Fréttablaðið - 27.06.2004, Side 9
9SUNNUDAGUR 27. júní 2004
Hjá okkur færðu lán til að
...kaupa íbúðina
...setja glerskála á svalirnar
...gera við húsnæðið
...eignast sumarhúsið
...fá nýja draumabílinn
...ferðast um heillandi lönd
...kaupa nýju uppþvottavélina
...skipta um sófasettið
og til að gera svo ótal margt fleira
Ráðgjöf og einstaklingsbundin þjónusta fylgir þér alla leið.
SPV - Borgartúni 18 • Hraunbæ 119 • Sí›umúla 1 • fijónustuver, sími 5754100
Þú ert stærri hjá okkur
Má bjóða
þér lán?
Taktu lán þar sem tekið er vel á móti þér.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
SP
V
2
50
02
06
/2
00
4
Tryggingastofnun:
Reglur
breytast um
foreldraorlof
FÉLAGSMÁL Hámark mánaðarlegr-
ar greiðslu fæðingarorlofssjóðs
verður 480 þúsund krónur strax á
næsta ári þegar breytingar á lög-
um um foreldraorlof taka gildi.
Reglurnar verða hertar frá því
sem nú er en helstar verða aðrar
breytingar að greiðslur verða
samkeyrðar við skattkerfið og
Tryggingastofnun fær heimild til
að leiðrétta greiðslur til samræm-
is við álagningu skattayfirvalda
hafi orðið breytingar á högum for-
eldra í orlofi. ■
EFNAHAGSMÁL Reikna má með að
raunverð olíu muni hækka þegar
til lengri tíma er litið og því yrðu
allar aðgerðir íslenskra stjórn-
valda, þar með taldar tilraunir til
deyfingar olíuverðs, að líkindum
skammgóður vermir. Þetta kemur
fram í vefriti fjármálaráðuneytis-
ins þar sem gerð er úttekt á olíu-
markaðinum og er niðurstaðan sú
að ekki sé ástæða til að grípa til
aðgerða þó að miklar hækkanir
hérlendis hafi talsverð áhrif á at-
vinnugreinar eins og sjávarútveg
og flugsamgöngur. Fjórðungur
þeirrar orku sem landinn notar er
olía – og skip og flugvélar hafa
enga aðra valkosti um eldsneyti.
Bent er á þá staðreynd að olíu-
verð hefur áður verið hærra í
skamman tíma en það gerist nú og
að almennar hækkanir þýði yfir-
leitt að almenningur og iðnaður
reyna enn frekar að fara sparlega
með. Það hefur svo aftur þau áhrif
að losun gróðurhúsalofttegunda
minnkar þannig að hátt olíuverð
er jákvætt í því tilliti. ■
BILL CLINTON
Monica Lewinsky segir hann hafa logið til
um samband þeirra.
Monica Lewinsky:
Ekki sátt við
Clinton
BANDARÍKIN Flest það sem Bill
Clinton, fyrrum forseti Banda-
ríkjanna, segir um samband sitt
við fyrrum lærlinginn Monicu
Lewinsky í nýútkominni ævisögu
sinni er lygi. Það segir Lewinsky í
það minnsta og er ósátt við að
hann hafi ekki komið staðreynd-
um á hreint og bætt þannig fyrir
skaðann sem sambandið olli
henni.
„Hann hefði getað bætt fyrir
þetta í bókinni en það hefur hann
ekki gert. Hann hefur endurskrif-
að söguna. Hann hefur logið,“
sagði Lewinsky í viðtali við
breska dagblaðið Daily Mail. Hún
segir sambandið ekki hafa snúist
bara um kynlíf og að þau hafi
bæði átt frumkvæði að því, ekki
bara hún. ■
Gestir til Bandaríkjanna:
Tekin verða
fingraför
ÖRYGGISMÁL Bandaríska sendiráðið
í Reykjavík mun taka fingraför af
öllum Íslendingum sem sækja um
vegabréfsáritanir vegna heim-
sókna til Bandaríkjanna frá og
með 28. júní næstkomandi.
Fingraför verða ekki tekin af
þeim sem heimsækja Bandaríkin
90 daga eða skemur án vegabréfs-
áritunar, en ekki hefur verið
ákveðið hvort það verði gert frá
og með 30. september næstkom-
andi. Sendiráð og ræðismanna-
skrifstofur um allan heim taka nú
við búnaði til að skrá niður
fingraför gesta til Bandaríkjanna.
Gögnunum er safnað saman til að
framfylgja innflytjendalögum
Bandaríkjanna. ■
RÁÐIST Á KOSNINGASTARFS-
MENN Tvær afganskar konur
biðu bana og þrettán manns
særðust þegar sprengja var
sprengd í rútu sem flutti kosn-
ingastarfsmenn á milli staða í
austurhluta Afganistans. Fjöldi
árása hefur verið gerður á þá
sem undirbúa kosningar í landinu
en þessi er sú blóðugasta.
OLÍUBIRGÐASTÖÐVAR Í ÖRFIRISEY
Íslenskt efnahagslíf er afar næmt fyrir
öllum hækkunum sem verða á olíu á
erlendum mörkuðum.
Fjármálaráðuneytið:
Inngrip í olíuverðið árangurslítið
■ ASÍA