Fréttablaðið - 27.06.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.06.2004, Blaðsíða 2
FORSETAKJÖR „Ég er djúpt snortinn og þakklátur fyrir þennan mikla stuðning sem þessi úrslit fela í sér,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson um endurkjör sitt til emb- ættis forseta. Ólafur Ragnar segir að ef miðað sé við þá sem tóku afstöðu séu úrslitin það af- gerandi „að fáir þjóðhöfð- ingjar í lýðræðisríkjum geta látið sig dreyma um slíkan stuðning,“ Hann tel- ur að jafnvel þótt auðu seðl- arnir séu teknir með í reikninginn sé stuðningur- inn meiri en hann átti von á. „Ákveðin öfl úr ákveðnu pólitísku litrófi hafa beitt sér mjög gegn mér og hvatt fólk til að skila auðu. Morg- unblaðið hefur farið þar fremst í flokki eins og for- síða blaðsins í dag [í gær] ber með sér og það hefur verið með látlausan áróður gegn mér bæði í leiðurum og greinum. Hlutfall auðra seðla í þessum kosningum er lítil uppskera miðað við það sem á undan hefur gengið og miðað við stærstu stjórnmálaflokka landsins.“ Ólafur Ragnar telur þó ekki að kosningarnar hafi verið pólitískar nema að litlu leyti og segist enn líta á sig og forsetaembættið sem sameiningartákn. „Það að vera sameiningartákn hefur aldrei falið í sér að allir væru alltaf sáttir við forset- ann og störf hans. Það er ósköp eðlilegt því forsetinn á ekki að vera helgimynd.“ Kosningaþátttaka var mjög dræm en Ólafur segir að það hafi mátt búast við því ef miðað sé við kosningarn- ar 1988 og þróun kjörsóknar bæði hér á landi og erlendis. „Ég held að kannanir sem áttu að benda til annars hafi verið mistúlkaðar.“ Ólafur segir að ef ein- hverja ályktun sé hægt að draga af þessum kosningum sé það að ákvörðun hans að neita að skrifa undir fjöl- miðlalögin hafi ekki valdið því írafári sem haldið hafi verið fram. „Ég vissi þegar ég ákvað að beita málskots- réttinum að það yrði um- deild ákvörðun og ýmsir áhrifaríkir aðilar myndu beita sér gegn þeirri ákvörðun. Þessi úrslit sýna að þjóðin fór ekki á hvolf út af ákvörðun minni og er í ágætu andlegu jafnvægi og ber traust til forsetaemb- ættisins.“ bergsteinn@frettabladid.is 2 27. júní 2004 SUNNUDAGUR FORSETAKJÖR „Ég fór í þessar kosningar vegna þess að ég hafði ákveðna hluti að segja. Ég vonað- ist til að þetta færi öðru- vísi en það er þjóðin sem ræður,“ segir Baldur Ágústsson um úrslit kosninganna. Hann telur fjölda auðra seðla og minnkandi kjörsókn vera til marks um að mörgum hafi ekki hugnast neinn frambjóð- endanna og það sé viðvör- unarmerki. „Minnkandi kjörsókn þarf líka að taka til skoðunar vegna þess að ef menn vilja ekki nota lýðræðislegan rétt sinn, þá einfaldlega týna þeir honum. Menn verða að mæta og taka afstöðu.“ Baldur hefur ekki ákveðið hvað taki nú við að öðru leyti en að hann muni dvelja um skeið á Íslandi áður en hann held- ur til Englands, þar sem hann á heimili. ■ Hrærður yfir stuðningnum Ólafur Ragnar segir sigur sinn afgerandi hvernig sem á það sé litið. Hann segir tilraunir andstæðinga sinna til að bregða fyrir sig fæti hafa mistekist og þjóðina bera traust til forsetaembættisins. FORSETAKJÖR „Þetta er kannski eins og við mátti búast,“ sagði Ástþór Magn- ússon þegar fyrstu tölur voru birtar í gærkvöld. Að mati hans voru úrslit á borð við þau sem fyrstu tölur gáfu til kynna afleið- ing ómálefnalegrar um- fjöllunar fjölmiðla lengst framan af. Ástþór telur að Ólafur Ragnar hafi hlotið góða kosningu þrátt fyrir litla kjörsókn og hátt hlut- fall auðra seðla. „Þegar einn einstaklingur virðist eiga sigurinn vísan mæta færri til að kjósa. Auðir seðlar þýða hins vegar ekki neitt. Það er engin afstaða fólgin í þeim, það stendur ekkert á þeim.“ Ástþór segist munu bjóða sig fram eftir fjögur ár og ekki láta hugfallast þó að fylgi hans sé minna en árið 1996. „Ég er með meira fylgi en Kristur hafði á sínum tíma og læt þessa krossfestingu ekki stöðva mig.“ ■ „Ég íhugaði þegar ég sá þá saman í settinu að bjóða mig fram næst. Mér finnst þetta gott djobb fyrir eldri konu. Undirskriftir sendist í venjuleg- um pósti, þarf að vera frímerkt, ég ætla ekki að borga póstkostnaðinn.