Fréttablaðið - 27.06.2004, Page 15
SUNNUDAGUR 27. júní 2004
þar sem hann hugðist setja á fót
fataverksmiðju sem því miður
tókst ekki.
„Ég tók ákveðna áhættu með
því að fara til Úkraínu. Það gat
enginn séð fyrir að það færi óða-
verðbólga af stað þar. Það var
miklu hærri verðbólga en við
höfðum kynnst, hér fór hún í
120% en úti fór hún í 1.000%.“
Halldór var meira og minna úti
næstu ár en kom heim árið 1995. Þá
fékk hann þá flugu í höfuðið að
stofna netfyrirtæki á Englandi.
„Það má eiginlega segja að fókusinn
hafi skekkst allhressilega í langan
tíma,“ segir Halldór þegar hann
rifjar upp þennan tíma. „En allan
tímann var ég sannfærður um að
það væri markaður fyrir fyrirtæki
eins og Henson. Það var í raun bara
spurning hvenær tækifærið kæmi.“
Fékk áhugann á ný
Þegar Halldór kom til baka frá
Englandi stóð hann á núllinu og
hafði ekkert fjármagn bak við sig.
Fjölskyldan hafði haldið fyrirtæk-
inu gangandi og síðsumars árið
2001 kom stóra tækifærið. „Þá
komst gamall sportfatnaður í
tísku og leiðandi fyrirtæki eins og
tískuvöruverslunin 17 hafði trú á
fatnaðinum. Ég var alltaf viss um
að tækifærið kæmi en það var
bara spurning hvenær og hvern-
ig,“ segir Halldór, sem nýtti tæki-
færið svo sannarlega vel.
„Ég hef ánægju af framleiðsl-
unni og þegar það fer saman með
góðu starfsfólki og góðum innkaup-
um á hráefnum getur þetta gengið.
Starfsfólkið er lykilatriði í þessu
öllu. Núna er ég að upplifa það að
vera kominn með áhugann aftur.
Það skiptir líka máli að sá sem stýr-
ir skútunni missi ekki móðinn. Ég
hélt satt að segja að ég væri að
hverfa út úr þessu því það voru
aðrir hlutir sem fönguðu hugann.“
Henson í tísku
Halldór hefur fært út kvíarnar
og framleiðir nú föt af öllu tagi sem
og fótbolta. „Nú getum við þjón-
ustað mun fleiri aðila en áður. Nú er
þetta heljarinnar framleiðsla og
það er brjálað að gera. Nú horfi ég
gjörólíkum augum á fyrirtækið.
Mér finnst þetta mjög skemmtilegt
og það skýtur stoðum undir fram-
leiðsluna. Við erum að framleiða
fyrir hin ýmsu fyrirtæki, fyrir
tískubransann og svo mætti lengi
telja,“ segir Halldór og bætir við að
það sé mun auðveldara að selja
vöru sem er viðurkennd í tísku-
heiminum. „Það er mjög mikils
virði þegar fólk segir að Henson sé
í tísku. Tískubransinn og poppheim-
urinn er miklu sterkara sölutæki en
knattspyrnan nokkur tímann.“
Halldór hefur ekki útilokað
vaxtamöguleika fyrirtækisins og
byrjaði í sumar að selja Henson
strigaskó. „Þessi framleiðsla
styrkir ágætlega ímyndina. Síðan
sé ég fyrirtækið þróast og við
höldum áfram að styrkja okkur í
sessi. Við vorum til dæmis að
kaupa nýjar vélar sem hvarflaði
ekki að mér fyrir tveimur árum,“
segir Halldór í Henson sem horfir
björtum augum til framtíðar.
kristjan@frettabladid.is