Fréttablaðið - 27.06.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 27.06.2004, Blaðsíða 8
8 27. júní 2004 SUNNUDAGUR Blóðtökustöð LSH flutt í stærra húsnæði: Blóðtökustólum fjölgað um helming HEILBRIGÐISMÁL Blóðtökustöð rann- sóknarstofu í klínískri lífefnafræði á göngudeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss var í gær flutt í stærra húsnæði. Stöðin fór úr um það bil 20 fermetra herbergi á jarðhæð við Hringbraut í helmingi stærra rými, rétt við hliðina, með sérherbergi til móttöku og innsláttar á beiðnum. Áætlað er að í blóðtökuherbergj- um verði fjórir blóðtökustólar í stað tveggja áður. Starfsemi stöðvarinn- ar hefur farið sívaxandi síðastliðin ár. Heildarfjöldi sjúklinga sem komu á stöðina árið 2003 var 35.503 en það var 19,2% aukning frá árinu 2002. Enn mun sjúklingum sem koma á deildina fjölga því að á fyrsta ársfjórðungi þessa árs varð aukning um 15,8% miðað við fyrsta árfjórðung síðasta árs. Blóðtökustöðin annast blóðtökur fyrir klíníska lífefnafræðideild og aðrar rannsóknarstofur. Hún hefur einnig komið að ýmsum vísindaleg- um sérverkefnum. Þannig gegnir hún mikilvægu og fjölþættu hlut- verki fyrir sjúkrahúsið og því var orðin brýn þörf á stærra og hent- ugra húsnæði. ■ Skipstjórnarmenn í útrýmingarhættu Sífellt fækkar í þeim hópi Íslendinga sem hafa skipstjórnarréttindi á kaup- skipum enda að mestu leyti erlendar áhafnir starfandi á kaupskipum ís- lenskra fyrirtækja. Engin endurnýjun á sér stað innan Stýrimannaskólans. ATVINNUMÁL „Þetta er grafalvar- legt og óhætt að ganga svo langt að segja að of seint sé að bjarga nokkru héðan af,“ segir Guðjón Petersen hjá félagi skipstjórn- armanna. Í óefni stefnir meðal þeirra þar sem engin nýliðun á sér stað í stéttinni og erlendum skipstjórnarmönnum fjölgar jafnt og þétt á kostnað þeirra ís- lensku. Er það afleiðing þess hve mikið íslensk fyrirtæki nota flutningaskip með hentifánum en jafnan er gerð krafa leigu- sala þeirra að meirihluti áhafn- arinnar sé erlend. Hér á landi eru engar reglu- gerðir til að sporna við slíkum kröfum þrátt fyrir að allar ná- grannaþjóðir Íslands, nú síðast Færeyingar, hafi sett reglur sem takmarka fjölda erlendra áhafnarmeðlima á kaupskipum sem starfa í við- komandi löndum. Ítrekað hafa s k i p s t j ó r n a r - menn farið á fund Sturlu B ö ð v a r s s o n a r s a m g ö n g u r á ð - herra vegna þessa en erindi þeirra tekið fá- lega. Guðjón segir ekki heiglum hent að fá upp- lýsingar um hvað Sturla hyggist fyrir í þessu máli. „Fjármálaráðherra hefur tekið vel í málaleitan okkar en segir að ákvörðunin verði að koma frá samgönguráðherra og þaðan hafa engin svör komið þrátt fyrir að ráðherra hafi haft þetta á borði sínu í tvö ár. Það sem er blóðugast við þetta allt saman er að árum saman börð- ust Íslendingar fyrir að hafa siglingar í eigin höndum en nú er sú barátta að mestu töpuð enda verða fáir ef einhverjir lærðir skipstjórnarmenn eftir í landinu að 20 árum liðnum.