Fréttablaðið - 19.06.2004, Síða 4
4 19. júní 2004 LAUGARDAGUR
Rúmar 200 þúsund
á hverja fjölskyldu
Stuðningur við íslenska bændur kostaði rúma fimmtán milljarða króna
á síðasta ári. Það samsvarar því að hvert og eitt mannsbarn hafi þurft að
greiða rúmlega 52.000 krónum hærri matarreikning en ella þyrfti.
NEYTENDUR Kostnaðurinn af stuðn-
ingi við bændur á síðasta ári nam
rúmlega 52 þúsund krónum á
hvert mannsbarn að meðaltali.
Heildarkostnaðurinn, annars veg-
ar í formi styrkja úr ríkissjóði og
hins vegar í formi hærra mat-
vælaverðs, nam rúmum fimmtán
milljörðum króna, nær 210 þús-
und krónum á
hverja fjögurra
manna fjöl-
skyldu. Þetta
kemur fram í
nýrri skýrslu
Efnahags- og
framfarastofnun-
arinnar, OECD.
Þetta er tals-
vert hærri upp-
hæð en miðað er
við í skýrslu for-
sætisráðherra um muninn á mat-
vælaverði á Íslandi annars vegar
og í ríkjum Evrópusambandsins
hins vegar. Þar var miðað við töl-
ur frá árinu 2001 sem eru tæpum
þremur milljörðum króna lægri
en tölur síðustu tveggja ára. Mun-
urinn skýrist að hluta af gengis-
falli krónunnar 2001 sem þýddi að
erlendar vörur urðu dýrari fyrir
Íslendinga. Þar með mældist
verðstuðningur við bændur minni
en ella.
Naumur meirihluti stuðnings-
ins við bændur kemur úr ríkis-
sjóði, átta milljarðar króna. Þar af
eru 1.300 milljónir til komnar
vegna skólahalds og rannsóknar-
styrkja auk annarra almennra
styrkja en tæpir sjö milljarðar
eru beinir styrkir til bænda. Auk
þessa þurfa neytendur að greiða
hærra matvælaverð úti í búð
vegna þess að háir tollar koma að
mestu í veg fyrir innflutning land-
búnaðarafurða frá útlöndum sem
myndi auka samkeppni og lækka
matvælaverð. Þessar takmarkan-
ir kostuðu neytendur sjö milljarða
króna sem komu fram í því að
matvælaverð var hærra en ella
sem því nemur.
Í skýrslu Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands fyrir forsætis-
ráðherra kom fram að matvæla-
verð væri 50 prósentum hærra
hér en í aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins. Þar komu fram
ýmsar ástæður fyrir þessu en
helsta leiðin til að lækka matvæla-
verð hérlendis var að mati
skýrsluhöfunda það að opna fyrir
innflutning matvæla eftir því sem
heilbrigðissjónarmið og sóttvarn-
ir leyfðu.
brynjolfur@frettabladid.is
VLADIMÍR PÚTÍN
Orð sín lét Pútín falla á öryggisráðstefnu í
Kasakstan.
Rússlandsforseti:
Vöruðu við
árásum Íraka
KASAKSTAN, AP Vladimír Pútín
Rússlandsforseti sagði Rússa
hafa varað Bandaríkjastjórn við
því áður en ráðist var inn í Írak að
Írakar hygðu á hryðjuverkaárásir
gegn Bandaríkjunum.
Pútín kvaðst ekki geta sagt til
um hversu miklu viðvaranir
Rússa hefðu ráðið um ákvörðun
Bandaríkjastjórnar að ráðast inn í
Írak, upplýsingarnar breyttu þó
engu um andstöðu Rússa við inn-
rásinni. Hann sagði Íraka hafa
skipulagt árásir á bandarískan her
og aðra hagsmuni hvorttveggja
innan og utan Bandaríkjanna. ■
Kjell Magne Bondevik:
Uppstokkun
í stjórninni
NOREGUR Kjell Magne Bondevik,
forsætisráðherra Noregs, hefur
stokkað upp í ríkisstjórn sinni.
