Fréttablaðið - 26.06.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 26.06.2004, Blaðsíða 22
Framtíðarhrollurinn Pitch Black frá árinu 2000 sló óvænt í gegn og gerði aðalleikarann Vin Diesel að efnilegustu hasarmyndastjörnu sem komið hafði fram á sjónar- sviðið frá því Bruce Willis drull- aði út hvíta hlýrabolinn sinn í Die Hard 1988. Diesel lék morðingj- ann Richard B. Riddick sem lenti í þeirri óvæntu aðstöðu að verða skyndilega eina von nokkurra strandaglópa á framandi plánetu. Hann keyrði töffið í botn og tókst að eigna sér Pitch Black og gera þessa frekar ódýru mynd að stökkpalli upp á stjörnuhimininn í Hollywood. Það er ekki hægt ann- að en að dást að honum fyrir þetta þar sem hann sagði ekki orð í fyrri helmingi myndarinnar og þegar hann þurfti að tjá sig með orðum gerði hann það með stutt- um og meitluðum setningum sem voru nákvæmlega í þeirri lengd sem Sylvester Stallone og Arnold Schwarzenegger ráða við að koma út úr sér skammlaust. Morðingi um borð Pitch Black sagði frá 40 manna hópi sem var að flytja búferlum frá jörðinni til framandi heima. Allt var þetta upp til hópa ágætis fólk ef frá er talinn spilltur geim- lögreglumaður sem var með fang- ann Riddick í eftirdragi. Löggan var á leið með Riddick í ævilangt fangelsi á einhverri fanganýlendu þannig að heldur betur hljóp á snærið hjá morð- ingjanum þegar skipið hrapaði á óþekktri eyðimerkurplánetu. Þrjár sólir skinu yfir stjörnunni þannig að þar ríkti eilífur, sjóð- andi heitur dagur. Þeir ferðalang- ar sem lifðu hrapið af voru þó svo óheppnir að á 22 ára fresti verður allsherjar sólmyrkvi og þá fara íbúar plánetunnar á kreik, risa- stórar fljúgandi blóðsugueðlur sem tæta allt kvikt í sig. Þegar skipbrotsfólkið fer að týna tölunni rennur upp fyrir því að morðinginn Riddick er sá eini sem getur mögulega hjálpað þeim að komast lífs af frá þessari for- dæmdu stjörnu. Riddick er ekki bara hugrakkur, úrræðagóður og nautsterkur heldur hefur hann látið breyta augum sínum með skurðaðgerð þannig að hann sér eins og köttur í myrkri. Þarna lendir þessi dæmigerða andhetja í kunnuglegum aðstæðum þegar hún hættir skyndilega að hugsa um sjálfa sig og axlar ábyrgð á meðbræðrum sínum. Allt kemur þó fyrir ekki og í lok Pitch Black er Riddick sá eini sem kemst brott á lífi. Flóttamaður og frelsari The Chronicles of Riddick, sem Sambíóin frumsýna um helgina, tekur upp þráðinn fimm árum eft- ir að Riddick flaug út í frelsið í Pitch Black. Hann hefur lítið breyst, hugsar enn fyrst og fremst um að halda frelsinu og líf- inu og lætur sig örlög annarra engu skipta svo lengi sem þeir hafa vit á því að halda sig í hæfi- legri fjarlægð frá honum. Þegar hér er komið sögu er ástandið í alheiminum frekar dap- urt þar sem herskár þjóðflokkur sem kallast Necromongers leggur undir sig hvert sólkerfið á fætur öðru að hætti Keisaraveldisins í Stjörnustríði; annað hvort gefast stjörnukerfin upp og lúta stjórn þeirra eða þeim verður eytt. Þeir fáu sem þora að standa uppi í hárinu á Nekró- möngurunum endast yfirleitt ekki lengi og von þeirra um að geta nokkurn tíma losnað undan oki vondu kallanna er nánast engin. Uppreisnarfólkið áttar sig á því að kannski stenst gamla ævin- týrið um sigur hins góða á hinu illa ekki og því er ákveðið að láta reyna á hið fornkveðna að með illu skuli illt út reka og Riddick er kallaður úr útlegð. Honum er auð- vitað nokk sama hverjir drottna yfir alheiminum ef hann er látinn í friði. Hann áttar sig þó smám saman á því að hann kemst ekki lengur upp með þetta viðhorf þar sem hann hefur mikilvægu hlut- verki að gegna í alheimssögunni. Riddick er nefnilega svolítið eins og Harry Potter, alveg sérstakur. Sagan ekki öll „Við leggjum áherslu á þróun persónunnar í Chronicles,“ segir Diesel. „Myndin fylgist með því, skref fyrir skref, hvernig hann öðlast skilning á mikilvægi sínu og tilgangi lífs síns. Þetta er þró- unarsaga andhetju sem gengur aftur til liðs við mannkynið.“ Hugmyndin að framhaldinu kviknaði hjá Diesel og leikstjór- anum David Twohy þegar þeir voru að leggja lokahönd á Pitch Black og þá ákváðu þeir strax að dýpka persónu Riddicks í fram- haldinu en hugmyndin er að gera eina mynd til viðbótar þannig að þegar upp verður staðið á saga Riddicks að vera þríleikur. thorarinn@frettabladid.is 22 26. júní 2004 LAUGARDAGUR RIDDICK Þessi einfari, flóttamaður og morð- ingi hefur farið huldu höfði síðan hann komst einn lífs af úr hryllings- myndinni Pitch Black árið 2000. Hann er nú mættur til leiks í risa- stórri framhaldsmynd, The Chron- icles of Riddick. Þar kemst hann að því að örlög alheimsins eru í hönd- um hans þannig að það þýðir ekkert að vera með stæla. And- hetjan verður að axla hetjuhlut- verkið og bjarga heiminum. Með illu skal illt út reka Pitch Black var frekar ódýr hryllingsmynd sem sló óvænt í gegn og gerði aðal- leikarann Vin Diesel að eftirsóttustu hasarmyndahetju kvikmyndanna. Hann er mættur aftur til leiks í hlutverki morðingjans Riddick sem þarf nú að bjarga alheiminum undan oki hins illa. 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.