Fréttablaðið - 27.06.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 26
Sjónvarp 32
SUNNUDAGUR
KA MÆTIR KR
KA mætir KR á heimavelli klukkan 16:00
í dag í áttundu umferð Landsbankadeild-
ar karla. KA er í sjöunda sæti deildarinnar
með sj-ö stig fyrir leikinn en KR vermir
fjórða sætið með ellefu stig.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
27. júní 2004 – 173. tölublað – 4. árgangur
Halldór Einarsson hefur starfrækt fatafyrirtækið Henson í
35 ár. Hann man tímana tvenna en fyrirtækið hefur sjaldan
gengið jafn vel.
ROFAR HELDUR TIL Í DAG Einkum
á Norður- og Norðausturlandi. Áfram all-
hvasst með suðurströndinni en lægir
síðdegis. Milt í veðri. Sjá síðu 6
AÐHALDSAÐGERÐIR HÍ Háskólaráð
samþykkti að veita fólki sem borgaði ekki
innritunargjöldin á réttum tíma ekki undan-
þágu, segir framkvæmdastjóri akademískrar
stjórnsýslu við Hí. Sjá síðu 4
SÆTTIR Leiðtogar Evrópusambandsins og
Bandaríkjanna náðu sáttum um að vinna
saman innan Atlantshafsbandalagsins að því
að veita Írökum hernaðaraðstoð. Sjá síðu 6
SKIPSTJÓRNARMENN Í ÚTRÝM-
INGARHÆTTU Sífellt fækkar í þeim
hópi Íslendinga sem hafa skipstjórnarrétt-
indi á kaupskipum enda að mestu leyti er-
lendar áhafnir starfandi á kaupskipum ís-
lenskra fyrirtækja. Sjá síðu 8
SÍÐA 16
▲
FORSETAKJÖR Þegar fyrstu tölur úr
forsetakosningum lágu fyrir í
gærkvöld var ljóst að Ólafur
Ragnar Grímsson yrði endur-
kjörinn forseti Íslands. Sam-
kvæmt þeim atkvæðum sem
talin höfðu verið þegar Frétta-
blaðið fór í prentun var Ólafur
Ragnar með um tvo þriðju
atkvæða, Baldur Ágústsson með
um tíu prósent og Ástþór
Magnússon rúmlega eitt prósent.
Um fimmtungur þeirra sem
mættu á kjörstað skilaði auðum
atkvæðaseðli en það er einsdæmi
í sögu kosninga á Íslandi.
Ólafur Ragnar sagði sigur
sinn afgerandi hvernig sem á það
væri litið. Hann sagði tilraunir
andstæðinga sinna til að bregða
fyrir sig fæti hafa mistekist og
að þjóðin bæri traust til forseta-
embættisins. „Ákveðin öfl úr
ákveðnu pólitísku litrófi hafa
beitt sér mjög gegn mér og hvatt
fólk til að skila auðu. Morgun-
blaðið hefur farið þar fremst í
flokki eins og forsíða blaðsins í
dag [í gær] ber með sér og það
hefur verið með látlausan áróður
gegn mér bæði í leiðurum og
greinum. Hlutfall auðra seðla í
þessum kosningum er lítil upp-
skera miðað við það sem á undan
hefur gengið,“ sagði Ólafur.
Af gildum atkvæðum var
Ólafur með yfir 85 prósenta
fylgi, Baldur með um tólf
prósent og Ástþór tvö prósent
miðað við fyrstu tölur.
„Ég fór í þessar kosningar
vegna þess að ég hafði ákveðna
hluti að segja. Ég vonaðist til að
þetta færi öðruvísi en það er
þjóðin sem ræður,“ segir Baldur
Ágústsson um úrslit kosning-
anna.
„Þetta er kannski eins og við
mátti búast,“ sagði Ástþór
Magnússon þegar fyrstu tölur
voru birtar. Hann segist munu
bjóða sig fram eftir fjögur ár og
ekki munu hugfallast þó að fylgi
hans sé minna en árið 1996.
Kjörsókn hefur aldrei verið
minni í forsetakosningum hér á
landi, en miðað við þær tölur sem
lágu fyrir um miðnætti var kjör-
sókn á landinu í heild í kringum
65 prósent. Talning gekk hægt í
Norðvestur- og Suðurkjördæmi
og var ekki búist við að endan-
legar tölur myndu liggja fyrir
fyrr en undir morgun.
Sjá nánar á síðu 2
Henson í 35 ár
Opið 13-17 í dag
▲
Stefnt er að því að höfuðborg Íslands hljóti
titilinn „hreinasta höfuðborg Evrópu“. En
hversu hrein er prinsessan Reykjavík?
Listamenn frá ýmsum
löndum kortleggja ís-
lenska menningu með
hjálp GPS-tækja.
Hreinasta
höfuðborg Evrópu
SÍÐA 18
Listsköpun
með GPS
▲
SÍÐA 22
Ólafur sigraði – fimmti
hver skilaði auðu
Ólafur Ragnar Grímsson endurkjörinn með um tveimur þriðju greiddra atkvæða. Rúmur
fimmtungur kjósenda skilaði auðu. Kjörsókn í forsetakosningum hefur aldrei verið minni.
EFTIR FYRSTU TÖLUR
Ólafur Ragnar Grímsson: „Ég vissi þegar ég ákvað að beita málskotsréttinum að það yrði umdeild ákvörðun og ýmsir áhrifaríkir aðilar
myndu beita sér gegn þeirri ákvörðun. Þessi úrslit sýna að þjóðin fór ekki á hvolf út af ákvörðun minni og er í ágætu andlegu jafnvægi
og ber traust til forsetaembættisins.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T