Hann vék tveimur ráðherrum úr
embætti, færði aðra milli ráðu-
neyta og gerði breytingar á ráðu-
neytum.
Breytingarnar eru þær fyrstu
að ráði sem Bondevik gerir á ráð-
herraskipan í þriggja ára stjórn-
artíð sinni. Hann yngdi nokkuð
upp í ráðherrahópnum en eftir
breytingarnar er yngsti ráðherr-
ann aðeins 31 árs, það er Knut Ar-
ild Hareide umhverfisráðherra.
Þegar hann kynnti breyting-
arnar sagði Bondevik stjórnina
vel til þess fallna að fá endurnýj-
að umboð í þingkosningum á
næsta ári. ■
VALT Í HVALFJARÐARGÖNGUNUM
Hvalfjarðargöngum var lokað í
um tvær klukkustundir fyrir há-
degi í gær eftir að fellihýsi valt.
Engin slys urðu á fólki en
nokkurn tíma tók að greiða leið-
ina. Bíllinn sem dró fellihýsið
skemmdist nokkuð mikið.
ÓK Á 175 KÍLÓMETRA HRAÐA
Ungur ökumaður enn með bráða-
birgðaökuleyfi var sviptur því á
staðnum þegar hann var tekinn á
175 kílómetra hraða á Norðaust-
urvegi um Tjörnes. Annar öku-
maður með bráðabirgðaökuleyfi
var tekinn fyrir ölvunarakstur á
Húsavík í fyrrinótt.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
,,Þetta er
talsvert
hærri upp-
hæð en
miðað er
við í skýrslu
forsætis-
ráðherra.
Tókstu þátt í þjóðhátíðarhaldi
17. júní?
Spurning dagsins í dag:
Á ríkið að hætta að styrkja landbúnað?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
53%
47%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Er með alvarlega
höfuðáverka:
Féll úr bíl
á ferð
LÖGREGLA Ungur maður slasaðist
alvarlega eftir að hann féll úr bíl
á ferð á Blómsturvallavegi,
skammt norðan við Akureyri,
klukkan rúmlega tvö í fyrrinótt.
Að sögn vakthafandi læknis á
Landspítalanum er maðurinn
með alvarlega höfuðáverka, hann
fór í aðgerð í gærmorgun og er á
gjörgæsludeild.
Maðurinn var farþegi í bílnum
og tilkynntu þeir sem voru með
honum í bílnum um slysið. Maður-
inn missti meðvitund við fallið en
rankaði við sér þegar lögreglan
kom á staðinn. Í fyrstu var hann
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri en var síðan fluttur
snemma í gærmorgun með sjúkra-
flugi til Reykjavíkur.
Lögreglan á Akureyri rann-
sakar málið. Talið er að bíllinn hafi
verið á um fjörutíu kílómetra
hraða þegar maðurinn féll út. ■
Netsalan
Knarrarvogur 4 - 104 Reykjavík - Sími 517 0220
OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13.00 - 16.00
Til afgreiðslu!
Dodge Ram 2500 Quad Cap Laramie 4x4
FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR
Síðustu eintökin
eru komin!!! LÖGREGLA Tveir Hvítrússar semhafa beðið um hæli hér á landi og
höfðu uppi alvarlegar hótanir í
garð starfsmanna félagsþjónust-
unnar í Reykjanesbæ hafa verið
yfirheyrðir af lögreglunni þar í
bæ. Seinni partinn í gær fengust
ekki upplýsingar um hvernig
rannsókn málsins stæði.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins hótuðu þeir starfsfólkinu lík-
amsmeiðingum og jafnvel lífláti.