“ Stýrimannaskólinn í Reykja- vík hefur menntað skipstjórnar- menn sem aðra í gegnum tíðina en afar lítill áhugi hefur verið á náminu undanfarin ár þrátt fyrir að reglur um inngöngu hafi verið rýmkaðar til muna. Guðjón telur að það sé beinlínis afleiðing hentifánastefnu kaup- skipaútgerða hér á landi og nei- kvæðs umtals vegna þeirra í fjölmiðlum. Litlar sem engar upplýsingar fengust þegar eftir því var leit- að í samgönguráðuneytinu. Þar eru flestir sem vettlingi geta valdið á ferð um Grænland en aðstoðarmaður ráðherra sagði að skoða þyrfti málefni skip- stjórnarmanna áður en hægt væri að svara fyrirspurnum fjölmiðla. albert@frettabladid.is Dómsmálaráðherra: Saddam skal líflátinn SÁDI-ARABÍA, AP Írakar verða ekki öruggir fyrr en Saddam Hussein hefur verið hálshöggvinn, sagði Malik Dohan al-Hassan, dóms- málaráðherra í bráðabirgða- stjórn Íraks. Al-Hassan sagði bráðabirgða- stjórnina reiðubúna til að rétta yfir Saddam. Stjórnin gæti einnig ógilt tilskipun hernáms- stjórnarinnar sem kveður á um að óheimilt sé að beita dauða- refsingu. „Saddam, í samræmi við framferði hans og glæpi, ætti að taka af lífi,“ sagði al-Hassan. ■ SMYGLARAR LÍFLÁTNIR Ellefu fíkniefnasmyglarar voru teknir af lífi í Kína í gær og tugir dæmdir til dauða fyrir svipuð af- brot en dagurinn í dag er tileink- aður baráttunni gegn fíkniefnum. Þá kveiktu embættismenn í hálfu tonni af ólöglegum fíkniefnum sem höfðu verið gerð upptæk. MANNFALL Í ÚRHELLI Miklar rigningar í Kína hafa leitt til flóða og aurskriða sem hafa orðið 24 að bana síðustu daga. Í Hunan- héraði þurfti að flytja 121.000 manns á brott vegna hættunnar sem veðrið olli. TÓLF MYRTIR Tólf manns voru skotnir til bana á heimilum sínum þegar vopnaðir menn réðust á þorp í indverska hluta Kasmír. Meðal þeirra sem voru myrt í árásinni var þriggja ára stúlka en flestir voru lögreglumenn. Talið er að árásarmennirnir séu ís- lamskir uppreisnarmenn. ,,Sú bar- átta er að mestu töp- uð enda verða fáir ef einhverj- ir lærðir skipstjórn- armenn eft- ir í landinu að 20 árum liðnum. SVONA ERUM VIÐ TÍMABUNDINN HÚSNÆÐISSKORTUR Kínverskir verkamenn við Kárahnjúka fá betri herbergi um leið og nýjar búðir rísa næstu tvo mánuði. Talsmaður Impregilo: Kínverjarnir ekkert að springa ATVINNUMÁL „Það er afar óheppi- legt að svona skuli vera ástatt fyrir þessum tæplega 50 kín- versku starfsmönnum en þeir eru sáttir og ekkert að springa,“ segir Ómar R. Valdimarsson, talsmaður ítalska verktakans Impregilo. Í Fréttablaðinu var skýrt frá því að þeir verða að sætta sig við mun minni herbergi en aðrir starfs- menn á svæðinu og deila þeim í þokkabót. Ómar segir að ástæðan sé sú að verkið gangi betur en ráð var fyrir gert og því séu ekki komnar upp búðir sem reisa á næstu tvo mánuði og áttu að hýsa Kínverjana. „Þetta er tímabundið ástand sem lagast innan tíðar.