Fréttablaðið - 06.05.2004, Síða 25

Fréttablaðið - 06.05.2004, Síða 25
Lagasetningunni er beint gegn ákveðnu fyrirtæki á íslenskum fjölmiðlamarkaði; Norður- ljósum. Frumvarpið er áhlaup á Norðurljós. Fjölmiðill brotinn á bak aftur Fyrsta umræðan á Alþingi um fjöl- miðlafrumvarp Davíðs Oddssonar forsætisráðherra var hörð og snörp. Í henni kristallaðist sá grundvallar- munur sem er á pólitík Samfylking- arinnar annars vegar og Sjálfstæð- isflokksins hins vegar. Samfylkingin vill setja almennar reglur grund- vallaðar á almannahagsmunum en formaður Sjálfstæðisflokksins er búinn að snúa flokk sinn og Fram- sókn til hlýðni við sértæk lög stefnt gegn einu ákveðnu fyrirtæki og ákveðnum athafnamönnum. Engum blöðum er um það að fletta að laga- setningunni er beint gegn ákveðnu fyrirtæki á fjölmiðlamarkaði; Norð- urljósum. Frumvarpið er áhlaup á Norðurljós. Þó það kosti stjórnar- skrárbrot, atvinnumissi fyrir hundr- uð manna og stórkostlegar skaða- bætur á kostnað skattgreiðenda. Hver er váin, hvað liggur á, hvaða bygging stendur í björtu báli? Ekkert annað en styrjöld ráðamanna við eig- endur Baugs. Hvaða önnur rök eru t.d. fyrir því að einn aðili megi eiga allar útvarpsstöðvar á landinu en ekki útvarpsstöð og blað? Engin. Staðan á íslenskum fjölmiðla- markaði gefur vissulega tilefni til að setja skýrar reglur um upplýst eignarhald og sjálfstæði frétta- stofa. Þetta frumvarp, aðdragandi þess og málatilbúnaður er hins veg- ar ekki í neinu samræmi við það meðalhóf sem stjórnvöldum ber að gæta. Þar fyrir utan verður það að teljast með ólíkindum í lýðræðis- samfélagi að lögunum sé einkum beint gegn ákveðnu fyrirtæki sem forsætisráðherra hefur ítrekað lýst sem andsnúnu sér og hefur mjög opinskáa óbeit á, þó að fæsta reki lengur minni til þess af hverju for- sætisráðherrann er í þessu stríði við Baugsmenn né um hvað er barist. Þetta er ótrúleg málsmeð- ferð um grundvallaratriði í íslensku samfélagi sem lýtur að sjálfu lýð- ræðinu og lýðræðislegri umræðu. Hlutverk stjórnmálamanna er fyrst og síðast að setja almennar leikregl- ur þar sem gætt er réttar almenn- ings til upplýsinga og tjáningar- frelsis, ásamt því að skapa fjöl- miðlafyrirtækjum ramma til eðli- legs rekstrar. Það er sjálfsagt og eðlilegt að ræða þann ramma á vett- vangi stjórnmálanna þannig að eðli- leg niðurstaða fáist, byggð á skyn- samlegum rökum en ekki geðþótta ráðamanna. Með þeirri sértæku lagasetningu sem forsætisráðherra ætlar nú að keyra í gegnum þingið er þrengt að fjölmiðlarekstri og starfsumhverfi miðlanna ef settar verða sérstakar skorður hvað varð- ar aðgang að fjármagni, fyrir utan að þau standast tæpast stjórnar- skrárákvæðin um frelsi manna til athafna, tjáningar og fjárfestinga. Frumvarp þetta er ótrúlega vondur endir á forsætisráðherraferli Dav- íðs Oddssonar og hefði þurft að segja manni það þrisvar að þessi farsæli stjórnmálamaður sem hefur náð einstakri stöðu í stjórnmálunum myndi að lokum steyta á því skeri sem hann nú stefnir upp á. ■ 25FIMMTUDAGUR 6. maí 2004 Kristjana Vagnsdóttir, Þingeyri, skrifar: Ég var að hlusta á morgunútvarpið þann 25. apríl. Þá heyrði ég haft eftir Ragnari Aðalsteinssyni að ef þessi lög um fjöl- miðlamálið yrðu samþykkt, myndu þau sennilega ekki standast stjórnarskrána. Sigurður Líndal prófessor í lögum er líka vantrúaður á það sama. Hvað eigum við, hinir almennu borgarar, að hugsa? Ég tek undir með Jóni Ásgeiri forstjóra Baugs að hér verði um eignaupptöku að ræða. Þingmönnum þessa lands hef- ur ekki flökrað við að setja lög, sem heimila eignaupptöku fyrirtækja, hing- að til. Ég tel að búskapur sé ekkert ann- að en fyrirtæki sem leiguliðar á leigu- jörðum reka meðan þeir eru færir um það vegna heilsu sinnar eða aldurs. Hvað er svo gert þegar þeir gefast upp af þessum völdum, eða þeir hraktir af jörðunum, annað en að um eignarupp- töku sé að ræða. Það er ekki verið að meta hvernig þessi auður varð til, þó að leiguliði hafi komið með allt sitt á varla byggilega jörð. Þá skal leigusali eignast allt hans jarðlífsstrit og til þess fær hann hjálp frá hinu háttvirta Alþingi, því hann er lögverndaður af þessum siðleysislög- um. Það er mörg skömmin sem ríkis- stjórnir þessa lands bera á herðum sín- um og gegnir furðu hvað þær eru lengi að sligast undan sínum siðleysislögum. Það gegnir líka furðu, hvað Davíð Odds- son heldur sönsum í sínu vitfirrta stríði og öfund út í menn eins og Jón Ásgeir eða Bónusfeðga. Við úti á landsbyggð- inni finnum fyrir þeim kjarabótum sem þeir hafa fært okkur með verslunum sínum. Okkur endist betur lúsapening- urinn sem við fáum í lífeyri á meðan þeirra nýtur við. Manni stendur stuggur af andúðinni og grimmdinni sem skín út úr öllu andlitinu á manninum, Davíð Oddssyni, þegar hann birtist á skjánum og tjáir sig í garð þessara manna. Vegið að Bónusfeðgum Svala Birgisdóttir skrifar: Ég get vart orða bundist yfir framferði ráðamanna landsins og hvernig þeir vega nú að Bónusfegðum, einkum Jóni Ásgeiri. Þeir feðgar hafa hjálpað lands- mönnum ótrúlega gegnum árin og gert meira fyrir þá en síðustu ríkisstjórnir. Ég hef sjálf búið úti á landi og það þekkja allir hvað Bónusverslanir, sem víða hafa risið, hafa gert fyrir íbúa á landsbyggð- inni. Og nú er vegið að þeim fyrir það eitt að eiga fjölmiðla. Ég man þá tíð að Davíð Oddsson sagði að enginn í Fram- sóknarflokknum skyldi verða forsætis- ráðherra meðan hann fengi einhverju ráðið. Ég vil því meina að framganga hans nú með fjölmiðlafrumvarpinu og fleiru sé eingöngu til þess að sprengja ríkisstjórnina. BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON ALÞINGISMAÐUR UMRÆÐAN FJÖLMIÐLA- FRUMVARPIÐ ,, BRÉF TIL BLAÐSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.