Þá hafi þeir að auki hótað hungur-
verkfalli og sjálfsmorðum. Menn-
irnir komu hingað til lands með
Norrænu og gáfu sig fram við lög-
regluna á Akureyri. Þeir voru
fluttir til Reykjanesbæjar þar
sem félagsþjónustan hefur samn-
ing við Útlendingastofnum um
umsjá hælisleitenda. Mennirnir
segjast vera Hvítrússar en þeir
komu hingað til lands á litháensk-
um vegabréfum. Verið er að fá
uppruna mannanna staðfestan
svo mál þeirra geti fengið með-
ferð hjá Útlendingastofnun. ■
Reykjanesbær:
Hælisleitendur
yfirheyrðir
NORRÆNA
Mennirnir komu til Seyðisfjarðar með
Norrænu.
Deutsche Bank:
Aðili að
Kauphöllinni
VIÐSKIPTI Deutsche Bank hefur
ákveðið að gerast aðili að Kauphöll
Íslands og verður því annar erlendi
aðilinn sem kemur að Kauphöllinni
með þessum hætti. Aðild bankans
að Kauphöllinni kemur í kjölfar
þátttöku hans í útgáfu nýrra íbúða-
lána sem Íbúðalánasjóður mun gefa
út frá 1. júlí.
Greiningardeild KB banka segir
að þetta séu jákvæðar fréttir, sér-
staklega fyrir skuldabréfamarkað-
inn, og megi segja að um ákveðna
traustsyfirlýsingu sé að ræða.
„Þátttaka Deutsche Bank mun virka
hvetjandi fyrir aðra erlenda aðila til
að verða þátttakendur á innlendum
skuldabréfamarkaði,“ segir í hálf-
fimmfréttum KB banka. ■
KOSTNAÐUR Á HVERT
MANNSBARN
Ár Kostnaður
2001 45.834
2002 53.480
2003 52.091
KEYPT Í MATINN
Matvælaverð er hærra hér en í nágrannaríkjunum. Ástæðan er að hluta til sú að tollar
koma í veg fyrir erlenda samkeppni.
PALESTÍNA, AP Palestínustjórn hefur
hafið viðræður við herskáar
hreyfingar Palestínumanna um
það hvernig stjórn á Gaza-svæð-
inu skuli háttað þegar Ísraelar
eru horfnir þaðan á brott.
Ahmed Qureia, forsætisráð-
herra Palestínu, sagði fulltrúa
hreyfinganna byrjaða á því að
semja skjal sem kveður á um
stjórnarhætti. Hugmyndin er sú
að Palestínustjórn og samtök á
borð við Hamas og Íslamskt Jihad
stjórni Gaza-svæðinu í samein-
ingu. Samtökin tvö hafa hingað til
neitað samstarfi við Palestínu-
stjórn sem varð til í kjölfar friðar-
samninga við Ísraela.
Endanleg útkoma liggur þó ekki
fyrir fyrr en rætt hefur verið við
Egypta, sem hafa heitið því að að-
stoða við að tryggja frið og öryggi
á Gaza eftir brotthvarf Ísraela.
Qureia ræddi í gær við Hosni
Mubarak, forseta Egyptalands, um
hvernig málum skyldi háttað. Ísra-
elar hafa neitað að ræða beint við
Palestínumenn og hafa Egyptar
haft milligöngu. Egyptar vilja
fyrirheit Ísraela um að hætta árás-
um á Gaza vel fyrir brotthvarf svo
hægt sé að byggja upp öryggis-
kerfi þar. Þeir vilja einnig að Jass-
er Arafat samþykki uppstokkun á
öryggissveitum en hann hefur
dregið fæturna í þeim málum. ■
ÁTÖK VIÐ MÓTMÆLI
Harka færðist í leikinn þegar ísraelskum og palestínskum friðarsinnum lenti saman við
ísraelska hermenn.
Palestínustjórn í viðræðum við Hamas og Íslamskt Jihad:
Semja um stjórn
Gaza-svæðisins