“ ■ DÝRALÍF „Ég hef grun um að mink- urinn hafi átt fasanaveislu,“ sagði Skúli Björnsson, aðstoðarskóga- vörður í Hallormsstaðarskógi, um fasanana fjóra sem sleppt var í skóginn á sínum tíma. Til þeirra hefur ekkert sést lengi og eru þeir nú taldir af. „Þeir gætu líka hafa drepist úr leiðindum, því þetta voru bara karlfuglar sem sleppt var,“ sagði aðstoðarskógarvörðurinn, sem taldi það allt eins líklegt og fyrr- nefnda kostinn. Líffræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun sagði við Frétta- blaðið í vikunni að til viðbótar við þessa fjóra hefðu menn trúlega annað hvort sleppt eða misst út fasana á fleiri stöðum, því þeir hefðu sést á að minnsta kosti tveimur stöðum þar sem þeir ættu ekki vera. Annars vegar hefðu þeir sést innarlega í Fljótsdal og hins vegar úti í Jökulsárhlíð. Síð- an væru sögusagnir um að þeir hefðu sést á tilteknum stað í öðrum landshluta, en það hefði ekki fengist staðfest. Skúli sagði að fasanar lifðu í greni og furu, því þeir væru eins og hænur. Þeir vildu sofa uppi á priki. Á þessum svæðum væri engu slíku til að dreifa, þannig að þarna væri þá um flækinga að ræða. ■ SS-MAÐUR LAUS MÁLA Friedrich Engel, 95 ára fyrrum foringi í SS- sveitum nasista, þarf ekki að sitja af sér fangelsisdóm fyrir að stjórna fjöldamorðum í Genúa á Ítalíu á árum síðari heimsstyrj- aldar. Dómstóll vísaði málinu frá vegna þess hversu seint það væri tilkomið og þar sem aldur Engels kæmi í veg fyrir ný réttarhöld. MYRTUR FYRIR 140 KRÓNUR Rúmlega fertugur heimilislaus maður var stunginn til bana í Prag, höfuðborg Tékklands, eftir rifrildi við félaga sinn um 50 kor- una seðil, andvirði um 140 króna. Meintur morðingi var handtekinn nokkru síðar þegar hann varð uppvís að því að stela súkkulaði úr búð. 90 PRÓSENT TILBÚNIR Grikkir eru níutíu prósent tilbúnir til að tryggja öryggi almennings með- an á Ólympíuleikunum stendur í ágúst, að sögn Giorgos Voulgar- akis, ráðherrans sem ber ábyrgð á öryggisvörslu. Um 200 öryggis- æfingar hafa þegar farið fram og þar verið æfð viðbrögð, meðal annars við gíslatöku og eitur- vopnaárás. UPPLÝSINGATÆKNIBÚNAÐUR Á HEIMILUM EFTIR BÚSETU 2004 Alls Hbsv. Landsb. Farsími 96% 97% 95% Nettenging 81% 82% 77% Tölva 86% 87% 83% Heimild: Hagstofa Íslands BLÓÐTÖKUSTÖÐ Þær voru glaðbeittar, stúlkurnar í blóðtök- unni á LSH, þegar þær hófu störf í stærra húsnæði. HURFU SPORLAUST Fjórir karlfasanar hurfu sporlaust úr Hallormsstaðarskógi. Grunur leikur á að minkar hafi gert sér veislu eða fuglarnir hafi hreinlega drepist úr leiðindum. Karlfuglarnir í Hallormsstaðarskógi horfnir: Minkar í fasanaveislu SKIPSTJÓRNARMENN SEM TALA ÍSLENSKU AÐ DAGA UPPI Í algjört óefni stefnir þar sem Íslendingar með menntun í skipsstjórn eru innan við 70 talsins og meðaldurinn er hár. Innan 20 ára verða engir eftir með þessu áframhaldi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA ■ ASÍA ÖLVUNARAKSTUR Tveir voru stöðvaðir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á Patreks- firði aðfaranótt laugardags og eiga þeir von á sekt. UMFERÐARBROT Tíu voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri aðfara- nótt laugardags. Einnig var einn tekinn fyrir að tala í síma á meðan á akstri stóð og fjórir fyrir að vera ekki með bílbelti. ■ EVRÓPA ■ LÖGREGLUFRÉTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.