat- seðlinum er stundum að finna skyr-sorbet, íslenskt lambakjöt og færeyska humarhala. Í dýrari kantinum og frekar fínn staður. Þarf að panta borð. VEITINGASTAÐUR BANZAI á Vesturbrú Ég held mikið upp á þennan japanska veit- ingastað. Hann er frekar nýr og það sem einkennir hann er framúrskarandi hráefni og fínt verð. Matseðillinn samanstendur ekki bara af sushi heldur almennri jap- anskri eldamennsku af öllu tagi. Látlausar innréttingar og þétt setinn bekkurinn. Hefur fengið frábæra dóma matargagnrýnenda. BÚÐ ART BY HEART Larsbjørnsstræde 11 (hliðargata á Strikinu) Flott konsept-búð, sem í raun er bæði lista- gallerí og búð. Ómótstæðilegur varningur eftir unga listamenn og hönnuði; þar sem ægir saman fullt af sniðugum hlutum; hönnun, fatnaði, nytjalist, listaverk og tónlist. Áherslan er á danska hönnuði en margir aðrir fá líka tækifæri. Búðin er á annarri hæð, allt er til sölu og listamönnum er reglulega skipt út. Æðisleg fyrir tækifærisgjafir. BÚÐ ANTIKBÚÐIRNAR úti á Norðurbrú Danskar antikbúðir eru, öfugt við þær íslensku, ódýrar og þar kennir margra grasa. Hægt að finna gamlar íslenskar bækur, fallega muni og grand húsgögn. Í ná- grenni við St. Hans Torg. SAFN NORÐURBRYGGJA Verð auðvitað að mæla með menningar- húsinu á Norðurbryggju. Hægt er að fylgjast með dagsrkánni á www.bryggen.dk. Norð- urbryggja er menn- ingar- og listasetur í hjarta Kaupmanna- hafnar. Þar er mikið um að vera og alveg yndislegt að sitja úti á hlýjum sumardögum. Hægt að taka bát frá Nýhöfn yfir á Norðurbryggju og búa til ævintýri úr ferðinni. Sögufrægur staður í gamla pakkhúsinu og afar glæsilegur. SAFN NICOLAI KIRKEN Forvitnilegt safn í gamalli kirkju stein- snar frá Strikinu. Skemmtilegar sýningar, oft fram- sæknar og ögrandi. ALMENNINGSGARÐAR Mæli með öllum almenningsgörðunum í Kaupmannahöfn. Það er sama hvar mann ber niður; alls- staðar er fólk að grilla, drekka kaffi eða bjór, og halda veislur. Danir nota garðana mjög mikið og nauðsynlegt að reikna með góðu stoppi til að fylgjast með mannlífinu. Uppáhalds garðarnir mínir eru Frederiks- berg Have og Kongens Have. ALMENNINGSGARÐAR ASSISTENS-KIRKJUGARÐURINN Skemmtileg blanda af almenningsgarði og kirkjugarði. Stórir grasbalar á milli grafreita; bekkir og notalegheit. Gaman að heim- sækja og segir líka ýmsar sögur um Dan- mörku, en þarna eru meðal annars leiði H.C. Andersen og Sörens Kirkegard. BAÐHÚS SOFIE BADET á Kristjánshöfn Sundlaugar eru fáséð fyrirbæri í Danmörku, en mikið er af gömlum baðhúsum í staðinn. Baðhús Soffíu er uppáhaldið mitt. Þar hittir maður meðvitaðar sálir og heim- spekilega þenkjandi fólk. Dásamlegt dekur að slappa af í japönsk böðunum, sauna- böðum, eldgömlum stærðarinnar bað- körum og nuddi. Boðið er upp á konudaga, karladaga og blandaða daga, og gestir klæðast stórum, mjúkum baðsloppum. Anna María Bogadóttir hefur undanfarin fjögur ár búið meðal Dana, þar af síðustu þrjú árin í Kaup- mannahöfn. Anna María er öllum hnútum kunnug í höfuðborg Danmerkur og býr sjálf á Friðriks- bergi, sem er líkt og sjálfstætt þorp inni í miðri borginni. Hún starfar sem verkefnisstjóri menn- ingardagsskrár í hinu glæsilega samnorræna menningarsetri á Norðurbryggju, sem er einskon- ar gluggi Íslands, Grænlands, Færeyja og Dan- merkur til heimsins og hefur það hlutverk að miðla menningu Vestnorrænu þjóðanna og efla samstarf þeirra á milli. „Ég er ákaflega ánægð í Danmörku og finnst Kaup- mannahöfn bæði notaleg og vinaleg borg. Landið er sem slétt pönnukaka og auðvelt að fara allra leiða á hjóli,“ segir Anna María og talar um að hún sé heilluð af danska sumrinu. „Borgin umbreytist yfir sumar- tímann; fólk er mikið úti við og mannlífið er fjölskrúð- ugt. Ég mæli sérstaklega með Kaupmannahöfn í júlí þegar hér ríkir allsherjar djassfestival og djasstónar hljóma um stræti og torg.“ Anna María segir allt stefna í að árin í Danmörku eigi eftir að verða mörg í viðbót. Hún segir lesendum frá sínum eftirlætis stöðum í kóngsins Köben. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.