Fréttablaðið - 19.06.2004, Síða 6
6 19. júní 2004 LAUGARDAGUR
SIGLING Hafsteinn Jóhannsson
kafari frá Akranesi hélt af stað
ásamt fimm öðrum í hringsigl-
ingu um Íslands á Eldingu í fyrr-
inótt. Hafsteinn, sem hefur siglt
um allan heim, segist ætla að
hætta siglingunum og hugsanlega
sé þetta hans síðasta ferð.
Byggðasafnið á Akranesi fær
seglskútuna víðförlu þegar Haf-
steinn hættir.
Hafsteinn segir stefnt að því
að hringsiglingin taki um einn og
hálfan mánuð, þetta sé skemmti-
ferð og þau muni stoppa í sem
flestum höfnum á leiðinni.
Frægasta sigling Hafsteins
var þegar hann sigldi einn síns
liðs umhverfis hnöttinn en þá
sigldi hann viðstöðulaust í 241
dag, alls 25 þúsund sjómílur.
Afrekið hefur enginn Norður-
landabúi leikið eftir enn sem
komið er. Á ferð sinni lifði Haf-
steinn á þurrmat og dósamat en
hann hafði matarbirgðir fyrir sex
hundruð daga. ■
Vilja skerða heildarafla
um þrjú prósent
Nefnd um langtímanýtingu fiskistofna telur að skerða verði heildarafla um þrjú prósent í afla-
reglum og koma í veg fyrir að raunafli fari fram úr leyfðum heildarafla. Tillögurnar hafa þegar
verið teknar í framkvæmd að hluta til.
SJÁVARÚTVEGUR Ofmat á þorsk-
stofninum við Ísland og
umframafli miðað við leyfðan
heildarafla hefur gert að verkum
að raunafli er um 20 prósent meiri
en aflareglur frá árinu 1996 gera
ráð fyrir. Þetta kemur fram í
skýrslu nefndar um langtímanýt-
ingu fiskistofna.
Friðrik Már Baldursson, for-
maður nefndarinnar, segir að síð-
astliðna tvo áratugi hafi gætt til-
hneigingar til ofmats upp á tíu
prósent að jafnaði, við mat á
stærð þorskstofnins. Heildarafli
af veiðistofni sé því ekki 25 pró-
sent eins og gert var ráð fyrir
heldur 27,5 prósent. Þegar við
bætist umframafli miðað við
leyfðan heildarafla hafi raunafli
verið tæplega þrjátíu prósent.
Í niðurstöðum nefndarinnar
kemur fram að brýnt sé að leið-
rétta þessar skekkjur þannig að
raunverulegur afli verði í sam-
ræmi við nýtingarstefnu. Telur
nefndin að regla sem miðar við 22
prósent heildarafla af veiðistofni,
eins og tillögur um aflareglur frá
1994 gerðu ráð fyrir, sé fýsileg
hvað varðar afkomu, stöðugleika
og vöxt þorskstofnins. Ef sjávar-
útvegsráðherra myndi taka þessa
reglu óbreytta upp myndi það
hafa talsverða skerðingu í för
með sér, eða allt að því tíu prósent
niðurskurð á heildarafla þorsks.
Nefndin telur þó hugsanlegt að
bíða með að koma 22 prósent regl-
unni í framkvæmd þar til ekki
þurfi að draga úr veiðum, þó
henni sé komið á Þá þarf fyrst og
fremst að taka á ofmati þorsk-
stofnsins og draga úr framúr-
keyrslu. Friðrik Már telur að það
þurfi ekki endilega að bíða lengi
eftir að svo yrði. „Ef ofmatið er
lagfært og þorskstofninn myndi
mælast tíu prósent meiri á næsta
ári miðað við árið áður, væri hægt
að innleiða 22 prósent regluna án
þess að draga úr veiðum.“
Sóknardagakerfinu er að
mestu kennt um umframafla mið-
að við leyfileg mörk og bæði Frið-
rik og Árni Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra telja að með afnámi
sóknardagakerfisins sé búið að
stuðla að því að raunafli og nytja-
stefna fari saman. Það sé því þeg-
ar búið að innleiða tillögur nefnd-
arinnar að hluta til. Árni hefur
ekki tekið afstöðu til álits nefnd-
arinnar að öðru leyti enn sem
komið er.
bergsteinn@frettabladid.is
Götusmiðjan:
Opið hús fyr-
ir sveitunga
HEILBRIGÐISMÁL Í tilefni flutninga
og sex ára afmælis Götusmiðj-
unnar verður opið hús fyrir alla
sveitunga og fagfólk í geiranum
við formlega opnun á Akurhóli,
fyrrum Gunnarsholti, Rangár-
þingi Ytra við Hellu í dag kl.14.
Götusmiðjan hefur rekið sér-
hæft meðferðarheimili fyrir ungt
fólk á aldrinum 15-20 ára síðan
1998. Markmiðið er að aðstoða
ungt fólk, sem hefur leiðst út úr
hinum hefðbundna samfélags-
ramma og inn í heim fíkniefna og
afbrota, til að fóta sig og koma lífi
sínu í jákvæðan farveg. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72,47 0,15%
Sterlingspund 132,9 0,57%
Dönsk króna 11,74 -0,08%
Evra 87,24 -0,09%
Gengisvísitala krónu 122,59 0,13%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 326
Velta 4.541 milljónir
ICEX-15 2.857 0,92%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 606.502
Landsbanki Íslands hf. 182.684
Bakkavör Group hf. 176.270
Mesta hækkun
Bakkavör Group hf. 5,31%
Össur hf 3,03%
Hlutabréfsj. Búnaðarbankans 2,97%
Mesta lækkun
Actavis Group hf. -0,73%
SÍF hf. -0,69%
Vátryggingafélag Íslands -0,65%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.420,8 0,4%
Nasdaq* 1.991,3 0,4%
FTSE 4.505,8 0,3%
DAX 3.999,8 0,4%
NK50 1.379,0 -0,1%
S&P* 1.136,0 0,3%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
VEISTU SVARIÐ?
1Hvers vegna var ítalski fótboltamað-urinn Francesco Totti dæmdur í
þriggja leikja bann?
2Hver hefur verið útnefndur borgar-listamaður Reykjavíkur árið 2004?
3Hvers vegna sagðist Bill Clinton hafahaldið fram hjá konu sinni?
Svörin eru á bls. 34
Hugsanlega síðasta
ferð Hafsteins:
Hringsigling
um Ísland
HAFSTEINN JÓHANNSSON
Hafsteinn segist ætla að taka góðan tíma í hringsiglinguna, þetta sé skemmtiferð og
stoppað verði í sem flestum höfnum.
FRÁ FUNDI SJÁVARÚTVEGSRÁÐGERRA
Frá vinstri: Friðrik Már Baldursson, Tryggvi Þór Herbertsson, Árni Mathiesen og Vilhjálmur Egilsson.
ÞRIGGJA BÍLA ÁREKSTUR Árekst-
ur varð á þjóðveginum skammt
norðan við Baulu í Borgarfirði.
Engin slys urðu á fólki en tveir
bílanna þriggja voru óökufærir
eftir.