Fréttablaðið - 19.06.2004, Qupperneq 34
22 19. júní 2004 LAUGARDAGUR
N ú er vika liðin síðan Evr-ópumótið í Portúgal hófstog óhætt er að segja að
mótið fari vel af stað. Liðunum
hefur gengið misvel og ollu
heimamenn talsverðum vonbrigð-
um eftir 2-1 tap gegn Grikkjum í
fyrsta leik. Portúgalska liðið
bætti þó um betur með því að
leggja Rússa að velli í öðrum leik
en það þarf á hagstæðum úrslitum
að halda gegn erkifjendunum frá
Spáni til að komast upp úr riðla-
keppninni. Portúgalska þjóðin er
eins og gefur að skilja áhyggjufull
vegna landsliðsins en áhyggjurn-
ar liggja ekki aðeins innan vallar
heldur einnig utan. Þeir eru nefni-
lega margir heimamennirnir sem
telja að eytt hafi verið langt um
efni fram til að koma keppninni á
koppinn, keppni sem stendur að-
eins yfir í einn mánuð.
52 milljarðar í knattspyrnumót
Mikill samdráttur hefur verið í
efnahagslífi Portúgals síðustu ár.
Atvinnuleysi mælist nú um 6,5%
og ríkisstjórn sósíaldemókrata
hefur dregið úr þjónustu við al-
menning til að reyna að grynnka á
skuldum landsins. Helstu gagn-
rýnisraddir segja að ríkisstjórn
José Manuel Durao Barroso for-
sætisráðherra hafi frekar átt að
eyða þeim 52 milljörðum króna
sem fóru í að koma keppninni á
fót í að byggja nýja spítala eða
auka opinbera þjónustu.
Viðskiptamógúllinn Ernesto
Morgado, stjórnarformaður og
einn af stofnendum Sicog-tölvu-
fyrirtæksins, hefur átt stóran þátt
í skipulagningu mótsins. Hann
vonast til að svartsýnisraddirnar
hljóðni þegar Evrópumótið er af-
staðið.
„Þeir eru margir sem telja að
of miklu fé hafi verið eytt í Evr-
ópumótið. Efnahagsumhverfið í
Portúgal hefur átt erfitt upp-
dráttar síðustu ár og margir
hefðu viljað setja peningana í
opinbera þjónustu,“ sagði
Morgado í samtali við fréttavef
breska ríkisútvarpsins. „En á
sama tíma er mikið rætt um
knattspyrnu í Portúgal – enda er
hún þjóðaríþrótt okkar. Portúgal-
ar eru stoltir af landsliðinu og
það hefur svo sannarlega hvetj-
andi áhrif á land og þjóð.“
Minnimáttarkennd Portúgala
Morgado segir að Portúgalar hafi
í gegnum tíðina þjáðst af minni-
máttakennd en vonast til að breyt-
ing verði þar á með því að halda
stórmót á borð við Evrópukeppn-
ina. „Ég vona að Portúgalar átti
sig á því að þeir geta gert hvað
sem er – ef viljinn er fyrir hendi.“
Margarida Matos Rosa, yfir-
maður hjá BNP-bankanum í
Portúgal, tekur í sama streng.
Rosa segir að heimamenn þjáist
af minnimáttarkennd sem megi
rekja aftur í sögu þjóðarinnar.
„Portúgal var einræðisríki um
margra alda skeið og á áttunda
áratugnum óttuðust margir að
kommúnistar kæmust aftur til
valda,“ sagði Rosa. „Saga þjóðar-
innar gerir hana svartsýna.“
Það sem portúgalska ríkisstjórnin
hefur ekki hvað síst verið gagn-
rýnd fyrir er hve miklu fé var
varið í endurbætur og smíði á nýj-
um knattspyrnuvöllum. Kostnað-
ur við vellina sjö er um 333 millj-
ónir punda eða 43 milljarðar
króna. Stærsti völlurinn, Estadio
da Luz eða Leikvangur ljóssins,
var þeirra dýrastur og kostaði 79
milljónir punda en hann tekur 65
þúsund manns í sæti. Aðrir vellir
kostuðu minna, á bilinu 23–52
milljónir punda, og rúma 30–52
þúsund áhorfendur í sæti.
Portúgölsku vellirnir eru langt
í frá að vera með stærstu völlum í
heimi. Þeir þykja hins vegar flest-
ir vera listasmíð og hafa þrír af
þeim; Leikvangur ljóssins, Jose
Alvalade og Dragao, fengið fimm
Vonir manna standa til að EM verði innspýting í efnahagslíf Portúgals. Efasemdaraddirnar láta hátt. Ríkisstjórnin telur knattspyrnumótið
góða auglýsingu sem eigi eftir að skila sér.
Fimmtíu milljarða virði
DRAGAO
Þykir einn glæsilegasti knattspyrnuvöllur heims um þessar mundir.
ESTADIO DA LUZ
Leikvangur ljóssins var dýrastur vallanna sem notaðir eru á Evrópumótinu.