“ Auður Haralds rithöfundur var ekki í framboði til forseta nú en samt voru næstflestir kjörseðlar lesnir upp í hennar nafni. SPURNING DAGSINS Auður, ertu sigurvegari kosninganna? Talning atkvæða: Þyrlan sótti kjörkassa FORSETAKJÖR Landhelgisgæslan kom yfirkjörstjórn Suðurkjör- dæmis til hjálpar við að flytja at- kvæði frá Vestmannaeyjum á talningarstað á Selfossi. Veður kom að mestu í veg fyrir flug en þyrla Landhelgisgæslunnar komst þangað sem aðrar flugvél- ar komust ekki og sótti kjörseðla til talningar. Víða var um langan veg að fara með atkvæðaseðla. Norðvestur- kjördæmi er mjög seinfarið og um ellefuleytið var ekki búið að telja nema um 500 atkvæði. Þá átti eftir að koma flestum atkvæð- um á kjörstað því engu var safnað upp fyrr um daginn. Þá var langar leiðir að fara í Suðurkjördæmi. Lengst var leiðin frá Höfn á Hornafirði, fjögurra klukkutíma ferðalag á Selfoss. ■ Hannes Hólmsteinn Gissurarson: Ekki forseti þjóðarinnar FORSETAKJÖR „Aðalatriðið er það að samkvæmt þessum tölum er Ólaf- ur Ragnar Grímsson með minni- hluta atkvæðis- bærra manna á bak við sig. Hann er því ekki forseti þ j ó ð a r i n n a r, heldur forseti vinstrimanna,“ sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófess- or í stjórnmálafræði, um úrslit forsetakosninganna. Hann sagði að bera þyrfti útkomuna saman við niðurstöðu forsetakjörs árið 1988 þegar Vigdís Finnbogadóttir fékk 92% atkvæða. „Ég tel þetta mikinn ósigur fyrir Ólaf Ragnar,“ sagði Hannes. ■ ÁSTÞÓR MAGNÚSSON Ætlar að bjóða sig fram eftir fjögur ár. Ástþór Magnússon: Ómálefnalegri um- fjöllun um að kenna FORSETINN GREIÐIR ATKVÆÐI Ólafur segir Morgunblaðið hafa farið fremst í flokki í pólitískri aðför að sér. Kjörsókn í sögulegu lágmarki: Í samræmi við almenna þróun FORSETAKJÖR „Þetta er mun minni kjörsókn en skoðanakannanir bentu til og í ljósi þess hvernig umræðan hefur verið síðustu vikur,“ segir Þórólfur Þórlinds- son, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. „Hins vegar var kosningabaráttan ekki spennandi og það letur fólk til að mæta á kjörstað. Ef við lítum til forsetakosninganna árið 1988, þegar síðast var boðið fram gegn sitjandi forseta, og setjum kjörsóknina þá í sam- hengi við þróunina í nágranna- löndunum, þar sem sem kjör- sókn fer almennt minnkandi, eru þessar niðurstöður í ágætu samræmi við það.“ ■ Baldur Ágústsson: Léleg kjörsókn viðvörunarmerki BALDUR ÁGÚSTSSON Segir vandamálin sem hann hefur bent á ekki hverfa af sjálfu sér. Fjögur sveitarfélög á Austfjörðum: Sameining var felld KOSNING Sameining fjögurra sveitarfélaga á Austfjörðum var felld í atkvæðagreiðslu í gær. Sameiningin var reyndar samþykkt í þremur stærstu sveitarfélögunum sem stóð til að sameina, Austur-Héraði, Fellahreppi og Norður-Héraði. Hún var hins vegar felld í minnsta sveitarfélaginu, Fljóts- dal. Mestur var stuðningur við sameiningu í stærsta sveitarfé- laginu, Austur-Héraði, en þar greiddu 84 prósent atkvæði með sameiningu. Í Fljótsdal voru hins vegar rúm 60 prósent and- víg sameiningu. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Sveitarstjóri Hríseyjarhrepps: Sameining bætir stöðu Hríseyjar SAMEINING Yfirgnæfandi meiri- hluti Hríseyinga samþykkti sameiningu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar í at- kvæðagreiðslu sem fram fór samhliða forsetakosningunum í gær. 116 samþykktu sameining- una en 8 voru á móti. Kosninga- þátttaka í Hrísey var 93%. „Við erum mjög sáttir við þessa nið- urstöðu. Ég á von á að staða Hríseyjar batni við sameining- una,“ segir Ragnar Jörundsson, sveitarstjóri í Hríseyjarhreppi. Ragnar óttast ekki að hags- munir Hríseyinga verði hafðir að litlu eftir sameiningu. „Ný bæjarstjórn verður kjörin eftir tvö ár. Fram að þeim tíma mun hreppsnefnd Hríseyjar starfa sem samráðsnefnd Akureyrar- kaupstaðar. Það gefst því aðlög- unartími til að koma helstu for- gangsmálum Hríseyjar í fagnefndir Akureyrarkaupstað- ar, sem á að tryggja okkar hags- muni.“ Á sínum tíma kom til greina að sameina Hríseyjarhrepp og Dalvík en úr því varð ekki. Ragnar segir Akureyrarkaup- stað mun fýsilegri kost til sam- einingar. „Fólk sem fer á land héðan fer flest til Akureyrar enda er mun meira þangað að sækja. Auk þess eru íbúar í Hrísey á þeirri skoðun að sam- eina eigi öll byggðarlög í Eyja- firði í eitt sveitarfélag og líta á þetta sem skref í þá átt. Ég held að þetta sé að verða þróunin, að minni sveitarfélög sameinist. Það er markmið stjórnvalda að fækka og menn fara eftir þeirri stefnu, annars fer bara allt í vit- leysu.“ ■ FRÁ HRÍSEY Forgangsmálum Hríseyjar verður komið í fagnefndir á næstu tveimur árum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.